|
|
Fréttir í September 2008
|
Haustið komið og sumarið búið...
01.09.2008 01:31 - Benjamín skrifar
Manni finnst allavega að svoleiðis hljóti það að vera. Það er nú búið að vera svakalega haustlegt veður en í dag og í gær er reyndar búið að vera ágætisveður sem gefur manni smá vonarglætu um að sumarið sé nú ekki alveg búið.
Það eru mjög blendnar tilfinningar í gangi á heimilinu, allaveganna hjá mér. Ég tók þá ákvörðun að fara að vinna við 100% kennslu, og er byrjunardagurinn 15. september. Það vildi svo til að ég sá auglýsta samfélags- og náttúrufræðikennslu frá 15. sept - 15. des, sem mér fannst bara frábært þá væri ég ekki bundin lengur en í 3 mánuði ef mér líkaði það ekki. Reyndar í viðtalinu kom svo í ljós að það er í raun til 15. janúar, en það er bara fínt, vinn í nokkra daga og fæ JÓLAFRÍIÐ BORGAÐ :) Svo sagði skólastjórinn reyndar að ég gæti fengið vinnu eftir það ef áhugi væri fyrir því...Já, sumsé, þetta fannst mér æðisleg tilhugsun og tók bara starfinu á staðnum, guðmundur óli ætlar að vera í fæðingarorlofi í 2 mánuði til 15. nóvember. Svo ætlaði nú tengdamamma að hafa gríslinginn eftir það til 15. desember. En þar sem þetta eru orðnir tveir aukamánuðir og vinnan frekar langt frá miðbænum fór ég nú á stúfana og þar er dagmamma við hliðina á skólanum sem verður að öllum líkindum með laust pláss 1. nóvember...en men ó men...ótrúlega sorglegt að fá ekki niðurgreiðslu frá borginni, trúi því varla að ég sé að fara að vinna fyrir borgina, en ætli maður verði ekki að sætta sig við þetta í tvo mánuði :s Anyway...NÚNA veit ég ekki alveg hvað mér á að finnast um þetta. Ég hlakka mikið til að fara að vinna en mig langar líka að vera heima með ótrúlega litla og fallega barninu mínu sem verður nú bara rétt að verða 5 mánaða...það segja margir "jah ég gat nú bara verið heima í 3 mánuði" og aðrir segja "ég átti ekki þessi börn til að fara að vinna frá þeim" En ég held að stingurinn úr maganum á mér eigi vonandi eftir að hverfa þegar ég er byrjuð að vinna, þegar ég hugsa um þetta núna þá finnst mér eins og ég sé bara að fara í burtu í 4 mánuði og eigi ekkert eftir að sjá drengina mína á þeim tíma :)...en þetta virkar víst ekki þannig!!!
Öll fjölskyldan er nú búin að liggja í einhverri HELVÍTIS pest. Vöknuðum á þriðjudagsmorguninn síðasta og enginn gat almennilega andað NEMA ÉG...ég var svo ánægð með það, svo slappaðist ég og slappaðist eftir því sem leið á miðvikudaginn og á fimmtudeginum gat ég varla risið upp úr rúmi. Það eru því allir heldur þungir í hausnum ennþá því auðvita er alltaf farið alltof snemma af stað og því eru kannski ekki nema u.þ.b. 6% af heilanum í gangi og því óskaplega erfitt að reyna að skrifa eitthvað áhugavert og skemmtilegt og því ætla ég bara að hætta hér og því verður þessi færsla ekki lengri!!
Skoða tjaningar.
(4 hafa tjáð sig, síðast amma gerða)
|
| |