Forsíða
Um okkur
Eldra efni


Vinir og ættingjar
Ari Gabríel
Birkir Örn
Burknavallakrúttin
Bína
Dagur og tvillarnir
Karen Hrund
Kjartan og Lovísa
Magnús Orri
Patrik og Ísabella
Sigga Hulda
Silja
Tvíburamamman
Fréttir í September 2007

Góðir dagar
28.09.2007 06:12 - Benjamín skrifar
Nú er aldeilis skemmtilegt hjá mér þessa dagana, Víðir Óli og Teresa eru hjá okkur á meðan Amma Gerða og Billa (og amma Lolla og amma Billa) eru úti í Danmörku að skemmta sér. Þau verða hjá okkur alveg fram á sunnudag! Við Teresa erum svo góðir vinir og Víðir Óli duglegur að passa og leika við okkur litlu frændsystkinin. Teresa fékk að sofa í mínu rúmi og ég á dýnu á gólfinu við hliðina á rúminu, þetta var svo mikið sport að það var mjög erfitt að fara að sofa í gærkvöldi...en það hafðist á endanum eftir nokkur ferðalög okkar frændsystkinana fram í stofu. Pabbi varð eitthvað brúnaþungur og eftir það þorði Teresa ekki fyrir sitt litla líf að hreyfa sig úr rúminu, ég gerði eina tilraun í viðbót við lítinn fögnuð en ákvað svo bara að vera góður strákur og fara að sofa. Í morgun fórum við svo bara að leika okkur og erum bara ennþá að leika okkur, sitjum á dýnunni minni og lesum bækur fyrir hvort annað, muuuu-um og meeee-um sitt á hvað...greinilega dýrabækur:)
"Núna bókin búin, lesa annan bók" heyrðist rétt í þessu.

Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast Lilja aftur)


Álög?
11.09.2007 20:38 - Hjördís skrifar
Skyldu vera álög á síðunni? Maður er ekki fyrr búinn að setja inn eina færslu þá fær prinsinn 39,5 gráðu hita....:(, við vorum send heim af leikskólanum í hádeginu í dag þar sem stubburinn var búinn að væla allan morguninn og var svo mældur með þennan hita, ekki skemmtilegt það. Hann er búinn að lifa á stílum síðan en hitinn virðist ekkert vera að fara og hann er búinn að liggja undir sæng í allan dag...hvenær hefur það nú gerst áður...hmmm...ALDREI? Hann er EKKERT búinn að leika. Anyway, ég skellti mér í klippingu í tilefni dagsins og er nú með gráöskulitt hár með silfurþráðum...haha eða eitthvað í líkingu við það, og já svo er ég komin með stóran og síðan topp :) Maður verður að taka breytingarnar með stæl. Síjús!!

Skoða tjaningar. (3 hafa tjáð sig, síðast Svava)


hmhmhmmm...jamm, jæja jú...
10.09.2007 07:32 - Hjördís skrifar
Ætli það sé kominn tími til að endurvekja þessa stórskemmtilegu síðu til lífsins aftur. Hún er eitthvað hálf móðguð og þver greyið eftir margra mánaða vanrækslu og það tók mig heila eilífð að komast hérna inná áðan. En hún er eitthvað að liðkast núna. Skólinn loksins byrjaur aftur og þá fer tölvunotkunin að aukast...það er óhætt að segja að hún hefur verið afar lítil sem engin í sumar og þess vegna hafið þið lesendur góðir þurft að þjást og sakna okkar svona mikið á skjánum og msn. Jólafílingurinn er að gera vart við sig, eitthvað mikið verið að spila lög sem eru á köflum nokkrar nótur eins og jólalög. En það er nú ekki búið að setja í spilarann ennþá, ætli það bíði ekki eitthvað fram í næstu mánuði, lærdómurinn á hug minn allan þessa stunduna, hmmhmm já. Annars gengur nú bara lífið sinn gang hérna, fjölskyldan í vinnunni og heima á kvöldin...heimsóknir vel þegnar...sérstaklega ef mjólk, brauð og ávextir eru með í för ;)...Allir velkomnir sem geta krakkað kódið.
Gott að vera komin aftur og við sjáumst aftur í kvöld...best að "hlaupa" í vinnuna :)

Skoða tjaningar. (4 hafa tjáð sig, síðast Ösp)


Myndir