Forsíða
Um okkur
Eldra efni


Vinir og ættingjar
Ari Gabríel
Birkir Örn
Burknavallakrúttin
Bína
Dagur og tvillarnir
Karen Hrund
Kjartan og Lovísa
Magnús Orri
Patrik og Ísabella
Sigga Hulda
Silja
Tvíburamamman
Fréttir í September 2006

Góðan daginn gott fólk!
30.09.2006 14:28 - Hjördís skrifar
Það er nú mest lítið að frétta. Litla gröfustjóranum er nú farið að leiðast endalaus gröftur og því eru hjólin tekin við að miklum hluta þó svo að alltaf eigi gröfurnar sinn hluta af útiverunni. Einnig í gær þá var útiveran eitthvað leiðinleg sem mamman kenndi nú um of miklum morgunhana í gærmorgun en hann vakti allaveganna mömmu sína um 5 leitið. Held þó að hann hafi dottað aftur en mér kom hins vegar ekki dúr á auga eftir það. Anyways, ég sagði allaveganna að hann væri örugglega að drepast úr þreytu og þær ákváðu að hleypa honum bara inn svo matseljan gæti gefið honum að borða snemma og hann gæti bara farið út í vagn. En þegar hann kom svo inn (náttúrulega ekkert barn inni) varð minn bara sá hinn hressasti og hélt bara partý einn með kennurunum. Borðaði svo náttúrulega bara á sama tíma og allir og fór á sínum venjulega tíma út í vagn. Ég er nú farin að hallast að því að þetta hafi verið eitthvað trix til að komast inn...

Ég skiptist á í svartsýnis og bjartsýnisköstum yfir vinnunni og það er svona klukkutímamunur á því sem mér finnst en í augnablikinu er það bara bjartsýnin sem ræður, búin að fá 9 og 10 fyrir verkefnaskil en á náttúrulega eftir að fá út úr svona 5 verkefnum og eftir að skila svona 10 (veit ekki alveg hvað mörgum:)

Benjamín er svo að fara í næturpössun í fyrsta skipti í kvöld. Til ömmu og afa á Skúlagötunni. Við hjónin ætlum að bregða okkur út að borða á fínan veitingastað í annað skiptið á sambandsævinni og hlökkum voða mikið til. Það hlítur að koma meira um það hérna síðar. Ég fór meira að segja í naglaásetningu áðan, var að koma heim. Ein stelpan sem er að vinna á leikskólanum er naglafræðingur og því tilvalið að kíkja til hennar og ég er mjög ánægð með útkomuna...neglurnar á manni líta þá sómasamlega út einu sinni á lífsleiðinni...hef aldrei gert svona áður :) Skrítin tilfinning í fyrstu en þær eru þó svo stuttar að þær venjast víst fljótt...anyways...ekki meira í bili.



Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast Ösp)


Húsdýragarðurinn
24.09.2006 22:31 - Hjördís skrifar
Hér er allt við það sama. Leikskóli, læra, leikskóli, læra, leikskóli, læra, leikskóli. Í dag tók ég svo smá pásu til að joina þeim feðgum í ferð í húsdýragarðinn í smá tíma núna seinni partinn og hitta nú hann pabba minn sem er búinn að vera í bænum síðan á miðvikudaginn. Það var svaka fjör og það er svo gaman að fara með Benjamín núna í húsdýragarðinn því hann er farinn að sýna þessu svo mikinn áhuga. Ef hann mætti ráða þá færi dagurinn í það hjá honum að vera úti að leika og síðan að skoða dýrabækur, það finnst honum æði. Maður getur setið með hann lengi lengi að skoða dýrabækur, ég gefst yfirleitt upp á undan honum. Meira hef ég ekki að segja að sinni. Fleiri fréttir vonandi á morgun ;)

Skoða tjaningar. (5 hafa tjáð sig, síðast Helga mágkona :o))


Uppáhaldið
20.09.2006 20:06 - Hjördís skrifar
Útiveran á leikskólanum er náttúrulega óþrjótandi skemmtileg en núna er í sérstöku uppáhaldi hjá mínum að vera á gröfunni. Hann hleypur að lausri gröfu þegar hann kemur út og bíður þar til einhver hjálpar honum að setjast á hana rennir sér svo niður stöngina og byrjar að grafa og grafa þó svo að handföngin séu það þung að hann þurfi að beyta öllum sínum kröftum til að lofta gröfuhausnum nokkra sentímetra frá jörðinni. Síðan bara grefur hann þar til útiveran er búin og mótmælir kröftuglega þegar hann er tekinn af gröfunni og stóru krakkarnir ná henni á meðan hann sér hana ennþá, þá á leiðinni inn. Já svona er leikskólinn í dag!
PS. MINNS ER EINS OG HÁLFS ÁRS Í DAG!!!


Skoða tjaningar. (3 hafa tjáð sig, síðast Við öll í Frakklandi)


MYNDIR
18.09.2006 08:57 - Benjamín skrifar
Jæja, loksins koma myndir sem teknar hafa verið eftir Frakklandsferðina þ.e. restin af júlí og svo ágúst. Það eru myndir frá því við mamma fórum austur og tókum þátt í frönskum dögum á Fáskrúðsfirði og síðan kom pabbi til okkar og var hjá okkur um verslunarmannahelgina og við fórum í ferðalag upp á fjöll með ömmu og afa og Sóla náttúrulega líka.
En eins og glöggir síðuskoðendur taka væntanlega eftir er búið að taka eina mynd af bjútíinu í september og er hún í síðara albúminu. Fussumsvei...verð að endurþjálfa þau aðeins með myndavélina.


Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast Ágúst Örn)


Magnþrungin færsla
17.09.2006 13:35 - Benjamín skrifar
Haha er að spá í að færa þessa síðustu færslu strax aðeins niður á við. En mamma gleymdi náttúrulega að tala um aðalmálið og það er náttla að MAGNI komst í úrslitaþáttinn og varð fjórði í keppninni. Gott hjá honum maður....þvílíkur árangur hjá íslenskum tónlistarmanni. Vonandi á hann eftir að hafa það rosa gott eftir að hann kemur til Íslands, það á nú að vera svaka móttökunefnd í Smáralindinni á eftir. ÓSKUM HONUM TIL HAMINGJU!!
Ein leikskólasaga hér líka, mér er nú troðið oft út í vagn áður en ég fæ að borða hádegismatinn. Fnuff, veit nú ekki hvað það á að þýða en allaveganna þá þegar ég vakna fæ ég stundum að borða afganginn af því sem var í hádegismatinn. Um daginn átti nú að vera einhverskonar hakkréttur í matinn og einu sinni sem oftar var mér troðið út í vagn áður en ég fékk að borða. Ég lét þá bara heyra í  mér eftir matinn og vildi komast inn að borða. Þá er nú þessum skrípadisk troðið fyrir framan mig og á honum eru HRÍSGRJÓN með smá hakkkúlum hér og þar og einhverju grænmeti (þetta var sumsé rétturinn, hakkinu blandað í mikil hrísgrjón þannig að þetta var eginlega hrísgrjónaréttur...mjög góður samt). Mér leist nú ekki neitt  á þetta og sagði bara hátt og snjallt OOOJ, þannig að ég fékk AB mjólk með jarðaberjum og var hæst ánægður með að. Fóstrunum mínum (úps, leikskólakennurunum) fannst þetta mjög fyndið og sögðu mömmu minni þetta aftur og aftur, mér fannst þetta hinsvegar ekkert fyndið og vil ekki sjá svona mat framar.

Frá mömmu: OJ hjá Benjamín þýðir ekki OJ í okkar merkingu heldur oft þegar hann bendir á hluti þá segir hann OJ og þegar hann tekur upp hluti þá segir hann OJ og í þessu tilfelli hélt hann á rauðri papriku og sagði OJ. Hann er bara að undirstrika eitthvað eða segja "sjáðu" eða eitthvað þess háttar. Þannig að er einhver er að gefa honum að borða og hann segir OJ þá er hann ekki að segja að sér þyki það vont!!!
Jæja best að hætta þessu bulli og koma sér aftur i lærdómsgírinn ;)

Skoða tjaningar. (1 hefur tjáð sig, síðast BILLA ÓSK VÍÐIR ÓLI OG TERESA)


Úff Púff
17.09.2006 13:23 - Hjördís skrifar
Það er víst eitthvað verið að rukka um færslur hér villt og galið :)
Það er bara ekki mikið sem gerist hér þessa dagana fyrir utan að það eru farin að bætast við alveg óteljandi orð í orðafora þess yngsta en vinsælast er nú teppe(typpi), vóvó (voffvoff), vóhvóh (hoho), detta (datt þetta og datt), oh og æjæj og allskyns orð sem ég man engan veginn núna. Bebe(bíbí).
Alltof mikið að gera í skólanum, þar sem það er ekki nema eitt próf og þar með fjórir próflausir áfangar þá er verkefnavinnan í hámarki þessa önnina.
Leikskólinn gengur ennþá rosa vel hjá Benjamín og honum finnst voða gaman en mér finnst samt leiðinlegt hvað hann er farinn að nota vælið mikið síðan hann byrjaði þar. Ef hann fær ekki eitthvað strax eða er ósáttur við eitthvað þá er bara byrjað að grenja nógu hátt og þá gerist eitthvað í málinu, en þetta gengur víst bara svona, ef hann hefði ekki lært það núna hefði hann bara lært það þegar hann byrjaði á leikskólanum aðeins eldri. Þetta hlítur líka að eldast af honum.

Ég er með óheyrilega heimþrá austur og ennþá meiri núna eftir að ég byrjaði að vinna og veit að ég get ekki farið bara þegar mig langar nema þá í tvo daga og maður nennir nú ekki að keyra með Benjamín á föstudagskvöldi til að keyra til baka á sunnudag.

Guð minn góður hvað þetta er leiðinleg færsla, ég ætla ekki að skrifa hér aftur nema það sé eitthvað skemmtilegt að segja....

Skoða tjaningar. (1 hefur tjáð sig, síðast amma SIGGA)


Óþekkasta barnið á leikskólanum...
08.09.2006 07:29 - Hjördís skrifar
...er ekki Benjamín, en ég held að það fari nálægt því, allaveganna á deildinni hans. Þá er ég ekki að tala um erfiðasta barnið sem er að drepast úr frekju eða barnið sem slær alla eða bítur alla, heldur ekki barnið sem grætur allan daginn í tíma og ótíma. Nei, ég er að tala um barnið sem stígur uppá stól reynir svo að ná athygli einhvers kennarans og brosir svo með uppbrett nefið og skríður uppá borðið. Barnið sem opnar 5 skúffur hjá öðrum börnum og kennarinn segir að það megi ekki gera svoleiðis þá flýtir hþað sér að opna einar 10 skúffur í viðbót á öðru hundraðinu áður en kennarinn nær að fjarlægja það. Ég er líka að tala um barnið sem kemur sér makindalega fyrir ofaná hausnum á 3ja ára gamalli stelpu á sömu deild og brosir breitt á meðan öskrin á hjálp kafna í bleyjunni. Jáá, það er Benjamín. Jedúddamía. Síðasta klukkutíma dagsins þ.e. á milli 16 og 17 þegar ég er orðin ein með krakkana í Múla skreppum við yfir í Eyri að hitta krakkana þar. Eyri er að sjálfsögðu deildin hans Benjamíns. Þá er hann í fullu fjöri að gera allt sem má ekki gera og stundum held ég að prakkaraglottið sé límt á hann þarna seinnipartinn. Hann tók sig til um daginn og henti öllum kubbunum út um gluggann...hann var klagaður í mömmuna en það var nú allt í góðu, það voru tvær eldri stelpur á deildinni sem fengu að fara ÚT UM GLUGGANN og sækja alla kubbana sem þeim fanst nú ekki leiðinlegt. Síðan er hann náttúrulega búinn að heilla allar kéllingarna upp úr skónum. Þegar við mætum í leikskólann á morgnana byrjar hann á því að klessa nefinu og eiginlega bara andlitinu öllu á rúðuna sem er inn á kaffistofunni, þá springa allar 15 konurnar sem eru í kaffi á þeim tíma úr hlátri og þetta verður alltaf æ fyndnara með hverjum morgninum og ég fæ að heyra það allan daginn hvað ég eigi nú yndislega fallegan son og æðislegt barn og mesta krúttið í heiminum...ekki leiðinlegt það!

Á hinn bóginn finnst mömmunni frekar erfitt að sjá litla hnoðrann sinn útum gluggann þegar hann er í útiveru en ekki hún. Hann eins og pínulítill garðálfur í pollagallanum sínum með húfuna í kringum alla stóru krakkana, einn að moka steinum í rennibrautina eða á skóna sína hjá rólunum og síðan koma stóru krakkarnir og velta honum um koll eða taka af honum flottu skófluna. Það er það erfiðasta sem ég þarf að horfa upp á í vinnunni þrátt fyrir að það séu börn á minni deild sem gráta meira og minna allan daginn...það eru ekki mínir hnoðrar þó svo að vissulega sé erfitt að horfa upp á þau greyin. En eitt skal Benjamín þó hafa og það er að hann fer ekki að grenja útaf þessu öllu saman, verður bara smá leiður en það jafnar sig strax. Og hann sækir meira að segja í stóru krakkana...t.d. um daginn...díses...þá fór hann að STÓRU rennibrautinni (sem stendur í brekku by the way og er ROOOOOOOSA löng) og allir stóru krakkarnir af eldri deildunum voru að þrusa sér niður og einhverntíma lenti einhver á honum þegar hann stóð beint fyrir neðan rennuna en litla dýrið stóð bara upp KLIFRAÐI upp á endann á rennibrautinni og tvísté (eins og þegar maður er að egna einhverjum) með uppbrett nefið að bíða eftir að fleiri myndu renna sér á hann...þá var nú mamman fljót að hlaupa til og sækja kauða og færa hann að litlu rennibrautinni!!!

Fullt af leikskólasögum til en þær verða að bíða betri tíma...orðið nógu langt í bili svo einhver nenni að lesa!


Skoða tjaningar. (9 hafa tjáð sig, síðast Patrik Dagur og co)


Andleysi og hor
05.09.2006 19:56 - Hjördís skrifar
Ég veit eginlega ekki hvað ég á að skrifa. Eitthvað er andleysið að gera vart við sig núna og þreytan við að vera farin að vinna aftur við skerandi áreiti allan daginn aftur eftir tveggja ára hlé. Ég lagðist nú bara í veikindi um helgina sem kemur reyndar fyrir alla sem byrja að vinna á leikskóla. Ég er þó ekki jafn þreytt á kvöldin núna og ég var á fim og fös í síðustu viku, þá sofnaði ég rétt yfir átta enda aðlögun í gangi og FULLT af grenjandi börnum og enn fleiri veik börn sem eru send í leikskólann...
Benjamín er bara hress, skrítið að sjá mömmu á leikskólanum en það hefur verið í lagi hingað til og verður vonandi áfram. Jess og nú er heilinn á þrotum....í bili

Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast amma SIGGA)


Myndir