|
|
Fréttir í Ágúst 2006
|
MAGNAÐUR ÞRIÐJUDAGUR
29.08.2006 18:27 - Benjamín skrifar
Svo má nú ekki gleyma að stilla vekjaraklukkurnar á 2:00 og verða handlama við það að kjósa í svona a.m.k. klukkustund. Nú er tíminn til að standa saman...ATH...KOSNING ENDAR 05:50 en EKKI rétt fyrir sjö eins og einhverjir héldu fram um tíma.
Nú er ekki rétti tíminn til að hugsa um að allir aðrir geri það ÞÚ verður að taka þátt!!!!!!!
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ KOMAST Á SÍÐUNA
Síðan bara VOTE og kjósa Magna eins oft og maður getur á þeim tíma sem augun geta haldist opin
Skoða tjaningar.
(8 hafa tjáð sig, síðast Lilja)
|
Fleiri fréttir
29.08.2006 13:06 - Hjördís skrifar
Jæja, þá dugir ekki að geyma fréttamennskuna lengur. Ég var með langan pistil í huganum um leið og ég skrifaði síðustu færslu en vildi ekki setja inn tvo langa sama daginn. En nú víkur frekar að daglega lífinu heldur en leikskólalífinu. Reyndar spilar þetta allt saman, að sjálfsögðu.
Nú er vart hægt að líta af Benjamín þar sem hann er uppi á öllu og út um allt. Ef hann kemst ekki upp á það sem hann ætlar sér nær hann sér bara í stökkpall (sem oftast er eldhússtóll eða annað tiltækt) og hoppar uppá borð og bekki, gluggakistur og skápa. Oftar en ekki heyrir maður gleðiskríki og sjálfssamtal yfir sigrinum að komast óséður á ólöglega staði og er þá horft á mann eins og hann hafi náð að fella risann með 5 litlum steinum :) Það er ekki nóg með það heldur er hann farinn að opna flestar hurðir heimilisins og þar með talið útidyrahurðina þannig að nú þarf að hafa sig allan við að fylgjast með og elta hann út um allt og lásinn oftar en ekki á. En ef maður kemst ekki út af sjálfsdáðum þá er bara klósetthurðin næst og skemmtilegi klósettburstinn.
Og talandi um klósett. Það vill nú einstökusinnum þannig til að þegar við hjónin erum bara annað í einu heima með Benjamín að náttúran kallar. Þá er ekki annað að gera en að hlamma sér á settið með opna hurð svo allt fari nú ekki í háaloft. Þá er minn maður fljótur að hlaupa til og benda á klósettrúlluna og vill fá að skeina mömmu eða pabba. Síðan fær hann eitt blað í hendina og treður því eins hratt og hann getur ofaní klósettið og er þá voðalega duglegur að vera búinn að skeina... þetta er allt hin mesta skemmtun fyrir alla aðila!!
Við skunduðum nú í bæinn síðustu helgi að fjárfesta í SÍÐERMA samfellum og bolum. Það er nú alveg merkilegt hvað búðum dettur alltaf endalaust í hug að hafa allt stutterma, jafnvel í nýjum haust/vetrar sendingum. En hvað um það fundum þrennt af hvoru, það verður að duga í bili. Síðan er nú SKÍTAKULDI þennan morguninn og ég sendi Benjamín í hlýju úlpunni sinni á leikskólann, þá var hún nú orðin of lítil og þar með gallinn sem var í sömu stærð. Ætli það verði þá ekki að skunda aftur í bæinn næstu helgi og fjárfesta í vetrargalla á kappann...það er bara heljarinnar fyrirtæki að byrja á leikskóla skal ég segja ykkur. Benjamín vaknaði í morgun með þetta fína græna hor hangandi niður fyrir höku og elsku kallinn þurfti sjálfsagt að vera úti í kuldanum í morgun í litlu úlpunni sinni. Litla móðurhjartað gat nú ekki annað en tekið kipp við tilhugsunina um rauðan nebba og hor út um allt. En svona er víst leikskólalífið og honum finnst þetta sko ekki leiðinlegt! En í gær svaf hann ekki nema í svona 45 mínútur á leikskólanum en sá sér þó ekki annað fært en að vekja mömmu sína og pabba klukkan 6:30 í morgun. Það er nú reynt eftir fremsta megni að pína angann til að sofa lengur en það virðist nú ekki vera í boði þó svo að hann sé MJÖG þreyttur, en u.þ.b. sem augnlokin eru að fara að lokast af þreytu rembist hann við að velta sér og setjast upp og tala þó svo að honum sé haldið kyrfilega niðri....ekkert gengur. Þannig að foreldrarnir verða að gjöra svo vel að fara framúr DRAGÚLDIN og skemmta prinsinum.
jæja, ritum meira síðar
Skoða tjaningar.
(3 hafa tjáð sig, síðast Helga mágkona :o))
|
Leikskólafréttir
26.08.2006 08:36 - Hjördís skrifar
Jæja þá er aðlögunin búin og hún gekk að sjálfsögðu framar öllum vonum, og best af öllum fjórum börnunum sem voru í aðlögun í einu...en ekki hvað? Anyway, strax á öðrum degi voru flestir starfsmenn leikskólans bráðnaðir undan tröllabrosi Benjamíns litla. Það var rosalega skemmtilegt á fimmtudagsmorguninn, þá fór ég með hann (Guðmundur þurfti með hann á þri og mið)þá var kona sem ekki var að vinna á hans deild sem sá okkur á ganginum og sagði "Nei, ERTU KOMINN" og hann hljóp og knúsaði hana, síðan voru allar á deildinni rosalega glaðar að sjá hann. Síðan í gær kom matseljan og heilsaði honum sérstaklega og hrósaði honum í hástert og fleiri starfsmenn sem ekki eru að vinna á hans deild voru að segja mér hvað hann væri glaður og skemmtilegur...já það er ekki amalegt að eiga svona barn!!!haha. Við vorum bara send heim á morgnana þegar við komum með hann og ekkert vandamál og komum svo að sækja hann bara á þeim tímum sem aðlögunin bauð upp á.
Það var nú samt eitt voða sorglegt sem gerðist á fimmtudaginn. Þá átti Benjamín að vera í fyrsta skipti í hvíldinni í leikskólanum. Þeir sem ekki vita hvernig það virkar, þá liggja öll börnin á dýnum í einu herbergi og hver með sinn kodda og teppi. Ég var beðin um að koma með snudduna hans og setja hana í skúffuna hans...sem ég og gerði. Síðan leið og beið og loksins kom að hvíldinni og minns orðinn útkeyrður enda klukkan að verða 12:30 og venjulega kominn útí vagn á þeim tíma...jafnvel löngu fyrir þann tíma. En þá var búið að STELA duddunni úr skúffunni og kennararnir vissu ekkert hver hefði gert það eða hvernig snuðið leit út. Bruggðu þær þá á það ráð að draga fram lánssnuddu sem hann vildi að sjálfsögðu ekkert með hafa og spítti út úr sér jafnóðum og því var troðið inn. En þá var komið að því að leggjast niður og sofna. Minns var nú ekkert alveg á því máli og spratt upp stóð við gluggann og benti út og sagði "detta...detta"(sem er aðalorðið í dag og ég held að þýði þetta, svona og margt annað tilfallandi). Hann var þá tekinn og lagður niður og breytt yfir, en á þeirri sekúndu sem honum var sleppt spratt hann upp aftur og út að glugga og benti út...þetta gerðist svona nokkrum sinnum og þá var honum bara hent í föt og út...þannig var hann kl 2 þegar Guðmundur koma að sækja hann gjörsamlega stjarfur af þreytu og stakk skóflu í sandinn í hálfgerðri leiðslu. Mamman fann svo snuðið morguninn eftir í skúffu annars barns og það fékk stórt B.G. á tappann og einnig var vagninn sendur með á leikskólann ásamt sæng, kodda og barnapíu...þannig að hann svaf bara vel á leikskólanum í gær!
Í gær svo þegar Guðmundur kom að sækja kauða þá var hann með handafar á kinninni og ekkert venjulegt handafar heldur klórhandafar. Þá hafði eitt barnið í aðlögun klórað hann svona og þær sögðu að hann hefði bara næstum rifið af honum kinnina, en svona er víst leikskólalífið og við vitum flest hvað hann Benjamín er fær um að gera :) Þá tekur bara við venjulegur leikskólatími í næstu viku...fjúff hvað tíminn líður og barnið stækkar.
Annars er rosalega sniðugt. Gluggarnir og gluggakisturnar eru í hæð barnanna þannig að þau geta séð voða vel út...beint út á leiksvæðið. Mér líst voðalega vel á konurnar á deildinni hans og bara allan leikskólann í heild sinni.
Að lokum eru tvær afmæliskveðjur en Óðinn maðurinn hennar Svövu vinkonu er 31 í dag og Þorri gamall félagi minn er 27 ára í dag líka. Þeir eru báðir staddir á austurlandinu góða og ég vil óska þeim alveg INNILEGA til hamingju með daginn...
Skoða tjaningar.
(3 hafa tjáð sig, síðast GERÐA amma)
|
Mikið að gera
18.08.2006 13:21 - Benjamín skrifar
Það er allt búið að vera á fullu hjá mér síðustu daga. Það er búið að vera svo rosalega gott veður að við mamma erum bara búin að vera að tjilla úti að leika og hengja upp þvott og í berjamó. Það er svona eitt af því skemmtilegasta sem ég geri að vera í berjamó hér útí hrauni fyrir utan hús. Þar er allt kröggt af djúsí berjum sem eru sko góð og svo verður maður svona fjólublár af þeim og ótrúlega skemmtilegt að borða þau...eitt í einu, alveg þar til mamma kenndi mér að hrúga þeim uppí mig þá safnar maður sko í lófann og nuddar svo lófanum alveg eins og maður getur við munninn á sér þangað til þau eru öll komin inn, ótrúlega skemmtilegt alveg hreint. Síðan er ég líka búinn að vera voða duglegur að skipta um í þvottavélinni fyrir hana mömmu, og þurrka upp ef eitthvað sullast á gólfið, já það er naumast hvað maður er orðinn stór þegar maður er að fara á leikskóla. Ég byrja í leikskólanum mínum í næstu viku alveg eins og mamma byrjar í háskólanum sínum. Þá ætlar pabbi bara með mig í leikskólann í aðlögunina, það er nú ekki slæmt.
Síðan eru nú nokkur afmæli búin að fara forgörðum í síðustu færslum. Karen Hrund vinkona mín átti afmæli 29.júlí og þá varð hún sko 2ja ára, þvílíkt stór. Síðan átti Ösp mamma tvíbbanna afmæli 30.júlí og hún varð líka voða stór en við segjum ekkert um það hér. Svo átti Árdís frænka mín 25 ára afmæli þann 1.ágúst, þannig að hún er nú heldur betur orðin stór og síðast en EKKI síst átti hann Kjartan risafrændi minn 21 árs afmæli þann 10.ágúst. Vonum að þau hafi átt afskaplega ánægjulega afmælisdaga og það séu no hard feelings þó svo að kveðjurnar komi aðeins of seint
Skoða tjaningar.
(5 hafa tjáð sig, síðast amma SIGGA)
|
Vegglistaverk!
15.08.2006 09:17 - Benjamín skrifar
Þá er nú fyrsta vegglistaverkið mitt tilbúið. Mamma var nú ekkert hoppandi glöð en skammaði mig ekkert alltof mikið, við ræddum bara málin um að næstu listaverk skyldu vera á blöðum en ekki á birkikommóðunni sem nú er fjólublá á neðstu þremur skúffunum. Mér fannst bara liggja beint við að það ætti að lita á þetta, svo ljótt svona eintómt. Ég nýtti að sjálfsögðu tímann á meðan mamma var að blaðra í símann en Grunnskólinn var að hringja í hana áðan (já eldsnemma) og spyrja hvort hún vildi ekki koma að vinna, úff já ég er nú glaður að mamma ætlar frekar að vinna hjá mér...eða kannski væri fínt að vera laus við hana...æ nei, hún er nú ágæt svona inn við beinið! En annars er listaverkasýningin mín opin öllum sem vilja og allir eru hjartanlega velkomnir.
Það var voða gaman á leikskólanum í gær. Ég fór bara inn í bekkinn hennar mömmu minnar og fór að spjalla við krakkana og mamma skildi mig bara eftir. Síðan fékk ég bara að ferðast um leikskólann á eigin vegum og heillaði náttla allar kéllingarnar alveg upp úr skónum sem hlökkuðu allar voða mikið til að fá mig. Síðan alveg HELLINGS tíma síðar kom mamma og fann mig og við fórum heim. Ég hlakka voða mikið til að byrja á leikskólanum og geta leikið allan daginn við hina krakkana.
Skoða tjaningar.
(3 hafa tjáð sig, síðast GERÐA amma)
|
Leikskólafréttir
14.08.2006 11:34 - Hjördís skrifar
Jæja, þá er komið að því...litla skottið að fara á leikskólann með stóru börnunum, og mamma líka með litlu börnunum.
Ég ákvað áðan að skreppa á leikskólann með umsókn í farteskinu ef ske kynni að vantaði starfsmann á staðinn. Einnig ætlaði ég að athuga hvenær kæmi að því að Benjamín fengi inn á leikskólann ef ég myndi fara að vinna annarsstaðar. Þá var ég nú bara ráðin á staðnum því leikskólastjórinn ætlaði ekki að missa mig eitthvað annað og hún var búin að vera að vesenast með einhverjar umsóknir og vissi ekkert hvað hún átti að gera en leist svona helvíti vel á kéllu að hún var ráðin á fyrstu mínútunni (Leikskólastjórinn er reyndar gift kennaranum sem var viðtökukennarinn minn í skólanum í vor...en það er önnur saga). Þannig að við mæðginin verðum á leikskólanum í vetur frá 9-5 á sitthvorri yngri deildinni. Ég á Múla og Benjamín á Eyri! En það eru deildir fyrir börn 18 mánaða til 3ja ára. Hann verður nú samt yngstur þar sem hann hefur nú ekki einu sinni náð 17 mánaða aldri og sá ég að það er verið að taka inn börn í aðlögun fædd í janúar 2005. En við förum semsagt í aðlögun vikuna eftir að ég er búin í skólanum og síðan byrja ég að vinna föstudaginn 1. september. Ég er með fiðring í maganum af tilhlökkun við að byrja að vinna á leikskóla aftur. Ég var með hálfgerðan hnút þegar ég var að skoða úrvalið af vinnu hér en ég vil ekki byrja að vinna fulla vinnu í skólanum fyrr en ég er búin með námið, þau verða nú sjálfsagt eitthvað svekkt út í mig þar þar sem ég þvertók fyrir það í vor að taka meira en 50% vinnu þegar þau voru að biðja mig um að koma þangað í haust. En það verður bara að hafa það, mér á eftir að líða betur og vera minna stressuð á leikskólanum!
Skoða tjaningar.
(6 hafa tjáð sig, síðast afi HELGI ha ha)
|
Jæja jæja jæja....
12.08.2006 10:36 - Hjördís skrifar
Þá er nú sumarfríið í skrifunum búið vegna fjölda kvartana og skemmtilegheita. Reyndar nenni ég nú ekki að rifja upp aftur í tímann nema það að við skemmtum okkur alveg konunglega fyrir austan og ég hitti marga MARGA gamla vini og félaga sem var að sjálfsögðu ógurlegt Stuð. Fórum upp að Kárahnjúkum og ákváðum nú að skoða út fyrir "ferðamannasvæðið" sem er tilbúin sandhrúa fyrir ferðamenn að skoða til að villa fyrir um stærð og gerð lónsfarvegsins. Þvílík tilfinning að vera þarna, maður fyllist minnimáttarkennd og lotningu fyrir náttúrunni bæði í senn, ólýsanlegt og ótrúlegt að menn skuli láta sér detta í hug svona framkvæmdir þegar önnur lönd sem hafa reynslu af slíkum virkjunum myndu ALDREI leyfa þetta í dag!!! Einnig þegar við Íslendingar höfum næga óbundna orku í t.d. jarðhita þar sem framkvæmdir væru afturkræfar. Held að það verði mikið séð eftir þessu af komandi kynslóðum sem hugsa þá sennilega okkur forverum sínum þegjandi þörfina!
En við rykbindum bara leirinn þá verður þetta í lagi, er það ekki??? Jújú, þess vegna er hálendið búið að vera að fjúka burt og barátta í áratugi við að græða landið vegna þess að það er svo auðvelt að rykbinda svona stór jarðleirssvæði...jamm og jú, jamm, jamm og jú held að sumir ættu að fara í heilakrufningu!
Anyways, við erum nú að fara í Gay-Pride gönguna og ætlum að borða hjá ömmu Gerðu á eftir.
Skoða tjaningar.
(2 hafa tjáð sig, síðast Helga mágkona :o))
|
| |