Forsíða
Um okkur
Eldra efni


Vinir og ættingjar
Ari Gabríel
Birkir Örn
Burknavallakrúttin
Bína
Dagur og tvillarnir
Karen Hrund
Kjartan og Lovísa
Magnús Orri
Patrik og Ísabella
Sigga Hulda
Silja
Tvíburamamman
Fréttir í Júlí 2006

Adios
26.07.2006 13:38 - Benjamín skrifar
Núna erum við mamma að fara til Reykjavíkur til að ná í flugvél svo við getum flogið til Hornafjarðar. En þar eru amma Sigga og afi Albert og svo ætlum við að keyra með þeim til Stöðvarfjarðar í kvöld. Svo er pínulitli frændinn minn sem fæddist um daginn líka á Hornafirði og auðvita Helgi Steinarr og Bergsveinn ásamt foreldrum sínum þannig að mér á nú ekki eftir að leiðast þar. En við biðjum ykkur vel að lifa og síjúleiterfolks...

Skoða tjaningar. (14 hafa tjáð sig, síðast amma Sigga)


Síðustu myndirnar
25.07.2006 22:42 - Benjamín skrifar
Jæja, þá eru síðustu Frakklandsmyndirnar komnar inn og þeim var öllum skellt í eitt albúm 16.-21.júlí...ENJOY.

Skoða tjaningar. (1 hefur tjáð sig, síðast amma gerða)


Enn fleiri Frakklandsmyndir
25.07.2006 16:59 - Hjördís skrifar
14.júlí er þjóðhátíðardagur Frakka. Það var nú ekki mikið um að vera í tilefni dagsins og við bruggðum á það ráð að skreppa á bílskúrssölu sem var í bæ einum í "nágrenninu". Bílsskúrssölur í Frakklandi virka þannig að það er gefin út dagsskrá hvaða daga bílsskúrssölur eru í hverjum bæ og þá safnast "allir" bæjarbúar saman á einn stað með dótið úr bílsskúrnum sínum og fólk allsstaðar að kemur að skoða og kaupa. Þar má finna alls kyns góss svo sem staka skó ef einhver einfættur ætti nú leið hjá sem vantaði gamla skó...síðan mátti þar finna allskonar drasl sem var við það að hrynja í sundur. Sumir voru þó aðeins meira "sorteraðir" og voru bara nokkuð fínir hlutir í sumum básunum þar með talið fullt af fínum eldgömlum matarstellum, skálum, glösum og fleiru hentugu í eldhúsið eða borðstofuna. Við keyptum þó ekki mikið að sinni en Ari Páll og Lilja fóru heim með held ég bara fallegustu diska sem ég hef séð...þeir voru ÆÐISLEGIR. Og Lilja hefur svo mikið auga fyrir alls kyns góssi að hún fann forláta kristalsskál á fæti sem var einstaklega fín. Góð kaup þar.
Síðan vorum við með smá einkaflugeldasýningu í garðinum um kvöldið en það var nú ekki mikið um þannig gleðskap í öllum húsum.

Síðan er það fíni bíllinn hans Ágústar. Benjamín varð gjörsamlega Ástfanginn af honum og vildi helst keyra hann allann daginn þannig að foreldrarnir þurftu að rífa sig upp úr morgunýldunni og gjöra svo vel að koma á rúntinn.
Síðan var mesta skemmtunin utandyra að fylla stóra pottinn eða skúringafötuna af köldu vatni úr vatnshananum og setjast svo ofaní...ískalt en afskaplega skemmtilegt!!!

Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast Hjördís)


FIMM ALBÚM KOMIN
25.07.2006 09:32 - Hjördís skrifar
Jæja, nú erum við búin með 13.júlí. Þetta er allt að smá koma. Fullt fullt af myndum eftir alveg jafn áhugaverðum og þessar allar eru ;)

En til að rifja aðeins upp, þá fórum við sumsé inní tvær kirkjur í Frakklandi, það var kirkjan í Perouges og kirkja St. Jean í gamla bænum í Lyon, að sjálfsögðu voru þær báðar SVAKALEGA flottar og tignarlegar báðar á sinn hátt. En fáir voru þó jafn heillaðir og hann Benjamín okkar. Hann varð alveg  frá sér numinn þegar við vorum inni í þessum kirkjum enda rúðurnar mjög svo skrautlegar og hver þeirra segir sögu af annaðhvort ævi einhvers merks manns eða af ákv. atburði í kristinsögunni. Það var mjög gaman að fylgjast með þessu og hefði einna helst þurft að ná því á video.

Ítalíuferðin var að vonum voða skemmtileg og stoppuðum við lengst í bæ sem heitir Aosta og ráfuðum þar um hluta úr degi. Við keyrðum líka heilmikið um að skoða þessa gríðarlegu náttúrufegurð þarna í fjöllunum sem engan veginn er að gera sig á myndum. Við fórum í gegnum MÖÖÖÖRG göng sem gleymdist að telja;) Ætluðum svo að stoppa í kvöldmat og fá okkur ítalska pizzu en þá lokar öllum veitingarstöðum á milli 2 og 7 og þá þarftu bara að gjöra svo vel að borða á mannsæmandi tímum og ekkert múður!!! Við nenntum nú ekki að bíða með litlu strákana og þrumuveður í aðsigi þannig að við skelltum okkur bara aftur í Mont Blanc og til Frakklands og allir voru mjög ánægðir með ferðina.

Það gætir nokkurs ruglings í myndum annað slagið þar sem við gleymdum að stilla myndavélina á réttan tíma þegar við komum út, þannig að myndirnar okkar eru allar "tveimur tímum fyrr" en myndirnar hjá Ara Páli og Lilju þannig að stundum geta okkar myndir komið...síðan kemur eitthvað allt annað og svo það sama og áður (nema tekið á myndavélina þeirra Ara Páls og Lilju)...við erum þá ekki að endurtaka sama hlutinn heldur er bara tímavitleysa í myndavélunum og ég hef ekki nennt að læra hvernig ég get breytt tímanum á myndunum svo þær verði í réttri röð.




Mánudagskvöld
24.07.2006 19:06 - Hjördís skrifar
Nú er komið inn annað albúm úr ferðinni. Það er mánudagskvöldið 10.júlí sem er lýsandi fyrir flest önnur kvöld, sitja úti í hitanum og blíðunni og kjafta langt framá nótt...eða næstum. En það voru víst ekki teknar neinar myndir af börnum þennan dag...hmmm.

Guðmundur Óli er voða sár að engin kommentaði á frönsku konu brandarann hans hér þrem fréttum neðar...




Frakklandsmyndir
24.07.2006 13:45 - Hjördís skrifar
Jæja þá er verið að fara yfir fyrstu myndirnar og það er nú aldeilis stafli sem bíður þess að verða skoðaður...byrja nú bara á fyrstu tveimur dögunum sem voru ferðadagurinn og fyrsti dagurinn í Frakklandi.
Margt rifjast nú upp svona þegar er verið að skoða og eins og sést á fyrstu myndunum eru "litlu" börnin þ.e. Ari Páll og Guðmundur að leika sér í svaka skemmtilegum kúlu/boltaleik...en þetta er aðalíþrótt Frakka (og sjálfsagt fleiri) á sumrin og eftir þessa reynslu þá er nú ekki annað hægt en að segja að það sé nú skiljanlegt...það er svo heitt og enginn vindur né neitt að það er varla hægt að hreyfa sig meira en að rúlla kúlum í hverja aðra. Voða gaman allt saman líka. Síðan fyrsta daginn okkar var nú SEM BETUR FER skýjað, og ég man að við töluðum um að það væri nú bara ágætt að hafa skýjað fyrsta daginn svona aðeins á meðan maður var að venjast hitanum, en það var líka fyrsti  og EINI skýjaði dagurinn og fyrsta og EINA gönguferðin um hverfið því eftir það var bara hægt að labba í skugganum :) Fleiri myndir eru svo væntanlegar...verið bara dugleg að kíkja hér til hliðar eftir nýjum albúmum :)

Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast Ari Páll)


Þetta fullorðna fólk er svo skrítið!
23.07.2006 10:46 - Benjamín skrifar
Það er alveg merkilegt með þessa foreldra mína stundum, hvað þeir geta bara endalaust verið í ruglinu. Sko til að byrja með, þegar við fórum til Frakklands þá var mér bara troðið í rúmið eldsnemma, löngu áður en ég varð þreyttur og átti ég bara að gjöra svo vel að sofna..hmmm, ég lét það nú ekki viðgangast og tókst að lokum með herkjum að fá bara að sofna á mínum tíma það sem eftir var ferðarinnar. Síðan núna þegar við erum komin heim, þá í fyrsta lagi mátti ég ekki sofna þegar mig langaði til fyrsta kvöldið og svo mátti ég nú ekki einu sinni vakna þegar ég vildi og manni bara sagt að það sé ennþá nótt og einhver svona vitleysa. Mér tókst nú aðeins að sætta mig við þetta en tók við stjórninni í morgun samt (kl 6!!!) enda búinn að sofa nóg...það fylgir þó sögunni frá mútter að ég sofnaði á leiðinni ofaní vagninn núna klukkan 10 :) Ég meina, maður þarf nú ekkert að missa heilann þó maður fari í eitthvað ferðalag, maður hlítur nú að meiga bara sofna og vakna á sama tíma og maður er vanur...stundum er bara þetta fullorðna fólk svo skrítið.
Ég fékk nýtt verkfærasett út í Frakklandi sem er alveg ótrúlega flott og nú hamra ég og skrúfa allt sem mest ég má...síðan fékk ég Nemó bíl eins og Birkir Örn á í gær og núna keyri ég bara og keyri um og fæ hlátursköst og ræð ekkert við mig svo þarf að skella honum annað slagið á hliðina og gera aðeins við dekkin og svona svo bara held ég áfram að keyra...þvílík snilldar uppfinning þessi Nemóbíll.
Ég fékk hægri augntönnina í efri góm í fyrradag...eða hittifyrradag, það var nú ágætt þegar hún loksins braust út og nú er bara að bíða eftir þessum þremur tönnum sem eftir eru:) þær fara nú alveg að koma, allaveganna þessi vinstri í efri góm.

Frá mömmu: Það er nú ekki farið alveg rétt með allar staðreyndir hér að ofan en tímamismunurinn er líka búinn að stríða okkur þó svo að hann sé aðeins tveir tímar. Auðvita þegar Benjamín átti að fara að sofa fyrsta kvöldið útí frakklandi klukkan 8, þá var klukkan náttúrulega bara 6 á hans tíma, þannig að hann fékk aðeins að vaka til að venja sig við nýja tímann og tveimur kvöldum seinna var íslenska rútínan komin í gírinn og sofnað klukkan 8 og vaknað á milli 7 og 8. Síðan þegar heim var komið þá vildum við nú ekki leyfa honum að fara að sofa klukkan 6 til að þurfa að vakna um miðja nótt til að leika þannig að okkur tókst nú að halda honum vakandi til rúmlega 7. Um morguninn svo vaknaði hann rétt fyrir 7 og við ákváðum bara að leyfa honum að leika sér að nýja dótinu sínu á gólfinu á meðan við myndum aðeins liggja uppí rúmi. Síðan minntist ég eitthvað á það við bónda minn hvað mér þætti vera orðið dimmt kl 7 því það hafi verið svo bjart á þeim tíma þegar við fórum út. Hmmm..."erum við ekkert búin að breyta klukkunum á símunum okkar?"  neinei, þá gleymdist það aðeins og klukkan því bara 5 um nótt...snáðinn var því gripinn og fékk hann að dúsa í mömmu og pabba bóli þar til hann sofnaði og svaf til 9 :), síðan var vaknað klukkan 6 í morgun, þannig að þetta hlítur nú allt að fara að komast í réttar skorður og vonandi verður vaknað enn seinna í fyrramálið ;)

Júlíus bró varð 32 ára í gær sá gamli og fær hann heillaóskir í tilefni dagsins, vonum að hann hafi átt ánægjulegan dag:)

Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast Gauti frændi)


Heiðardalurinn
21.07.2006 22:39 - Benjamín skrifar
Jæja, loksins komin heim eftir lagnt ferðalag í dag, en ég að sjálfsögðu algjört ljós allan tímann, nema hvað?...annars er ég bara steinsofandi og vildi bara láta vita af því að ég er kominn heim þannig að núna er hægt að byrja að panta tíma í leik hjá mér :)

Shauna "móðursystir" mín átti 25 ára afmæli í gær...hún fær strærsta knús í heimi frá mér þó ég hafi aldrei séð hana...enn. Hún á heima í Ástralíu og er systir mömmu minnar þegar hún er í Ástralíu...eða eitthvað svoleiðis og hún segir að ég sé uppáhaldsfrændinn sinn og segir að hún elski mig mest af öllum í heiminum :)...það eru nú margir sem gera það, ekki satt?

Bæ í bili, ég reyni að láta vita af einhverju merkilegu á morgun

Skoða tjaningar. (4 hafa tjáð sig, síðast BILLA ÓSK OG VÍÐIR ÓLI)


Líður að jólum...líður að...heimkomu!
19.07.2006 16:21 - Hjördís skrifar
Já, VÁ hvað tíminn er búinn að vera fljótur að líða, það skal ég segja ykkur að tíminn er ekki svona fljótur að líða þegar maður þarf að BÍÐA í nokkra klukkutíma eftir einhverju. En við erum bara komin í heljarinnar jólaskap því hér horfa yngstu frændurnir á JÓLALÖGIN OKKAR úr stundinni okkar næstum því á hverjum degi...það er nú hálf skrítið svona í 34 stiga hitanum...en einstaklega hátíðlegt engu að síður ;)
Síðan síðast erum við búin að gera margt skemmtilegt og að sjálfsögðu búin að borða heilan GÁM af alveg frábærum mat...þvílíkt úrval af lostæti hér á landi. Við erum líka búin að fara í dýragarð í Lyon og skoða svo gamla bæinn í Lyon líka (núna áðan) en myndavélin gleymdist í þeirri ferð en það eru til myndir af dýragarðinum. Við sáum stærsta torg í Evrópu og borðuðum svo frábæran mat á veitingastað í gamla bænum. Í lestinni á leiðinni til baka var alveg KÆFANDI hiti og greyið Benjamín og Ágúst voru eins og tómatar í framan, en gátu nú samt ekki sleppt þvi að vera í stanslausum hamagangi. Svo vildi nú ekki betur til en það KVIKNAÐI í lestarstöð þannig að lestin stoppaði lengi, LENGI...og við héldum að þetta ætlaði ENGAN ENDI að taka og síðustu 15 mínúturnar á leiðinni heim var þolinmæði litlu frændanna búinn og þeir bara létu óánægju sína í ljós þar til var stoppað og farið út úr lestinni. Annars erum við bara búin að eyða dögunum í rólegheitum og að sjálfsögðu rauðvíni, hvítvíni, freyðivíni og KAMPAVÍNI, ostum og brauði öll kvöld og gerist lífið vart yndislegra (úbbosí ösp, "after eight" reglan var ekki alveg í gildi hér í Frakklandi :()   Búin að kíkja í bæjina og "borginrnar" (á Íslands mælikvarða) hér í kring og svo að sjálfsögðu búin að éta smá meira :)
Á morgun síðasta daginn ætlum við bara að taka því rólega og skreppa aðeins í bæinn hér í Meximieux og aðeins aftur upp í miðaldarbæinn Perouges sem er alveg einstaklega áhugaverður og skemmtilegur staður bara 1 km frá Meximieux :þ Síðan er bara förinni heitið til Parísar eldsnemma á föstudagsmorguninn og heimkoman áætluð um 15:00 þann sama dag.

Já úú ekki má gleyma, báðar augntennurnar eru að koma niður hjá Benjamín og hann tekur þessu öllu sem algjör hetja...sem hann náttúrulega er og heldur bara áfram að vera sama yndislega súkkulaðihjúpaða sykurpúðarjómabolluyndið mömmu sinnar og pabba :)

Skoða tjaningar. (3 hafa tjáð sig, síðast BILLA ÓSK OG VÍÐIR ÓLI)


Síðbúin, áminnt afmæliskveðja ;)
14.07.2006 20:45 - Hjördís skrifar
Silja frænka mín átti afmæli 10. júlí s.l....hehe og við að sjálfsögðu óskum henni innilega til hamingju með afmælið og vonum að hún sé að njóta þess í botn að vera í sumarfríi :) Kveðjur úr Frakklandinu

Skoða tjaningar. (4 hafa tjáð sig, síðast Unnur, Pálmi og Hekla)


PUTAIN ZIDANE!!!, Ítalía og fleira
13.07.2006 20:51 - Hjördís skrifar
JÆJA...héðan úr Frankaríki er nú margt að frétta...en ekki séns að ég nenni að skrifa um það allt saman og því skal hér stiklað á MJÖG stóru. Það er náttúrulega búið að vera KLIKKAÐ veður síðan við komum hingað...34 stiga hiti og glampandi sól. Heldur heitt stundum en í lagi. Við erum búin að borða mikið af góðum frönskum mat og búin að heimsækja marga góða staði s.s. hyper champion:) þar sem kennir ýmissa grasa :). miðaldarbæinn Peruges sem er alveg klikkað eldgamalt "bæjarvirki" ef svo má að orði komast, hér á hæð yfir Meximieux þar sem er ennþá búið þótt ótrúlegt sé og þar er frábært að koma. Einnig erum við búin að heimsækja Lyon, við fórum þangað þrjú með GPS tæki í farangrinum og gékk allt samkvæmt bestu óskum, sem við var að búast þar sem gáfað fólk með GPS tæki getur nú ekki klikkað. Auðvita fór svo úrslitaleikur HM ekki framhjá okkur og við Guðmundur og Ari Páll ákváðum nú að kíkja hér á bílastæði eitt í Meximeux þar sem leikurinn var sýndur á stórum skjá. Reyndar var enn svo bjart og við lentum aftarlega og ekki á góðum stað þannig að við ákváðum að slappa frekar af heima í sófa með bjór (eða vín) í hönd og horfa á leikinn þaðan...mjög gott val!!! En svo er það atvikið sem tröllríður öllu, við bara skiljum ekkert um hvað málið snýst þar sem allt er á frönsku, en sorglegur endir á annars MJÖG SVO GLÆSTUM ferli ZIDANE.
Í dag gerðum við okkur svo lítið fyrir og kíktum á heimsmeistarana alla leið til Ítalíu...það var nú ekki lítið skemmtilegt. Það er óhætt að segja að náttúrufegurðin er ÓGEÐSLEGA flott (á góðri íslensku) og fjöllin og fjallaþorpin skörtuðu sínu fegursta. Fórum að sjálfsögðu undir MONT BLANC, og fengum okkur síðan ekta ítalskt pasta og svo pizzu í kvöldmatinn, sem var reyndar ekta frönsk en samt sama dag:)...vorum bara komin heim aftur:)

Síðan er stefnan tekin á þjóðhátíðardag Frakka á morgun 14.júlí, bílskúrssölur, dýragarð í Lyon, gamla bæinn í Lyon, svo aftur í Peruges og síðan slaka á með eitthvað svalt í hönd og liggja í sundlauginni eða sitja á pallinum, skoða sig um og margt fleira skemmtileg, ótrúlegt hvað tíminn hefur liðið hratt og að einungis sé vika þar til við komum heim aftur :S

En nokkur hafa afmælin verið síðan síðast og ekki má nú gleyma þeim... Marcos vinur minn frá Brasilíu átti afmæli þann 9.júlí s.l.,
Elva vinkona mín og  Magga Dís frænka mín áttu svo báðar afmæli í gær 12.júlí og enginn aldur verður nefndur í þessari fræslu en ég vona að þau öll hafi átt sérstaklega ánægjulega afmælisdaga:)

Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast Silja)


OFF TO FRANCE :)!!!!
07.07.2006 23:11 - Benjamín skrifar
Jæja, þá erum við nú bara á leiðinni til Frakklands eftir um 8 tíma...víííííííí.
Það verður nú reynt að reporta eitthvað frá útlöndum og setja inn myndir, en það kemur í ljós í hve miklu mæli það verður á endanum :I....Komnar inn nýjar myndir til að tæma myndavélina. Hafið það gott og ÁFRAM MAGNI fyrir að hafa ekki einu sinni lent í "bottom three", við erum nú aldeilis dugleg að greiða atkvæði...OG HALDA ÁFRAM SVO....

Jæja bless

Skoða tjaningar. (3 hafa tjáð sig, síðast Anna Karen)


ÁFRAM MAGNI!!!!
05.07.2006 18:18 - Hjördís skrifar
Allir Eiðanemar og ME-ingar nær og fjær...svo og Íslendingar allir. Styðjum við bakið á okkar manni, þeim ALLRA BESTA í bransanum:)

Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast Ösp)


GLEYMDI!!!
04.07.2006 21:16 - Hjördís skrifar
Þrjár færslur á þriggja daga fresti...er það ekki bara ágætt. En allaveganna í dag var ég eitthvað að vesenast og hnerraði líka svona hátt og snjallt AAAAAAAATJÚÚÚ...þá heyri ég bara hlátur frammi á gangi og svo litlar fætur sem labba út um allt og pínulitla rödd sem segir hvað eftir annað "atjú, atjú,   atjú, atjú, atjú" og lítinn strák sem brosir alveg út að eyrum því honum finnst þetta svo sniðugt :)

Síðan átti Gulli afmæli 1.júlí, við skulum ekkert vera að nefna aldurinn en hann varð ári eldri en í fyrra þegar hann varð þrítugur:) Hann eyddi deginum í fótboltagláp hér í Staðarhrauninu ásamt fullt af öðru tengdó, konunni sinni og syni...húrrahúrrahúrra...
en til hamingju með daginn elsku Gullinn okkar. Einnig vil ég óska mömmu og pabba til hamingju með 20 ára brúðkaupsafmælið sem var líka 1.júlí...ég man nú svo vel eftir því að mér finnst eins og það hafi gerst í gær ;)

Skoða tjaningar. (3 hafa tjáð sig, síðast amma Billa og afi Ingi)


Gamlir vinir
04.07.2006 20:47 - Hjördís skrifar
Ég er búin að eyða helginni í lestur. Gamall góður vinur minn hafði upp á mér í síðustu viku og hafði verið að reyna að hafa upp á mér í marga mánuði. Þessi vinur er brasilískur og var BESTI vinur minn úti í Ástralíu þegar ég var þar 1998...síðan hafði sambandið bara slitnað í önnum hversdagslífsins. Það var svo gaman að heyra loksins í honum aftur að ég horfðist í augu við minn helsta ótta...að opna Ástralíu kassann minn sem hafði verið lokaður inni í geymslum eða bílskúrum í rúm 7 ár og hvorki kjarkur né vilji til að opna hann.
Síðan er ég búin að sitja og lesa ALLAR dagbækurnar og mörg bréfin sem ég fékk (sem voru svona u.þ.b.1000) og skoða allar myndirnar sem ég tók...sem voru EKKI FÁAR. Mér líður bara eins og ég sé 17 aftur og endurlifi atburðina í huganum eins og þeir hafi gerst í gær þó svo að ansi margir þeirra og verð ég að segja að það hafi komið mér á óvart hve margir, séu einungis minning á blaði en ekki vottur af mynd í huganum...ætli það sé ekki það sem gerist þegar maður útilokar ákveðin tímabil alfarið. En það var nú meira hvað maður gat bullað og ruglað og fannst mér ég vera að lesa hina mestu gamansögu og það var alls ekki jafn erfitt að horfast í augu við myndirnar og minningarnar eins og ég hélt það yrði, enda liðin átta og hálft ár síðan ég lagði upp í ferðalagið...EN NÓG UM ÞAÐ!

Ég fór í klippingu í dag og ætlaði svo aldeilis að vera fín í Frakklandsferðinni en svo er ég bara svo ekki aldeilis ánægð með klippinguna hjá konugreyinu...enda fór Guðmundur til hennar einu sinni og fékk frekar skakka klippingu, en eitthvað verður maður að gera í neyð...en þetta lagast með smá heimalagfæringu...vonum við allaveganna!!! Ég held ég láti hana Margréti ekki framhjá mér fara aftur...en hún er bara í sumarfríi til 20.júlí Í TÆLANDI...maður verður að skipuleggja svona...og muna það!!!

Anyway, heyrði í útvarpinu í gær að bloggsíður væri ekkert annað en athyglissýki (eða eitthvað í þá áttina, var reyndar átt við unglinga sem skrifa um hverja einustu mínútu af deginum og fá fráhvarfseinkenni ef þeir komast ekki á bloggið (sitt og annarra) í hálfan sólarhring) þannig að ég ætla að láta þetta gott heita í bili...

Skoða tjaningar. (1 hefur tjáð sig, síðast Lilja)


Hvíta Húsið
04.07.2006 14:51 - Hjördís skrifar
Þá er Hvíta Húsið lent í Grindavík...og þvílíkur munur. Reyndar er ekki alveg tilbúið en ÞVÍLÍKUR MUNUR, í stað grænu klessunnar sem við bjuggum í. Reyndar eru fjórar grænar klessur við hliðina á okkur en það verður vonandi búið að bæta úr því þegar við komum til baka frá Frakklandi.
Tengdafjölskyldan kom hérna á laugardaginn og þá átti sko aldeilis að taka til við að mála á fullu og svo klára á sunnudeginum. Það fór nú einhvernveginn öðruvísi þar sem VEÐURSPÁIN oftar sem áður stóðst ekki. Þannig að það varð úr að tengdapabbi gisti aðra nótt og málaði svo húsið í gær með SMÁ aðstoð frá heimilisfólkinu...sem aðallega flæktist fyrir bara held ég, og kunnum við honum miklar þakkir fyrir. En það byrjaði AÐ SJÁLFSÖGÐU að rigna um kvöldmatarleitið þannig að ekki var hægt að klára tvær umferðir á húsið. Nokkrar myndir munu koma inn í kvöld af húsinu, en hverfa svo líklega næstu daga og birtast bara með öðru albúmi síðar.

Hemmý, Jói, Ýr og Ýmir komu frá Bandaríkjunum í fyrradag og Guðmundur Óli fór út á flugvöll að sækja þau. Við vildum endilega lána þeim Runóinn okkar þar sem við þurftum ekkert á honum að halda. En fyrsta daginn þeirra í Reykjavík á "nýja" bílnum sem er búinn að vera á sölu í tvo og hálfan mánuð...þá selst bíllinn bara svona einn, tveir og þrír...þannig að það var nú stuttur rúntur sem þau fengur á bílnum...og nýbúið að skipta um dekk og fylla tankinn...ussussusssu, alltaf er þetta nú svona!!!



Skoða tjaningar. (3 hafa tjáð sig, síðast Ösp)


Minningargrein
01.07.2006 22:18 - Hjördís skrifar
Þessi pistill er tileinkaður  Dimmulimm2og Kjúlla litla, en þau fóru til dýralæknisins í morgun :'( Við fórum með þau kl 10 í morgun til Keflavíkur til dýralæknisins, hann sagði að sérstaklega á þessum árstíma væri rosalega erfitt að gefa kettlinga vegna svakalegs offramboðs. Stundum eru þó einhverjir sem tala við dýralækna og spyrja hvort þeir viti um einhverja sem eru að gefa kettlinga, hann vissi þó ekki um neinn akkúrat núna. Í lokin þegar hún sá hvað okkur þótti þetta erfitt sagði hún okkur til hughreystingar að þeir ættu ekki eftir að finna neitt til heldur fengju þeir bara róandi og síðan stóran skammt af svefnlyfi og sofnuðu bara út frá því...svefninum langa.

Dimmalimm2og Kjúlli voru bæði einstaklega þægilegir kettlingar og gjörsamlega huglausir eins og annað nafnið gefur til kynna:) Kjúlli litli sat uppí glugga og mjálmaði á meðan systkini hans höfðu stokkið út um gluggann til að leika sér úti. Dimmalimm var algjör mömmustelpa og hékk utaní mömmu sinni allan daginn, hún var einnig fallegasti kettlingurinn úr gotinu.

Two-Face fór líka á sitt heimili til Gwen og fjölskyldu í dag, hún á örugglega eftir að eiga frábært líf þar og við ákváðum að halda Krulla litla og hefur því bæst eitt stykki kettlingur við fjölskylduna...en það eru nú bara ánægjufréttir.

Ég vona að Dimmalimm mín 2 og Kjúlli hafi það sem allra best í himnaríki kattanna og fái bara fisk og rjóma í mallann sinn. Billa og Víðir Óli sakna ykkar mikið og biðja fyrir ykkur. Góða nótt kæru vinir og hvílið í friði.


Skoða tjaningar. (3 hafa tjáð sig, síðast Ösp)


Brasilía úr leik!!!
01.07.2006 20:59 - Hjördís skrifar
Hvað er að gerast?????Jæja, þá heldur maður bara með Frakklandi fyrst Brassar klúðruðu þessu svona líka HRIKALEGA. Það væri nú aldeilis stemming í því að fá Frakkland í úrslitin 9.júlí, daginn eftir að við komum til Frakklands.
Eníveis, amma, afi og krakkarnir komu hér í dag og ætla að gista hjá okkur í nótt. Helgi er að hjálpa Guðmundi Óla að mála húsið, en við ætlum að reyna að klára það áður en við förum út...sjáum svo til hvernig veðurguðirnir spila úr spilunum, vonandi eru þeir ekki að spila "eld og brennistein" :) hahaha
Jæja, meira á eftir...





Neuvo fotos
01.07.2006 00:26 - Hjördís skrifar
Já enn einu sinni eru komnar inn nýjar myndir og það er restin af Júní...17.júní og annað fínerí. Vonum að allir skemmti sér vel yfir þessu :)




Myndir