|
|
Fréttir í Júní 2008
|
Læknir og hjúkka...
29.06.2008 10:18 - Hjördís skrifar
...eru þau nöfn sem við foreldrarnir höfum gengið undir síðan í gærkvöldi. Þeir feðgar fóru í læknisleik í smá stund í gær og eftir það vorum við læknirinn og hjúkkan og hann var sjúklingurinn. Við fórum öll að sofa saman rétt eftir 11 í gærkvöldi í hjónarúminu því dýnan í Benjamíns rúmi var blaut eftir þvott fyrir TVEIMUR DÖGUM, og hún er ennþá blaut. Benjamín hafði nefnilega sofnað í gær og svar til rúmlega fjögur þannig að ekki var hann þreyttur á háttatíma. En það var nú bara gaman hjá okkur hér í gærkvöldi. En það besta er að í morgun þegar hann vaknaði þá var það fyrsta sem hann sagði "læknir" (eða öllu heldur ("gæknir")) og var að beina orðum sínum til pabba síns!! Eftir að ég setti síðara upphrópunarmerkið aftan við setninguna og í þessum skrifuðu orðum heyrðist "hjúgunarkona, hvar er gæknirinn?"
Ég ákvað að drífa í því að eyða öllum inneignunum sem ég fékk í Kringlunni í útskriftinni minni, og var ekki lengi að því. Langaði svo hrikalega í pottjárns potta (eða steypujárns, held það sé það sama) þ.e.a.s. Cast Iron...Ég var búin að leita út um allt á netinu og fann þá út að Búsáhöld í Kringlunni selja Le Creuset pottana (vörurnar), fattaði síðan síðar að ég á crepespönnuna frá þeim. Fór því og fjárfesti í einum potti og einni pönnu...svona samtals um 100 kíló eða svo (næstum) og svo keypti ég tvær "kökukrúsir" undir hrísgrjón. Búin að biðja Guðmund Óla um Tagínuna í afmælisgjöf, eina tagínan sem ég hef séð að hægt sé að nota á spanhellu :):) Potturinn og pannan eru fallega appelsínugul en krúsirnar eru mjög fallega rauðar (þeir sem hafa sér le creuset vita að það eru margir litir á hverri vöru þ.e. appelsínuguli potturinn er marglitur appelsínugulur...) Hlakka mjög til í kvöld að elda á pönnunni! En þetta er ekki gefins og því tilvalið að nota gjafapening í þetta :)
Skoða tjaningar.
(1 hefur tjáð sig, síðast Svava)
|
NOVA supernova
28.06.2008 21:57 - Hjördís skrifar
Sá sögulegi atburður átti sér stað í dag að við hjónin skiptum um símafyrirtæki. Höfum alltaf bara verið hjá Símanum og einhvernveginn bara verið þar af því við höfum alltaf verið þar. Reyndar gengur breytingin ekki í gegn fyrr en eftir 7-10 daga þar sem síminn tekur á öllum breytingum á hraða snigilsins. Við fengum nóg af því þessi mánaðarmótin að láta SÍMANN féfletta okkur. Við höfum aldrei notað símana minna en símreikningarnir hækka og hækka. Kynntum okkur möguleikana og snilldin ein og stærsti skemmtistaður í heimi, NOVA, varð fyrir valinu. Við verðum enn með sömu gömlu númerin!!
Hjá Nova hringir þú frítt í ALLA NOVA síma
Hjá Nova kostar 15 kr. að hringja í ALLA síma utan Nova, líka heimasíma
Hjá Nova kostar 10 kr. að senda SMS
Hjá Nova er ekkert mánaðargjald
Hjá Nova getur þú valið um áskriftarleið sem kostar 5900 kr. á mánuði þar sem þú hringir 1000 mínútur frítt í ALLA síma utan Nova (líka heimasíma) og að sjálfsögðu frítt í ALLA Nova síma
Hjá Símanum myndi samsvarandi símanotkun kosta yfir 21.000 kr. á mánuði
Hjá Símanum er lágmark 690 kr. mánaðargjald.
Hjá Símanum kostar 10,5 kr. að senda SMS
Hjá Símanum kostar hátt í 30 kr. að hringja í síma utan Símans
Hjá Símanum kostar 11,5 kr. að hringja í aðra Síma síma og 16,5 kr. í heimasíma.
Vodafone er ekki mikið skárri en Síminn
Við hvetjum alla að endilega að kynna sér málin og hvað hentar þeim. Við fengum nýja síma hjá þeim þar sem við borgum 2000 kr. á mánuði en fáum 2000 kr. notkun fría í staðinn þannig að í raun voru símarnir fríir! Það er nefnilega nauðsynlegt að hafa 3G síma hjá Nova, því koma þeir svona til móts við viðskiptavinina. Ekkert flutningsgjald, ekkert startgjald, ekkert mánaðargjald!!!...bara að skipta, svo einfalt er það!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Ekki sitja föst í viðjum vanans og ekki bara ætla að hugsa málið...FRAMKVÆMIÐ
|
Tilvalið að borða úti!
27.06.2008 23:32 - Hjördís skrifar
Ég og sá yngri fórum í saumaklúbb í gær með hinum seyðandi austfirsku meyjum frá æskustöðvunum Seyðisfirði! Það var að vanda afar skemmtilegt og mikið spjallað og slúðrað og étið á sig gat en afar lítið saumað enda ekki hefð fyrir saumaskapnum í átveislunum. Á meðan voru pabbinn og sá eldri heima að skemmta sér. Benjamín byrjaði nú á því að fara í vinnuna til pabba síns rétt fyrir sex og fékk að sjálfsögðu að vinna öll helstu verkin á verkstæðinu, þar á meðal að stýra lyftaranum sem er aðalsportið. Þeir komu við í dýrustu búllu bæjarins, Nóatúni, og keyptu sér hammara til að skella á grillið. Þegar þeir voru búnir að grilla vildi Benjamín ekki taka annað í mál en að borða úti á svölum þegar pabbinn ætlaði að fara inn með matinn. "Borðum úti, það er enginn vindur úti þannig að það er alveg hægt að borða úti". Ekki veit ég hvaðan hann fékk þessa hugdettu eða vitneskju en að sjálfsögðu fékk hann að ráða og þeir feðgar nutu kvöldmatarins úti í veðurblíðunni.
En er eitthvað grín með veðrið, það er komið á það stig að þegar maður vaknar á morgnana er mesta spennan að sjá hvort veðrið haldist virkilega í einn dag í viðbót. Maður bíður alltaf eftir ömurlega rigningardeginum og rokinu eftir örfáu blíðviðrisdagana og að sumrinu sé bara lokið. Vonandi helst þetta svona bara í sumar og vonandi verður snjórinn og frosthörku spádómurinn löngu farinn þegar við höldum af stað austur eftir tvær vikur...TVÆR VIKUR.
Annað sem mér finnst vera orðið heldur langt grín er það að ég ét allt sem að útidyrahurðum kemur...og útidyrahurðum annarra líka (og ef það kemur ekki að útidyrahurðinni þá sæki ég það bara). Man ekki eftir svona græðgi áður. Ef það er ætt þá er það horfið og ekki er nú verra ef það er svona u.þ.b. kíló af sykri í hverjum 100 gr. af mat!!!..já eða nammi. Ég skoða matreiðslubækurnar mínar fram og aftur og blaðsíðurnar farnar að festast saman af slefi og ekki nægir að fá sér einn penan disk af vel samansettum kvöldmat, heldur verður að sjá til þess að ekki sjáist arða af afgangi enda gengur það ekki þegar sveltandi börn eru í Afríku...er það ekki álit foreldra a.m.k....var allavega í tísku á mínum yngri árum. En þegar búið er að sleikja allt auka soð og hvern einasta dropa af sósu upp af diskum, pottum og pönnum þá tekur eftirrétturinn við þar til rúmið kallar, ísskápurinn, frystirinn, allir skápar og skúffur þræddar eins og líf velti á því að eitthvað finnist þar og oftar en ekki er eitthvað sem leynist þar...allavega að hægt sé að sulla einhverju saman og gera að hálfætu gumsi...en hálfætt þýðir bara að það sé étið!!!
Er þetta það sem kallast átfíkn?? og matarfíkn í bland kannski þar sem á meðan ég ét get ég eytt tímunum saman í að skoða uppskriftir og hráefni...til dæmis var ég ógeðslega pirruð yfir því að Hagkaup var ekki með lista á netinu yfir ALLA matvöru sem þeir hafa í hillum sínum...ég þurfti nauðsynlega að lesa þann lista.
Þar sem sjáfstjórnin er svo engin og hefur aldrei verið, þá hlýtur þetta fyrr en síðar að verða að vandamáli þannig að á morgun tekur við matseðlagerð, matardagbók og annað í þeim dúrnum. Það ætti að halda mér upptekinni í matargeiranum :)
EN NÓG UM MAT...hætti hér og ætla að fá mér eitthvað að borða fyrir svefninn ;))
|
"Nú mátt þú ekki keyra lengur"
27.06.2008 23:25 - Hjördís skrifar
Við fjölskyldan förum oft í göngutúra um helgar þegar allir eru heima, þá þrjú fótgangandi (eða tvö fótgangandi og einn á systkinapalli) og svo einn í vagni. Síðustu helgi röltum við í Bónus hér hinum megin við Elliðavatn. Ég var með yfirráð yfir vagninum og þeir feðgar Guðmundur og Benjamín löbbuðu við hlið okkar Ísaks. Eins og oft vill verða á langri göngu með vagn fer maður (eða allavega ég) oft að sleppa höndum af handfanginu og ýta vagninum nokkra sentímetra á undan sér. Þegar stóri bróðirinn sá þessar aðferðir mömmunar við að ýta vagninum varð minn nú ekki kátur og sagði: "Mamma, þú mátt ekki gera þetta, nú skal ég keyra", mömmunni var ýtt úr vegi og ábyrgðarfulli bróðirinn keyrði vagninn áfram ÁN ÞESS AÐ SLEPPA HÖNDUNUM...greinilega mjög umhugað um öryggi litla bróður og þessi kærulausa mamma augljóslega ekki með á nótunum!!!!
Þetta hefur síðan gerst oftar eftir þetta! Ég verð greinilega að fara að taka mig á í vagnaýtingunum!
|
"Þú brýtur það bara"
26.06.2008 23:18 - Benjamín skrifar
Um daginn vorum við í heimsókn hjá Gauta og Helgu, Sebastíani Óla og Hrafnhildi Gerðu. Þau eiga rosa flott og stórt trampolín sem margir geta hoppað á í einu. Ég var einn á trampolíninu og mamma mín spurði hvort hún mætti koma og hoppa með mér á því. Mér leist nú ekki á blikuna og sagði þessa skemmtilegu setningu við mömmu mína " Neeeeeeeei, þú brýtur það bara" :)...mamma vill að ég taki fram að trampolínið tekur 100 kíló og hún varð mjög móðguð en öllum öðrum fannst þetta voða fyndið.
Svo eitt kvöldið vildi ég ólmur sofna í mömmu og pabba bóli. Pabbi var ekki alveg sáttur við það og sagði við mig að hann myndi þá bara leggjast í mitt rúm og sofa þar. Mér leist nú alls ekki á það og sagði við hann, "Nei, þú brýtur bara rúmið mitt"...
Tröllaálit, í orðsins fyllstu merkingu, sem sonurinn hefur á foreldrum sínum!!!
Skoða tjaningar.
(1 hefur tjáð sig, síðast Lilja í Fríi)
|
Yfirlit
26.06.2008 13:29 - Hjördís skrifar
Margt hefur gerst síðustu tvær vikur
Ég er orðin kennari, útskrifaðist 14. júní, hvað svo sem verður þegar út á vinnumarkaðinn verður komið. Til hamingju ég!!
Fórum í afmælisveislu til Alberts og Árna en þeir urðu 8 og 6 ára 14. og 23. júní. Þar var svaka fjör. Til hamingju með afmælin elsku frændur.
17. júní var upphafið að 9. árinu okkar Guðmundar Óla saman, óhætt að segja að tíminn fljúgi. Til hamingju við!!
17. júní var líka fremur vindasamur þó svo að sólin hafi verið hátt á lofti. Við röltum í bænum og skelltum okkur svo bara í læri til ömmu Gerðu vindbarin og fín!! Til hamingju Ísland!!
Garðveisla var á Skúlagötunni og Klapparstíg í Spánarveðri þar sem vínið, bjórinn, kókið og kristallinn flóðu út um allt ásamt grillmatnum, kökunum, ávöxtunum og grænmetinu. Mjög skemmtileg hugmynd og sérdeilis vel heppnað (Haldin sameiginleg garðveisla fyrir dósasjóð bygginganna). Til hamingju með frábæra veislu Völundarlóð!!
Lítil stúlka bættist í þennan fagra drengjahóp fjölskyldunnar þann 19. júní þegar Júlíus bróðir eignaðist sitt 2. barnabarn ;)...Til hamingju með prinsessuna Freydís og allir.
Amman lukkulega átti svo afmæli tveimur dögum síðar, ekki tekið fram hve gömul en óhætt að segja að hún sé kornung amma!! Til hamingju með árin Helga mín.
Benjamín er rosa ánægður á leikskólanum og samkjaftar ekki eftir að hann kemur heim, alls kyns sögur og skemmtilegheit af leikskólanum, hann talar meira að segja á nóttunni!!!
Sótti Benjamín í gær á leikskólann. Starfsmaðurinn sagði við mig "Hann er búinn að tala ENDALAUST síðan við komum út" (rúman klukkutíma).
Ísak er ennþá á fullu í því að vera englabossi og lítið sem ekkert þarf að hafa fyrir honum. Ef ekki væri fyrir hið óbrygðula minni móðurinnar væri einum of auðvelt að gleyma honum, stundum lít ég snöggt aftur í bílinn til að athuga hvort stóllinn sé ekki örugglega í sætinu
Ísak varð tveggja mánaða í fyrradag, afmælisdag ömmu Gerðu 24. júní. Fórum í afmælisveilsu og var voða gaman. Til hamingju amma Gerða og Ísak.
Búið að vera svakalega gott veður undanfarna viku og vel hægt að nýta svalirnar sem við eigum. Elliðaárdalurinn kemur líka sterkur inn fyrir göngutúrana í blíðunni.
Ný styttist í austurferð hjá okkur mæðginunum og þá verður nú aldeilis fjör hjá ömmu Siggu og afa Albert sem eru komin með hnút í magann að fá allt liðið í einu, sem ég veit ekki betur en hafi verið hugmynd frá afanum...CAREFUL WHAT YOU WISH FOR!!!!!
Gullkorn eldri prinsins láta ekki á sér standa en móðirin alltof léleg að muna þau og skrifa niður, reyni að rifja upp nokkur á morgun og skelli hér inn!!
Bless í bili.
|
Jájá
11.06.2008 23:53 - Hjördís skrifar
Ég biðst velvirðingar á fréttaleysi en það mun skána strax eftir helgina, vonandi. Margt skemmtilegt búið að gerast síðan síðast.
Við fórum í heimsókn í Hafnarfjörðinn á mánudag eftir leikskóla.
Árdís og Magga Dís komu í heimsókn til okkar á mánudagskvöldið...og ætluðu aldrei að fara ;) (persónulegt grín).
Ég fór í stórinnkaupaleiðangur með Árdísi og Möggu á þriðjudeginum.
fór svo í AFS "saumó" á þriðjudagskvöldið og þar eru tvær óléttar...vorum fjórar í síðustu óléttum...vantar þá bara eina í viðbót núna, spennandi hver smitast ;)
Billa passaði eldri prinsinn á meðan þar sem Guðmundur var í vinnunni langt fram á kvöld.
Fórum í heimsókn til ömmu Gerðu og co í dag eftir leikskóla þar sem farið var í vatnsblöðrustríð í góða veðrinu.
Guðmundur Óli er að fara í frí á morgun fram yfir þarnæstu helgi
Sumarið er að verða búið!!!
Eða svona næstum. Kláraði aðlögun á mánudaginn, vildi ekki senda hann eldsnemma í leikskólann þar sem hann var búinn að vera veikur yfir helgina. Fór svo hálf átta með pabba sínum í gærmorgun og í morgun og vill alls ekki koma heim þegar ég sæki hann. Ísak englabossi er nú aldeilis farinn að færa sig upp á skaptið (- t) og heimtar hitt og þetta á ótrúlegustu tímum, aðallega að drekka og láta halda á sér þó. Hann vill ekki liggja út af en ég reyni þó að segja honum að á meðan maður kann ekki að sitja þá verður maður stundum að sætta sig við það að maður verður að liggja út af...illskiljanlegt :) Mamman má samt ekki vera allt of harðorð því hann er nú ósköp góður að taka athyglisleysinu sem oft vill verða þegar mikið er að gera...hann fór til að mynda í þriggja og hálfs tíma innkaupaferð í kringluna í gær og haldiði að minn hafi ekki bara sofið allan tímann svo mamman gat nú aldeilis spreðað "cashinu" og stóð sig mjög vel í því líka!! Hann situr síðan langtímum saman í rólunni sinni og spáir í hlutina í kringum sig mjög svo brúnaþungur og hugsi á svip...erfir greinilega gáfur móður sinnar enda nóg til skiptanna þaðan þó svo að börnin yrðu á annan tug (já sjáum bara til).
Annars er bara útskriftin á næsta leiti, þarf nú að láta taka aðeins til í heysátunni á hausnum á mér á morgun svo maður verði sér nú til sóma þegar maður útskrifast (eða allavega ekki alveg til háborinnar skammar)...aðrar heysátur geta beðið betri tíma.
Veit ég veit og veit að það er löngu kominn tími til að setja inn myndir á barnalandið en það bara einhvernveginn hefur ekki unnist tími til þess að nenna!! þið skiljið! og Árdís mikið er ég hreykin af því að þú látir loksins ljós þitt skína hér á síðunni og sést greinilega á skrifum þínum að á laugardaginn mun háskóli íslands útskrifa einn merkasta lækni íslandssögunnar ;)
Annars bara allt í gúddí og kominn tímí´á það að hoppa upp í rúm og ná sér í smá fegrunarblund fyrir gjafir næturinnar...sem eru by the way að verða ansi þreytulegar og stundum mætti sjálfsagt kalla þær svefngjarfir þegar bæði móðirin og unginn sofa á meðan á átökunum stendur...annars var ég að spá í það hvað það væri nú notalegt að geta bara sofið og sofið...sofið svo bara á meðan maður borðar og haldið svo bara áfram að sofa, synd að vera búin að gleyma algjörlega hvernig það er, skyldi maður hafa kunnað að meta það, því verður seint svarað...allavega held ég að fáir geti svarað því með algjörri vissu!!
Skoða tjaningar.
(2 hafa tjáð sig, síðast Árdís)
|
Tímaleysi
08.06.2008 13:08 - Hjördís skrifar
Tíminn líður eins og hann sé bíll á formúlu 1 brautinni. Ég veit ekki hvert dagarnir fara og klukkustundirnar eru ekki nema svona u.þ.b. 3 í sólarhringnum ef marka má síðustu tölur. Mér finnst ég ekki hafa tíma til neins og ekkert verður úr hlutunum. Ég vakna á morgnana og allt í einu er klukkan orðin hálf eitt, þá ranka ég aðeins við mér og klukkan þá rokin í fimm og Guðmundur alveg að fara að koma heim en svo er klukkan orðin hálf tólf og allt of margt og maður hundskast í rúmið og ef litið er yfir daginn þá veit ég ekki hvað ég hef verið að gera annað en að hugsa um það hvað ég ætti nú að gera á þessum stutta tíma...því bara meðan hugsunin rennur í gegnum hugann þá hafa svona u.þ.b. 7 klukkustundir liðið af deginum. Ótrúlegt alveg hreint...áður en ég veit af mun ég vera að halda upp á 4 og 1 árs afmæli:)
Aðlögunin hefur gengið vel á leikskólanum, honum finnst voða gaman og meira að sega sagði á fimmtudagsmorguninn þegar við mættum "þarna er félaginn minn" og benti á einn strákinn, þá skildist mér á honum að hann hafi verið félagi hans í göngutúr sem þau fóru í einn daginn. En á þegar ég sótti hann á fimmtudeginum var hann eitthvað leiður í útiverunni og deildarstjórinn sagði mér að hann hefði eginlega ekki viljað fara út. Svo spurði hún "veistu hvernig hann var í hvíldinni í Grindavík, hann vill nefnilega ekki leggjast niður" haha...þekkjum við hann þarna eða??
En allavega hann var greinilega orðinn veikur og um nóttina ældi hann og var með mikinn hita þannig að ekkert varð úr leikskólanum á föstudaginn. Hann er ennþá soldið slappur og var með hita í gærkvöldi, mjög rámur og með ljótann hósta.
Ísak er alltaf sami englabossinn sem bara drekkur og skemmtir sér og fjölskyldunni með hinum ýmsu furðusvipum sem hann setur upp og hlátra"sköllum". Hann er einmitt að leggja sig núna og er ég að spá í að skella mér inn til hans þar sem ég er frekar þreytt eftir ekki svo góðar nætur hjá Benjamín á meðan þeir eldri feðgarnir eru hjá Gauta að horfa á boltann!!
Skoða tjaningar.
(2 hafa tjáð sig, síðast Árdís)
|
Sykurpúð____kk. et.
08.06.2008 09:05 - Benjamín skrifar
Benjamín fékk einn sykurpúða að smakka í gærkvöldi, pabbi hans var eitthvað að stússast inni í Ísaks herbergi, þegar hann kemur svo fram segir Benjamín, "pabbi, ég er með sykurpúð", "nú ertu með sykurpúða" sagði pabbinn. "Nei, sykurpúð" sagði Benjamín. Pabbinn reyndi eitthvað að útskýra að það ætti að segja að maður væri með sykurpúða, þá sagði sá stutti "Nei ég er bara með EINN"!!!
Og þar með varð liðið kjaftstopp!
Skoða tjaningar.
(1 hefur tjáð sig, síðast Lilja)
|
Double duty
04.06.2008 23:33 - Hjördís skrifar
Það er víst ekki hægt að skipta sér í tvennt þó svo að maður vildi. Það koma tímar þegar maður á tvö (eða fleiri) börn að maður getur þurft að vera á fleiri en einum stað í einu. Það gerðist í dag.
Ísak þurfti að fara í sex vikna skoðun í dag klukkan 13:10, Benjamín er kominn með skít í augað og átti að vera niðri á Dómus kl. 13:00 svo var viðtal við deildarstjórann hans Benjamíns kl. hálf eitt. Það þurfti því báða foreldra til þess að pússla þessu saman. Pabbinn þurfti því að fara úr vinnu og taka Benjamín niður á Dómus á meðan mamman talaði við stjórann og fór svo með litla barnið í skoðun. Feðgarnir lentu í umferðarteppu á leið sinni niðureftir en þegar þangað var komið hafði sýkillinn ákveðið að pakka saman og halda á braut, en þeir fengu samt lyfseðil sem á að leysa út ef augað er sýkt í fyrramálið, það var nú komið eitthvað í það í kvöldmatnum aftur en við sjáum til með fyrramálið!
Yngri prinsinn er svona rífandi fínn, þyngist vel og lengist, er orðinn rúm 5 kíló og nær 60 cm enda algjör risi. Hann var líka mömmulaus í kvöld. Pabbinn var heima með prinsana meðan mamman fór í bíó að sjá "Beðmál í borginni - the movie!!! Það var víst eitthvað grátið, veit ekki hvort það var feðgakór en allavega hjá þeim yngsta. Hinn, eldri litli prinsinn sofnaði um hálf átta uppgefinn eftir daginn á leikskólanum. Elsti prinsinn á heimilinu er líka farinn að sofa enda þreyttur eftir átök kvöldsins (og dagsins að sjálfsögðu).
|
Blásalir
02.06.2008 17:14 - Benjamín skrifar
Í dag fékk ég að fara í nýja leikskólann minn. Ég átti bara að vera hálftíma í dag en það teygðist í klukkutíma, það var bara svo mikið að skoða og prófa. Hitti fullt af krökkum, sumir voru soldið óþekkir og þurftu að fara út úr valinu og fengu ekki að velja, konan þurfti að velja fyrir þá. En næstum allir voru samt voða stilltir og prúðir. Ég fæ svo að fara í aðeins lengri heimsókn á morgun, ég hlakka rosa mikið til. Deildin mín heitir Rauða deild og það er rosa mikið sem hægt er að gera þar, svo heitir önnur deild Græna deild og þar eru líka stórir krakkar eins og á Rauðu deildinni og þessar deildir fá oft að leika saman. Ég er samt minnstur á Rauðu deildinni ennþá en bráðum koma jafnstórir krakkar og ég á deildina.
Það var líka ógeðslega skemmtilegt um helgina, ég var að leika allan tímann og fullt fullt af fólki og krökkum komu í heimsókn til mín. Svo fór ég á sjómannadagskrá með ömmu og afa og hoppaði í hoppukastalanum næstum því allan tímann, varð svo heldur úrillur þegar maðurinn fór að pakka honum saman...ekki gott múv!! Á laugardagskvöldið komu svo fullt af frænkum og frændum og í gærkvöldi komu ennþá fleiri frændur og frænkur sem var voða gaman. Í dag þurftum við mamma og Ísak svo að keyra ömmu Siggu á flugvöllinn en hún er búin að vera í Reykjavík um helgina og það var ROSA skemmtilegt og ég vildi ekkert að hún færi. En þegar ég sá að hún þurfti að fara þá ætlaði ég bara með...en mátti það ekki..hnuss!!!
En núna er ég rosa ROSA þreyttur og get varla meira, búinn að sofa í einn og hálfan tíma og GET EKKI VAKNAÐ!!!!!!!!!
Skoða tjaningar.
(1 hefur tjáð sig, síðast Lilja)
|
| |