|
|
Fréttir í Júní 2007
|
Afi og Amma á Spáni
16.06.2007 11:13 - Benjamín skrifar
Amma Gerða og afi Helgi eru með Billu, Víði, Teresu og Kristni á spáni núna. Mér finnst þau nú vera búin að vera soldið mikið of lengi í burtu sko og mamma segir mér að þau eigi eftir að vera þar jafn lengi og þau eru búin að vera :( það finnst mér leiðinlegt. Þegar við förum til Reykjavíkur skil ég ekkert í því að við erum ekki að fara til ömmu og afa, ég skamma bara mömmu og pabba fyrir það að ég sé ekki með þeim, næst förum við sko með!!!
Ég hitti samt afa Albert og ömmu Siggu síðustu helgi og fékk að sofa í húsbílnum þeirra og allt. Ótrúlega skemmtilegt og ég tala varla um annað en húsbílinn, hann var SVAKALEGA flottur. Mamma og pabbi máttu sko bara dúsa í fellihýsinu ein! Langafi Geir varð 80 ára á sunnudaginn og þar af leiðandi hitti ég fullt af öðrum hressum ættingjum sem voru soldið ruglaðir. Það var heljarinnar veisla og rosa gaman, en mikið var ég þreyttur eftir helgina...það er sko full vinna að vera krúttari til að heilla fjölskyldumeðlimi, sérstaklega þegar maður heldur að maður heilli þá með því að vera með alls konar kjánalæti og vesen!!
Albert Elías frændinn minn átti síðan afmæli 14. júní og hann fær sko pakka þegar hann er kominn heim til okkar annað kvöld :) Til hamingju með afmælin langafi og Albert Elías og allir sem hafa átt afmæli á síðustu mánuðum og ekki hefur verið tekið hér fram. Ritarinn er eitthvað að slaka á afmæliskveðjunum :D
Skoða tjaningar.
(4 hafa tjáð sig, síðast Elva)
|
Tomorrow is the day BABY!!!
16.06.2007 11:02 - Hjördís skrifar
Margt sem er að gerast á morgun. Á morgun er 17. júní og Benjamín búinn að búa til alveg svakalega flottan fána og lita í fánalitunum. Annað kvöld koma Lilja, Albert, Árni og Ágúst AFTUR HEIM frá FRAKKLANDI og ætla að gista hjá okkur eina nótt áður en þau fara í nýju íbúðina sína (Neinei þau skildu Ara Pál ekki eftir til frambúðar, hann kemur eftir nokkra daga með Norrænu). Loksins LOKSINS eru þau komin heim aftur, við búin að sakna þeirra síðan þau ákváðu að flytja út. Síðast en ekki síst eru liðin 7 ár á morgun frá því að við Guðmundur Óli byrjuðum saman á Mývatninu góða:) Það svoleiðis hrynja gullkornin út úr Benjamín þessa dagana sem ekki er búið að skrifa niður en ég ætla að fjárfesta í bók á eftir og eyða tíma í að rifja þau upp og færa þau svo e.t.v. hér inn. Hann er líka svo glaður á leikskólanum, hlær allan daginn og um leið og heim er komið vill hann bara fara aftur á leikskólann og ekkert gaman heima með mömmu, sama hvað ég reyni að gera með honum...nema ef við erum úti, þá er náttúrulega alltaf gaman. Búin að finna hesta sem við getum gefið brauð og nú förum við reglulega að gefa hestunum brauð og klappa þeim, þeir eru nú samt bölvaðar frekjur og henda hver öðrum til.
Ég er búin að vera að sjá um íþróttirnar á leikskólanum í vikunni, sem er nú varla til frásögu færandi nema það að á þriðjudagsmorguninn vaknaði ég með HARÐSPERRUR og á miðvikudagsmorgun hafði bætt verulega í þær :) Það var mikið hlegið að þessu og greinilegt að formið er ekki upp á sitt besta.
Æ ég ætla ekki að hafa þetta lengra, ég finn það að ritstíflan er við það að losna, ég ætla að skrifa aftur þegar hún er laus.
Skoða tjaningar.
(1 hefur tjáð sig, síðast Lilja, AEA, ÁDA og ÁÖA)
|
| |