Forsíða
Um okkur
Eldra efni


Vinir og ættingjar
Ari Gabríel
Birkir Örn
Burknavallakrúttin
Bína
Dagur og tvillarnir
Karen Hrund
Kjartan og Lovísa
Magnús Orri
Patrik og Ísabella
Sigga Hulda
Silja
Tvíburamamman
Fréttir í Júní 2006

Afmæli
30.06.2006 20:57 - Benjamín skrifar
Hann Birkir Örn litli frændi minn varð eins árs í dag. Við óskum honum innilega til hamingju með að vera orðinn svona stór og takk fyrir okkur áðan.
Ég fór bara út að hjóla í gær eins og herramaður á nýja hjólinu hans pabba. Reyndar sá pabbi um að hjóla en ég sat aftaná í stólnum mínum og starði bara á mömmu hjól, þetta var nú ekkert smá gaman og ég enginn smá töffari með hjálm...við hverju öðru var að búast?
Áðan fórum við svo í afmæli til Birkis Arnar frænda míns og það var heldur betur fín veisla, ég fékk pylsu og svo fullt af gómsætum kökum (þ.á.m. kókoskökuna hennar Aspar:)) Ég var orðin svo þreyttur að ég sofnaði næstum því á öxlinni á mömmu í afmælinu og það gerist nú ALDREI. En allt í einu kom svo langamma Hjördís labbandi inn í veisluna, það var nú heldur en ekki skemmtilegt en ég var svo þreyttur og stúrinn orðinn að ég mátti ekkert vera að því að skemmta veislugestum og vildi bara komast heim, það varð því úr að við skunduðum heim á leið og ég sofnaði á leiðinni og nennti ekki að vakna þegar ég kom heim og lét mömmu og pabba heyra að mig langaði inn í rúm með dudduna mína, ég var því píndur með tannburstanum og svo fékk ég  að fara inn í rúm LOKSINS og er steinsofnaður á mínu græna eyra.

Skoða tjaningar. (1 hefur tjáð sig, síðast BILLA ÓSK OG VÍÐIR ÓLI)


Myndir, hjól og kettlingar
28.06.2006 22:28 - Hjördís skrifar
Það er orðið svo langt síðan maður skrifaði eitthvað af viti síðast að maður er bara búinn að gleyma hvernig á að skrifa. Hér skal samt reynt að halda áfram uppteknum hætti og láta vita af uppátækjum fjölskyldumeðlima, því ekki tölum við af okkur, svo mikið er víst...frekar að við skrifum af okkur:) Reyndar eru sjálfsagt allir hættir að nenna að kíkja hér inn vegna aðgerðaleysis (vegna netleysis) síðustu vikur.
Vil byrja á því að óska Hildi Jónu æskuvinkonu minni innilega til hamingju með 26 ára afmælið í gær 27.júní. Júlíusi bróður tókst nú ekki að kreista krógann út úr konunni sinni á þessum degi eins og hann ætlaði, en hann hlítur nú að fara að láta sjá sig...nema hann hafi heyrt svo ægilegar sögur á meðan hann hefur dvalist í móðurkviði að hann hreinlega þori ekki að láta sjá sig :)
Nýjar myndir hafa einnig litið dagsins ljós hér á síðunni og þrjú ný albúm komin hér í hægra hornið. Nú vinn ég á fullu í því að laga til myndir til að framkalla og setja í albúm...enda ekki seinna vænna þar sem ekkert hefur verið framkallað frá því fyrsta stafræna myndavélin var keypt í desember 2003 en myndirnar orðnar frekar margar...og dýrmætar.

En það nýjasta að frétta hér er að við skunduðum í bæinn í dag og keyptum okkur hjól og barnastól á hjólin svo nú skal hjólað allra sinna ferða...allavega um sinn:) Það verður nú samt bara gaman enda búumst við við frábæru veðri það sem eftir er sumars fyrst júní hefur verið svona einskonar haustmánuður...það hlítur því að koma að góða veðrinu. En talandi um gott veður þá tók ég nú upp á því seint í gærkvöldi í þessu líka GEGGJAÐA veðri að slá blettinn, og var hann allur sleginn um hálf tólf leitið sem er nú orðinn ólöglegur slátturtími að því að ég held, þá eru bara blómabeðin eftir...eða eitthvað, kannski ég slái þau bara líka :)

Við fórum líka með kettlingana tvo sem ekki hafa fengið heimili til dýralæknisins sem var okkar eini möguleiki í stöðunni, en það var örlítill léttir í hjarta að þá var dýralæknastofan akkúrat lokuð á þriðjudögum þannig að við fórum með þá heim aftur og því vantar enn tvo litla kettlinga heimili ef einhver er hjartgóður. Að öllu óbreyttu þó þá mæta þeir örlögum sínum á morgun eða laugardag :( og það er nú pínu kvíði í litlu hjarta yfir því, þeir hafa jú verið hér í rúmar 11 vikur og eru í raun orðnir hluti af fjölskyldunni og ÓENDANLEGA fallegir og skemmtilegir.

Látum þetta hinsvegar vera nóg í bili.



Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast amma GERÐA og afi HELGI)


Jáhá
26.06.2006 13:27 - Hjördís skrifar
Ég sumsé var að fá netið núna aftur eftir næstum tveggja vikna fötlun hjá símanum, þeir veita nú aldeilis góða þjónustu hjá þessu frábæra fyrirtæki og ef þið viljið ekki bíða lengur en tvær vikur með að koma netinu í lag og láta svo rífa alla tengla, snúrur og parketlista í tætlur þegar bilunin liggur í "smá bilun hérna niðri í símstöð" þá mæli ég hiklaust með símanum. En það kom sumsé maður hérna fyrir 10 mínútum síðan og sagði: "við fundum smá bilun hérna niðri í símstöð" og þar með var hann farinn án þess að biðjast afsökunar né neitt...
Anyways, lífið hefur nú bara gengið svona sinn vanangang nokkurnveginn en það helsta sem er í minninu er það að Guðmundur Óli vinnur nú baki brotnu í yfirvinnu (ef ég hefði sumsé skrifað þetta í þarsíðustu viku) svo við getum nú loksins sett upp þessa blessuðu svalahurð í stofunni. KR tapaði 5-0 fyrir Grindavík en það var nú allt Jóni Fannari að kenna, enda byrjuðu Grindvíkingar ekki að skora fyrr en hann lét sjá sig á leiknum þegar vel var liðið á fyrri hálfleik. Svo var bara fullt að gerast og núna eru ein og hálf vika þar til við förum til Frakklands að spóka okkur í hitabylgjunni í Meximeux:)
Síðan eru náttúrulega fullt fullt FULLT af afmælum búin að vera og fleiri væntanleg en ég vil bara byrja þar sem frá var horfið.

Helga mágkona varð FERTUG á miðvikudaginn síðasta 21.júní, Árni Dagur frændi minn varð 4 ára á föstudaginn þann 23.júní og síðast en ekki síst átti hún Amma Gerða 46 ára afmæli á laugardaginn 24. júní og að sjálfsögðu voru mikil veisluhöld (spyrjið bara Guðmund Óla:)

Óskum þeim öllum innilega til hamingju með afmælin sín

En maður verður víst að ná upp netlestrinum sínum svona rétt áður en farið verður til útlanda. Látum í okkur heyra ef meira rifjast upp :)

Skoða tjaningar. (1 hefur tjáð sig, síðast Lilja)


Albert frændi minn!!
14.06.2006 11:32 - Benjamín skrifar
Hann Albert stóri frændi minn á afmæli í dag. Hann er alveg orðinn 6 ára og er að fara í skóla útí FRAKKLANDI í haust.  Elsku frændi minn, til hamingju með daginn!!!

Skoða tjaningar. (4 hafa tjáð sig, síðast Ari Páll)


Gleðilegan sjómannadag
11.06.2006 20:39 - Hjördís skrifar
Hér er búið að vera mikið um að vera um helgina sem ég einhvernveginn nenni enganveginn að segja frá. En hér var bryggjuball með Pöpunum á föstudagskvöldið sem var bara furðuskemmtilegt þó svo að það hafi verið orðið heldur kalt undir lokin. Við litum svo við í Reykjavík á Skúlagötuna til að heilsa uppá ferðalangana sem eru nú loksins komnir heim og fengum FULLT af góðum gjöfum, takk fyrir það. Síðan var ferðinni heitið inn í Hafnarfjörð í útskriftarveislu Örnu vinkonu sem er nú orðin "líf-eitthvað-fræðingur" öðru nafni meinatæknir og getur nú farið að vinna í CSI þáttunum :) Að sjálfsögðu var svo sjómannadagsball á fjórum stöðum í bænum og sameiginlegur miði á alla staðina þannig að það var tjúttað og trallað fram undir miðjan morgun og því augun ekki alveg tilbúin að vakna þegar vekjaraklukkan vaknaði. Annars er dagurinn bara búinn að vera rólegur og góður og hellirigning úti. Þar sem sumarfríið er skollið á og dagarnir líða nokkurnveginn ALLIR EINS þá verður næsta færsla þegar eitthvað markvert gerist...þ.e.a.s. ef dagurinn gengur ekki þannig....vaknað, borðað, leikið, lagt sig, vaknað, borðað, bláa lónið, pabbi kemur heim, leikið, borðað, leikið og sofið. Með kannski lítilsháttar frávikum þó eins og heimsóknum til eða frá og þess háttar. Því ætla ég bara næstu daga að leyfa ykkur að njóta þessa texta sem ég stal af annari síðu :) Ekki það að allt þetta gerist á mínu heimili en börnin eru samt ekki þau einu til að segja þessa setningu ;)

Börnin vöktust og klæddust,
grauturinn eldaðist og ást,
það bjóst um rúmin og sópaðist,
þvotturinn þvoðist og hengdist upp,
það gerðist við og stoppaðist í,
saumaðist og prjónaðist,
tertan bakaðist og borðaðist,
það vaskaðist upp og gekkst frá,
börnin hugguðust og hjúfruðust,
það breiddist yfir þau og kysstust góða nótt.
þegar þau voru spurð:
hvað gerir mamma þín?
urðu þau undirleit og svöruðu lágt:
ekkert, hún er bara heima.

Skoða tjaningar. (1 hefur tjáð sig, síðast GERÐA amma)


Öppdeit
09.06.2006 13:48 - Benjamín skrifar
Það er víst eitthvað verið að nöllast yfir því að seint gangi að setja inn myndir og færslur. Það er líka sumarfrí, það gengur mjög erfiðlega að hanga fyrir framan tölvuna í sumarfríinu. En það er nú helst að frétta að Anna Karen vinkona mín kom heim frá Króatíu og var að passa kisurnar mínar á meðan ég var hjá afa og ömmu á Stöðvarfirði, hún kom með fullt af góðu nammi...sem ég má reyndar ekki fá og svo fékk ég ÆÐISLEGAN Bubba byggi bol með nafninu mínu og allt. Hún er svo góð. Síðan komu Karítas og mamman hennar og pabbi í heimsókn til okkar og það var rosa gaman. Við Karítas fengum að vera bara með pöbbunum okkar á meðan kvensurnar skelltu sér í lónið, það var dáldið fjör. Síðan fórum við mamma í Lónið í gær og það var nú oftar sem áður bara fólk þar sem bullaði og bullaði eitthvað algjörlega óskiljanlegt!! En svo kom Teresa frænka til okkar eftir að ég var sofnaður og var hjá okkur í alla nótt og ég þekkti sko rúmið inni hjá mömmu og pabba í morgun og vildi bara fara og vekja hana. Kallaði og kallaði en hún bara vaknaði ekki neitt, svo fór ég að leika við hana þegar hún vaknaði en varð soldið abbó þegar mamma mín var að gefa henni að drekka...enda orðinn dauðþreyttur og löngu komið framyfir vagntímann minn.
Síðan koma amma og langamma og Billa og Víðir heim í kvöld frá Danmörku og ég hlakka voða mikið til að hitta þau öll á morgun:)

smá innskot!!! Við mamma vorum að koma úr bláa lóninu (16:47) og vitiði hvað VIÐ GLEYMDUM BLEYJU, þannig að ég varð bara að fara bleyjulaus í öll fötin mín og við brunuðum eftir stígnum, hoppuðum inn í bílinn og þutum heim...og ég var bara þurr þegar við komum heim (mamma var pottþétt á því að ég myndi nú akkúrat gera bæði nr.1 og 2 fyrst ég var nú bleyjulaus:)

Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast amma Sigga)


Komin heim!
06.06.2006 00:08 - Hjördís skrifar
Jæja, það hefur nú lítið verið hreyft við síðunni síðustu vikuna. Ekki vegna þess að tæknin sé eitthvað verri fyrir austan heldur vegna þeirrar ástæðu að maður týmdi einfaldlega ekki að setjast fyrir framan tölvuna til að fara að vesenast eitthvað. Þetta var svo skemmtilegt og ég fæ alltaf á tilfinninguna þegar ég kem austur að þarna eigi ég bara heima og passi ekki inn neinsstaðar annarsstaðar...en svo er alltaf gott að koma heim aftur samt! Við fengum alveg hreint frábært veður,þó ekkert Grindavíkur pallaveður eins og það gerist best en það var sól og að mestu blíða allan tímann og Benjamín ekki sérlega ánægður þegar þurfti að gera 5 mínútna hlé á útiveru til að skipta um bleyjur eða fá sér að borða.
Sólarhringurinn fór eitthvað úr skorðum og Benjamín tók nú upp á því að fara að vakna klukkan fimm á nóttunni við mjög lítinn fögnuð viðstaddra. En svo fyrstu tvo dagana svaf hann líka 4 tíma í vagninum í einum dúr, en þá var hann vakinn af mömmu sinni. En svo lengdust líka dagarnir og stubburinn fékk að vaka lengst frameftir að skemmta sér til að freista þess að sofa nú kannski til svona sjö/átta, en það var bara sama góða sagan...ræsensjæn klukkan fimm!
Við afrekuðum nú alveg helling á þessum tíma, fórum tildæmis í sundlaugina með Karítas, Magneu, Elísu og Svövu, það var einstaklega skemmtilegt þó svo að laugin hafi nú verið frekar köld, veðrið var bara þeim mun æðislegra. Síðan fórum við yfir á Fáskrúðsfjörð í heimsókn til Karítasar Emblu og Svövu og lékum okkur þar...að sjálfsögðu úti...síðan fórum við í heimsókn til Ingunnar upp í blokk og Benjamín fékk að leika lausum hala í allskyns tækjum og tólum og skildi svo eftir sig gott kexfjall á gólfinu og Ingunn gat skemmt sér frameftir nóttu við að koma íbúðinni í samt lag. Guðmundur Óli kom síðan austur á föstudagskvöldinu og Benjamín vissi ekkert hvernig hann átti að vera þegar hann sá pabba sinn upp í rúmi þegar hann vaknaði um morguninn, nuddaði bara augun og klóraði sér í hausnum og hélt sjálfsagt að þetta væri draumur, því ekki var pabbi þarna þegar hann fór að sofa! Síðan komu Júlíus, Helgi Steinarr og Bergsveinn líka og Kjartan kom með Guðmundi Óla þannig að það var mjög glatt á hjalla í Vesturholtinu yfir helgina.
Ég fór svo á ball með Svövu og Óðni á laugardagskvöldinu, ballið var á Eskifirði og það var ÓGEÐSLEGA GAMAN, við hittum allskonar fólk sem við höfðum verið í skóla með, og gamlir vinir og kunningjar voru þarna og það vita allir sem hafa reynt það er eitt það skemmtilegasta í skemmtanalífinu, að hitta löngu "horfna" vini aftur. Þá var ég náttúrulega kominn heim einhverntíma seint um nóttina og fékk nú að sofa til níu en þá voru þrír ömmu og afa strákar frammi og mamma og pabbi og Guðmundur Óli öll frammi og því ekki lengur svefnhæft í húsinu,allaveganna ekki efstu hæðinni, Kjartan svaf hinsvegar eins og engill á neðstu hæðinni! En það var ekki hægt að slá slöku við í sveitasælu þannig að við tók dagurinn og enginn tími til að vera að lúlla. Við fórum á Kross og hittum þar fullt af fólki og skoðuðum allar kindurnar og lömbin og hænurnar og hanana og svo tvær kanínur sem eru þar. Þetta held ég að Benjamín hafi fundist toppurinn á ferðinni fyrir utan það að kyssa ömmu sína góða nótt, sjaldan sem maður hefur séð þvílíkan stút og slef þegar einhver er að kyssa góða nótt! Heimferðin í dag gekk svo bara mjög vel fyrir utan "smávægilegan" leka á bensíntanknum en á tímabili eyddi bíllinn 50 lítrum á hundraði, en það komst jú í lag á Klaustri en sjaldan hefur ferðin suður kostað jafnmikið. Benjamín svaf alla leið frá Stöðvarfirði og að Freysnesi (3 tíma sumsé) en við þurftum svo að stoppa í Klaustri í viðgerð og fá okkur að borða og svoleiðis, síðan svaf hann frá Klaustri og næstum alla leið til Reykjavíkur...þvílíkur engill sem hann er og var svo bara sæll og ánægður alla leiðina heim enda búinn að skemmta sér mjög vel síðustu vikuna:) Auðvita var myndavélin batteríslaus fyrstu þrjá dagana og hleðslutækið víðs fjarri, en vonandi koma inn myndir fljótlega.


Skoða tjaningar. (5 hafa tjáð sig, síðast Lilja)


Myndir