Forsíða
Um okkur
Eldra efni


Vinir og ættingjar
Ari Gabríel
Birkir Örn
Burknavallakrúttin
Bína
Dagur og tvillarnir
Karen Hrund
Kjartan og Lovísa
Magnús Orri
Patrik og Ísabella
Sigga Hulda
Silja
Tvíburamamman
Fréttir í Maí 2008

Mikið að gera
27.05.2008 13:22 - Hjördís skrifar
Já það er ekkert frí þó eitthvað heiti fæðingarorlof...en mikið er samt ljúft að vera í nýju íbúðinni sinni. Dagurinn í gær var heldur skrítinn en þá fór Guðmundur Óli aftur í vinnu eftir mánaðar frí...leið sem vika!!! Við létum okkur þó ekki leiðast og Benjamín var að leika sér í öllu nýfundna dótinu sínu. Lilja kom svo færandi hendi í kaffisopa til okkar, hún gaf okkur fínar diskamottur og rosa flotta skál með mörgum hólfum. Eftir hádegið fórum við svo í Hafnarfjörðinn og það er sko aldeilis að frétta að Ágúst og Benjamín léku sér saman í þrjár klukkustundir án þess að nokkuð slettist upp á vinskapinn. Þeir voru að leika sér í mömmu og pabba leik uppi í hjónarúmi og fengu sér svo að "borða" annar var þá með tómatsósu og hinn kokteilsósu, mjög gaman að hlusta á þessar elskur og ennþá skemmtilegra að þurfa ekkert að skakka leikinn eða reyna að semja frið. Við fengum vöfflur og alls konar góðgæti hjá húsmóðurinni þar á bænum..mmmm. Kjartan og Lovísa komu svo líka færandi hendi um kvöldið. Benjamín var svo ánægður að hann mátti ekkert vera að því að fara að sofa þó svo að augnlokin væru sem gerð úr þungamálmi!!!

Nú eru tveir dagar í það að Ísak verði 5 vikna...trúir því einhver??? og enn hefur magakveisan ekki látið kræla á sér...mikið vona ég að við sleppum við hana í þetta skiptið þó svo að heilinn sé mikið til búinn að blokka fyrir minninguna um kveisuna hans Benjamíns, allavega man ég ekki mikið eftir henni nema hvað þetta var algjörlega óþolandi ástand. Annars er bara glymrandi gleði á heimilinu, allir hressir og kátir, amma Sigga að koma í bæinn á föstudaginn og við hlökkum voða mikið til.
Ísak er ekki jafn brosmildur og bróðir sinn heldur er voða mikill hugsunarsvipur á honum þegar hann er vakandi og hann er endalaust að skoða heiminn. Honum finnst þó mamma sín samt óendanlega fyndin og skellihlær að henni...annað slagið, hún er alls ekki alltaf fyndin!!!

Benjamín fór í klippingu á Stubbalubba áðan og fékk að sitja í kappakstursbíl á meðan stúlkan snérist í kringum hann með skæri og rakvél. Honum fannst þetta meiriháttar hárgreiðslustofa!! En þá erum við bara tilbúin að fara á Blásali í aðlögun á mánudaginn næsta og mikið verður gott fyrir Benjamín að komast á meðal barna í leikskólaumhverfi!!

Skoða tjaningar. (4 hafa tjáð sig, síðast Lilja)


Myndasíðan
23.05.2008 23:44 - Hjördís skrifar
Á meðan ég man þá er ég búin að opna aftur barnalandssíðuna hans Benjamíns en þar verða myndir geymdar. Það þarf lykilorð inn á albúmið en endilega spyrjið um það, hringja, sms, msn eða e-mail...við svörum strax ;)

www.ben.barnaland.is

Skoða tjaningar. (1 hefur tjáð sig, síðast Lilja)


Upprifjun
23.05.2008 23:09 - Hjördís skrifar
24. apríl 2008
Sumardagurinn fyrsti rann upp og Guðmundur Óli fór að hjálpa ömmu sinni og afa að flytja. Rétt eftir hádegi var ég farin að finna seiðing annað slagið og ákvað að leggja mig með Benjamín ef ske kynni að ég þyrfti að vakna um nóttina eða eldsnemma morguninn eftir. þegar líða tók á eftirmiðdaginn fóru verkirnir að verða lengri og harðari þar til það endaði með því að ég ákvað að hringja og biðja Guðmund Óla að koma bara heim...ÞAÐ VAR EKKERT TILBÚIÐ!!!!! Hann kom heim og við tróðum einhverju ofan í tösku, ég átti eftir að gera allt áður en barnið fæddist og hafði ekki keypt nein heimferðarföt...en það reddaðist allt... Við fórum svo upp á fæðingardeild og ljósmóðir tróð mér í mónitor og skildi okkur svo bara eftir þar í einhvern tíma. Á þeim tíma komu stanslausir verkir og þeir voru orðnir mjög harðir, var farin að fá rembingsþörf á vægu stigi þegar ljósmóðirin lét loksins sjá sig. Ég öskraði liggur við á deyfingu sem hún vildi nú gefa lítið fyrir og tók tíma sinn í að reyna að koma því af stað, hafði þó orð á því að ég væri nú "aldeilis með hríðir" þegar hún leit á mónitorlínuritið. Klukkutíma eftir að við komum upp á deild sagði hún svo að það væri of seint að fá deyfingu þar sem henni sýndust verkirnir vera orðnir of harðir. Hún fór að vesenast eitthvað til hliðar við mig og ég spurði (mjög svo yfirveguð eins og þið getið ímyndað ykkur) hvort ég mætti rembast..."ef þú vilt" sagði ljósmóðirin. Ég ýtti þá af öllum lífs og sálar kröftum og hnoðrinn skaust út í einum rembing og enginn tilbúinn að taka á móti honum...en ljósmóðirin rauk til og greip hann á leiðinni út :) Samtals tók þetta um 6 klukkustundir en einungis klukkutíma af sárum verkjum...ef þetta er ekki eins og það á að vera þá veit ég nú ekki hvað!!!

Við skírðum svo daginn eftir þar sem afi Helgi og amma Gerða, Teresa og Benjamín voru viðstödd. Benjamín var með það alveg á hreinu að nýja barnið átti að heita Benjamín líka, var búinn að halda því fram í nokkuð langan tíma. Þegar presturinn spurði svo hvað barnið ætti að heita og ég sagði "hann á að heita Ísak" heyrðist hátt og snjallt "NEEEII" í hressa bróðurnum (sem var mjög svo grömpý á þessum tímapunkti). Presturinn hélt þó áfram og drengurinn hlaut að lokum nafnið Ísak.

Það var þó lítill tími til þess að einbeita sér fullkomlega að krílinu þar sem lokaverkefnið átti að skilast fimm dögum síðar og ekki það skemmtilegasta að skilja litla þriggja daga krílið sitt eftir til þess að læra, ég huggaði mig þó við það að hann svaf allan tímann og gat verið hjá pabba sínum. En mikið var það yndislegt að skila verkefninu af sér og geta einbeitt sér að fjölskyldunni.

Ljósmóðirin sem heimsótti okkur var mjög ánægð með allt og í 6 daga skoðuninni hafði Ísak lést um 200 gr. sem eru einungis 5% og voru allir mjög ánægðir með það. 5 dögum síðar hafði hann svo náð fæðingarþyngdinni sinni, þyngst um 250 grömm viku eftir það og svo 300 grömm 6 dögum síðar...Hjúkrunarkonan átti varla orð hún var svo ánægð og við hlökkum voða mikið til 6 vikna skoðunarinnar því óhætt er að segja að stúfurinn sé búinn að drekka nánast stanslaust síðan þá.

Við erum búin að fá margt fallegt og margar fallegar kveðjur. Þökkum öllum kærlega fyrir heillaóskir og hlýjar hugsanir, fallegar gjafir og heimsóknir.

Skoða tjaningar. (1 hefur tjáð sig, síðast Helga)


Fjórar vikur
22.05.2008 23:02 - Hjördís skrifar
Þá eru komnar fjórar vikur frá því að draumaprins 2 kom í heiminn. Rosalegt hvað tíminn flýgur áfram og manni finnst maður bara missa af dögunum. Við hjúfruðum okkur fjögur í 40 fermetrunum á Bræðraborgarstígnum í þrjár vikur...og lifðum það af. Það var samt yndislegur tími og við nutum hans í botn. Benjamín er afar umhyggjusamur við litla bróður sinn og vorkennir honum agalega ef hann grætur og vill mikið vera að klappa honum og kjassa, ætlar meira að segja oft að taka hann upp og rétta mér hann ef ég er eitthvað uptekin. Annars hefur Ísak sofið og drukkið til skiptis síðan hann fæddist og allt gengið að óskum.  Hann þyngist og þyngist og er núna búinn að ná bróður sínum úr 6 vikna skoðuninni, reyndar fæddist hann rétt tæpu kílói þyngri og þremur sentímetrum stærri...!!!

LOKAVERKEFNIÐ gékk nú svona aldeilis að óskum og fengum við 9,5 fyrir herlegheitin og er verkefnið tilnefnt til verðlauna sem kemur svo í ljós við útskrift hvort við hljótum.

Við erum búin að fá íbúðina okkar afhenda og flutt inn...hún er ÆÐI!!!

SVO ERUM VIÐ KOMIN MEÐ NETIÐ AFTUR og Ísland komst áfram í eurovision...

...getur lífið verið eitthvað betra!!!?



Skoða tjaningar. (8 hafa tjáð sig, síðast Jenný)


Myndir