Forsíða
Um okkur
Eldra efni


Vinir og ættingjar
Ari Gabríel
Birkir Örn
Burknavallakrúttin
Bína
Dagur og tvillarnir
Karen Hrund
Kjartan og Lovísa
Magnús Orri
Patrik og Ísabella
Sigga Hulda
Silja
Tvíburamamman
Fréttir í Maí 2007

All on the full swing (in the garden)
27.05.2007 23:40 - Hjördís skrifar
Haha, það er búið að vera svo gaman og við búin að njóta sumarfrísins í botn. Allaveganna ég, svo glöð að vera laust úr skólanum...í bili. Ég er búin að vera í afleysingum alveg síðan við komum frá Stöddanum og verð alveg að sumarlokun 6. júlí. Benjamín búinn að fá leikskólapláss 8-13 frá og með 1. júní en verður sennilega lengur á meðan ég verð að vinna, hann fær bara að fylgja mér þá. Þá er bara að vona að það verði allt á fullu í afleysingum fram að vettvangsnámi til að geta nú haldið plássinu ha ha ha ha...

Anyways, við erum að taka garðinn okkar í gegn, búin í gær og í dag að rífa upp grjót og gras og búa til fínustu blómabeð og kartöflugarða upp við húsið og pallinn auk þess að vera búin að setja upp leikvöll á lóðinni með sandkassa, rólum og rennibraut, allt rosa fínn kaupauki frá atvinnurekanda :D. Við ákváðum að slá fyrstu fellihýsaferðinni á frest fram að næstu helgi vegna skipulags- og nennuleysis í vikunni, en við sjáum sko alls ekki eftir því, búið að vera kreisíness gott veður hér í gær og í dag og á að vera enn betra á morgun. Við héldum bara að það væri kominn Júlí hérna úti í garði!!! Svo er bara að bíða eftir slættinum, gróðursetningunni, girðingunni, safnkassanum, borðbekknum, sófarólunni og gróðurhúsinu sem allt er á 25 ára áætluninni fyrir garðinn.

Annars er enginn tími svona á góðum dögum til að hanga í tölvunni og mikið lifandis fegin er ég að vera laus við hana svona þegar skólinn er búinn þannig að þeir sem sakna mín á bæði síðunni og msn verða annaðhvort að láta sér það lynda þar til í ágúst eða semja við Guðmund Óla að vera duglegri að láta í sér heyra, ekki hlusta á afsakanir um að hann komist ekki inn og kunni þetta ekki, þetta er allt (lykilorð og annað) seivað í tölvuna og imbaproofd að gera nýja frétt, fyrir utan það að hann hefur oft gert þetta!!! Ég mun láta vita af okkur af og til fyrir þá allra aktívustu :D...en ekki búast við miklu (nema þá helst næstu daga þar sem mér dettur ALLTAF eitthvað rosa mikilvægt og sniðugt í hug að skrifa þegar ég er nýbúin að taka fram að ég hafi nú ekkert að skrifa og ætli að taka pásur og svona...kannski maður ætti þá bara að taka það fram oftar)

Skoða tjaningar. (4 hafa tjáð sig, síðast Skulagötuliðið)


lovjú beibí
17.05.2007 22:26 - Hjördís skrifar
Veit ekki hvað ég er oft búin að byrja á færslum síðustu vikuna en enda alltaf á því að eyða þeim út. En prófin LOKSINS búin...fyrir rétt tæpri viku síðan og ég fullyrði það hér og nú að ég náði þeim öllum, enda aldrei um neitt annað að ræða. Vaknaði síðan á undan köllunum mínum á laugardaginn síðasta og ákvað að ég yrði nú að drífa mig bara fram úr og byrja að læra áður en lætin færu að byrja...en viti menn, ÞAÐ VAR EKKERT AÐ LÆRA. Eníveis, nenni ekki að tala um lærdóm ALDREI fyrr en í lok ágúst næst.
Ætlum á morgun í "loffie" eða "hádaffi" til Svövu og Óðins á morgun, en það er nýtt orð yfir hádegismat og kaffitíma saman eða "lunch og coffie". Við Svava unnum hörðum höndum í dag að gera marineringu og liggja nú kjúklingabringurnar á sundi í gómsætustu marineringu sem lengi hefur sést og köld sósa með sem við hristum fram úr "gourmet" erminni núna síðdegis...mmm hvað ég hlakka til.
Fyrirsögnin hér að ofan bendir til orðatiltækis sem einkasonurinn er farinn að tileinka sér. Hann hefur ekki viljað taka undir orð móður sinnar og finnst hálf hallærislegt að segja eitthvað sem þýðir ekki neitt en í kvöld þegar hann var að fara að sofa læddist út úr þeim stutta "lovjú beibí".
Við vorum u.þ.b. 13 tíma á leiðinni austur í gær með öllum stoppum og átum en Benjamín svaf hins vegar einungis 50 mínútur af þeim tíma. Hann var ekki upp á sitt allra besta fyrri hluta ferðarinnar en við stoppuðum bara og fórum að henda steinum í á og smá að leika úti og barnið breyttist mínútuna sem hann var settur í strigaskóna og var í góðu skapi það sem eftir var ferðarinnar, sem var meirihlutinn.
Púff, þessi færsla er nú heldur sundurklippt en ég er að spá í að leyfa henni að fljóta með fréttasúpunni hér á þessari síðu en andleysið er ALGJÖRT um þessar mundir, enda heilinn í hvíldarstöðu eftir brjálæðislega önn...sú næsta verður ekki betri enda bara fleiri einingar á leiðinni og meiri vinna :D Sem by the way minnir mig á það að ég er að öllum líkindum búin að fá vinnu í sumar, en meira um það síðar :D

Skoða tjaningar. (5 hafa tjáð sig, síðast Lilja)


Tengdaforeldrar
10.05.2007 06:54 - Hjördís skrifar
Strákarnir mínir eru nú farnir til Reykjavíkur til ömmu og afa og sá minni fær að vera þar í kvöld og nótt og þar til ég er búin í prófinu á morgun:) Það er nú aldeilis munur að eiga svona góða tengdaforeldra sem eru tilbúnir að redda manni í prófunum og passa bæði litla og stóra þegar á þarf að halda. Benjamín er búinn að vera í fóstri þar stóran hluta af prófatíðinni og Guðmundur Óli líka, enda árangurinn eftir því...haldið þið að mín hafi ekki bara fengið hæstu einkunn í fjarnámsbekknum í trúarbragðafræðinni ;) Mér skilst að það eigi ekki allir svona góða tengdaforeldra og því vil ég nota tækifærið (fyrst Oscars-ræðan er nú hvort sem er byrjuð) og þakka þeim kærlega fyrir allan stuðninginn, hann er ómetanlegur því eins og flestir vita er lífs ómögulegt að læra með Benjamín hangandi á lærinu, og svo finnst honum líka svo gaman hjá afa og ömmu að það tekur hann eina SEKÚNDU að vakna og fara út þá daga sem hann á að vera hjá afa og ömmu.

Jæja, langur dagur framundan og ekkert júrovisjónpartý hér á bæ í kvöld...það verður á laugardaginn í staðinn bara ;)

Skoða tjaningar. (7 hafa tjáð sig, síðast Lilja)


Ég er FRÆGUR
09.05.2007 22:11 - Benjamín skrifar
Ef þið farið inn á brosbörn þá sjáið þið þar kauða sem þið kannist við :D



Skoða tjaningar. (1 hefur tjáð sig, síðast Helga)


STJÓRNMÁL 2 !
08.05.2007 15:53 - Hjördís skrifar
Tók mjög áhugaverða könnun af því tilefni að ég átti nú að vera að læra, veit reyndar ekki að hve miklu leiti er hægt að byggja atkvæði sitt á þessari könnun en hér er útkoman

Stuðningur við Sjálfstæðisflokk:       25%
Stuðningur við Framsóknarflokk:     10%
Stuðningur við Samfylkinguna:        12.5%
Stuðningur við Vinstri-Græna:          62.5%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 47%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 40%

Skoðanir þínar eru í mestu samræmi við skoðanir Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs!


Samkvæmt þessu á ég að halda mig við það sem ég kaus síðast ;)...sjáum til á kosningadaginn!!!

Hér er slóðin fyrir þá sem eru óákveðnir :)! Klikkaðu hér

Skoða tjaningar. (5 hafa tjáð sig, síðast Anna Karen)


Stjórnmál !!
07.05.2007 21:19 - Hjördís skrifar
Verð að skella hér inn einum góðum sem ég stal á annarri síðu :

Nonni litli var aðeins farinn að velta fyrir sér lífinu og tilverunni og einn daginn fór hann til pabba síns og spurði hann: "Hvað eru stjórnmál?" Pabbi hans svaraði: "Jú sjáðu til, það er kannski best að ég útskýri það á þennan hátt:
Ég vinn fyrir fjölskyldunni og þess vegna skulum við kalla mig Auðmagnið.
Mamma þín stýrir heimilinu og ræður útgjöldunum og þess vegna skulum við kalla hana Stjórnvöld. Við erum til þess að sinna þörfum þínum svo við skulum kalla þig Fólkið.
Við getum síðan haldið áfram og kallað barnfóstruna Öreiga.
Litla bróður þinn skulum við kalla Framtíðina.
Farðu nú og veltu þessu fyrir þér og athugaðu hvort þetta kemur ekki heim og saman.

Nonni litli fór í háttinn og hugsaði stöðugt um það sem pabbi hans sagði honum.
Um nóttina vaknar hann upp við grátinn í bróður sínum. þegar hann kemur inn í herbergi hans finnur hann fljótt að bleian hans er blaut og mikil fýla af henni. Hann fer inn í svefnherbergi foreldra sinna og finnur mömmu sína sofandi. þá fer hann að herbergi barnfóstrunnar og finnur að hurðin er læst. Hann kíkir inn um skráargatið og sér föður sinn í rúminu með barnfóstrunni.
Að lokum gafst Nonni litli upp og fór aftur í herbergi sitt og sofnaði.


Næsta morgun segir hann við föður sinn. "Pabbi, ég held núna að ég skilji hvað stjórnmál ganga út á."Gott segir faðirinn, segðu okkur frá því". þá sagði Nonni litli:

"Jú sjáðu til, á meðan Auðmagnið riðlast á Öreigunum er Ríkisstjórnin steinsofandi. Fólkið er hundsað og Framtíðin er í djúpum skít..."


hahaha

Skoða tjaningar. (1 hefur tjáð sig, síðast Helga)


Fyrsta "imprompt to"spurjið eftirið"
06.05.2007 17:06 - Hjördís skrifar
Passar fyrirsögnin ekki vel við íslenskufyrirlesturinn hér að neðan? Jújú, það er rétt, á fösudaginn um 6 leitið var dyrabjöllunni hringt. Benjamín var í mestu makindum úti á palli að leika sér og ég var bara eitthvað að vesenast. Ég fór til dyra og fyrir utan stóð lítil ljóshærð stelpa sem spurði hvort Benjamín væri heima og hvort hann vildi koma út að hjóla. Ég gat nú ekki annað en leyft það og náði í Benjamín og hann fór út að hjóla með stúlkunni. Ég fylgdi reyndar á eftir en þau hjóluðu heim til hennar og skemmtu sér konunglega. Síðan fórum við inn til hennar í smá stund að leika í öllu flotta dótinu hennar, þegar klukkan var síðan orðin 7 og pabbi löngu kominn heim og farinn að undrast um okkur ákvað ég að við skyldum halda heim á leið...litli minn var ekki alveg á sama máli og var búinn að gera sig reiðubúinn til að verða eftir hjá Sólveigu (mömmunni). En hann samþykkti þó að koma heim þegar hann sá pabba sinn nálgast.

Þess má síðan til gamans geta að ég var alein heima í kotinu í nótt, en það hefur nú bara ALDREI skeð á mínu eigins heimili síðan ég veit ekki hvenær...a.m.k. ekki síðan Benjamín fæddist.

Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast Júlíus Stóribróðir)


íSlEnSkUkEnNaRiNn
05.05.2007 21:59 - Hjördís skrifar
vEiT hVoRkI uPp Né NiÐuR lEnGuR hVaÐ íSlEnSkA eR eÐa ÞýÐiR. hVaR á Að VeRa StÓr StAfUr Og Af HvErJu? Af HvErJu Er FóNeM eKkI þAð SaMa Og BóKsTaFuR þEgAr FóNeM eR /A/b/D/ð, Og Af HvErJu ErU bUlLoRðIn NaR eÐa PíMi EkKi LeNgUr BuLlOrÐ hElDuR tÓm OrÐ gEtUr EiNhVeR sVaRaÐ ÞvÍ?...LaNgAr BaRa Í kAlLaNa MíNa HeIm Og NeNnI eKki LeNguR aÐ hLuStA á ArFaLeIðInLeGa FyRiRlEsTrA mEð 45 StK. gLæRuPaKkA mEðFyLgJaNdI...gEtUr EiNhVeR sVaRaÐ þVí hVeRnIg EiNn KeNnArI gEtUr HaLdIð TvO fYrIrLeStRa Og LáTiÐ 90 gLæRuR fYlGjA mEð...

Skoða tjaningar. (3 hafa tjáð sig, síðast Anna Karen)


Undur og stórmerki
04.05.2007 08:16 - Hjördís skrifar
Já undrin og stórmerkin gerast enn, klukkan er orðin korter yfir átta og ég búin að vera vakandi í u.þ.b. 2 tíma en vitið þið bara hvað....BENJAMÍN ER ENNÞÁ SOFANDI. Greinilegt að vistin hjá ömmu og afa hefur verið stórskemmtileg og menn alveg búnir á því, hvað ætli sé langt síðan þetta gerðist síðast...allavega svo langt síðan að ég man ekki eftir því.

En svo við höldum áfram þar sem frá var horfið í gær, þá hellti ég úr brunnum visku minnar á 8 þéttskrifuð A4 blöð og brunaði svo út í bíl tæplega ellefu og keyrði á heldur ólöglegum hraða til Grindavíkur þar sem ég var búin að lofa mér í vinnu kl. 11, reyndar með fyrirvara um próf en ég var mætt í vinnu 11:30. Þar sem Benjamín var hjá ömmu og afa og ætlaði að koma heim með pabba sínum þá var ég bara ein heima að þvælast eftir vinnu og vissi ekkert hvað ég átti af mér að gera því ekki átti að fara að byrja að lesa fyrir prófið sem verður á mánudaginn strax:þ Við Benjamín förum svo á leikskólann á eftir kl 11. Það er ágætt þegar ég er að leysa svona af að þá fær hann bara að fylgja mér í vinnuna, honum finnst það ÆÐI, og þá kemur í ljós hvort honum tekst að sofna inni eftir að hafa sofið svona langt fram á dag!

Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast Svava)


one down, two to go!
03.05.2007 23:34 - Benjamín skrifar
Jæja, fyrsta prófið búið. Gékk rosa vel, auðvitað, eða við höldum okkur að sjálfsögðu við þann framburð þar til einkunnin annaðhvort staðfestir hann eða veltir honum um koll, sem þið fáið þá að sjálfsögðu aldrei að vita ;) Ég sem er nú venjulega ekki mjög stressuð fyrir próf og tek þeim með miklu jafnaðargeði varð stressuð þegar ég vaknaði, meðan ég beið eftir prófblaðinu og Á MEÐAN ég var að leysa prófið þó ég hafi vitað (að mínu mati) allt sem var verið að spyrja um og ég þurfti að svaran (það voru spurningar á blaðinu sem ekki þurfti að svara af því maður mátti velja spurningar úr). Ég held að ástæðan hafi verið oflestur, ég vissi of mikið um of mikið og margt og fannst ég því ekki vita nógu mikið um neitt!! Ég tók hátt í eina og hálfa viku í að læra fyrir þetta trúarbragðapróf en sá tími er einsdæmi á öllum mínum skólaferli. Ég neitaði mér um flesta skemmtun og sendi kallana mína í burtu ef þeir voru heima. Ég stóð mig að því að lesa heilu blaðsíðurnar og engin ný vitneskja bættist við því ég vissi það hvort sem var...það hefur held ég aldrei gerst, en venjulega er það líka "useless information". "Last minute reading" hefur ALLTAF og ég endurtek ALLTAF skilað einhverju á prófblaðið hjá mér sem annars hefði ekki verið þar, morguninn í morgun var undantekning. Ég var svo stressuð og annars hugar að ég hélst ekki í því að lesa. Mætti klukkutíma fyrr upp í skóla til að lesa smá, sá tími var til einskis. Mér finnst þetta bara svo merkileg uppgötvun hjá mér að ég á ekki til orð og verð að koma þeim fáu orðum sem mér kemur í hug hér inn á netið. En uppgötvunin er sú að það borgar sig engan veginn að læra of mikið, ágætt að dunda sér við þetta daginn fyrir próf og um morguninn rétt fyrir próf. Þannig að sú hefð sem hefur verið við líði alla mína skólatíð frá grunnskóla og upp í háskóla, sem hefur átt að rjúfa með fögrum loforðum á hverri einustu önn heldur velli sem besta sálræna aðferðin til að komast í gegnum skólaárið heill á geði, allavega í mínu tilfelli. Það verða því engin fögur fyrirheit fyrir næsta skólaár að ætla að læra öll kvöld og allar helgar og nýr málsháttur fær að líta dagsins ljós hefðin er heilla best.



Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast Helga)


Myndir