Forsíða
Um okkur
Eldra efni


Vinir og ættingjar
Ari Gabríel
Birkir Örn
Burknavallakrúttin
Bína
Dagur og tvillarnir
Karen Hrund
Kjartan og Lovísa
Magnús Orri
Patrik og Ísabella
Sigga Hulda
Silja
Tvíburamamman
Fréttir í Maí 2006

Stöðvarfjörður...here I come!!!
30.05.2006 09:21 - Benjamín skrifar
Þetta er nú meira ástandið á mér og mömmu, við bara hóstum og hóstum og mamma getur ekki einu sinni talað almennilega, röddin á henni er eitthvað svo skrítin. Anyways, á sunnudaginn s.l. fór ég til ömmu og afa á Skúlagötunni, en vitið þið hvað? Það voru bara engin amma og afi og engin Billa og Víðir heldur, mér fannst það nú heldur skrítið og það er orðið svo langt síðan ég hef séð þau öll að ég er farinn að sakna þeirra alveg rosa, rosa mikið. Mér finnst að það eigi að vera bannað að vera ekki heima þegar ég kem. En ég heyrði eitthvað í Teresu inni í herberginu sínu og fór bara og vakti hana og pabbann hennar við mikinn fögnuð þess síðarnefnda ;) En svo kom nú hún langamma Billa líka til okkar með hellings góðgæti úr bakaríinu þannig að þessi ferð var nú ekki alveg ónýt þó svo að amma og afi og krakkarnir hafi ekki verið heima.
Síðan komu afi Albert og Kjartan frændi í heimsókn til okkar í gær og borðuðu hjá okkur, það var svo langt síðan ég hafði séð einhvern afa að ég vildi bara ekki sleppa honum og hann mátti gjöra svo vel að ferðast með mig út um allt...svo gaf hann mér rosa góðan harðfisk, hann varð nú ekki minna ómissandi eftir það!
En í dag verður síðasti dagurinn minn hjá dagmömmunni af því að ég og mamma ætlum að fara með afa á Stöðvarfjörð til ömmu á morgun. Síðan ætlar pabbi að koma og ná í okkur um helgina:) Það verður nú aldeilis fjör og gaman.

Skoða tjaningar. (3 hafa tjáð sig, síðast Elva)


Kosningar og afmæli
28.05.2006 07:54 - Benjamín skrifar
Ég kaus í fyrsta skipti í gær. Ég fékk að fara inn í klefa með pabba mínum sem skrifaði svo á einhvern miða og síðan fékk ég að setja miðan oní einhvern kassa. Mér fannst þetta nú heldur ómerkilegt og skil ekki alveg alla dramatíkina í kringum svona kosningar.
Síðan fór ég í afmæli til Viktors og Brynjars. Það var alveg ótrúlega skemmtilegt. Þeir áttu allskonar sniðugt hávaðadót og svo átti mamma þeirra allskonar sniðuga takka og skúffur og skápa í eldhúsinu, svo er einstaklega skemmtilegur stigi upp á efri hæðina en mamma sá nú um að hlussa sér þar niður til að stoppa mig:( Ég var svo upptekinn af því að leika mér að ég mátti ekkert vera að því að borða þennan dýrindis mat sem var á boðstólnum en skemmti mér konunglega við að kveikja á videoinu og slökkva á sjónvarpinu sem kallarnir voru að horfa á:)
Núna erum við hinsvegar við það að labba út um dyrnar á leið á Skúlagötuna að sjæna allt og pússa svo það verði rosalega fínt þegar amma Gerða kemur heim frá Danmörku og afi Helgi kemur heim af sjónum, þá verða þau svo glöð. Kannski á ég eftir að hitta Teresu frænku mína líka, það yrði nú aldeilis gaman :)

Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast amma Sigga)


Nýjar myndir
26.05.2006 23:50 - Benjamín skrifar
Hér koma nýjar myndir frá því Teresa var í pössun, vatnsbrúsaleiknum og fleiru skemmtilegu.

Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast liðið í Danmörk)


Deddi!!!
26.05.2006 09:11 - Benjamín skrifar
Þetta er nýjasta orðið, enda nýjasta manneskjan í lífinu mínu, hún "deddi" liltla. En það er hún Teresa frænka mín. Hún var í pössun hjá okkur í fyrrakvöld og í gær og gisti hjá okkur. Mér finnst hún agalega sæt og er alltaf að klappa henni, mér finnst samt soldið asnalegt að hún kann ekkert að standa og ég er alltaf að reyna að toga hana upp, en hún vill bara ekki standa. Svo er ég alltaf að gefa henni bolta til að kasta á milli en hún bara lætur hann renna framhjá...ég verð greinilega að kenna henni ýmislegt, og byrjaði nú á því að kenna henni að henda boltunum út úr boltatjaldinu, en hún var reyndar ekkert að fylgjast með, það verður þá bara seinna. Ég er líka voða duglegur að þurrka slefið hennar...með puttunum og svo finnst mér það svo ótrúlega ógeðslegt að ég þurrka næstum því puttann af mér í nærliggjandi kodda:) samt standa mamma og pabbi sig svo illa í stykkinu að ég VERÐ að þurrka og þurrka...aftur og aftur og aftur og aftur.  Hún sefur alltaf inni hjá pabba mínum og mömmu þegar hún er í heimsókn af því að hún er svo lítil, en mér er alveg sama ég bara horfi ofaní rúmið til hennar og brosi og bendi á hana og segi "DEDDI" og langar bara að fá hana fram að leika.
Ég fann nýtt leiktæki áðan, það er úðabrúsinn sem m&p nota til að úða á litlu kettlingana ef þeir eru að gera eitthvað sem þeir mega ekki (t.d. að klóra í sófann). Ég úðaði út um allan sófa og á mömmu og sjálfan mig og að lokum var komin sundlaug á gólfið okkar :) En þá mátti ég þetta ekki lengur við lítinn fögnuð sjálfs míns. En hahaha, á meðan mamma var að skrifa þetta fyrir mig þá bara fann ég brúsan aftur og sprautaði um allt stofugólfið þannig að sundlaugin mín var komin aftur...en ég mátti þetta að sjálfsögðu ekki og var AFTUR ekki glaður með það, en svona er þetta.


Skoða tjaningar. (3 hafa tjáð sig, síðast Ágúst Örn stóri frændi)


AFMÆLI!
23.05.2006 23:08 - Benjamín skrifar
Vinir mínir Viktor Logi og Brynjar Jökull eru eins árs í dag. Ég vona að þeir hafi átt ánægjulegan afmælisdag og ég hlakka ekkert smá til að fara í partý til þeirra á laugardaginn :)

Anyways, hvað haldiði, þegar ég kom heim frá Marisu í dag þá var hún mamma bara búin að henda öllu kuskinu sem ég hafði moppað upp í morgun aftur á gólfið og ég þurfti að moppa og moppa og moppa þegar ég kom heim...þessar tjéllingar...

Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast Patrik Dagur)


Vetur?
23.05.2006 10:13 - Hjördís skrifar
Brrrr, þvílíkt ógeðis veður, en ég býst við því að þið hafið öll vitneskju um það því ætla ég að segja ykkur sögu sem er veðurtengd sem þið vitið EKKI.
Ég vaknaði sumsé klukkan þrjú í nótt og heyrði þetta líka skemmtilega veður úti og allt var svo dimmt og ógeðslega drungalegt, ég sem er vön að vakna í birtunni núna á morgnana. En allt í einu birti í huga mér og allt sem mig langaði að gera var að hlusta á jólalög, enda ekta nóvember og desember veður og ÉG HLAKKA TIL JÓLANNA. Ég hjúfraði mig bara undir hlýju sænginni og ímyndaði mér 1000 jólakerti og sönglaði jólalög í huganum. Sofnaði því bara aftur og hlustaði dreymin á vonda veðrið úti og dreymdi jólin það sem eftir var næturinnar. Þetta var nú aldeilis skemmtilegt.
Það var nú ótrúlega fyndið í morgun. Benjamín er alltaf inni í eldhúsi að tala við kettlingana í gegnum kattalúguna inn í þvottahús. Hann opnar hana og talar aðeins við kettlingana og lokar svo á puttana á sér, aftur og aftur og aftur og aftur og finnst þetta hin mesta skemmtun. Það var einmitt það sem ég hélt að hann væri að gera í morgun þegar hann var eitthvað að bardúsa inni í eldhúsi. En minn maður kom svo röltandi út úr eldhúsinu og rogaðist með moppuskaftið og moppuna, skellti henni á gólfið og byrjaði að moppa...greinilegt að mamman er ekki alveg að standa sig í stykkinu :)

Skoða tjaningar. (1 hefur tjáð sig, síðast Ari Páll)


SNJÓKOMA!!!
22.05.2006 09:27 - Hjördís skrifar
I DONT BELIEVE IT (sagt eins og í "gamla daga":) Ég var að setja Benjamín út á pall að sofa og það voru bara snjóflyksur sem fuku niður...náðu varla að setjast fyrir ÖMURLEGU veðri og djö..skítakulda. Samt er nú sól, en hún gerir nú ekki mikið fyrir mann í svona veðri. Heyrði nú að fólk þyrfti að moka skafla fyrir norðan...eða svona næstum því. Jæja, þá er maður búinn að reporta veðrið þá tekur bara alvara lífsins við.

En þar sem er nú svona mjög takmarkað að frétta af heimilinu þá verður veðrið bara að nægja að sinni. Maður fann varla fyrir því að við værum með tvö börn hér í gær, á meðan annað svaf þá var hitt vakandi og meðan hitt svaf þá var annað vakandi :) enda ekki mikið líkt með þeim frændsystkinum fisi og hlassi eða ofvirka og letihaug.

Allar myndir komnar líka inn...eða þær sem þóttu sýningarhæfar fyrir almenning...aðrar geymast í leyndardómi fjölskyldunnar í tölvunni og verða einungis til sýnis á hátíðar- og tyllidögum fyrir nánustu ef þá það :)

Skoða tjaningar. (1 hefur tjáð sig, síðast amma Sigga)


MYNDIR :)
21.05.2006 12:25 - Benjamín skrifar
Jæja, fyrstu myndirnar komnar inn, þær eru svo margar að ég þarf að skipta þeim í nokkur albúm :)

Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast Ösp)


JÆJA
21.05.2006 09:19 - Hjördís skrifar
Ég veit að þið trúið því varla en það er búið að vera svo mikið að gera að það hefur ekki unnist tími til að setjast fyrir framan tölvuna. Reyndar tekur töluvert á að afeitrast tövlunotkuninni svona eftir skólann þegar maður eyðir öllum sínum tíma fyrir framan tölvuna...þó svo að það sé ekki alltaf skólatengt ;) Gulli og Hrund buðu sér í Júróvisjón partý til okkar á fimmtudaginn með litla manninn með sér sem verður tveggja mánaða á þriðjudaginn. Við átum á okkur gat og kusum Finnland og hlógum okkur máttlaus yfir atriðinu hennar Silvíu...að fólk skuli ekki hafa fattað djókið er ótrúlegt. En vonum að við sjáum ekki of mikið af henni eftir þetta, held að hún sé búin og held að við hefðum komist svo mikið mikið lengra ef hún hefði verið Ágústa Eva venjulega og talað um Silvíu Nótt við fjölmiðlana, en við hefðum sjálfsagt aldrei bugað Finnland hvort sem var þannig að ég er bara sátt við þetta...mér finnst hún fyndin...svona í flestu.
Við Benjamín skruppum í Lónið hið bláa á föstudaginn á meðan Guðmundur Óli fór í veiði með vinnunni sinni. Hann sat nú bara á sólpallinum allan tímann en veiddi samt jafn mikið og veiðigarparnir allir til samans :) Hann er náttúrulega töfrum gæddur...eða hinir einstaklega óheppnir veiðimenn. Síðan fóru allir vinnufélagarnir og makar (ég sumsé með) út að borða á hótelinu Northern Light Inn og það var bara hin mesta skemmtun og alveg hreint ágætis fólk sem vinnur með kallinum.  Þær Lilja og Tinna sáu um Benjamín á meðan, ótrúlega fínt að hafa svona ágætis barnapíur sem til eru í að passa.
Vöknuðum svo náttúrulega eldsnemma í gærmorgun og drifum okkur til Reykjavíkur að kaupa pallaolíu og pallahúsgagnaolíu og svo bón á eldhúsgólfið...það á aldeilis að taka til hendinni. Síðan var nú verið að opna nýja leikskólann hér í bæ þ.e.a.s. nýju Laut...s.s. gamli leikskólinn kominn í nýtt húsnæði og með svaka flottan garð. Við gátum náttúrulega ekki verið þekkt fyrir annað en að kíkja þar við enda Benjamín að bíða eftir að fá að komast inn, sem væntanlega verður í september ef ekki verður ákveðið að taka inn börn yngri en 18 mánaða. Hann er svaka flottur. En þá voru Kristinn og Teresa komin í heimsókn til okkar og síðan komu Gulli og Hrund í áframhaldandi Júróvisjón partý þar sem að sjálfsögðu Finnland var kosið aftur og sigraði með GLÆSIBRAG. Teresa var í pössun hjá okkur í nótt en hún er nú meiri unglingurinn...vakir langt framá nótt (barnanótt þ.e.a.s.)og er ennþá sofandi í þessum skrifuðu orðum...með smá vökum inn á milli.
Þar með hefur nú ekki gefist mikill tími til að sinna miklu öðru en bara að halda partý og ferðast hingað og þangað en vonast nú til að einhverjar myndir læðist hér inn í kvöld...ef ég hef tíma :)


Skoða tjaningar. (1 hefur tjáð sig, síðast amma Sigga)


NEWSFLASH...
18.05.2006 11:29 - Benjamín skrifar
Tólfta tönnin var í þann mund að troða sér í gegnum þykkt tannholdið, þetta er nú farið að venjast ágætlega og maður bara að verða fulltenntur fyrir tveggja ára jaxlana :) En það var sumsé vinstrari framtönnin í neðri góm (þ.e. ekki sú vinstri heldur þessi sem er við hliðiná henni vinstra megin):)Þá verður maður loksins kominn með fjórar framtennur niðri líka...kominn tími til!!!
Maður þarf nú að vera með fréttirnar í beinni til að lífga aðeins uppá þessa síðu hjá mútter:S

Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast Svava)


"Ryksugan á fullu..DRULLU"
17.05.2006 23:51 - Hjördís skrifar
Jæja þá er nú fyrsta herbergið orðið glansandi hátt og lágtí vorhreingerningunni. En ég afrekaði það nú að byrja á þvottahúsinu og búrinu, sem var nú orðið þannig að það var farið að renna úr hillunum það sem maður setti í þær og var orðinn fjölskylduleikur á kvöldin að giska á þær vörutegundir sem væru til í búrinu. Það var meira að segja poki þar með einhverju smádóti t.d. sokkum af Benjamín, LITLUM pela og einhverju drasli frá því að því hafði verið skellt í poka á síðustu stundu þegar flutningarnir frá Flyðrugrandanum stóðu sem hæst. Það eitt ætti að vera nógu góð lýsing á ástandinu í búrinu og þvottahúsinu...en það er sumsé komið í lag og myndi ég treysta mér til þess að éta af gólfinu og öllum veggjum þar núna:) Anywho, það er víst orðið kósý heimili kattanna núna. Næst er það svo eldhúsið sem verður skrúbbað hátt og lágt...víííííí, þetta er náttúrulega alltaf það skemmtilegasta sem maður gerir í prófatíð og þar sem prófin standa nú hæst hjá flestum (þó ekki mér) þá er þetta bara alveg ágætt...Mér hefur aldrei fundist leiðinlegt að þrífa...bara ekki á hverjum degi og helst svona einu sinni á ári eða svo...:)(þetta var sumsé djók...fyrir þá sem föttuðu það ekki)
Við skruppum í bæinn áðan að hitta Teresu litlu frænku. Hún kemur vonandi í pössun til okkar á laugardaginn. Síðan eru amma Gerða og Billa og Víðir að fara til Danmerkur á föstudaginn þannig að við þurftum að knúsa þau aðeins betur bless líka. En Guð minn góður hvað það er hægt að vera andlaus svona þegar heilinn er loksins kominn í frí frá skólanum, ég er alltaf búin að hugsa rosa skemmtilegar sögur til að skrifa hér inn en eitthvað gengur illa að muna þær þegar er sest fyrir framan tölvuna...ANYWHO, vælum ekki um það meir og bjóðum góða nótt.

Skoða tjaningar. (1 hefur tjáð sig, síðast amma SIGGA)


Hvað er að gerast?
16.05.2006 22:50 - Benjamín skrifar
Jah, það er stór spurning, eitthvað virðist letin við skriftir vera að taka yfirhöndina þegar skólinn er búinn. En úr því verður nú bætt. Svo við höldum nú áfram þaðan sem frá var horfið. Við fórum sumsé til Reykjavíkur á laugardaginn að kveðja ömmu Gerðu og Billu og Víði en þau eru að fara til Danmerkur til Lollu bollu frænku og ætla að vera LENGI LENGI, ætli þau þekki mig nokkuð þegar þau koma aftur. Jón Fannar frændi kom líka til okkar okkar og við grilluðum HAMMARA honum til heiðurs og við horfðum að sjálfsögðu á Liverpool vinna öruggan sigur á Westham í enska bikarnum. Aumingja afi og langafi hljóta að hafa grátið mikið :(
Síðan á sunnudeginum vorum við bara að tjilla og leika okkur og fórum svo í pottinn sem var nú alveg meiriháttar skemmtilegt. Síðan man ég ekki meira.
En Kristinn og Teresa ætla að koma til okkar vonandi um helgina og vera hjá okkur í pössun, enda veitir ekki af að passa hann Kristinn frænda minn stundum. En það verður örugglega svaka skemmtilegt að fá litlu frænku til að toga aðeins í og sýna allt fína dótið mitt. BLESS

Skoða tjaningar. (1 hefur tjáð sig, síðast amma SIGGA)


SUMAR SUMAR SUMAR FRÍ
13.05.2006 13:17 - Benjamín skrifar
eða svona allaveganna næstum því...ég er nú ennþá hjá dagmömmunni af því mamma þarf að kenna út maí...annars erum við bara í sumargírnum og kemur ekki annað til greina heldur en að leika úti alla daga ALLAN DAGINN. Ég er útifrík og nenni ekki að hanga inni, labba bara að útidyrahurðinni og segi AGGA, sem þýðir að sjálfsögðu opna. Ef foreldrar mínir eru ekki nógu fljótir fýkur nú í lítinn mann og ég læt þau bara heyra það!!!
Í fyrradag kom svo amma Sigga að sækja mig til Marisu með mömmu minni og ég var nú ekkert smáræðis ánægður að sjá hana. Síðan fór ég með henni í bláa lónið og svona að sýna henni ýmislegt, enda er ég þaulvanur kappi í þessu öllu saman. Síðan keyrði ég hana aftur til Reykjavíkur í gær og hitti þá líka Kjartan frænda, en hann vildi ekkert fá okkur í heimsókn þannig að við urðum bara að standa úti...mamma segir að það sé svo mikið drasl hjá honum að hann vilji ekki bjóða neinum inn, en ég trúi því nú ekkert. Svo var ég látinn sofa til klukkan að verða níu í morgun pffft. Líkaði það nú ekkert sérstaklega vel en vildi svo bara fara út að leika og svo fórum við í lónið. Ég var orðinn svo þreyttur á leiðinni heim að ég sofnaði á hálfri mínútu í bílnum kl 13:00 og er svo bara sofandi í vagninum mínum...Jæja vona að sem flestir séu komnir í sumarfrí...Góða skemmtun.

Skoða tjaningar. (3 hafa tjáð sig, síðast BILLA ÓSK OG VÍÐIR ÓLI)


Síðasta prófið!!
10.05.2006 19:01 - Hjördís skrifar
Mikið er ég glöð að síðasta prófið er í fyrramálið, þá er þessari HELL önn lokið sem átti aldeilis að taka með trompi, en jæja, það þíðir víst lítið að ræða um það. En annars er bara búið að vera mikið um að vera aðallega í því að reyna að lesa námsefni vetrarins og Guðmundur Óli hefur séð um heimilið á meðan, hann er svo MYNDÓ þessi elska. Anyway, nenni ómögulega að skrifa neitt hérna núna, held áfram annað kvöld sjálfsagt...eftir próf....Vííííííííí

Skoða tjaningar. (6 hafa tjáð sig, síðast Hafdís Rut)


Sól, sól skín á mig
08.05.2006 00:07 - Hjördís skrifar
Veit ekki alveg hvað ég á að segja, ég er svo stjörf af þreytu enda næstum ár og aldir frá því ég hef verið vakandi svona lengi...allaveganna var ekki seinaganginum í háttatímanum fyrir að fara í gærkvöldi. Við hjónin leigðum mynd af adsl-inu og sofnuðum svo bæði yfir henni...fyrir hálf ellefu...Ætli það séu góð meðmæli...Bewitched, fyrir forvitna lesendur. En þar sem prófalesturinn er ávalt tekinn með trompi daginn fyrir próf voru litlar áhyggjurnar af honum í gær. Í dag átti svo frumlesturinn að eiga sér stað, en hvað annað en sólin þurfti nú að vera að glenna sig á pallinn hjá okkur Í ALLAN DAG. Þannig að það er vel bökuð fjölskylda sem gengur til náða hér í kvöld.
Morguninn byrjaði að sjálfsögðu á því að ég reyndi að lesa eins og tvær blaðsíður úti á palli í engu nema heimatilbúnu "bikiníi" á meðan Benjamín svaf. En fljótlega var þó gefist upp á því enda einbeitingin ekki upp á marga fiska. Þegar Benjamín svo vaknaði um tólf leitið þá var bara haldið áfram að vera úti og leikið í sandkassanum og sundlauginni og öllu dótinu sem var troðið út á pall og músíkin í hæstu stillingu út um gluggan. Svo sumarlega stemningu mátti nú ekki skemma þannig að grillspaðarnir voru nú teknir fram og dýrindis kjúkling og svíni skellt á "kjúarann"(barbíkjúið ef einhver þarf leiðbeiningar). Þarna vorum við heldur orðin grilluð og ákváðum að borða úti og þessa stemningu hef ég ekki fundið í ein 8 ár, eða frá því að ég var úti í Ástralíu að éta á mig GAT í bókstaflegri merkingu...(gat-ið þá í þeirri merkingu að "rýmið" sem myndast á milli fellinga hafi verið "gat"). En að sitja við matarborð ÚTI í blankalogni og þvílíkum hita nær nakinn að borða ótrúlega góðan mat og ekki vottur af kuldaþræði, það er lífið...(Segi annað á veturna þegar snjóbylurinn er fyrir utan og jólaljósin og kertin lýsa allt upp fyrir innan...mmmm...það er lífið...þá). Mest hrædd var ég þó um að Benjamín myndi ofhitna, enda var það á mörkunum held ég loksins þegar við ákváðum að skunda inn og hanga þar. Seinnipartinn þegar mesta sólin var farin þá drifum við okkur bara í pottinn og skemmtum okkur þar eitthvað frameftir kvöldi, enda um engan eðlilegan lofthita að ræða 7.MAÍ.
Eitthvað hefur verið gluggað í námsefni vetrarins í kvöld en ætli aðallesturinn fari ekki fram á morgun þ.e.a.s. ef tími gefst fyrir öllu sem NAUÐSYNLEGA ÞARF AÐ GERA alltaf þegar kemur að prófalestri, eins og að hangsa, velta fyrir sér hvaða kvöldmat sé tímafrekast í heimi að gera, elda hann, glápa smá á "must see" þætti í imbanum, liggja í sólbaði...í rigningunni, eða kannski bara láta sig dreyma um það og síðast en ekki síst að hugsa um eitthvað ALLT ANNAÐ en það sem maður er að lesa þannig að eftir að maður er búinn að lesa 20 síðna kafla, stendur nákvæmlega EKKERT eftir.
Kannski ég sé búin að lesa of mikið, þessi færsla er farin að minna óþægilega mikið á uppsetningu texta eins og Gulla einum er lagið að setja upp...þ.e. ÓSKILJANLEGUR TEXTI, en þar sem Svava er  sú eina sem skilur hvað ég á við þá læt ég þetta bara standa hér!

Skoða tjaningar. (4 hafa tjáð sig, síðast Hjördís)


How clean is your house?
05.05.2006 22:39 - Hjördís skrifar
Já það er ekki laust við að ég hafi fengið martröð í nótt um að þær Aggie og Kim hringdu í mig til að bjóða mér að vera í þessum líka listaukandi þætti. Þær hefðu þá væntanlega fengið nokkur af sínum frægu panikköstum þegar kíkt væri inn í ísskáp heimilisins, og sýnin sem send væru á rannsóknarstofuna hefðu sjálfsagt ekki skilað mjög hagstæðum niðurstöðum fyrir okkur eigendurna. En reyndar er "bacteria protection" límmiði inni í ísskápnum, rétt fyrir ofan efstu hilluna, þá hlítur maður nú að meiga subba aðeins út, don¿t you think? Annars var nú á framkvæmdaáætluninni eftir próf (sem hefði þá verið eftir fimmtudaginn næsta) að taka ísskápinn í gegn ásamt öllum hinum vel geymdu leyndarmálum hússins. En þegar annar aðilinn í hjónabandinu finnur ísskápalyktina alla leið eftir langa ganginum inn að sófa á meðan hinn aðilinn tekur út smjör og ost, þá held ég að það sé kominn tími á það að hætta þessum prófa afsökunum og smella sér inn í ísskápinn. Sem varð svo úr hér í partýstandinu á föstudagskvöldi. Og viti menn, ísskápur sem þurfti að opna og vera tilbúinn að grípa það sem myndi detta út og loka með því að halda dótinu inni í honum á meðan hurðinni var skellt, hann er núna bara með nægt pláss, mjög vel skipulagður og frír af öllum útrunnum vörum. Merkilegt hvað hægt er að gera þegar martraðirnar fara að herja á mann. Allaveganna held ég að þær vinkonur mínar Kim og Aggie myndu vera stoltar af afrekum okkar hjóna hér í kvöld.
Annars var dagurinn harla tíðindalítill, Guðmundur Óli nældi sér í yfirvinnu eftir hádegið og aftur í fyrramálið og við skelltum okkur AÐ SJÁLFSÖGÐU í bláa lónið seinnipartinn. Ekki var að spyrja að því að Benjamín fann vinkonu sína þar og við hjónin gátum bara borðað brauðið okkar í ró og næði á meðan starfsmenn staðarins sáu um duttlungana í honum (eða Anna Karen, veit ekki hvort hún telst starfsmaður, allaveganna á meðan við erum á staðnum:) Við vorum jafnvel að spá í að fara á veitingastaðinn í Lóninu við tækifæri og skilja Benjamín bara eftir í afgreiðslunni, þá værum við laus við allt barnfóstrustúss (nammi, myndir og laun) og við gætum bara náð í hann á leiðinni út, mjög hentugt alltsaman. Síðan er bara að halda áfram að lesa um menningu og samfélag og allt tilheyrandi þangað til maður DREPST úr leiðindum:)

Skoða tjaningar. (3 hafa tjáð sig, síðast amma Sigga)


Síðasti jaxlinn
05.05.2006 11:31 - Benjamín skrifar
Það gleymdist nú eitthvað í gær að greina frá því að síðasti jaxlinn er fundinn, mamma fann hann þegar ég var að fara að sofa, en þá eru bara tveggja ára jaxlarnir eftir en það er nú víst eitthvað í þá ennþá. Fyrir utan sko nokkrar tennur þarna inn á milli en þær verða nú bara písofkeik fyrst jaxlarnir eru allir komnir. :)

Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast BILLA ÓSK OG VÍÐIR ÓLI)


Góður dagur
04.05.2006 23:12 - Benjamín skrifar
Í dag komu vinir mínir Brynjar Jökull og Viktor Logi í heimsókn, svo fékk mamma þeirra að koma með líka. Þeir eru alveg að verða eins árs. Við vorum voða duglegir að leika og næstum engin slagsmál, bara aðeins svona stundum. Þeir áttu ótrúlega skemmtilega vatnskönnu sem ég var fljótur að eigna mér og síðan áttu þeir flottar duddur sem var gott að sjúga og síðan áttu þeir líka svona einhvernveginn pela sem mig langaði líka að prófa. Þetta var allt mjög skemmtilegt og svo máttu þeir líka leika með dótið mitt, og kettlingana.
Þegar þeir voru að fara þá kom pabbi minn heim og mér tókst að sannfæra hann um að tvíburarnir hefðu hent kattamatnum hennar Dimmulimm út um allt og fyllt vatnsdallinn hennar af mat. Ég vona bara að mamma fari ekki að kjafta í hann að svo hafi ekki verið. Síðan hentu þeir líka dótinu mínu útum allt og seríjósi líka og það vita nú foreldrar mínir að ég er ekki fær um, enda snyrtimenni mikið;)  En ég hlakka voða mikið til að hitta þá aftur og leika við þá, þeir eru nú alveg að verða fullorðnir og eru rosalega duglegir að standa og æfa sig að labba og þá verður nú aldeilis fjör og ég ansi hræddur um að mömmur okkar verði bara að fara með okkur á ruslahaugana að leika, en það er líka svo gaman:)

Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast amma JÓSÝ)


One down, two to go!
02.05.2006 21:51 - Hjördís skrifar
Þá er fyrsta prófið búið, tók nú hvorki meira né minna en 11 klukkustundir, reyndar með "smá" pásum inni á milli. Skellti mér t.d. í slökun í bláa lónið og er ekkert að ljúga þegar ég segi ÞAÐ VAR ENGINN Í LÓNINU. Þegar minnst var vorum við svona u.þ.b. 10 ofaní á víð og dreif um Lónið. Reyndar var rúta með fullt af sætum köllum á leiðinni eftir göngustígnum þegar ég var að fara heim. En ég allaveganna náði að slaka það vel á að ég gat klárað prófið.
Benjamín var hjá dagmömmunni í allan dag og svo þegar þeir feðgar komu heim fóru þeir bara út í nýja sandkassann að leika sér svo mamman fengi frið til að lesa.
Annars er nú ekki mikið spennandi búið að gerast hér í dag, enda ekki við miklu að búast á prófatíð. Eða allaveganna á svo löngum prófdegi.
Eins og glöggir síðuskoðarar hafa e.t.v. tekið eftir komu inn nýjar myndir á sunnudaginn, voða krúttlegar af kettlingunum og Benjamín og aðrar ekki svo krúttlegar af öðrum fjölskyldumeðlimum sem áttu ekki að flækjast þarna inn :S

Skoða tjaningar. (1 hefur tjáð sig, síðast Svava.)


Bláa Lónið
01.05.2006 20:36 - Benjamín skrifar
Sæl öll, nær og fjær. Í dag var sko aldeilis skemmtilegur dagur. Byrjaði nú þannig að ég vaknaði bara seint og um síðir, eða klukkan að verða átta, sem er nú seint og um síðir á mínu heimili skal ég segja ykkur. En að verða 10 var ég orðinn svo þreyttur að ég fór bara út að sofa í vagninum mínum og svaf í hvorki meira né minna en þrjá og hálfan klukkutíma sem hefur svona einu sinni áður gerst. En eftir það var ég að sjálfsögðu svo eiturhress að ég ákvað að draga m&p með mér í Bláa Lónið og þar var heldur betur fjör. Ég byrjaði nú á því að gera eins og ég er vanur að gera í baðinu. En það er að stinga munninum undir yfirborðið og súpa smá af vatninu, en eftir að ég var búinn að gera það svona u.þ.b. þrisvar sinnum þá fannst mér það ekki lengur gott, og eginlega bara ógeðslega vont. Það var auðvita fullt af skrítnu fólki sem talaði bara eitthvað bull (sumsé útlendingar) og margir voru alveg hvítir í framan og á bringunni og á bakinu, fannst það heldur skrítið sko. En þetta var víst bara einhver leir eða eitthvað, nennti nú ekki mikið að vera að spá í því heldur vildi bara prófa sjálfur. Það endaði að sjálfsögðu með því að ég var búinn að fá smá á kinnina og svo einhverja klessu í hárið. Þetta var nú alveg ótrúlega gaman og að sjálfsögðu fékk ég líka að knúsa Önnu Kareni vinkonu mína sem býr þarna í Lóninu...eða er allaveganna að vinna þar, ég held hún eigi heima þar líka, sýndist það sko, allaveganna er hún með fullt af mat og svona þarna og ég fékk mér marmaraköku og trópí.
Síðan enduðum við í kvöldmat hjá afa Helga og ömmu Gerðu og fengum afskaplega gott læri, sem ég vildi samt ekki borða. Hafragrauturinn er bara uppáhaldið núna og ekki mikið annað sem fær að fara niður í magann. En ég er samt að reyna að verða stór og sterkur strákur þannig að ég geri mitt besta til að reyna að þóknast m&p og borða, bara stundum erfitt þessa dagana (gætu verið tennurnar heldur mamman og aumur gómurinn).

Skoða tjaningar. (5 hafa tjáð sig, síðast Guðmundur Óli)


Myndir