Forsíða
Um okkur
Eldra efni


Vinir og ættingjar
Ari Gabríel
Birkir Örn
Burknavallakrúttin
Bína
Dagur og tvillarnir
Karen Hrund
Kjartan og Lovísa
Magnús Orri
Patrik og Ísabella
Sigga Hulda
Silja
Tvíburamamman
Fréttir í April 2009

Ár og dagar líða...
19.04.2009 08:59 - Hjördís skrifar
Já það er nú ansi leiðinlegt hvað húsmóðirin hefur verið léleg að setja hér inn geggjað grín og lífsins sannindi. Ég er búin að hugsa í svona tvo mánuði hvað það sé nú leiðinlegt að missa allar þessar heimildir út og nú man ég ekki lengur hvernig janúar var hjá t.d. Ísak, hvað gat hann þá? Hvað sagði hann? Hvenær komu tennurnar...maður er nú meiri asninn!! EN sem betur fer á hann líka ungbarnabók (fyrstu 5 árin eða eitthvað svoleiðis) þannig að sumt hefur farið þangað inn. Annars er bara búið að vera svo strembið hjá mér í kennslunni síðan um miðjan janúar og það er nú heila ástæðan fyrir því að ekkert hefur komið hér inn...

Benjamín hætti á leikskólanum Blásölum á föstudaginn. Ástæðan er sú að hann fékk inn á Rauðhól sem er bara hér í bakgarðinum hjá okkur og hann byrjar þar á mánudaginn. Hann var svolítið stressaður framan af en svo í síðustu viku vildi hann bara ekki fara á Blásali heldur byrja strax á Rauðhól svo í gær (laugardag) vildi hann bara fara strax á Rauðhól, nennti ekki þessu helgarfríi. Hann er nú orðinn 4 ára og var haldin heljarinnar afmælisveisla í mars. Hann er orðinn afar duglegur í lestri. Kann alla stafina, litla og stóra, sér stafi út úr öllum mynstrum, meira að segja þegar Ísak pissar á sófann :) Hann getur skrifað alla stafina án forskriftar og skrifar nú og skrifar. Hann getur lesið 3 stafa orð og myndi spá í stafi og tölur allan daginn ef hann gæti. Hann reiknar nú í gríð og erg tvo plús tvo og fimm plús fjóra, allt sem hann getur lagt saman með puttunum og stundum held ég að drengurinn sé eitt stórt spurningamerki sem spýtir út úr sér spurningunum með 3 millísekúndna millibili og getur það gert foreldrana gráhærða langt fyrir aldur fram. En hann er líka duglegur að segja okkur frá staðreyndum lífsins og fræða okkur um heimsmálin t.d. býr Benjamín sig nú undir komu systur sinnar sem á að heita Ösp..(nei ég er ekki ólétt).

Ísak er sama rólegheitasálin með ögn af frekjugeni móður sinnar. Hann skellir sér aftur með bakföllum ef ekki er gengið að hans óskum með tilheyrandi frekjuóhljóðum en situr þess á milli og dundar sér eða borðar. Hann nennir engan veginn að standa eða ganga og alls ekki að skríða, þjónustu takk!!!! eða ég öskra!!!!!!!!!!!! Hann flaggar orðunum mamma og pabbi og svo segir hann Benjamín á sinn eigin hátt (Beeee). Hann hermir eftir öllum hljóðum og segir O-Ó í gríð og erg. Hann er nú kominn með 7 tennur en það er liðinn þó nokkur tími síðan síðasta tönn kom. Hann er búinn að vera töluvert mikið veikur eftir að hann byrjaði hjá dagmömmunni þannig að við höfum skipst á að vera heima og svo er tendó búin að hjálpa okkur óendanlega mikið.

Við vorum fyrir austan og norðan í páskafríinu en komum heim laugardag fyrir páska og áttum tvo kósýdaga hér heima áður en vinnan, leikskóli og dagmamma tóku aftur við. Reyndar var Ísak orðinn veikur og fór ekkert til dagmömmunnar í vikunni. Stefnan er svo tekin á afmæli á eftir hjá Ara Gabríel sem er orðinn 2 ára og stóri bróðir og svo að kíkja í nýja húsið hennar Önnu Karenar, þ.e.a.s. ef hún verður ekki að vinna.

Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast Anna Karen)


Myndir