Forsíða
Um okkur
Eldra efni


Vinir og ættingjar
Ari Gabríel
Birkir Örn
Burknavallakrúttin
Bína
Dagur og tvillarnir
Karen Hrund
Kjartan og Lovísa
Magnús Orri
Patrik og Ísabella
Sigga Hulda
Silja
Tvíburamamman
Fréttir í April 2008

Risinn á leiðinni!!!
15.04.2008 09:19 - Hjördís skrifar
Jæja, þá erum við komin til Reykjavíkur aftur eftir mjög svo notalegar stundir á bæði austur- og norðurlandi. Fór svo í sónarskoðun í gær til Keflavíkur komin akkúrat 37 vikur á leið...fjúff hvað tíminn er fljótur að líða...anyway, þar leit allt mjög vel út þó svo að aðeins væri hægt að sjá lítinn hluta af barninu í einu en hann er aðeins yfir meðalstærð 37 vikna meðgenginna barna og rosa flottur bara. Reyndar segja mínar talningar aðeins annað en sónararnir hafa sagt og þar af leiðandi ætti barnið að vera nokkrum dögum eldra inni í maganum á mér en það skiptir nú ekki öllu, öllu máli skiptir að það komist heilu á höldnu út. Svo er mæðraskoðun á eftir, síðasta skoðunin í Grindavík svo er það bara Árbærinn næsta mánudag :) Það verður nú ágætt að losna við að keyra, tekur mun styttri tíma.

Ætlum að flytja inn á Bræðraborgarstíginn í dag eftir vinnu hjá Guðmundi Óla og þá tekur nú við smá hreiðurgerð og vonandi einhver tími til að hugsa út í það að þa er að fara að koma barn, hef ekki enn náð að átta mig á því. Annars kemur Svava á fimmtudagskvöldið og við ætlum að reyna að klára lokaritgerðina okkar ef leiðsögukennarinn skilar einhverntíma til okkar yfirlestrinum, en þá eigum við eftir að lagfæra og láta lesa yfir málfar og stafsetningu í lokaeintakinu...er ansi hrædd um að þetta náist ekki fyrir helgi en vonandi náum við að klára sem mest. Eftir helgina er krílið svo bara velkomið hvenær sem er, vonandi náum við samt að flytja inn í Selvaðið áður en það ákveður að sýna sig.

Sem by the way, gleymdist að segja, við fórum í Selvaðið í gær að líta á stöðu mála, lyftan er tilbúin (allavega á okkar hæð). Flísarinn búinn að flísaleggja baðherbergið og það er rosa flott, mjög ánægð með það. Innréttingarnar allar komnar í hús og þar var stelpa að þurrka af og þrífa svo hægt væri að byrja að setja þær upp. Vonandi fáum við afhent í lok vikunnar svo að Guðmundur Óli geti bara notað helgina í að parketleggja, krossleggjum fingur upp á það! Reyndar er handriðið ekki komið sem þarf að vera komið til þess að við megum fá afhent, en ætli það verði ekki sett upp í vikunni líka, vona það!!!

Skoða tjaningar. (6 hafa tjáð sig, síðast amma SIGGA)


Afi Albert
08.04.2008 21:54 - Benjamín skrifar
Hann á afmæli í dag. Í morgun langaði mig til að færa honum í rúmið, mamma spurði hvað við ættum að færa honum í rúmið og svarið var einfalt....HAFRAGRAUT!!! Þannig að við elduðum hafragraut handa afa og færðum honum í rúmið og svo fullt af pillum líka. Ég vildi reyndar færa honum kaffisopa líka en mamma var ekki alveg viss um að hann vildi kaffi svona snemma á morgnana þannig að hann fékk bara vatn. Hann var voða ánægður enda aldrei fengið hafragraut í rúmið fyrr, skil það nú ekki eins og hann er nú góður.

Svo gaf ég honum líka sög og málband, alvöru málband ekkert gerfi eins og pabbi segir að afi eigi bara. Hann var líka voða ánægður með það ...enda...hver er ekki ánægður með smíðadót...ég bara spyr!!!

Ég bakaði síðan handa honum súkkulaðiköku með þykkara kremi en kakan sjálf og svo rosa ROSA góða snúða og heimilisfrið sem er líka rosa góð og ég laumaði mér í áður en kaffitíminn kom...braut bara endana af og stakk þeim í munninn :) Amma hjálpaði mér líka smá við baksturinn.



Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast krissa)


Lúxuslíf
07.04.2008 21:18 - Hjördís skrifar
Já það er óhætt að segja það að það er alltaf hægt að slaka á fyrir austan. Þessi vika er búin að þjóta hjá eins og elding en man oh man er hún búin að vera notaleg. Ég kom hér uppgefin á líkama og sál en mamma var fljót að dæla í mig bjúglosandi c-vítamíninu og troða mér í teygjusokkana, lætur mig liggja í lazyboynum allan daginn og stjanar við mig...síðan þá hefur bjúgurinn ekki látið á sér kræla, jafnvel þó svo að ég hafi setið ALLLAN laugardaginn við tölvuna að klára lokaverkefnið. Hún mælir svo blóðþrýstinginn reglulega sem er alltaf jafn rólegur og ég :):) og mældi svo í mér eggjahvítuna sem hefur minnkað til muna síðan síðast:)...er hægt að biðja um betri dvöl eða?? Þannig að úr varð að fara ekki til borgarinnar í dag bara til að stressast yfir íbúðamálum og vera á þeytingi allan daginn heldur slá öllu upp í kæruleysi og vera áfram í 5 stjörnu spa og hóteldvölinni fram á fimmtudag og fara þá í einangrun í Mývatnssveit í burtu frá öllu amstri, jafnvel internetsins. Guðmundur Óli ætlar svo að koma til okkar í Mývatnssveit á föstudaginn og við getum varla beðið enda farin að sakna hans óheyrilega mikið. Að lokum verður svo haldið til Reykjavíkur á sunnudaginn og við tekur þeytingurinn. Fer bæði í snyrtingu og sónar til Keflavíkur á mánudeginum, mæðraskoðun á þriðjudeginum og lokaverkefnið verður klárað endanlega í þeirri vikunni...vonandi.

Við kláruðum semsagt greinagerðina á laugardaginn og finnst við vera búnar með lokaverkefnið, en eigum eftir að fá umsögn frá leiðsagnarkennaranum og fáum þá tækifæri til þess að lagfæra ef honum finnst eitthvað vanta eða finnst eitthvað vera að. Síðan eigum við eftir að setja spilið saman en vonandi náum við að ljúka þessu öllu helgina eftir næstu og skila þá líka...þá verður ALLT búið og ég get einbeitt mér að því að vera BÚIN Í SKÓLANUM....VHÚPPÍ...HLAKKA SVO TIL!!!

Hún Lilja okkar á svo afmæli í dag, frétti það áðan að hún væri orðin 34 ára VÓTS:):) neinei ekki svo hrikalegt...maður er víst aldrei eldri en manni líður...þannig að hún er örugglega ekki deginum eldri en 25...right???
TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN ELSKU LILJA


Skoða tjaningar. (1 hefur tjáð sig, síðast Lilja hin síunga)


Heimilislaus
02.04.2008 10:14 - Hjördís skrifar
Við rétt mörðum það af að afhenda húsið klukkan hálf ellefu á mánudagskvöldið. Ég hélt reyndar að við myndum ekki ná því en ég slakaði aðeins á þrifakröfunum og þá hófst það...held samt að þetta sé með best þrifnu afhendu húsum sem um getur!!...en þá erum við formlega orðin heimilislaus.
Við fengum inni á Skúlagötunni frá laugardagskvöldinu og Guðmundur Óli er þar núna en við Benjamín erum fyrir austan þar sem ég þarf helst að klára öll verkefni innan einnar og hálfrar viku en við komum þó aftur í bæinn á mánudaginn næsta.

Fékk ekki alveg nægilega góða mæðraskoðun í gærmorgun, er bæði með mikla eggjahvítu í þvagi og bjúg í töluverðu magni, það sem reddar mér er hið óendanlega rólyndi mitt þannig að blóðþrýstingurinn var ekki kominn upp úr öllu valdi (þó svo að hann hafi sjálfsagt verið það kvöldið áður:)) Ég fékk þó leyfi til þess að fljúga austur með því skilyrði að ég léti mútter dekra við mig og yrði ekki með neina vitleysu í því að ætla að redda heiminum svona í lok meðgöngunnar...

En mikill léttir var það að losna við tvö stór næstum óyfirstíganleg verkefni (á tímabili) á einum degi. 31. mars, síðasti vinnudagurinn og afhending á húsinu, ég er samt ekki alveg búin að átta mig á því en ég held að eftir helgina þegar næstum lokaeintaki lokaverkefnisins hefur verið skilað og kannski búið að klára tvö önnur verkefni þá eigi aðeins eftir að kikka inn að hvíldin er handan við hornið...vona að ég nái allavega tveimur vikum í lokin til að einbeita mér að meðgöngunni og fæðingunni, hef ekki enn haft tíma til að átta mig á því að ég sé í raun ólétt. Ljósmóðirin er ekki alveg nógu ánægð með þetta og skammaði mig mikið að vera ekki farin að hugsa út í fæðinguna, vissi ekki einu sinni að ég þyrfti þess!!!

Fer í sónar á mánudaginn næsta og vonandi verður allt í fínu þar en þangað til ætla ég aðeins að koma mér í lærdómsgírinn, fjögur verkefni to go!!!!!! síjúleiter

Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast Lilja Kristín)


Myndir