Forsíða
Um okkur
Eldra efni


Vinir og ættingjar
Ari Gabríel
Birkir Örn
Burknavallakrúttin
Bína
Dagur og tvillarnir
Karen Hrund
Kjartan og Lovísa
Magnús Orri
Patrik og Ísabella
Sigga Hulda
Silja
Tvíburamamman
Fréttir í April 2007

no comment
30.04.2007 19:41 - Hjördís skrifar
Að neita að tjá sig um hin og þessi málin virðist vera í tísku hjá fólki sem á ekki að hafa leyfi til þess að neita að tjá sig...

En nóg um það, nú er 1. maí á morgun og þar með  vorið byrjað. Hjá mér hefur maí alltaf markað vorið og ég hlakka endalaust til sumarsins, það er svo margt skemmtilegt sem á að gera. Fyrst þarf reyndar að klára prófatörnina sem líkur 11. maí, gat verið að Ísland í Júrovisjón sé kvöldið áður, það gerir þetta allt bara meira spennandi ;)  Ég er bara glöð á meðan það er ekki austfjarðaveður í prófatíðinni, þá líkar mér ágætlega að hafa bara ský, rigningu og smá rok. En ég eyði ekki 1. maí í kröfugöngu og málefnalegar umræður á kaffihúsi heldur skemmti ég mér hér innandyra og les úr mér heilann um öll hugsanleg trúarbrögð heims og stefnur og strauma, sértrúarflokka og söfnuði út frá þeim. Óskið mér nú góðs gengis og sendið mér hlýja strauma :)


Skoða tjaningar. (5 hafa tjáð sig, síðast Helgi tengdó og co.)


Lítið gullkorn!
28.04.2007 19:11 - Hjördís skrifar
Við vorum rétt í þessu að ljúka við kvöldmatinn og ganga frá. Sem er nú ekki til frásögu færandi nema það að Benjamín borðaði eins og hestur af kjúklingi í masaman. En það átti nú ekki að vera sagan heldur þegar ég var búin af disknum og búin að drekka úr glasinu mínu var ég í mikilli þörf fyrir bara einn sopa í viðbót, hefi ekki komið meiru niður. Ég rétti glasið mitt að Guðmundi Óla og bað hann um að hella í það á meðan ég hélt á glasinu, "bara einn sopa". Guðmundur gerði sig tilbúinn til að hella og ég stoppaði hann af og sagði "passaðu þig" og meinti að hann ætti ekki að gusa í glasið heldur passa sig bara að setja einn sopa í glasið (smámunasemi? kannski). En þetta var nú ekki svo skemmtileg saga en það sem kom eftir á var skemmtilegt og mjög svo fyndið. Benjamín horfði á þetta allt saman og rétti Barbapabbakönnuna sína að pabba sínum til að biðja um meira að drekka. Þegar pabbi ætlaði svo að fara að hella í könnuna rétti stubbur aðra höndina út í svona "stopp stellingu" og sagði "passa di"...þið vitið öll hvað það þýðir!!!!!!!!

Skoða tjaningar. (3 hafa tjáð sig, síðast Lilja frænka)


Kominn tími til...
27.04.2007 08:35 - Benjamín skrifar
...að mamma fari að gera ansi margt sem á eftir að gera, eins og t.d. að skrifa eitthvað hér inn. Hún steingleymdi alveg síðast að Bergsveinn og fjölskyldan hans komu til okkar frá Frakklandi miðvikudeginum áður og gistu hjá okkur. Við Bergsveinn vorum voða góðir að leika. Hann gaf mér bangsímonsmartís sem var mjög gott og ég gat tínt upp í mig af gólfinu næstu vikuna :)...þ.e.a.s. ef hin árlega moppun hefði ekki átt sér stað á öðrum degi frá gróðursetningu.
Á sumardaginn fyrsta fermdist svo Hávar frændi minn og ég fór að sjálfsögðu í veisluna til hans, sýndi allar mínar bestu hliðar og tók síðan mömmu og pabba heim klukkutíma síðar. Það var nefnilega þannig að ég átti að sitja kyrr, sem var lífs ómögulegt þennan dag, ég meina ég hefði alveg eins getað sofið bara allan daginn. Þannig að ég vildi bara vera úti að gefa öndunum brauð (veislan var í Iðnó) en það versta var að mamma og pabbi vildu það ekki þarna, þá vildi ég vera í stiganum og láta elta mig og beisiklí bara gera allt sem ég átti ekki að gera. Ákvað svo að viðra mína einstöku söngrödd, þá söngrödd sem foreldrar mínir eru ekkert of ánægðir með og kalla frekjuöskur.  Þannig að eftir sveittan klukkutíma var kominn tími til að fara út í bíl. Það  var ekki að spyrja að því um leið og við vorum á leiðinni niður stigann sagði ég ekki orð og skemmti mér bara konunglega alla leið út í bíl, enda búinn að fá mínu framgengt ;)
Annars hefur nú lífið bara gengið sinn vanagang. Leikskólinn er æði eins og vanalega og það er líka mjög gaman að vera heima. Nú kann ég fullt af stöfum og keppist við að finna þá á bókarkápum og blöðum. "Afi A", "Mimi Bé", "Dódi (Doddi) D", "Pabbi G", "Mamma H", "Amma S" og "Lúm ell (Rúm R)" svo er ég non-stop í að teikna lítið hús "gígí ús" og stórt hús "dótt ús", lítinn bíl "gígí bíll" og stóran bíl "dótt bíll"og svo er Óli prik "Óli pik" í miklu uppáhaldi líka, mér finnst þetta agalega flottar myndir og er voða stoltur af sjálfum mér, mamma að sjálfsögðu líka. Amma Gerða gaf mér voða skemmtilega sumargjöf, ég fékk skoppu og skrítlu og fékk að horfa á þær. Þær eru rosalega skrítnar og voða fyndnar og tala líka með höndunum síðan fékk ég pakka frá Bergsveini með fullt af skemmtilegu efni t.d. Karíusi og Baktusi en þeir eru óþekktarangar. Þeir eru stundum í munninum mínum á kvöldin og mamma þarf að ná þeim út með tannburstanum mínum, það er KREISÍ skemmtilegt en þeir voru ekki góðir við Jens, aumingja Jens, ég ætla sko ekki að leyfa þeim að gera við mig eins og þeir gerðu við hann.
Afi Albert og Kjartan frændi komu hingað í mat til okkar í fyrrakvöld og við skemmtum okkur konunglega og ég fór voða seint að sofa :s en vaknaði sem fyrr, FYRIR SEX um morguninn. Foreldrar mínir eru ekkert sérlega ánægðir með þessi nýju uppátæki mín en um leið og mamma er búin í prófunum segist hún ætla að breyta þessu, hún getur nefnilega lært á morgnana líka því ég fer út í vagn aftur hálf ellefu yfirleitt...svona þegar ég sætti mig við það.

B S R    

Skoða tjaningar. (3 hafa tjáð sig, síðast GERÐA amma BILLA ´ÓSK VÍÐIR ÓLI OG TERESA)


Ekkert fréttnæmt
21.04.2007 08:23 - Hjördís skrifar
Í raun er ekkert spennandi að gerast á heimilinu öfugt við flesta aðra daga!! Það kom fólk að skoða húsið okkar í gærkvöldi, veit ekkert hvernig þeim leist á. Benjamín var upptekinn af því að skjóta þau allan tímann og grenja þegar byssan var tekin að ég var svolítið upptekin í því en ég held að þeim hafi bara litist vel á og fannst sem betur fer fyndið þegar þau voru skotin :(

Annars er Benjamín farinn að tala mikið upp úr svefni. Hann er ekki búinn að sofa vel síðustu eina og hálfa vikuna eða meira eða minna...þetta blandast allt saman. Allaveganna, um daginn vaknaði ég við það að hann var að skamma einhvern upp úr svefni og vældi hvað eftir annað "mímí á, mímí á!", það hefur sjálfsagt einhver verið að taka dótið hans af honum, greyinu ;) Nokkrum nóttum síðar vaknaði ég aftur við það að hann var að tala og sagði þá "búba bíll"...sem eru allir bílar með toppljós og segja babúbabúbabú. Síðan hélt hann bara áfram að steinsofa og ekkert fréttist meira af bílnum eða dótinu sem hann átti!

Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast billa ósk víðir óli og teresa)


Starfsmannabörnin að sjálfsögðu barnanna best!!!
18.04.2007 20:57 - Hjördís skrifar
Í dag var síðasti langi dagurinn, allaveganna í bili. Litli stúfur alveg búinn á því eftir 9 tíma á leikskólanum þó svo að hann hafi sofið frá hálf eitt til hálf þrjú INNI.
En það skiptir ekki máli, svona er það bara. Hins vegar í lok dagsins vorum við fjórar eftir starfskonurnar á staðnum, ein á hverri deild. Það vill svoleiðis til að þrjár okkar eigum börn á leikskólanum, Katrín Júlía á sömu deild og Benjamín og svo Bríet á hinni yngri barna deildinni. Í lok dagsins var komið svona svolítil óreiða á hlutina og við leyfðum börnunum að leika sér á ganginum og allir voru að sækja í einu og allt í kaós enda dagurinn búinn að vera nógu langur fyrir okkur öll. Svo leið ekki á löngu þar til ég fór að leita að barninu mínu  til að fara að hafa okkur til fyrir heimferð. Þá fann ég hann hvergi og leitaði þó út um allt og meira að segja úti...þar sem hann hefur oftar en einu sinni strokið út og ætlað í gröfuna sem er á byggingasvæðinu hinumegin við götuna. Anyway, ég er að verða nokkuð stressuð þegar Rakel, mömmu Katrínar verður litið inn í myrkvaðan listaskálann og þar stendur minn uppi á stól og er að vesenast eitthvað. Ég kíki líka inn um gluggan og þá er Katrín að vesenast eitthvað hjá honum. Ég opna því hurðina og fer inn. Þá kemur Bríet skokkandi út úr "byrgðageymslunni". Haldið þið þá ekki að þessi yndislegu börn hafi fundið vatnslitakubb á pappadiski. Katrín sprautaði málningu á hann og Benjamín vann í því að þekja vatnslitakubbinn með grænum lit, hlutverk Bríetar var að leita að meiri málningu!!...það skal tekið fram að þó svo að mörg önnur börn hafi verið ennþá á leikskólanum þá komu þau ekki við sögu, enda ekki um fleiri starfsmannabörn að ræða á þessum tíma dags :)

Núna gengur líka allt út á það að fara í kollhnís í tíma og ótíma. Hausnum er þrykkt ofaní gólfið (eða dýnuna sem var nú fundin til) og svo látið vaða...endar svo oftar en ekki út á hlið einhversstaðar og þá er bara látið vaða aftur og aftur og aftur...alltaf skal farið í kollhnís. En svo var það ekki fyrr en í gærkvöldi að allt í einu var mömmu og pabba skipað að fara í kollhnís. Það var ekkert vandamál...að því er mamman hélt :(...en komst sér til mikillar skelfingar að því að formið er EKKERT. Ég meiddi mig í fyrsta lagi í hausnum og stórsvimaði eftir stórskrítinn hring sem ég held að hafi verið kollhnís. Ekki var pabbinn skárri þar sem ég held að honum hafi næstum því tekist hið ómögulega, að brjóta parketið þar sem hann ætlaði nú aldeilis að sýna mömmunni að maður ætti ekki að meiða sig í hausnum....með því að setja bara ekkert hausinn niður og gera þetta frekar ófimleikaflikkflakk og skella sér niður. Þetta átti síðan að endurtaka, það gekk aðeins betur hjá mömmunni í SEINNA skiptið (þau urðu ekki fleiri), hringurinn varð aðeins jafnari og fékk ekki jafn mikið í hausinn en pabbinn lét sér þetta eina skipti nægja.

Einhvernveginn hélt ég að það væri ekkert mál að fara í kollhnís og það væri ekki hægt að klúðra því...samt hafði ég ekki farið í kollhnís í MÖRG ár ef ekki áratug! Hefði aldrei getað ímyndað mér að það myndi einhverntíma taka á að fara í kollhnís...en eftir því sem kílóunum fjölgar og æfingunum fækkar...allverulega, þeim mun erfiðara er það...jah, að hugsa sér!!!

Skoða tjaningar. (3 hafa tjáð sig, síðast amma GERÐA OG CO.)


Vagn? Nei takk!
17.04.2007 19:41 - Hjördís skrifar
Það eru farin að verða vandræði með að setja Benjamín í vagninn. Það skiptir ekki máli hvort það er seint eða snemma alltaf skal hann flýja og fela sig um leið og farið er að hafa til "vagnfötin". En venjulega tekst mér að koma honum ofaní vagninn og hlekkja hann niður...greyið, ég fæ alveg sting í magan. En þá byrjar vandamálið með sængina, hann setur lappirnar beint upp í loftið og tekur ekki í mál að hafa sængina ofan á sér. Ef mér tekst að lokum að hafa sængina ofaná honum þá set ég hann út. Þá byrjar hann að væla og neitar alfarið að sofna, stundum þarf ég að rugga honum í hálf tíma til að hann sofni (ég hef ALDREI þurft að rugga honum í svefn, hann sofnaði bara sjálfur). Sama hvað hann er þreyttur...hann skal ekki fara að sofa, en ef ég leyfi honum að vaka er tíminn frá 4 og þar til hann sofnar algjört helvíti og ekki þess virði. Á leikskólanum um daginn þegar ég var líka að vinna allan daginn þá settist hann bara upp (ég varð að taka kerrupokan úr vagninum svo ég gæti haft hann í beysli), og neitaði algjörlega að fara að sofa, henti meira að segja duddunni sinni bara á stéttina....þá er nú eitthvað mikið um að vera. Þá tók yndislega konan á leikskólanum, Sólveig hann inn og hélt á honum þangað til hann sofnaði, tók 2 mínútur!!! gjörsamlega búinn á því, barnið sem ekki sofnar í fangi eða öðruvísi en í vagni, rúmi eða bíl.
Í dag fór hann svo út í vagn og loksins sofnaði hann, þegar ég fór svo að gá að honum var hann steinsofandi með aðra löppina út um skerminn á vagninu, spurning um að vagninn sé að verða of lítill og það sé kannski vandamálið???????!!!!! Allavega, ég bara bíð og bíð eftir að hann fái leikskólapláss á morgnana og komi uppgefinn heim kl. 1 og geti þá bara sofnað uppi í rúmi, það er sénslaust eins og staðan er í dag.

Í sambandi við dudduna þá er staðan að verða frekar skrítin. Hann er farinn að vilja hana í tíma og ótíma og verður ekki glaður þegar honum er neitað um hana. En hvað um það, við vorum að horfa á Bangsimon og frílinn í morgun á meðan ég var að lesa fyrir skólann, því enginn leikskóli var í dag. Þar er Gúri litli að fara að sofa og mamma hans að syngja fyrir hann, í lokin breiðir hún sængina yfir hann og hann lokar augunum. Allt í einu heyri ég þegar Gúri er að loka augunum (þarna sjáið þið hvað ég hafði mikinn áhuga á lestrinum) "ENGIN DUDDA", "GÚRI, ENGIN DUDDA", þetta fannst honum virkilega skrítið, að Gúraskinn færi að sofa án þess að hafa duddu.

Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast Steinunn)


Önnur færsla kvöldsins...Vóts
16.04.2007 22:43 - Benjamín skrifar
Hin færslan var að verða of löng af einhverju leiðinlegu bulli að ég bara varð að klippa á þetta hjá henni mútter...lesið bara fyrstu greinaskilin ;)

Ég er nú búinn að bralla margt síðustu dagana. Á laugardaginn var ég úti með pabba mínum á hjólinu hans og við hjóluðum út um allt og svo fórum við á pallinn að þrífa hann með sprautu. Ég fékk að sjálfsögðu að þrífa pallinn að mestu og fannst Dimmulimm vanta svo mikið að fara í bað þannig að ég ákvað að sprauta nú aðeins á hana kéllinguna. Það vildi nú ekki betur til en hún hoppaði lárétt á grindverkið, hljóp eftir hliðinni á grindverksveggnum dágóðan spotta og hoppaði svo yfir og út á lóð. Ég komst sumsé að því að kötturinn minn kann að hlaupa á veggjum.
Síðan fórum við til ömmu Gerðu og Billu og Víðis að fá okkur að borða, það var HRIKALEGA skemmtilegt og ég var á fullu allan tímann að leika úti á svölum eða hjóla inni. Ég fékk að prófa gamla tvíhjólið hans Víðis Óla með hjálparadekkjunum og ég var svo ánægður með það að ég fékk það bara heim eftir að vera næstum búinn að hjóla niður allt heima hjá afa og ömmu. Það er hægt að bakka á því og allt.

Í gær vorum við svo að opna hurðina út á pall því ég ætlaði sko að hjóla og hjóla á pallinum mínum og þegar pabbi opnaði hurðina stakk ég hausnum út og dró djúpt að mér andann í gegnum nefið eins og þegar fullorðna fólkið er að finna lyktina af ferska veðrinu (ég fann nú samt enga lykt...fnuss). Þetta þótti svo agalega fyndið að ég varð að gera þetta aftur og aftur! Síðan fórum við öll fjölskyldan og hjóluðum um allan bæinn, niður að höfn og alles. Við stoppuðum svo hjá SVAKALEGA stórri beltagröfu en ég fékk ekki að fara inn í hana, það fannst mér leiðinlegt. En ég kvaddi hana vel þegar við þurftum að hjóla til baka.
Við fórum svo heim til afa Inga og ömmu Billu í grill því að afi Ingi á afmæli í dag og það var rosalega skemmtilegt. Þar voru bara ALLIR og ótrúlegt fjör að leika úti á svölum og inni í herbergi og "in general" að leika ALLAN TÍMANN.

Svo var ég svo heppinn að fá tvær afmælisgjafir í dag, afi Ingi nefnilega gaf mér tvær af sínum (hlýtur að vera) þær voru frá ömmu í Mývatnssveit og ömmu á Ísafirði, fékk rosa flott sumardress frá ömmu í Mývó alla leið frá KANARÍ, og svo fékk ég rosa flotta hettupeysu og dýr frá ömmu á Ísó alla leið frá ÍSAFIRÐI!!! Greyið afi verður bara að fá föt frá þeim seinna.
Annars viljum við öll óska afa Inga innilega til hamingju með daginn í dag, orðinn alveg 57 ára eins og afi Albert...bara 8 dagar á milli þeirra og ég var í báðum afmælum, maður er aldeilis að verða sjóvaður í 57 árunum!

Amma Jósý átti líka afmæli 12. apríl og Kristinn frændi 11. apríl, þau fá líka hamingjuóskir frá okkur öllum í Grindavík

Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast Lilja frænka)


Appelsínumjólk
16.04.2007 22:23 - Hjördís skrifar
Í dag var ég að gefa Benjamín að borða eftir að hann kom inn úr vagninum. Það var "lítið jógúrt" sem er hnetu og karamellujógúrt, brauð með mysing og svo spurði ég hvort hann vildi appelsínudjús eða mjólk, þá sagði hann ákveðinn "nei, appelsínumjólk"...þar með er það á hreinu og þeir hjá mjólkursamsölunni meiga fara að hugsa út í þá framleiðslu á komandi mánuðum :)

Annars finnst mér alltaf svo lítið að frétta þegar maður tekur daginn saman en samt er alltaf fullt að gerast, bara eitthvað sem mér finnst engum koma við og að engum geti fundist gaman að lesa um, eins og þegar ég tala við fólk. Var að spjalla um þetta við æskuvinkonur mínar um daginn (í páskafríinu) að ég á svo erfitt stundum með að tala við fólk sem ég þekki lítið eða er ekki í fullkomnu prumpu/ropa sambandi við. Finnst það rosalega leiðinlegt og örugglega oft litið á það sem þvílíkt snobb og að ég líti á mig sem mikið merkilegri manneskju. Held að húmorinn sé bara þannig gerður að ég kann ekki við að opna á mér kaldhæðna kjaftinn nema að vera algjörlega í náðinni :) :) Ég á t.d. ónafngreinda vinkonu ;) sem talar um alla heimsins hluti við fólk sem hún hefur kannski þekkt í 10 mínútur úti á smóknum eða í kaffitímanum eða matsalnum. Hún getur sagt þeim frá því hvernig gekk að komast að heiman í morgun og allir hlæja og skemmta sér. Ég hefði geta lent í sömu óförum eða á sama rauða ljósinu og hefði aldrei sagt frá því einfaldlega af því að mér finndist eins og ég myndi drepa fólk úr leiðindum með því, samt finnst mér gaman að hlusta á þessar sögur frá öðrum....EN sem betur fer eru ekki allir eins... ég fer að vinna í því að segja frá...hef nú reyndar oft hugsað mér að hætta með þessa vefdagbók og skrifa í venjulega dagbók bara fyrir sjálfa mig (á svona u.þ.b. 10 svoleiðis dagbækur, mikið auðveldara að skrifa í þær en tekur svona u.þ.b. 4 sinnum lengri tíma, en verð að segja, þær eru ítarlegri...haha), þá þarf ég ekki að hafa áhyggjur af því að einhver detti niður dauður af leiðindum við lesturinn....eins og ég fæ örugglega að heyra í fyrramálið eftir þennan lestur, líkbíllinn hefur nóg að gera! :I...

En nóg um það, lítið hefur gerst síðan eftir heimkomuna á annan í páskum. Leikskóli og lærdómur, sat sveitt svo sólahringum skipti (svona næstum) við að klára trúarbragðaverkefni og fór svo og vann í tvo daga frá 8-17. Núna eru reyndar starfsdagar á leikskólanum þannig að Benjamín er í fríi í dag og á morgun en við förum svo bæði 8-17 á miðvikudaginn, það er ótrúlega skemmtilegt og ég á eldri barna deild sem ég fíla mikið betur heldur en yngri barna deildina...vóts, ekki hægt að líkja því saman! Finnst rökræðurnar og kennslan betri en hugganirnar og málleysið...kemur á óvart eftir ræðuna hérna áðan!:)

Ah, ætla að gera aukafærslu...alltaf að rifjast meira og meira upp!

Skoða tjaningar. (3 hafa tjáð sig, síðast Anna Karen)


Gleðilega páska
08.04.2007 12:57 - Benjamín skrifar
Í morgun var ég svaka duglegur og svaf til klukkan að verða sjö, en það var búið að lofa mér að ég mætti opna páskaeggið þegar ég vaknaði. Foreldrarnir voru nú mest hræddir um að ég vaknaði kl. 4 og myndi heimta að fá að opna, en ég ákvað nú að vera aðeins góður við þau. En þar sem afi Albert á afmæli í dag gaf ég honum RISA konfektpáskaegg og hljóp með það inn til hans um leið og ég vaknaði. Við mamma vorum búin að æfa og æfa að segja "til hamingju með afmælið afi" en þegar á hólminn var komið þá var spennan svo mikil og það lá svo mikið á að fara að dreifa restinni af páskaeggjunum að þegar ég átti að segja til hamingju með afmælið þá hrópaði ég bara "amma" og hljóp af stað að sækja ömmu páskaegg...síðan fékk ég loksins að opna mitt egg og dundaði mér við það að dreifa namminu á alla sem voru vakandi, mér fannst þetta ekkert gott sjálfum en tókst mjög vel að koma þessu út....á tímabili voru 7 páskaegg í gangi hér á heimilinu en þeim fer fækkandi :D

Það er alveg ótrúlega gaman að leika úti í snjónum sem er hér og ég ætla sko EKKI inn þegar á að draga mig inn og það þýðir sko ekkert að vera með einhver gylliboð um páskaegg og eitthvað svoleiðis...nei takk.

Lilja frænka átti afmæli í gær gamla konan og svo afi í dag...ekkert nema eldgamalt fólk í kringum mig, en mamma segir mér að svona verði þetta eftir því sem maður verður eldri....fólkið í kringum mann verður alltaf eldra og eldra :s TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIN

Skoða tjaningar. (4 hafa tjáð sig, síðast Lilja)


5. apríl
05.04.2007 07:37 - Hjördís skrifar
Það var nú ekki ætlunin að láta 1. apríl vara svona lengi, en það var bara svo gaman að plata :) Annars er í dag 2 ár síðan ég átti að eiga Benjamín, hann átti að koma 5. apríl 2005, en það var æðislegt að hann kom 20. mars...svo sérstakur dagur.
Annars erum við á leið austur á land yfir páskana og ætlum að hafa það gott. Hér var mikið fjör í gærkvöldi þar sem þrír litlir frændur voru hér hjá okkur, tveir stórir frændur, ein stór frænka og svo amma og afi. Mikil læti og mikið gaman :)

Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast amma GERÐA BILLA ÓSK VÍÐIR ÓLI OG TERESA)


1. APRÍL
01.04.2007 13:08 - Benjamín skrifar
hahaha, plataði ykkur, engin færsla í dag....1. APRÍL!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Skoða tjaningar. (4 hafa tjáð sig, síðast Lilja)


Myndir