|
|
Fréttir í April 2006
|
Var sprengidagur í dag?
30.04.2006 22:17 - Benjamín skrifar
Vorum að koma heim úr ferðalagi. Byrjuðum á því í gær að skreppa í bæinn og halda svo áfram alla leið á Blönduós þar sem var verið að ferma Guðbjörgu Ásu frænku mína í dag. Ég fékk að vera aðeins hjá afa og ömmu á Skúlagötunni á meðan mamma og pabbi voru eitthvað að vesenast en ég var nú ekkert alveg að vilja sofa mikið þannig að ég átti bara að sofa alla leiðina á Blönduós...en NEINEI ég svaf ekki einu sinni í EINA MÍNÚTU, ákvað bara að skemmta foreldrum mínum með mínum fagra fuglasöng alla leiðina. Síðan var náttúrulega svo mikið fjör að sjá ættingjana að ég mátti ekkert vera að því að fara að sofa þannig að ég vakti bara til hálf ellefu, eginlega ekkert búinn að sofa. Enda var nóttin ekki sérlega skemmtileg. Ég var alltaf að vakna og fannst líka lágmark að pabbi vaknaði og stjanaði við mig á meðan mér leið svona illa...enda gerði hann það kallinn. Síðan var sko aðal dagurinn í dag. Guðbjörg Ása var voða sæt og fín í veislunni sinni, og reyndar allir hinir líka. Þórarinn frændi minn (bróðir Guðbjargar) sá um að kokka í veislunni að sjálfsögðu. Ekki amalegt að eiga svona bræður, Kiddi klippari og Þórarinn kokkur, er að spá í að fá mér svona systkini til að sjá um mína fermingu og svona...afmæli kannski og svona í framtíðinni. Maturinn var frá öllum heimshornum og MJÖG erfitt að komast yfir allt...en SNILLDAR var hann góður...SHIT ég hélt bara að mamma ætlaði að springa ásamt fleirum.
Síðan þegar ég var nú orðinn soldið þreyttur þá ákváðum við nú að fara eftir að ég var búinn að heilla marga upp úr skónum, halda ræður og lofsöngva og in general bara búinn að láta taka eftir mér, og átti ég nú aldeilis að sofa á leiðinni heim líka. Það fannst mér hinsvegar enganveginn við hæfi, ákvað nú samt að fá mér kríu í svona u.þ.b. 20 mínútur svo ég gæti nú skemmt foreldrunum það sem eftir var leiðarinnar, sem var langt.
En ég skóflaði svo í mig MIKLUM hafragraut áðan og fór svo bara að sofa...samt ekki fyrr en ég var búinn að lúskra aðeins á litlu kettlingunum sem eru nú farnir að labba út um allt hús :)
Skoða tjaningar.
(2 hafa tjáð sig, síðast amma Sigga )
|
Sorgartíðindi :(
27.04.2006 20:44 - Hjördís skrifar
Eða kannski ekki svo mikil sorgartíðindi heldur en bara mjög leiðinleg staðreynd. Stöð í Stöð verður haldin 13.-17. júlí í ár, sem þarf náttúrulega akkúrat að vera helgi á meðan við fjölskyldan verðum úti í Frakklandi...FRÁBÆRT. Ekki það að Frakklandsferðin verður örugglega mjög ánægjuleg og engin eftirsjá í henni, en að missa af Stöð í Stöð er náttúrulega tradjedía ársins, sérstaklega þar sem hún er ekki nema á 5 ára fresti að ég held. Það eiga sjálfsagt eftir að falla tár í Frakklandi laugardagskvöldið 15.júlí þegar ALLIR Stöðfirðingar landsins verða samankomnir á balli í samkomuhúsinu...þvílík sorg að geta ekki tekið þátt í því. (Auðvita eiga svo eftir að falla tár á Stöðvarfirði líka þegar upp kemst að ÉG er ekki á meðal ballgesta).
En nóg af væli, þá er bara að finna sér eitthvað æðislegt að gera það kvöld í Frakklandi og monta sig síðan af því hér á netinu...ekki satt?
Annars er dagurinn búinn að vera æðislegur, gordjös veður og þvílík hlýindi og sól og alles. Maður er bara kominn í sumargírinn, ekki spurning um það.
Ennþá vantar tvær kisulórur heimili. Ótrúlega krúttlegar;)
Skoða tjaningar.
(8 hafa tjáð sig, síðast Elva)
|
Þetta er ekkert grín!
26.04.2006 22:32 - Hjördís skrifar
Í dag var ég að reyna að kæla matinn hans Benjamíns út í glugga eins og ég geri svo oft, en fannst rjúka eitthvað svo lítið úr honum og mér varð ekkert kalt á höndunum eins og vanalega. Því ákvað ég að líta á hitamælinn og VITI MENN það voru heilar 14 gráður á hitamælinum Í SKUGGA. Þetta var að sjálfsögðu tilefni í göngutúr og fínerí...samt ekki langur þó svo að viljinn hafi alveg verið fyrir hendi, þá leyfði tíminn það einhvernveginn ekki.
Núna er Benjamín kominn með heilmikinn áhuga á litlu kettlingunum, enda eru þeir farnir að færa sig uppá skaftið og eru farnir bæði að reyna að slást og færa sig um í herberginu. Endalaust krúttlegir þessar elskur. Benjamín verður þó heldur æstur og þar af leiðandi fruntalegur og endar klappið oft með heljarinnar barsmíðum sem eiga þó að þýða "aaaa"...að ég held. Hafið engar áhyggjur þó, við fylgjumst vel með kappa og náum að grípa inn í áður en illa fer :)
Skoða tjaningar.
(2 hafa tjáð sig, síðast amma GERÐA og afi HELGI)
|
Gott er nú blessað veðrið
26.04.2006 15:03 - Hjördís skrifar
Eins og sönnum Íslendingi sæmir verður maður nú að reporta um veðrið svona endrum og eins. Það var sumsé í gærmorgun að familían vaknaði kl 6 JÁ TAKIÐ EFTIR KL 6, því þá fannst yngsta meðliminum tímabært að allir færu á fætur, þó við lítinn fögnuð þeirra sem eldri eru. En er við drógum frá gluggum heimilisins blasti við okkur þessi líka alhvíta jörð. Svo brosti sólin sínu blíðasta og veðrið jafn gott og á verður kosið (þó heldur kalt) þegar horft var yfir hraunið hér sem blasir við úti á hlaði var eins og að horfa yfir jólakort, þvílík var fegurðin. Í morgun hins vegar skein bara sólin á blauta jörðina og maður vonaðist kannski eftir smá sumarlegra veðri...alveg þar til hundslappadrífan/jólasnjórinn fór að falla niður af himnum og tvö sett af hagléli fylgdu í kjölfarið, og þetta var allt fyrir hádegi. En sólin skín samt gleitt í augnablikinu og ágætis veðurblíða á staðnum og ekki laust við að sumarfílingurinn sé að gera vart við sig í litlum hjörtum.
En eins og áður frá greindi fannst Benjamín AGALEGA sniðugt að vakna kl.6 síðustu tvo morgna, við vorum nú ekki alveg sammála honum með það foreldrarnir en það var víst ekki um annað að ræða. En svo í morgun þegar sá litli ætlaði nú að fara að ræsa foreldrana klukkan 5 þá var það nú ekki tekið í mál og hann látinn hýrast í rúminu fram eftir morgni eða þar til hann vaknaði aftur 7:45, mömmunni til ómældrar gleði:)
Skoða tjaningar.
(2 hafa tjáð sig, síðast amma JÓSÝ)
|
Allt við það sama.
25.04.2006 21:07 - Hjördís skrifar
Hér í Grindavík gengur lífið sinn vanagang þessa dagana enda ekki seinna vænna eftir allt stressið í mars og svo óskipulagið um páskana og "barneignir" og þess háttar. Í dag á Gauti frændi afmæli og við óskum honum innilega til hamingju með þrjátíuogeitthvað árin. Fórum reyndar í afmælismat til hans áðan, það var rosalega góð gúllassúpa í matinn og ég held barasta að öll fjölskyldan hafi borðað yfir sig, yngsti meðlimurinn þó meira af möffins og ís á meðan hann gekk á milli ættingjanna:) Ég hef í raun ekkert meira að segja þar sem ég get ómögulega munað hvað gerðist í dag og gær eða hvort það gerðist í síðustu viku eða hvað? Sellurnar eru í hvíld fyrir prófalesturinn mikla á komandi dögum :)
Skoða tjaningar.
(1 hefur tjáð sig, síðast Liljapilja)
|
Skemmtilegur dagur
23.04.2006 22:55 - Benjamín skrifar
Í dag var nú aldeilis skemmtilegur dagur. En byrjum nú samt á gærdeginum sem var nú ekki síður skemmtilegur.
Í gær komu semsagt amma og afi á Skúlagötunni að heimsækja mig ásamt Víði Óla og langömmu Jósý. Það var ótrúlega skemmtilegt og ég var í því að halda uppi skemmtun á meðan þau voru hér. Pabbi og afi fóru hins vegar að horfa á einhvern fótbolta og þá langaði mig bara út að labba með ömmu, langömmu og Víði Óla. Ég átti nú að sofna í göngutúrnum en það var bara svo ótrúlega skemmtilegt að ég sofnaði ekki bara fyrr en hann var alveg að verða búinn. Afi gaf mér rosa sniðuga SVÍNABJÖLLU á þríhjólið mitt, maður á að kreista hausinn á svíninu og þá heyrist svona rosa hátt og skrítið hljóð, sem ég var nú smá smeykur við til að byrja með en er farinn að sætta mig við það núna og finnst það eiginlega bara svakalega skemmtilegt.
Í dag ætluðum við svo í húsdýragarðinn og ætluðum að taka Gauta og Sebastían og Hrafnhildi með en það var svo skrítið veður í Reykjavík í dag að við skelltum okkur bara öll í Smáralindina og Helga fór líka með okkur. Þar fengum við að borða (sem endaði nú mest á gólfinu á kaffihúsinu) og svo ís í eftirmat, ótrúlega gott. Fórum svo í Reiðvaðið (heim til Helgu og Gauta) og fengum að borða kvöldmat heima hjá þeim. Við Hrafnhildur rifumst svolítið um snuddurnar okkar og skiptumst á að rífa þær af hvort öðru og forða okkur með þær en svo vorum við bara orðin perluvinir og verðum það vonandi í framtíðinni. Ég var nú orðinn pínu þreyttur þegar við héldum heim á leið og sofnaði um leið og ég lagðist á koddann í rúminu mínu.
Núna eru litlu krúttakisurnar allar búnar að galopna augun sín og farnar að skríða út um allt. Þær reyna alltaf að standa upp en titra bara og skjálfa þar til þær detta niður. En þær þora nú ekki langt greyin en þær eru algjörar frekjudollur og mjálma og mjálma ef mamman er of sein að gefa þeim mjólkina sína :) (Ég skil það nú mjög vel ;)
Skoða tjaningar.
(3 hafa tjáð sig, síðast Lilja)
|
Afmæli afmæli afmæli
21.04.2006 21:36 - Benjamín skrifar
Ari Páll stóri frændi minn er orðinn alveg rosa rosa gamall í dag, hann er orðinn 30 ára. Við sendum honum okkar allra allra allra bestu kveðjur beint til Frakklands, síðan á hann Þorri skáfrændi líka afmæli í dag en hann er ekki orðinn svona rosa rosa gamall, hann er bara 27 ára í dag, sem er náttúrulega ekkert gamalt, enda pabbi unglamb líka 27 ára (allaveganna þangað til í desember:) við sendum honum líka svaka góðar kveðjur alla leið upp í Mosó...
Skoða tjaningar.
(2 hafa tjáð sig, síðast GERÐA amma)
|
Fyrsti sumardagurinn senn á enda
20.04.2006 22:02 - Benjamín skrifar
Gleðilegt sumar allir landsmenn nær og fjær. Fréttir dagsins eru fábrotnar hins vegar hef ég alltaf fullt af fréttum á mínum snærum sem mig langar að deila með ykkur en ritari vor hefur ekki jafn svarta fingur og ég vildi halda (svarta fingur þá í þeirri merkingu að lyklaborðið hefur svarta lykla).
Mér fannst mútter kær vera orðin heldur kokkí í gær með svefnyfirlýsingarnar þannig að ég ákvað bara að bæta úr því og svaf í klukkutíma fyrir hádegi og svo tvo um kaffileitið. Það má vera að aðeins hafi spilað inn í óstjórnleg öskur í tveimur fílefldum karlmönnum hér í næsta garði, en ég neita alfarið að trúa því.
Eftir fyrri lúrinn var nú alveg tilvalið að skella sér í smá leik út á pall enda veðrið alveg yndislegt og sólskin næstum allan tímann. Þó heldur kaldara en um daginn en við mamma skemmtum okkur konunglega á pallinum og ég var orðinn svo þreyttur að það var bara ágætt að sofna aftur.
Það ætti nú að veita mér uppfinningaverðlaun ársins 2006, þvílíkur uppfinningamaður sem ég er. Ég er t.d. búinn að finna upp alveg ÓTRÚLEGA skemmtilegan og fyndinn leik. Þannig er að það er pínuponsulítill grænn kall sem hleypur upp í nefið á mér. Þá sting ég vísifingri alveg á bólakaf inn í nebbann og reyni að ná honum, meira að segja hleypur hann stundum á milli nasa þannig að ég þarf stundum að reyna að finna hann með báðum vísifingrunum mínum. Síðan vil ég ekki hætta í leiknum fyrr en ég er búin að ná græna kallinum og þá er sko glatt á Hjalla. Það getur stundum tekið dálítinn tíma eins og t.d. í gær þá var ég í 10 mínútur N.B. 10 mínútur (ekki ýkjur) að ná honum, m&p héldu nú að nebbinn ætlaði að detta af mér, en enn sem áður þá læt ég nú ekkert segja mér fyrir verkum og skil ekki þennan æsing þó að ég elti einn grænan kall.
Síðan er ég búinn að finna það út að ég kemst fljótar yfir með því að hlaupa en að labba og skríða og því eru hlaupin óspart notuð þessa dagana. Hins vegar er hlaupastöðuleikinn ekki alveg upp á sitt besta þannig að það er ágætt að hafa eitthvað hald í augsýn og ágætt að hlaupa t.d. að sófanum, og grípa í hann þegar maður er alveg að missa jafnvægið á hlaupunum.
Annars er allt bara við sama heygðarhornið hér í Staðarhrauninu, kettlingarnir farnir að opna augun þannig að búist er við fluttningum úr fataskápnum þá og þegar.
komið nýtt myndaalbúm, reyndar ekki frá deginum í dag heldur frá því öðrum í páskum þegar brjálæðislega góða veðrið var á pallinum okkar, síðan eru smá myndir frá því í gær þegar dimmalimm var að passa mig í baðinu mínu
Skoða tjaningar.
(2 hafa tjáð sig, síðast amma JÓSÝ amma gerða AFI helgi OG TRÍTLURNAR TVÆR)
|
GLEÐILEGT SUMAR
20.04.2006 08:09 - Hjördís skrifar
Við óskum ykkur öllum gleðilegs sumars. Það fraus greinilega saman vetur og sumar hér í Grindavíkinni a.m.k. það veit þá á FRÁBÆRT sumar og ekki lætur sólin sig vanta í morgunsárið. Eigið góðan dag kæru vinir. Sumarkveðjur úr Grindavíkinni
Skoða tjaningar.
(4 hafa tjáð sig, síðast Svava )
|
Myndir myndir myndir myndir
19.04.2006 22:48 - Benjamín skrifar
Jæja þá eru páskamyndirnar komnar inn og sólarmyndir væntanlegar annaðhvort á eftir eða á næstu dögum. Óskum ykkur gleðilegs sumars á miðnætti ;)
Skoða tjaningar.
(2 hafa tjáð sig, síðast Gauti frændi)
|
Sumar, sumar, sumar og sól
19.04.2006 15:12 - Benjamín skrifar
Það er bara ekkert lát á sumarfílingnum hérna þó svo að það frjósi á nóttunni á milli sólardaga. Vonum bara að vetur og sumar frjósi saman í nótt :) Ótrúlegt samt að apríl sé að verða búinn bráðum, tíminn líður svo ótrúlega hratt, fyrr en varir verð ég komin til Frakklands að spóka mig í sumarsólinni þar, ótrúlega skemmtilegt. Annars er nú bara mest lítið að frétta nema það að ég er alltaf jafn æðislegur og góður (að sögn foreldra minna) að ég sef 3 tíma á hverjum morgni og framyfir hádegi (upp á mínútu) og svo aftur í einn til einn og hálfan tíma seinnipartinn, en samt farinn að sofa að verða átta og vakna núna rúmlega sjö á morgnana...gott það!!! Annars er vanagangurinn að komast aftur á eftir nær tveggja vikna páskafrí. Mamma farin að kenna þannig að ég er hjá Marisu eftir hádegið og pabbi alltaf í vinnunni sinni. Reyndar algjört æði að fá kallinn heim kl 5 á daginn núna, bara næstum allur dagurinn eftir :)
Jæja nú ætla ég út að labba með mömmunni minni í æðislega veðrinu hér(þ.e.a.s. ef hún getur hætt að skrifa og sótt mig til Marisu)...síjúleiter gæs
Skoða tjaningar.
(4 hafa tjáð sig, síðast amma Sigga)
|
Ráð undir rifi hverju!!!
17.04.2006 23:01 - Hjördís skrifar
Já svoleiðis hljómaði málsháttur einkaerfingjans þetta árið. Tvö ár í röð hefur málshátturinn svoleiðis SMELLPASSAÐ við persónuleikann þótt ungur sé. Hins vegar var dagurinn í dag alveg einstaklega frábær og við segjum bara Mæjorka smæjorka hvað? Eftir að stubburinn fór að lúlla úti í vagninum sínum ákváðum við hjónakornin að kíkja út á pall þar sem var alveg blíðskaparveður þar úti. Það var þá líka heldur betur og endaði með því að við sátum þar í þrjá tíma á spjalli þar til einkasonurinn vaknaði og þá var bara haldið áfram að leika úti á palli og við fullorðna fólkið heldur betur komin með bleika líkamsparta...þó aðallega nef og kinnar. Það bærði ekki hár á höfði og skv. símahitamælinum í sólinni fór hitinn þar í 45 gráður um hálf tvö leitið í sólinni á pallinum og ef ekki væri svo svalt andrúmsloftið í apríl er ég ansi hrædd um að við værum orðin að tveimur well done piparsteikum. Við bruggðum á það ráð að skella okkur svo bara í heitapottinn fjölskyldan og síðan var bara haldið áfram í leik útivið. Alveg hreint frábær dagur. Síðan kom nú hann afi Albert til okkar áðan og ætlar að vera hjá okkur í nokkra daga. Hann er víst að fara að vesenast í bænum eitthvað núna sem oft áður. Ég held barasta að ég hafi náð mér í sólsting í dag, allaveganna er ég búin að vera með alveg dúndrandi hausverk bróðurpart kvöldsins og held það sé kominn tími á að halla sér!!! GLEÐILEGT SUMAR ALLIR SAMAN (þó ekki sé fyrr en eftir þrjá daga, við fórum bara í svo mikið sumarskap í dag og fengum okkur meira að segja eitt hvítvínsglas í sumarstemmaranum:)
Skoða tjaningar.
(5 hafa tjáð sig, síðast Anna Karen)
|
GLEÐILEGA PÁSKA !!!
16.04.2006 09:16 - Hjördís skrifar
Gleðilega páska allir saman og elsku (lang)afi Ingi innilega til hamingju með afmælið dag, við kíkjum á þig síðar í dag. Hér í Staðarhrauninu er klukkan ekki nema rúmlega 9 en mikið fjör og læti búin að vera hér í morgun. Þannig vildi til að við skruppum í heimsókn til Reykjavíkur í gær því að við héldum að við yrðum bara heima hjá okkur í rólegheitunum í dag. En það var nú aldeilis annað uppi á teningnum. Það var ákveðið að við myndum borða páskalambið þetta árið heima hjá ömmu Gerðu og afa Helga þannig að Víðir Óli og Billa komu með okkur til Grindavíkur og gistu hjá okkur í nótt sem var hörkustuð og svakalega gaman. Svo í morgun sá Benjamín að sjálfsögðu um "ræsensjæn" stundina á heimilinu og gladdi frændsystkini sín með því að vekja þau og gefa þeim eina vísbendingu um það hvar páskaeggin þeirra væru falin. Þá hófst eltingaleikur við vísbendingarnar um húsið en á endanum fundust eggin inní þvottavélinni þar sem óhreinu nærbuxurnar hans Óla eru þvegnar :)...mjög skemmtilegt allt saman.
En síðan eggin fundust hefur verið nær stanslaust páskaeggjaát hjá yngstu meðlimum fjölskyldunnar en foreldrarnir hafa nú ekki verið jafndugleg enda kannsi páskaeggin ekki alveg jafn spennandi þegar allir dagar eru nammidagar :S...þá er bara að breggða á það ráð að borða aldrei nammi nema á páskadag og þá verður sko gúffað næstu páska...SOUNDS LIKE A PLAN?...trúi þeir sem vilja hahaha.
Síðan er bara planið í dag að borða aðeins meiri páskaegg og svo skella sér í heitapottinn með liðið og svo skreppa í afmæli til langafa Inga og svo í mjög svo YFIRGENGISLEGA GIRNILEGAN lambahrygg heima hjá afa og ömmu. En páskamatur fjölskyldunnar í Staðarhrauninu bíður bara inni í ísskáp og verður í matinn á morgun :) Vei, páskar tvo daga í röð...
Skoða tjaningar.
(5 hafa tjáð sig, síðast amma SIGGA)
|
MYNDIR :)
15.04.2006 11:52 - Benjamín skrifar
Loksins komin ný myndaalbúm af þeim allramyndarlegasta og líka smá af Dimmulimm og kettlingunum hennar :) Myndir síðan í mars eftir afmælið mitt og svo myndir núna í apríl.
Skoða tjaningar.
(3 hafa tjáð sig, síðast Ösp)
|
Gleymdist
13.04.2006 19:37 - Hjördís skrifar
Það gleymdist náttúrulega að taka það fram að nú er sprungið fyrir jaxli hægra megin í neðri gómnum þannig að núna eru þrír jaxlar á leiðinni, tveir uppi og einn niðri. En það vantar tennurnar á milli :S vantar tvær sitthvoru megin við neðri framtennurnar og eina sitthvoru megin við efri framtennurnar, þær láta þó örugglega sjá sig áður en langt um líður:)
Skoða tjaningar.
(2 hafa tjáð sig, síðast Lilja frænka)
|
Allt á fullu !!!
13.04.2006 18:25 - Benjamín skrifar
já heldur betur er allt búið að vera á fullu hérna allan daginn. Vikan byrjaði nú þannig að allt í einu lét pabbi sjá sig í hádegismat, það er nú heldur skrítið en hann er víst farinn að vinna í Grindavík kallinn þannig að hann fær að koma heim til mín og mömmu í hádegismat. Það var nú ekki nóg með það heldur kom hann líka heim klukkan fimm og var þá bara kominn heim til að vera. Þetta var nú aldeilis frábært og bara hálfur dagurinn (næstum) eftir til að leika og fíflast með þeim gamla, ekkert smá skemmtilegt.
Anywho, síðan kom Karítas í heimsókn til mín með mömmu sinni og pabba og þau gistu hjá okkur í tvær nætur, ótrúlega skemmtilegt. Karítas eignaði sér nú allt dótið mitt og líka dótið pabba og mömmu, en ég lét það nú bara sem vind um eyru þjóta og reyndi að taka dótið mitt til baka, það gekk nú upp og ofan og oft endaði það með smá slagsmálum, en allt endaði svo í góðu með að þau fóru bara heim til sín, þá gat ég átt dótið mitt allt aleinn, sem var ágætt. Við söknum þeirra samt og vonum að við sjáum þau fljótt aftur.
Svo er Dimmalimm búin að eignast fullt af litlum kisum sem sofa bara inni í fataskáp í mömmu og pabba herbergi. Mér finnst þeir soldið sætir en ég má ekki koma mikið við þá segja þau gömlu þannig að ég hlíði bara eins og mér einum er lagið ;)
smá frá mömmu: Eins og sést á síðustu færslum hefur ALGJÖRT andleysi gripið um sig en er nú unnið að því að safna smá heilafóðri (páskaeggjum) í gríð og erg og held ég að ein 6 egg í öllum stærðum og gerðum séu komin inn á heimlið. Þau verða sjálfsagt ekki öll étin á páskadag þó og að öllum líkindum geymd fyrir gesti og gangadi í sumar. Annars átti (lang)amma Jósý afmæli í gær 12.apríl og viljum við óska henni alveg innilega til hamingju með daginn.
Mér hefur nú loksins tekist að hlaða myndunum úr vélinni inná tölvuna og nú er unnið í því að koma þeim í nokkur myndaalbúm og inná síðuna, viljum við biðja ykkur um að sýna þolinmæði í þeim efnum :)
Skoða tjaningar.
(1 hefur tjáð sig, síðast GERÐA AMMA HELGI AFI OG AMMA JÓSÝ)
|
Fjórir litlir kettir sátu saman á vegg :)
12.04.2006 10:01 - Hjördís skrifar
Já í gær var sko heldur betur skemmtilegur dagur. Kristinn mágur minn átti afmæli í gær og óskum við honum innilega til hamingju með daginn, en af því tilefni skunduðum við Benjamín til Reykjavíkur í afmæliskaffi og svo kíktum við í smá heimsókn til Viktors og Brynjars í Kópavoginn. Teresa var að sjálfsögðu með foreldrum sínum þannig að Benjamín gat nú heldur betur sýnt hvað hann er góður við litlu frænku og hann vildi sýna henni hitt og þetta og ruggaði henni í rólunni og þar fram eftir götunum. Við gátum nú því miður ekki stoppað lengi hjá Viktori og Brynjari af því það var nú aldeilis matarboðið sem ég ætlaði að halda hér fyrir 6 manns og átti að vera humar í forrétt, dýrindis læri með himnesku meðlæti í aðalrétt og síðan eitthvað agalega gott í eftirrétt. Þetta matarboð fór þó eitthvað úr skorðum því um leið og við gengum inn um dyrnar komin frá Rvk og Guðmundur akkúrat að koma heim úr vinnunni þá tók á móti okkur lítil mjálmandi Dimmalimm. Ég hafði nú gleymt að fylla á matarskálina hennar áður en ég fór um morguninn þannig að ég hélt að hún væri bara svöng en annað en venjulega þá réðst hún ekki á matarskálina á meðan ég var að hella heldur bara mjálmaði og mjálmaði. Hún labbaði inn í herbergi og mjálmaði þangað til ég kom. Þá lagðist hún í rúmið og gat varla komið sér fyrir. Greyið var þá með svona miklar hríðir og var örugglega hrædd og gáttuð. Ég bjó um hana á gólfinu inni í fataskáp og þar lá hún það sem eftir var kvölds ýmist mjálmandi eða malandi. Fyrsti kettlingurinn leit svo dagsins ljós klukkan að verða 7 og annar ekki löngu seinna. Þriðji kom svo um mitt kvöld og fjórði og síðasti kom á milli 10 og hálf 11 um kvöldið. Síðan þá hafa þau legið inni í skápnum og ekki hreyft sig og ég vaknaði nokkrum sinnum í nótt við mjálmkór krúttanna sem var reyndar frekar hávær. Þetta gekk allt rosalega vel og Dimmalimm tekur sig mjög vel út í móðurhlutverkinu þrátt fyrir aðeins nokkurra mánaða aldur. Jæja hún fékk þó að prófa að vera mamma sem átti reyndar aldrei að fá að gerast, en stundum tekur náttúran bara fram fyrir hendurnar á manni, við könnumst nú flest við það ;)
En allar góðar manneskjur sem eru dýravinir og gætu hugsanlega hugsað sér að taka að sér einn krúttlegan kött, þá er það velkomið. Þrír þeirra eru á lausu í sumar :)
Skoða tjaningar.
(5 hafa tjáð sig, síðast Steinunn og Patti)
|
Kisufréttir!!!
11.04.2006 17:46 - Benjamín skrifar
Maður verður nú að standa sig í skrifunum. En jæja nú er kisa í þessum töluðu orðum að hafa sig til við að unga út litlu kisunum sínum. Hún liggur inni í skáp og getur varla hreyft sig. Mamma er hjá henni en ég má bara ekkert koma nálægt henni, greyið litla hún er soldið hrædd og veit ekkert hvað er að gerast...ekki ég heldur. En næst þegar þið heyrið í okkur þá verðum við orðin frekar mörg í heimili.
Skoða tjaningar.
(6 hafa tjáð sig, síðast Ari Páll)
|
Jæja
09.04.2006 19:34 - Benjamín skrifar
Loksins fæ ég að tjá mig eftir langa mæðu. Í gær fór ég í pössun til afa og ömmu á Skúlagötunni af því að mamma og pabbi þurftu að fara að skoða eitthvað lítið barn, en mig langaði ekki mikið til þess enda kunna lítil börn ekkert að leika. En það var ekkert smá gaman, sem betur fer var afi kominn heim úr útlöndum og mín biðu alveg HELLINGUR af pökkum. Ég fékk enskan landsliðsgalla sem var rosa flottur nema pabbi vildi hafa það Hollandsgalla...veit nú ekki alveg af hverju. Síðan fékk ég rosa flottan íþróttagalla og svo rosa flotta Babúsku en það er ein kona sem gleypti fullt af öðrum konum og þær eru allar inní henni, voða skrítið sko. Svo fékk ég draumadraumadiskana mína sem m&p báðu afa að leita að útí útlöndum en það voru STUBBARNIR og ég fékk að horfa á einn disk í morgun, veeeiiii. Síðan komu ammajófý og afibói að kíkja á mig og líka ammabilla og afingi þannig að ég var í fullu fjöri ALLAN DAGINN og vildi ekki sofa nema smá dúr. Svo var ég líka svakalega duglegur og bakaði pizzu og borðaði svo FULLT af pizzu.
Svo í dag komu amma Gerða og afi Helgi og Billa og Víðir í heimsókn til okkar, það var nú ekkert smá skemmtilegt og ég held bara skemmtilegasti dagur lengi. Ég bara var að leika og leika og fékk að standa á beit í allskyns góðgæti sem var á boðstólnum fyrir fullorðna fólkið. Reyndar var ég búinn að borða fisk í karrý og smá skyr þannig að það var í lagi núna. En snakk með lauk og sýrðum rjóma er í algjöru uppáhaldi núna og ég kláraði örugglega næstum 1/4 úr pokanum í dag. Best er líka að troða heilli flögu beint uppí sig en ekki bíta hana í sundur, það gerði pabbi minn og ég geri eins...
Dimmalimm er alveg orðin svakalega feit núna og vill eiginlega ekkert leika við mig en um leið og ég verð eitthvað leiður eða er að vakna þá er hún strax komin að láta mig vita að hún sé þarna svo rýkur hún af stað að sækja foreldra mína og segja þeim frá því að ég þurfi hjálp. Hún er svo góð við mig þessi elska þó svo að ég sé nú stundum helst til fruntalegur við hana :) En ég lofa að vera góður við öll litlu börnin hennar sem eru að koma núna bráðum, enda fæ ég ekkert að koma nálægt þeim þegar þau koma :):):)
Læt þetta nægja í bili
Skoða tjaningar.
(3 hafa tjáð sig, síðast GERÐA amma og hinir á Skúlagötu)
|
Hann á afmælí dag!!!
08.04.2006 22:44 - Benjamín skrifar
Elsku besti afi minn hann afi Albert á afmæli í dag, 56 ára kallinn...það er ekkert smá !!!
Vonandi áttiru góðan dag afi minn og við sjáumst vonandi fljótlega.
|
Hún á afmæli í dag...
07.04.2006 23:12 - Benjamín skrifar
Elsku Lilja frænka (og mágkona)...innilega til hamingju með "eitthvað" mörgu árin í dag. Meigiru eiga góðan dag (eða vonandi áttiru góðan dag í dag) í Frakklandi. Sjáumst eftir þrjá mánuði ;)
Fjölskyldan í Grindóspindó
Skoða tjaningar.
(1 hefur tjáð sig, síðast Lilja)
|
Jæja
05.04.2006 22:43 - Hjördís skrifar
Þá er komið ár síðan Benjamín átti að koma í heiminn, það er alveg einkennilegt að alveg frá 1.apríl hefur mér fundist allir dagar svo sérstakir að það hljóti annaðhvort einhver að eiga afmæli eða eitthvað merkilegt að hafa gerst einhverntíma sem ég eigi að muna eftir. Hins vegar er það nú bara af því að fyrir rúmu ári síðan spáði ég svo rosalega mikið í allar dagsetningar frá 1.-16.apríl (mars var náttúrulega ekki inni í myndinni). Í huganum var ég búin að eiga alla þessa daga. Helminginn af þeim átti reyndar einhver annar í fjölskyldunni afmæli en hina dagana var ég búin að eigna mér sem góða daga fyrir fæðingadeildina að kynnast alvöru karlmannlegum öskrum (sem ég hélt reyndar að ég væri ófær um að gefa frá mér áður en ég kynntist fæðingardeildinni).
Annars er lítið að frétta héðan í dag nema það að Dimmalimm er ennþá í útivistarbanni, en hún sá sér nú fært að lauma sér út um stofugluggan sem er langt fyrir ofan hennar nennustökkkraft til að koma sér út, en hvað gerir maður ekki í neyð. Þannig að feitilíusinn minn tók tillhlaup og datt svo killiflöt á pallinn fyrir neðan...langt fyrir neðan. Veðrið hefur ekki verið upp á marga fiska hér í dag og ég segi það satt að ég er ekki að nenna þessu "miðsvetrarveðri" þegar komið er fram í apríl. Ég vil SÓL OG SUMAR.
Eigið góða nótt og enn betri morgundag :)
Skoða tjaningar.
(3 hafa tjáð sig, síðast Amma Sigga )
|
Klúður
04.04.2006 23:35 - Hjördís skrifar
Færsla dagsins verður að vera í tveimur bútum sökum lengdar sinnar þannig að...(það er sumsé færsla fyrir neðan næstu færslu :)
Skoða tjaningar.
(3 hafa tjáð sig, síðast Svava)
|
Hugurinn sem gildir???
04.04.2006 23:34 - Hjördís skrifar
Það er skemmst frá því að segja að eftir ekki svo mjög ánægjulegan fyrri part dags í gær, skánaði dagurinn nákvæmlega ekki neitt, heldur varð bara verri og verri og verri. Nei, ég er nú ekki dottin í farveg einhvers þunglyndis heldur byrjaði dagurinn á því að ég var veik alla nóttina, óglatt og beinverkir. Allan morguninn var ég að drepast úr hita en ógleðin þó horfin en beinverkirnir og sljóleikinn ætluðu engan endi að taka. Sem betur fer hafði Benjamín vaknað snemma og Guðmundur Óli fór með mömmu í bæinn þannig að þau voru hér heima til að verða 9. Þá fljótlega sofnaði Benjamín og svaf í þrjá tíma. Ég gat þó ekki sleppt kennslunni og fór því með hann til dagmömmunnar og skundaði fárveik á vit ævintýranna í kennslunni. Þegar því var aflokið ákvað ég að fara í nokkrar mínútur heim í rólegheit áður en ég myndi sækja mína ástkæru frekjudós. Hins vegar breyttist sú sælustund sem átti að heita í hina hrikalegustu martröð. Þegar ég er á leið út úr húsi að sækja krógann heyri ég einhver skrítin hljóð og rosaleg læti, ég renn á hljóðið og er þá ekki hún Dimmalimm að murka líftóruna úr litlum fugli sem hún hafði gert sér lítið fyrir og stokkið með innum gluggan. Ekki nóg með það að greyið fuglinn barðist fyrir lífi sínu heldur var það inni í herberginu hans Benjamíns. Þess þarf vart að geta að mín var ekkert svakalega ánægð með þetta tiltæki kisu og eltingaleikur þremenninganna náði inn í eldhús og undir eldhúsborð þar sem ég náði í skottið á Dimmulimm og náði að loka hana inni í tölvuherbergi. Húsið útatað í fjöðrum og blóði og herbergið hans Benjamíns verst. Ég nánast með óráði vegna veikinda og þegar þarna kemur við sögu ALLS EKKI í mínu besta skapi. Aumingja fuglinn, vængbrotinn, götóttur og blóðugur, stóð þó lifandi stjarfur undir eldhúsborðinu og hreyfði sig ekki. Ég barðist við að þora að ná í hann og að lokum eftir að hann hafði barist um á gólfinu að sleppa frá mér tókst mér að næla í hann og róa hann niður. Guð minn góður hvað mér leið illa og hvað ég vorkenndi honum, greyið litla, munaði litlu að nýtt gæludýr væri komið inn í fjölskylduna. Ég fór með hann út í hurð og setti hann á forstofugólfið til að athuga hvað hann myndi gera, hann stóð kyrr í smástund og hoppaði svo með laskaða og fjaðralausa vængi út á stétt og alla leið útí runna og stóð þar ennþá þegar ég kom heim með Benjamín. Kisa fékk hinsvegar að dúsa inni í þvottahúsi það sem eftir lifði dagsins en um kvöldið fékk hún þó að spranga um húsið en var ennþá í útivistarbanni í dag henni til mikillar óánægju og mjálmæðis. Það skrítnasta er að hún stökk með fuglinn inn um elhúsgluggann og fór með hann inn í herbergi til Benjamíns þar sem hún reyndi að murka úr honum líftóruna, ætli hún hafi ekki ætlað að færa honum Benjamín sínum gjöf til að sína væntumþykju sína á honum. Hér með segi ég nú bara... það er ekki alltaf bara hugurinn sem gildir, innihaldið skiptir líka töluvert miklu máli!!!
Skoða tjaningar.
(1 hefur tjáð sig, síðast BILLA ÓSK OG VÍÐIR ÓLI)
|
og áframhald...
04.04.2006 23:26 - Hjördís skrifar
Benjamín var hinsvegar með hitavellu í dag en var samt sem áður dröslað til dagmömmunnar því ekki gat ég sleppt kennslunni í dag heldur, en á morgun er þó síðasti dagur fyrir páskafrí. En mér til mikillar ánægju (var ég þó búin að ná mér en það var samt ekki það sem átti að vera fyrir aftan þessa ánægju) fann ég tvær auka tennur í efri góminum núna áðan þegar hann var að fara að sofa þannig að það er væntanlega ástæðan fyrir því að litli maðurinn er búinn að vera svona lítill í sér upp á síðkastið. síðan get ég ekki betur séð en neðri gómurinn sé stokkbólginn (reyndar búin að halda að hann sé að fá fleiri tennur síðan í desember) en hann er sumsé kominn núna með 6 tennur í efri góm og tvær í neðri...rosa sætur.:)
Það var nú líka rosa fyndið í gærmorgun þegar pabbinn og amman voru farin út þá byrjaði hann strax að kalla á þau til skiptis...daddi og addí, daddi...addí...daddi....addí en ég sagði alltaf á milli að pabbi væri farinn í vinnuna og að amma væri farin heim til sín. Ekki nóg með það heldur fer gaurinn að sofa í þrjá tíma og um leið og hann opnaði augun í vagninum var byrjað að ákalla pabbann en þegar hann ekki svarar þá er það amman næst...greinilegt hver er ekki efst á vinsældarlistanum þessa stundina, verð samt að viðurkenna að mamman er nú oftast best.
Síðan í gærkvöldi (þegar ég var reyndar löngu svifin inn í draumalandið á vegum paratabs og water hf. eftir öll ævintýri dagsins) þegar Guðmundur Óli var að fara að týgja sig í svefninn byrjar litli sveinninn að kalla á pabba sinn...daddidaddidaddidaddi, og Guðmundur Óli ætlaði nú ekki að trúa því að hann væri að vakna núna, en þá var litli bara að tala upp úr svefni, greinilega að dreyma eitthvað skemmtilegt um pabba sinn. Mömmunni til mikillar ánægju hefur snáðinn svo tekið upp á því að kalla á pabba sinn á morgnana líka þannig að pabbi þarf á fætur eldsnemma á morgnana að reyna að telja honum trú um að það sé ennþá nótt.
Enn ein pabbasagan verður svo að fylgja hér í lokin þó svo að þetta sé orðin ansi löng lesning, svona er að svíkjast um dag...sveiattan. Allaveganna við vorum bara að leika okkur á gólfinu eftir amstur dagsins en pabbi var ekki kominn heim. Við höfum það fyrir venju að þegar við Guðmundur tölum saman í síma þá set ég á "spíkerinn" þannig að Benjamín heyrir líka í honum og þá er oft glatt á hjalla. Í dag vorum við hinsvegar ekkert búin að tala við pabba, þá tók minn nú bara til sinna ráða og greip plastplötu sem fylgir kappakstursbraut sem hann á og setti upp að eyranu og sagði "HANNA (sem þýðir halló bythe way), DADDI DADDI DADDI" EF þetta er ekki til að bræða móðurhjartað, þá veit ég ekki hvað gerir það...
Nóg í bili
Skoða tjaningar.
(1 hefur tjáð sig, síðast Ösp)
|
Erfiðleikar !!!
04.04.2006 23:14 - Hjördís skrifar
Virðast vera einhverjir erfiðleikar með að pósta inn því sem ég var búin að skrifa en vonandi kemst það í lag...damn
|
Amma = Addí/ammí/abbí
02.04.2006 21:09 - Benjamín skrifar
Ég tala og ég tala og ég tala voða hátt, og enginn skilur, enginn veit hvað almennt við er átt... eða eitthvað í þá áttina, man ekki alveg textann af laginu. Anywho, Ömmurnar mínar komu heim frá Frakklandinu seint seint í gærkvöldi og AÐ SJÁLFSÖGÐU hlaðnar gjöfum og allskonar gotteríi og þar með talið SVÖRTU BELGÍSKU SÚKKULAÐI sem er SVAKALEGA gott. Sko rannsóknir hafa sýnt að á 15 dögum getur svona dökkt súkkulaði lækkað blóðþrýsting hjá þeim sem eiga við það vandamál að stríða, þannig að þetta hlítur að vera voða gott. Mömmu fannst það nú frekar biturt...en ágætt en ég hakkaði og hakkaði og hlýt að vera mjög heilsusamlegur fyrir vikið.
Í nótt breytti ég dada í daddi, daddi þegar ég þurfti að kalla á pabba í nótt, ég hélt nefnilega að hann hefði ekki skilið dada...allaveganna lét hann ekkert sjá sig (enda þurfti mamma næstum að henda honum útúr rúminu til að hann vaknaði). Annars er matur orðið ákveðið orð, bleyja, skeið, kubbur, dót og margt annað komið með sitt orð sem ekki er hægt að stafa almennilega á íslenska stafrófið...allaveganna man ritarinn ekki almennilega hvernig orðin eru, er ég bara tala og tala og enginn skilur neitt, ótrúlega tregt fólk sem ég umgengst, en allaveganna var "addí/abbí" Sigga hér í allan dag og verður þangað til í fyrramálið og það er búið að vera alveg SVAKALEGA skemmtilegt, enda er hún svo yndisleg og nennir ENDALAUST að leika og leika og segja eitthvað fyndið. Langamma Hjördís fór hinsvegar alla leið í Mosó í gærkvöldi eftir smá stopp hér en ég svaf víst bara og missti því alveg af henni :S en ég sé hana bara seinna.
Við pabbi lentum í smá rifrildi í gærkvöldi, pabbi sagði við mig að nú ætti að bursta tennurnar en ég var önnum kafinn við að róta í náttborðinu hennar mömmu, ég sagði því bara "NEINEI" pabbi sagði JÚJÚ en ég sagði þá NEINEI...JÚJÚ og þannig gékk það í alveg heilmörg skipti (a.m.k. 10 sinnum) Þar til ég var orðinn frekar pirraður...eins og gefur að skilja og hækkaði röddina allsvakalega NEINEI, sem betur fer þagnaði pabbi þá, en ekki sem betur fer kom hann með tannburstann og tróð uppí mig :(
Afi Helgi kemur svo aftur frá London á morgun en hann fór á FULHAM (liðið mömmu) leik í gær og WESTHAM (liðið hans afa) leik í dag og skemmti sér örugglega ákaflega vel þrátt fyrir ekki svo hagstæð úrslit fyrir hvorugt liðið :( en ég hlakka allveganna til að sjá hann :)
jæja en man nú ekkert fleira en fullt síðustu daga sem ég hef ætlað að segja frá en vegna TREGÐU í foreldrum hefur því ekki verið komið á prent og því gleymt og grafið.
EN JÚ AUÐVITA, ég fór í heitapottinn í gær og var alveg ógeðslega gaman svo var ég heillengi að leika mér í STEIKINNI útá palli þrátt fyrir að það væri bara 2ja stiga hiti þá var Mæjorka veður á pallinum í sólinni, ótrúlega skemmtilegt.
Annars bara bless bless
Skoða tjaningar.
(3 hafa tjáð sig, síðast Svava og co.)
|
| |