|
|
Fréttir í Mars 2010
|
Allt að gerast!
12.03.2010 18:14 - Hjördís skrifar
Það er svo mikið um að vera í félagslífinu að enginn tími er til að sinna svona skrifum. En smá update á liðið!
Benjamín og Ísak hafa verið með hor í margar vikur og hósta. Að lokum fór svo að við fórum með þá báða til læknis þar sem í ljós kom að þeir eru með kinnholusýkingu og fengu viðeigandi sprey við því. Þeir eru allt aðrir eftir aðeins nokkra daga og allt á uppleið með komandi vori.
Benjamín er svo mikið að leika við Sverri vin sinn alltaf hreint að hann má varla vera að því að gera neitt annað...að hans mati. Þeir eru svo saman á fótboltaæfingum tvisvar í viku og eru voða glaðir með það.
Það er svo mikið að gera hjá húsfrúnni að hún má varla vera að því að vera til. Helgi eftir helgi eru brjáluð partý og gleðskapur sem reynist lífsnauðsynlegt að taka þátt í. Auk þess sem kéllan hristir kransakökur út úr erminni eins og ekkert sé sjálfsagðara.
Jæja, truflun, farin!
Skoða tjaningar.
(1 hefur tjáð sig, síðast Ösp)
|
Mamma er best!
09.03.2010 22:34 - Benjamín skrifar
"Mamma, þegar pabbi er dauður, þá ætla ég að giftast þér"
|
| |