|
|
Fréttir í Mars 2009
|
Æluflóð
30.03.2009 08:08 - Benjamín skrifar
Það er heldur betur búið að vera stuð hjá mér síðustu daga, ég fékk nefnilega ælupest.
Ég byrjaði að æla aðfaranótt föstudags og það var nú ekkert barnamagn ég er sko kominn uppí 4ra ára magn. Ég ældi allann föstudaginn og pínu á laugardaginn. Á sunnudag leið mér betur þannig að ég fór með pabba að vinna heima hjá ömmu og afa, mamma og Ísak komu líka með, það var rosalega gaman en ég varð strax þreyttur enda ekkert viljað borða í nokkra daga. Síðan á leiðinni heim þá fór að draga til tíðinnda. Ég og Ísak sofnuðum í bílnum, pabbi hélt á mér upp. Á leiðinni upp þá gaf ég honum góða sturtu, ég ældi yfir hann allan það sást varla í gamla karlinn fyirr ælu og öðru gómsætu gúmmilaði. Síðan á meðan að það var verið að taka mig úr ælufötunum þá byrjaði Ísak líka að æla og hann hefur ælt eins og hann fái borgað fyrir kílóið síðan þá.
Það er gott að við eigum þvottavél og þurrkara.
Amma Sigga á Stöðvarfirði hún safnar í lífrænt þannig að ég og pabbi höfum safnað allri ælunni saman í stóran poka og ætlum að senda henni svo að hún fái nú mikið af mold í sumar.
Ælukveðjur, bæbæ..
Skoða tjaningar.
(1 hefur tjáð sig, síðast Lilja frænka)
|
| |