Forsíða
Um okkur
Eldra efni


Vinir og ættingjar
Ari Gabríel
Birkir Örn
Burknavallakrúttin
Bína
Dagur og tvillarnir
Karen Hrund
Kjartan og Lovísa
Magnús Orri
Patrik og Ísabella
Sigga Hulda
Silja
Tvíburamamman
Fréttir í Mars 2008

Afmæli og tómur kofinn!!
10.03.2008 17:52 - Hjördís skrifar
Afmælisveislan var vel heppnuð í alla staði, það komust reyndar ekki næstum allir en það voru mjög góðir gestir sem mættu og hinna var sárt saknað. Benjamín var rosalega ánægður með daginn og vildi ekki að gestirnir færu. Hann fékk fjöldan allan af æðislegum gjöfum sem var kærkomið þar sem mamman og pabbinn voru búin að pakka næstum öllu dótinu hans niður í kassa. Enda hefur hann til skiptis verið læknir, smiður, sjóræningi, tölvunarfræðingur, bílstjóri og tónlistamaður síðan afmælið var...honum finnst allt dótið æði. Hann fékk geggjaðan fjarstýrðan bíl, Bubba Biggi FARTÖLVU...já það er rétt, sjóræningjadót, sverð og byssu, smíðadót, pússl, dýr, bíl, gröfur, trommur og flottan töffarajakka, svo fékk hann pening til að kaupa sér eitthvað inn í nýja herbergið sitt. TAKK FYRIR OKKUR ALLIR SAMAN, MIKIÐ VAR ÞETTA GÓÐUR DAGUR!!! Það verður svo kaffi fyrir austan hjá ömmu og afa á afmælisdaginn sjálfan, veislan sjálf var nú kannski heldur snemma í mars miðað við alvöru daginn. Eeeeen það var nú ekki að ástæðulausu...Við leigðum sendibíl á sunnudeginum og vitið þið hvað???....Kofinn er tómur!!!

Það sem eftir er í stofunni eru sófarnir tveir upp við annan vegginn og sjónvarpið á gólfinu upp við hinn, eldhúsborðið verður svo fært inn í stofuna þegar búið er að pakka kristalsvínglösunum sem standa á því í augnablikinu og þar verður matarborð og lærdómsaðsetur. Í herberginu hans Benjamíns er bara að finna eitt stykki rúm (og nýja dótið) og sömuleiðis í okkar herbergi. Í gestaherberginu er gestarúmið fyrir gesti og gangandi og í þvottahúsinu eru þvottavélin og þurrkarinn svo og frystikistan....þá er það nú upptalið. Eldhúsið verður tekið í gegn í vikunni og tómu herbergin sömuleiðis, bílskúrinn tekinn í nefið um næstu helgi og þá erum við bara að verða tilbúin. Við munum lifa á grænmeti og ávöxtum, morgunkorni og einhverju sem þarf ekki að elda í 5 daga eftir páska...en aðrir hafa nú lifað af annað eins, þar á meðal við :) ÞANNIG AÐ stefnan er aftur tekin á það að afhenda síðustu helgina í mars, sem var nú eginlega liðið undir lok hér um daginn... Við Benjamín förum svo austur að læra 1. apríl (daginn sem ég var farin að vonast til að hann fæddist fyrir þremur árum :)) og komum til baka 7. apríl. Fáum gistingu fyrir náð yndislegra ættinga þar til við fáum svo Bræðraborgarstíginn afhendan þann 15. apríl :)

Aðeins í lokin, þá gerðumst við það fræg um helgina (laugardaginn eftir afmæli) að við fórum í "just 4 kids" til að leyfa honum að velja afmælisgjöf frá okkur, hann valdi sér læknistösku og tekur varla kappann og læknasvuntuna niður og mamman þarf að vera veik hálfu og heilu dagana og láta lækna sig og svo völdum við McQueen pússl handa honum sem hann er líka afar ánægður með. Þá eigum við bara eftir að láta sjá okkur í Toys R Us þá verðum við orðin sannir Íslendingar, right?

Skoða tjaningar. (3 hafa tjáð sig, síðast Lilja)


Myndir