Forsíða
Um okkur
Eldra efni


Vinir og ættingjar
Ari Gabríel
Birkir Örn
Burknavallakrúttin
Bína
Dagur og tvillarnir
Karen Hrund
Kjartan og Lovísa
Magnús Orri
Patrik og Ísabella
Sigga Hulda
Silja
Tvíburamamman
Fréttir í Mars 2007

Heimsókn númer 2
31.03.2007 14:39 - Hjördís skrifar
Önnur frétt dagsins...allt í gangi!!!

Ekkert nema það að önnur hjón komu að skoða hjá okkur rétt áðan, fyrirvaralaust. Langar svo rosa mikið í bílskúr. Þau eru úr Grindavík og stelpan var að vinna með mér á Laut, þau eiga reyndar íbúð sem þau eiga eftir að setja á sölu þannig að þetta er alls ekki döndíl (done deal) :)!!!

Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast GERÐA amma og TERESA.)


Ari Gabríel
31.03.2007 13:39 - Hjördís skrifar
Byrja fyrsta hluta færslunnar á því að óska litlu frænku, henni Silju og Leó kærastanum hennar til hamingju með litla gullmola drenginn sinn hann Ara Gabríel sem fæddist aðfaranótt 29.mars 2007.Stærðar strákur segir hún og öllum heilsast vel, linkur á síðuna þeirra er hér til hliðar (þarf að biðja þau um lykilorðið).

Annars bara lítið að frétta úr Grindavíkinni. Í morgun þegar ég vaknaði gat ég ekki kingt nema með allskonar beygjum, grettum og óendanlegum sársaukahljóðum og þegar Benjamín vaknaði náði hálsinn á honum út fyrir kjálkabeinin, enda var hann ekki hress þegar hann vaknaði. Við fórum því á læknavaktina í Kópavoginum þar sem læknirinn staðfesti að ég væri með streptokokka án þess þó að taka próf, hann tók síðan próf af Benjamín en hann reyndist ekki vera með kokkana, sem betur fer og bólgan í hálsinum hafði hjaðnað mikið. En í augnablikinu er semsagt pensillínið besti vinur minn:)

Billa og Víðir komu með okkur til baka og ætla að gista hjá okkur í nótt. Í skapvonskunni í morgun þá spurði Guðmundur Óli Benjamín að því hvort við ættum að sækja Billu og Víði og allt í einu hætti vonda skapið, hann ljómaði allur, sagði "já" náði svo í skóbúnað handa öllum fjölskyldumeðlimum, opnaði hurðina og fór út á náttfötunum.

Skoða tjaningar. (3 hafa tjáð sig, síðast Silja og Ari Gabríel)


Fyrsta heimsóknin
28.03.2007 22:11 - Hjördís skrifar
Í dag kom sumsé fyrsti heimsækjarinn að skoða óendanlega fína húsið okkar. Það var kona með tvær litlar stelpur, kallinn hennar fékk ekki frí í vinnunni þannig að hún ætlar að koma með hann með sér þegar hann er búinn að redda fríi...okkur er reyndar alveg sama hvenær dagsins þau koma, en þau vilja koma á daginn. Henni leist mjög vel á, en var reyndar að vonast til að barnaherbergin væru örlítið stærri, sem er nú alveg skiljanlegt. Þau eiga vini og ættingja í Grindavík, meira að segja bara í næsta raðhúsi hér í Staðarhrauninu, þannig að ekki er það nú verra. Staðsetningin skiptir öllu greinilega því þau vilja búa svona í útjaðrinum en ekki úti á umferðargötu, það er okkur í hag. En svo verður líka að líta á það að þau eiga íbúð í Hafnarfirðinum sem þau eru ekki búin að setja á sölu og þ.a.l. eiga alveg eftir að selja, OG þau voru nú fyrsta fólkið til að koma að skoða þannig að væntingarnar eru ekkert svakalegar hjá okkur, en við bíðum bara þolinmóð...fram að áramótum.

Ég fór í vinnuna bæði í gær og fyrradag í afleysingar og það var nú aldeilis frábært að vinna smá aftur, og vona ég bara að veikindi fari að herja á starfsfólk leikskólans...neinei þetta var nú bara djók en svo er ég með nokkra fasta daga í apríl sem er vitað að þarf afleysingu. Svo verður vonandi hellingur að gera fram að sumarfríi eftir að prófin eru búin 11. maí...JÁ 11. MAÍ BABY!!!

Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast GERÐA amma og co.)


Blue lagoon!
25.03.2007 09:31 - Benjamín skrifar
Á föstudaginn fórum við mamma í bláa lónið að skemmta okkur. Mér fannst strax skemmtilegt á leiðinni inn í fataklefann og vildi klifra upp stóra stigann en þar var víst bara lokuð sturtan þannig að við mamma þurftum að fara niður aftur og þar sá ég rosa flottann kall og ákvað að heilsa honum "hæ kall, hæ kall, hæ kall", sem betur fer fór hann bara að hlæja og sagði bara "hæ kall" á móti, það eru ekki allir svo ljúfir og mamma alltaf að reyna að þagga niður í mér. Ég vissi sko alveg hvar sturtan var, verst að mamma var ekki á sama máli og hún þurfti að hlaupa alsber á eftir mér út um allan klefa innan um allar útlensku kvensurnar...það fannst henni ekkert fyndið...en það fannst mér. Hún náði mér þó á endanum og þá voru sturturnar víst hinumegin í klefanum, þær hljóta bara að vera báðu megin. Það var algjört æði þarna oní og ég vildi bara vera endalaust ofaní lóninu og sagði halló og bless við alla sem við mættum og meira að segja við stóru sturtuna líka (fossinn). En það mátti víst ekki vera endalaust oní þannig að ég fann mér bara skemmtun inní klefa. Fyrst skreið ég inn í alla skápana og lokaði, það var rosa gaman og það var einhver kona sem talaði voða skrítið (útlensk) sem var alltaf að banka hjá mér og það var nú ekki verra. Síðan hætti ég þessu og ætlaði að tala aðeins við þessa skemmtilegu konu, en hún var með svo ROSALEGA stór brjóst að ég varð bara að benda á þau og segja henni hvað mér finndust þau flott og stór, mamma þakkaði Guði fyrir að hún var útlensk...ekki veit ég af hverju...

Þá fannst mömmu nú betra að leiða huga minn að einhverju öðru og sýndi mér rosalega rosalega flotta spegla, en það sem mér fannst enn skemmtilegra var að þarna var vaskur á STÓRU hvítu borði og ég gat fengið mér að drekka úr vaskinum...Á FULLUM KRAFTI...ef ég stóð á einni pullunni eða einfaldlega uppi á vaskaborðinu og þegar maður er með svona á fullum krafti þá skvettist líka allt vatnið út um allt og þetta verður allt ljómandi skemmtilegt...þá fannst mömmu kominn tími til að klæða mig bara og koma okkur út úr fataklefanum. Ég vildi ekki fara í bílinn og ætlaði bara að vera eftir og senda mömmu heim á bílnum þannig að mamma ætlaði bara ein heim. Hún guggnaði á því kerlingin, hún bakkaði út úr stæðinu og skrúfaði niður til að segja síðasta blessið við mig og ég bara vinkaði og fann mér poll til að sulla í og HOPPA...þá fattaði mamma alltíeinu að hún myndi sakna draumaprinsins Benjamín svo mikið ef hún færi ein heim að hún ákvað að fara út úr bílnum og ná í mig...ég var ekki ánægður!

Í gær fórum við svo í æðislegan hrygg en það sem meira var  ÆÐISLEGAN ÍS...til afa Helga og ömmu Gerðu. Við Teresa erum orðnir svo góðir vinir og leikum bara og leikum saman...rosa gaman en við erum líka stundum að prakkarast og stríða Billu og Víði Óla með því að setjast ofaná spilin þeirra og svona skemmtilegt. Ég kalla Víði Óla alltaf bara Billu líka en svo fannst honum það ekkert skemmtilegt þannig að ég kalla hann bara Óla núna...það er líka svo fínt nafn.
Í dag á svo Sebastían Óli afmæli, hann er 5 ára og við ætlum í veislu til hans á eftir að óska honum til hamingju og borða fullt og kannski líka gefa honum pakka ef ég verð ekki bara búinn að opna hann :)

Skoða tjaningar. (5 hafa tjáð sig, síðast Hófý)


Húsið komið á netið!!!
23.03.2007 16:26 - Hjördís skrifar
Vildi bara láta vita af því að húsið er nú komið á netið og við viljum bjóða ykkur í heimsókn á heimili okkar með því að ýta með músarbendlinum hér.
Fasteignasalinn sagði að okkar færi klárlega á undan húsinu við hliðiná þar sem það er sett það sama á þau (að okkar ósk).
En við höldum okkur á jörðinni og vitum að það tekur langan tíma að selja og á sjálfsagt ekki eftir að ganga eins og með Flyðrugrandann, en þá var ég nú orðin óþolinmóð eftir 5 daga á sölu...hvað var það nú? og við seldum innan mánaðar...


Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast Helga)


Sófasett
21.03.2007 14:25 - Hjördís skrifar
Þá er nýja sófasettið komið...það situr reyndar annar sófinn inní forstofu og hinn útí bílskúr en það hlítur að vera hægt að nota þá þar eins og inní stofu. Þriggja sæta grái sófinn okkar var búinn að gefa upp öndina fyrir stuttu með skemmtilegri holu í miðjum sófanum og því varð úr að tvær flugur voru slegnar í einu höggi. Í stað þess að kaupa sófasett og svo lazyboy stól sem passar við þá var keyptur LAZYBOY SÓFI 3+2, samtals 4 lazyboysæti sem er CRAZY. Enda hefði verið endalaust rifrildi hver ætti að sitja í lazyboynum ef aðeins einn stóll hefði verið til á heimilinu og við vitum öll hver hefði unnið það kvöld eftir kvöld ;)

Fasteignasalinn frá Ás kemur að skoða húsið á morgun. Hringdum í hann á þriðjudaginn í síðustu viku en hann er búinn að vera veikur síðan þá og ætlaði að koma í dag eða á morgun en þar sem hann er ekki búinn að koma í dag geri ég ekki ráð fyrir að hann komi fyrr en á morgun, hann endurtók líka 3 sinnum að hann kæmi í síðasta lagi á fimmtudag þannig að við gerðum aldrei ráð fyrir því að hann kæmi fyrr en þá.

Að lokum, ástæðan fyrir því að nýja sófasettið er hálft inní forstofu og hálft inní bílskúr er sú að forstofuhurðin er of mjó til að koma því innfyrir :(...við verðum að finna eitthvað út úr þessu eða bara koma upp stofu útí bílskúr, það gæti líka virkað.

Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast Stærstibróðir...)


Afmælissnakk
20.03.2007 21:49 - Benjamín skrifar
Dagurinn í dag er búinn að vera mjög góður og því tilvalið að koma til baka á síðuna. Ritstíflan er þó enn fyrir hendi og jafnóðum fer allt í einn hrærigraut þegar verið er að reyna að hugsa hvað eigi að skrifa.

Byrjum á því að segja alheiminum að ÉG Á AFMÆLI Í DAG!!!! og af því tilefni fékk ég að bjóða krökkunum á leikskólanum upp á snakk. Það var að sjálfsögðu appelsínugult snakk og ég tilkynnti mömmu minni það þegar hún kom að sækja mig og spurði hvað ég hefði boðið krökkunum upp á "appididigitt gakk" var svarið.

Leikskólinn er svo sniðugur að þegar krakkarnir eiga afmæli og mega þeir þá velja hvort boðið er upp á ís, snakk eða popp, ég var löngu búinn að velja snakk, enda er það uppáhaldið mitt í afmælum á leikskólanum.

Við héldum rokna afmæli um helgina með klikkaðri ormaköku og brjáluðum möffins, það komu fullt fullt af gestum og ég fékk að sjálfsögðu fullt fullt af pökkum. Ég kærði mig ekkert um lina pakka og sokka og þeir fengu að fjúka út í vegg um leið og eitthvað betra kom. T.d. fékk ég bók og sokka í einum pakkanum og foreldrar mínir sáu ekki einu sinni sokkana því þeir voru foknir út í vegg áður en  pappírinn var allur farinn af BÓKINNI. Ég fékk tvær bækur, rosa flotta bygginga og gröfubók með Bóbó bangsa og svo Barbapabba. Fékk fullt af leir og svo pússl og kubba og rosa flotta þyrlu með kubbum og latabæjarinniskó :). Ánægðastur var ég þó með flottu flottu stóru stóru gröfuna mína og ég sleppi henni varla, ég vildi sofa með hana um nóttina en fékk það ekki en ég er fljótur að finna hana á morgnana og miklar og langar kveðjustundir eiga sér stað þegar ég þarf að bregða mér úr húsi "bæ ava, bæ ava" með meðfylgjandi fingurkossum og veifum. Síðan fékk ég svaka flott eldhús frá mömmu og pabba þar sem hægt er að sjóða ýmislegt með tilheyrandi hljóðum...hins vegar kemur ekkert vatn í pottana þegar ég ætla að nota vaskinn og verð oft ansi pirraður á því...en ég var líka fljótur að eigna mér piparkvörnina og litla feitipottinn hennar mömmu til að hafa fínt í eldhúsinu mínu.

Annars er allt gott að frétta, leikskólinn er SVO skemmtilegur að ég fer bara inn og ýti mömmu út og vinka bless og loka svo hurðinni á nefið á henni

Ég er líka alveg komin á þá línu að ég læt foreldra mína standa við það sem þau segja mér. Eins og um daginn langaði mig svo rosalega að fá ormakökuna sem mamma var að skreyta en mamma sagði að ég mætti fá þegar ég vaknaði eftir vagnlúrinn minn. Þá varð ég sáttur og fór að sofa úti í vagninum. Þegar ég svo vaknaði og heyrði að pabbi var að koma og ná í mig sagðist ég vilja fá köku áður en pabbi náði að taka netið niður af skerminum...

frá mömmu:Benjamín var að sjálfsögðu að hjálpa mér í öllum afmælisundirbúningi og þar á meðal að baka. Ég hafði tekið egg út úr ísskápnum og var eitthvað að vesenast uppi í skáp þá heyri ég í honum "egg, gógó, egg, gógó" þar sem gógó þýðir hæna. Þá var ég búin að fá endanlega sönnun fyrir því að ég ætti gáfaðasta barn í heiminum, og búin að vita það um nokkra hríð. Síðan nokkrum mínútum seinna þegar ég er að velta því fyrir mér hvort það geti virkilega verið að hann tengi hænur og egg saman þá horfi ég aðeins á undrabarnið mitt þar sem hann bendir á eggjabakkann og er þá ekki mynd af hænu á pakkanum...hahaha. Ég er samt ekki í nokkrum vafa um það að ég eigi svona um það bil klárasta barn í heiminum og hef átt í tvö ár :)

Benjamín er búinn að vera bleyulaus heima við síðan við komum að austan fyrir tveimur og hálfri viku síðan og hefur gengið vel að pissa og kúka í klósettið þó svo að þvottavélin hafi ansi mikið að  gera líka núna þessa dagana, þetta kemur allt saman.

nú er eitthvað svo mikið að segja, en læt þetta duga í bili sjáum svo til hvernig gengur næstu daga með skrifin!

Skoða tjaningar. (3 hafa tjáð sig, síðast BILLA ÓSK VÍÐIR ÓLI OG TERESA)


Afsakið hlé
14.03.2007 12:34 - Benjamín skrifar
Það verður gert hlé á þessari síðu um óákveðinn tíma, þökkum lesendum kærlega fyrir samveruna :)

Takk fyrir

Skoða tjaningar. (5 hafa tjáð sig, síðast Silja frænka og marsbúinn)


Kominn heim :)
05.03.2007 14:36 - Benjamín skrifar
Loksins, loksins erum við öll komin heim og allt að verða venjulegt aftur. Það var alveg rosafrábgeggjaðslega gaman hjá ömmu og afa á Stöðvarfirði eða ömmu "giggu" og afa. Ég var að sjálfsögðu miðdepill alls og fékk allt sem ég vildi og líka athyglina og núna tala ég nær eingöngu í tveggja orða setningum enda mjög duglegur að æfa mig þegar athyglin er svona mikil. Við Sóli vorum bestu vinir en sá vinskapur einkenndist af því að ég fékk að hossa mér ofaná bakinu á honum og toga hann til og frá, svo þegar hann stóð upp rann ég niður eins og í rennibraut...þetta var GEGGJAÐ...við pabbi fórum flesta daga út að leika við Sóla og moka snjóinn og keyra um í gröfunni hans afa og stóra STÓRA bílnum hans...jáhá, afi á sko gröfu og hún er ekkert smá flott og svo fékk ég að keyra stóra rauða bílinn líka með pabba mínum. En þetta gerðist allt saman á meðan mamma var í skólanum með stóru krökkunum...enda ekki víst að hún hefði lagt blessun sína yfir þessar æfingar þannig að það var gott að vera laus við hana svona annað slagið.
Við fórum líka í Kross að heimsækja öll dýrin þar og þar voru kanínur og hænur og hanar og fullt fullt af kindum og svo ein geit með RISA horn. Ég verð nú að segja að ég varð hálf móðgaður við hundana á bænum. Ég kallaði og kallaði á þá "hundur, hundur" og það kom enginn til mín, Sóli kom alltaf þegar ég kallaði á hann "hundur, hundur".
Ég hitti Karítas Emblu vinkonu mína bara einu sinni í þessu ferðalagi en hún var líka eitthvað veik og svona og ég vildi nú ekkert vera að næla mér í það. En við vorum heldur ekki alveg í leikgírnum, vorum nú meira svona aðeins að rífast um dótið heldur en að leika.
Amma og afi áttu líka alveg ótrúlega skemmtilegt rúm, maður ýtir bara á takka og þá er hægt að láta ömmu og afa fara upp og niður í rúminu og mér fannst skemmtilegast að vekja ömmu á morgnana með því að lyfta hausnum alveg upp og síðan löppunum alveg upp þannig að amma leit út eins og stórt V....það var soldið fyndið, en ég lagaði hana samt alltaf aftur!
Á leiðinni heim fórum við svo á Höfn að heimsækja frændur mína þar og mér fannst svo gaman að leika við þá að ég harðneitaði að fara þegar átti að fara. Þeir áttu fullt af skemmtilegu dóti og það var ótrúlega gaman að leika og við bara lékum og lékum á meðan gamla fólkið var eitthvað inni í stofu að sötra kaffi og éta kex...
Ég átti svo heldur betur að sofna á leiðinni frá Höfn til Grindavíkur en ég lét nú ekki bjóða mér upp á svoleiðis og vildi fulla skemmtidagskrá allan tímann, lagði mig þó í klukkustund en meira var ekki í boði í þessari ferðinni, enda skemmtum við okkur konunglega fjölskyldan.

Það var frábært að komast heim í dótið sitt aftur og ég náði að leika með næstum ALLT dótið mitt áður en baðtíminn og svefninn komu, allaveganna fannst pabba þetta vera næstum allt dótið mitt þegar hann var að "aðstoða mig" við að taka saman.

Skoða tjaningar. (7 hafa tjáð sig, síðast amma GERÐA OG CO.)


Myndir