|
|
Fréttir í Mars 2006
|
Hola Amigos
30.03.2006 07:40 - Benjamín skrifar
Ég verð bara að skrifa sjálfur fyrst ritari vor er runninn á rassinn með þetta, þetta er bara engu skárra en barnalandssíðan mín forðum en NÚ SKAL TEKIÐ Á ÞVÍ. Annars er bara allt við það sama hér, ég í sérherberginu mínu og hef það gott. Reyndar er ég orðinn soldið lítill eftir veikindin sem herjuðu á mig í viku um daginn og m&p þurfa að vera voða mikið að halda á mér og vera á sama stað og ég ef ég á ekki að hafa ofvirka tárakirtla en þetta er allt að koma og nú get ég leikið mér smá ÞÓ mamma sé ekki endilega hjá mér en það er ágætt að hafa hana í augsýn. Annars er alltaf jafngaman hjá Marisu þó að ég hafi þurft að taka mér vikufrí í síðustu viku sökum afar leiðinlegra veikinda. En það er svo skrítið að ég má ekki rífa af krökkunum en mér finnst nú að það eigi að vera í lagi, hins vegar finnst mér argasti dónaskapur þegar þau ætla að rífa af mér og læt þau nú heyra það!!!
Ég borða eins og ég fái milljón fyrir hvern munnbita (stundum óskar mamma þess að svo væri;) og finnst allt gott, en það nýjasta er samt ENGIR KEKKIR TAKK, það er alveg ómögulegt og algjörlega óásættanlegt að vera að vesenast með einhverja kekki í matnum þannig að allir rúsínu-, berja- og eplabitar í grautum fá að fjúka út sömu leið og þeir komu inn þó fer ekkert af grautnum til spillis heldur kemur viðkomandi biti í sinni upprunalegu mynd algjörlega grautarlaus út og munnurinn er opnaður á ný fyrir kekkjalausan graut. Sama sagan er ef grænmeti eða kjöt er ekki nógu vel maukað og þar af leiðandi er HAKK ekki í mínu uppáhaldi þessa dagana. Mömmu finnst þetta einhver pempíuskapur og skilur ekki hvaða breytingar eiga sér stað þarna, ég sæi nú fyrir mér kellinguna borða kekkjótta sósu eða drekka kekkjótta mjólk, held hún myndi nú ekki láta bjóða sér svoleiðis og ég er orðinn svo stór að nú er ekki hægt að troða hverju sem er oní mann.
Annars er ritarinn eitthvað að rífa sig og vill taka það fram að lítið hefur verið um hreyfingu á síðunni vegna ótrúlegra anna eins og að klára sex and the city og kannski reyna að dusta rykið af heilasellunum með því að glugga aðeins í skólabækur. Annars eru nú páskarnir bráðum að koma og ég hlakka MIKIÐ TIL.
Kveð að sinni fnykurinn hér inni er að verða óbærilegur og best að láta ritarann ná í ferska bleyju ;)
Skoða tjaningar.
(3 hafa tjáð sig, síðast Ari Páll)
|
Loksins loksins loksins
23.03.2006 20:06 - Hjördís skrifar
Já það er nú orðið ansi langt síðan eitthvað var hreyft við þessari síðu. en nú skal því kippt í lag. Það er búið að vera eitthvað helv...netvesen og svo náttúrulega tímavesen en hér skal tíundað á helstu fréttum svona ykkur til smá fróðleiks.
Nú er húsmóðirin á staðnum komin í vinnu. Það eru nú smá blendnar tilfinningar þar í gangi vegna þess að helst vil ég vera heima með gullmolanum og reyna að læra bara á meðan hann er hjá dagmömmunni en núna hliðrast þetta allt eitthvað til og tíminn hjá dagmömmunni verður sjálfsagt alltaf meiri og meiri. En hvað getur maður gert, ekki er endalaust hægt að segja NEI þegar vinnan er borin fyrir mann á silfurfati, hvað gerist þá þegar maður þarf loks á vinnunni að halda. En jújú þið giskuðuð rétt, að sjálfsögðu var mér boðin vinna við grunnskóla staðarins og meira að segja sem sérkennari þar sem þolinmæði mín er óþrjótandi...þekki þeir sem vilja :) Síðan er strax farið að tala um vinnuhlutfallið næsta vetur og bekkjarkennslu en það verður hámark 50% frá minni hálfu ef markið er sett á að klára skólann á næstu árum. Já það er ekki auðvelt að trúa á gildi hinnar heimavinnandi húsmóður en samt sem áður gildi vinnunnar og félagslífsins um leið :(
Annað í fréttum, sem eru reyndar gamlar fréttir á þessum bænum en eru nýjar hinum úthverfa heimi. Það er að Guðmundur Óli sagði upp störfum á trésmíðaverkstæðinu um mánaðarmótin síðustu og byrjar að vinna hjá Grindinni hér í Grindavík þann 10. apríl n.k. Við Benjamín hlökkum voða mikið til því þá verður hann alltaf kominn heim kl 17:00 á daginn í staðinn fyrir rétt tæplega 19:00 síðan er hann alltaf búinn í hádeginu á föstudögum. Þetta verður voða gaman, reyndar er gert ráð fyrir að heilmikil yfirvinna verði í boði og þá verðum við bara rík...líka þar sem ég er byrjuð að vinna, eða kannski ætti ekki að orða það þannig heldur...þá verðum við minna fátæk en áður, kannski. :)
Síðast en ekki síst er það hann Benjamín kallinn, hann er núna farinn að rölta hingað og þangað en trúir ennþá óspart á skriðhjólin sín og hefur enga þolinmæði í það að rölta á tveimur jafnstuttum ef langt þarf að fara. Hinsvegar verður eiginlega að vera alveg hljóð og algjört hreyfingarleysi í viðstöddum ef listirnar eiga að vera sýndar :) En svo talar hann látlaust og alltaf reynir hann að herma eftir öllu og núna eru meiningar í a.m.k. fjórum orðum hjá honum, það er stórt og þroskað MAMMA sem heyrist hér inn og út allan daginn, og það er bara EIN mamma svo er það pabbi...hann er DADA þó svo að mamman meigi alveg kalla hann pabba og maður skilur það samt alveg. Síðan er það DATT sem er búið að tröllríða öllu síðustu vikur eða mánuði og það er ekki einn hlutur á heimilinu sem hefur ekki fengið að upplifa DATT, en þó er það svo langt frá því að detta og ætti heldur að vera SMASH eða HAHA HENTI ÞÉR VILJANDI Á 100 KM HRAÐA Á GÓLFIÐ. Síðast en ekki síst er það svo NAMMNAMM sem nú fær óspart að fjúka útúr munninum á kauða sérstaklega ef kex er í augsýn. Ég man nú ekki meira í augnablikinu en eitthvað sagði hann um daginn sem hefur ekki komið aftur en það var í svona "hermileik" og svo hefur allt sína skýringu sem mamman bara skilur ekki...þannig er það bara.
Annars átti hann Sebastían Óli frændi okkar 4 ára afmæli í gær og við fengum ROSALEGA gott að borða hjá honum til hamingju með daginn frændi. Svo eignuðust Gulli og Hrund lítinn strák á fimmtudaginn 23.mars og við óskum þeim líka innilega til hamingju með hann og Guðmundur Óli fagnar sigri yfir að hafa fattað að þetta væri strákur (þau vissu en vildu ekki segja þannig að G.Ó. reyndi að veiða uppúr Gulla og G.Ó. þóttist hafa fattað á einhverju að þetta væri strákur en þau vildu aldrei viðurkenna það...hehehe G.Ó. er jafn mikið í skýjunum og nýorðnu foreldrarnir)
En jæja, verkefnavinna frá HELVÍTI tekur nú við.
Skoða tjaningar.
(2 hafa tjáð sig, síðast amma GERÐA afi BILLA ÓSK OG VÍÐIR ÓLI)
|
Dagurinn senn á enda
20.03.2006 23:05 - Hjördís skrifar
Jæja þá er dagurinn senn á enda og allir þreyttir að fara að koma sér í bólið. Við ætluðum nú að skreppa í lónið bláa en ekkert varð úr þeirri ferð þar sem lilleman er ótrúlega kvefaður eitthvað og frekar kalt í veðri þannig að ekki beint góður dagur fyrir útisund, en í staðinn fékk hann bara sprautu og var píndur til að liggja (við lítinn fögnuð skal ég segja ykkur) á meðan var verið að mæla hæðina á honum.
Það endaði svo með því að hann var kominn með hita sem hefur aldrei gerst áður eftir sprautu og aðeins einu sinni áður á hans stuttu ævi og það var fyrir tveimur vikum síðan :(
Annars var dagurinn náttúrulega frábær, pabbinn heima og mamman kom í pásum úr skólanum til að kíkja á kallana sína.
Ég er að reyna að troða nýjum myndum hér inn og vonandi gengur það að óskum. Annað albúmið er um endurbæturnar á herberginu hans Benjamíns og hitt er afmælisveislan og fleira síðan 12. mars.
skrifað örlitlu síðar:Ég rak augun í þá leiðindarvillu að ég hafði skrifað langamma Jósý en átti að sjálfsögðu að standa langamma Jófý...amma Jósý er svo á næstu mynd...beðist er innilegrar velvirðingar á þessum leiðu mistökum...ekki er hægt að breyta þeim eftirá :S
Skoða tjaningar.
(4 hafa tjáð sig, síðast amma GERÐA OG CO.)
|
ÉG Á AMMÆLÍ DAG !!!
20.03.2006 11:27 - Benjamín skrifar
ÉG Á AMMÆLÍ DAG
ÉG Á AMMÆLÍ DAG
ÉG Á AMMÆLI SJÁLFUR
ÉG Á AMMÆLÍ DAG
Svo er ég orðinn 9230 gr. og 76 cm í tilefni dagsins og þar með búinn að ná kúrfunni minni aftur :)
Skoða tjaningar.
(6 hafa tjáð sig, síðast Baldvin, Bryndís og Birkir Örn)
|
TAKK FYRIR MIG !!
19.03.2006 22:00 - Benjamín skrifar
Úffpúffskúff, þetta er nú búinn að vera meiri dagurinn, ótrúlega skemmtilegur. Amma Sigga og langamma Hjördís eru búnar að vera hjá okkur síðustu daga en þær þurftu að fara útá flugvöll rétt fyrir afmælisveisluna :( það var nú leiðinlegt en við héldum bara veislu hina dagana sem þær voru hérna fyrir þær :)
Það voru rosa margir gestir hjá mér og ég féll Fullt FUllt FULlt FULLt FULLT af allskyns skemmtilegu dóti og FLOTTUM fötum. Ég fékk tildæmis ÞRÍHJÓL, rosalega fínt og blátt, hjólbörur og sandkassadót, fullt af hávaðadóti og BÍLABRAUT, og kubba og ég veit ekki hvað og hvað, síðan fékk ég svona 6 pör af buxum og fleiri boli og svo ROSALEGAN TÖFFARAJAKKA, sem mamma vill að sé til í sinni stærð...!! Kannski ég þurfi að lána kellunni gripinn :S
Það voru bara næstum allir ættingjarnir í veislunni (allir Reykjavíkurbúar þ.e.a.s.) NEMA Kjartan frændi SVAF YFIR SIG...og Anna Karen fór í fjallaferð, en þeim er víst fyrirgefið, en svo komu Viktor og Brynjar vinir mínir líka, þeir voru reyndar ekkert alltof ánægðir með mig og Birki Örn, við vorum víst eitthvað að lúskra á þeim greyjunum og reyna að toga af þeim eyrun og banka eitthvað vit í kollinn á þeim á meðan þeir voru að skoða skóflurnar mínar og boltana í mestu rólegheitum...við vorum þá ekkert heldur efst á vinsældarlistanum hjá henni mömmu minni þá :(
Ég var svo þreyttur í lok veislunnar að ég fór út að leggja mig og svag til 7, en steinsofnaði svo inní rúmi í nýja herberginu mínu með öllu nýja dótinu mínu.
Takk allir fyrir að gera fyrsta afmælisdaginn minn svona líka eftirminnilegan
En svo er það bara BIG ONE á morgun!!!
Smá frá mömmu:Ótrúlegt að það sé komið ár síðan við Guðmundur Óli vorum að kítast um það hvort ætti að hringja upp á fæðingardeild eða ekki og einn tími í árið frá því að ljósmóðurneminn DRAP mig næstum því og fjórir tímar í árið frá því páskaunginn litli leit dagsins ljós. Eftir því sem nær hefur dregið að eins árs afmælisdeginum þá virðast minningarnar verða sterkari og ég man alltaf meira og meira eftir smáatriðunum ætli það séu ekki bara dagsetningarnar, því ekki hugsaði maður lítið um dagsetningar á þessum tíma í fyrra og 1.apríl var fyrir valinu ef hann hefði ekki komið svona snemma, já eða 3.apríl, 7. eða 8. apríl...skrítið svo að mars hafi svo átt daginn, þar sem mars var alls ekki inni í myndinni í fyrra. Svo núna þegar vinkonur manns eru að eiga börn þessa dagana þá man maður ennþá meira eftir öllu saman og stemmningunni við það að vera á fæðingardeildinni og fyrstu dögunum eftir fæðingu...YNDISLEGUR TÍMI.
Skoða tjaningar.
(3 hafa tjáð sig, síðast Ösp)
|
Fyrsta nóttin !
19.03.2006 11:04 - Benjamín skrifar
Jæja þá er ég búinn að sofa eina nótt ALVEG EINN í herberginu mínu. Það var alltílæ en ég þurfti bara að kalla soldið hátt þegar ég vildi fá m&p inn til mín, ekki nóg að banka bara í þau eða rífa smá í hárið. Hins vegar er ég soldið kvefaður þannig að hóstinn var aðeins að trufla mig í nótt, en þetta verður allt betra þegar kvefið er búið. En mikið ROSALEGA er gaman að leika í herberginu VÁ.
Svo er bara veisla á eftir og FULLT AF PÖKKUM....JIBBÍÍÍ.
Segi nú meira frá því í kvöld.
Skoða tjaningar.
(1 hefur tjáð sig, síðast Lilja)
|
Flotta herbergið
16.03.2006 14:43 - Benjamín skrifar
Loksins fékk ég nú að kíkja inní herbergið sem var búið að vera lokað og það var nú bara ekkert nema eitthvað ljótt inni í því (parketlaust og allslaust). Síðan urðu veggirnir alltíeinu bláir og svo kom alltíeinu gólf á það og mér finnst EKKERT SMÁ gaman að sitja á gólfinu og öskra og öskra á mínum hæstu tónum...þá bergmálar og það er SVAKA gaman. Mamma er nú dauðhrædd um að nágrannarnir haldi að það sé eitthvað verið að misþyrma mér hérna, en þetta er nú bara gaman. Annars veit ég ekkert hvað er um að vera þarna, samt er rosa flott ljós í loftinu og á veggnum, mig langar nú alveg að sitja og horfa á það allan daginn. Kannski þetta eigi bara að vera svona ljósaherbergi, það væri nú skemmtilegt.
Skoða tjaningar.
(7 hafa tjáð sig, síðast Guðmundur Óli)
|
Ný stelpa
14.03.2006 21:35 - Hjördís skrifar
Hildur Jóna vinkona og Þórður maðurinn hennar voru að eignast litla stelpu kl.19:27 í kvöld rúmum mánuði fyrir tímann. Hún er þó bæði stór og hraust innilega til hamingju með prinsessuna!!!
Annars er nú ekki mikið að frétta annað en það að allt er á fullu í vettvangsnáminu og maður er svo dasaður eftir skólann á daginn að það er lítið gert eftir það annað en að borða og svo sofa. Hálfpartinn eins og fyrsta vikan var þegar ég var að byrja að vinna á leikskólanum hérna um árið.
Benjamín er þá bara hjá dagmömmunni á meðan sem mér finnst þó heldur lengi en hann skemmtir sér konunglega. Hann labbar og labbar meira með hverjum deginum og er farinn að þora að labba þó svo að enginn sé að taka á móti, en ágætt er þó ef eitthvað mark er í augsýn, eins og t.d. sjónvarpsskápinn eða hlaupabrettið en annars stendur skriðið alltaf fyrir sínu og er langfljótlegast, sérstaklega þegar maður þarf að flýja undan m&p á leiðinni inní eldhús að föndra aðeins með matinn hennar Dimmulimmar.
Annað markvert man ég ekki að sinni og biðjum að heilsa, nú bíðum við bara spennt eftir hringingu frá Gulla og Hrund en þau eiga von á STRÁK!!! ;) 27.mars.
Skoða tjaningar.
(2 hafa tjáð sig, síðast amma Sigga)
|
Tímabært !
12.03.2006 19:26 - Hjördís skrifar
Ég lokaði á síðuna mína þar sem ég ræddi mál líðandi stundar og hef ekki lagt það í vana minn að ræða þau mál hér. Hins vegar get ég ekki orða bundist eftir Kompás þáttinn sem er í loftinu núna um aumingja litlu veiku börnin sem þurfa að ferðast í 10-15 mínútur frá Barnaspítalanum að gjörgæsludeildinni ef eitthvað alvarlegt kemur uppá og barn hefur dáið á leiðinni. Sjáum nú til hvort ráðamenn þjóðarinnar myndu láta bjóða sínum börnum uppá þessa þjónustu, en ástæðan er sú að ekki eru til peningar til að hafa hágæsluherbergið á barnaspítalanum SEM ER TIL opið. Hvað er þá málið með að ætla að byggja hátæknispítala ef ekki eru einu sinni pengingar til að bjarga minnstu börnunum sem þurfa. Anyways ég vil hvetja ykkur til að fylgjast með baráttu Bryndísar Evu og foreldra hennar á http://bebbaoghjolli.blogspot.com/ þeirra saga er mjög sorgleg og AÐSTAÐAN sem þau þurfa að búa við er VÆGAST SAGT sorgleg en allir lifa í voninni að ævintýrið um litlu prinsessuna endi vel. OG er verið að grínast með FRAMKVÆMDASTJÓRANN í þættinum sem rak fréttamanninn næstum á dyr.
Eitt sem ég verð bara að koma að hvort er samt mikilvægara...að kaupa sendiráðshús í Japan eða hafa opið hágæsluherbergið?....Jah spurjið ráðamenn...svar þeirra er einfalt. Rekstur sendiráða Íslands í heiminum er hærri en rekstur spítalabatterísins. ER ÞAÐ HEILBRIGT?.
Jæja þá er það búið, læt aðra um þessar umræður á sínum síðum, fréttir og fólk í dag gera mig svo brjálaða að ég hef ekki gott af því að skrifa um þær, vont fyrir hjartað og ekki vil ég þurfa að leggjast inná spítala :)
Skoða tjaningar.
(3 hafa tjáð sig, síðast Hjördís)
|
Neuvo fotos!!
11.03.2006 22:20 - Benjamín skrifar
Nýjar myndir og allt að verða kreisí með myndavélina. Ekkert lát á endalausri myndatöku. En takið sérstaklega eftir því hvað ég er HRIKALEGA SÆTUR með nýju klippinguna :)
Skoða tjaningar.
(4 hafa tjáð sig, síðast Anna Karen)
|
Sveppatripp? Er það málið?
11.03.2006 17:22 - Hjördís skrifar
Já það er nú þannig að alveg frá því að við fluttum hingað inn finnst mér annað slagið eins og hálfgerð svona fúkkafýla (ekkert mjög sterk) gjósi hérna upp á heimilinu. Ég var hrædd um að þetta væri þetta blessaða ljóta gamla "tísku"viðarveggjadrasl í borðstofunni og hlakkaði mikið til að rífa það niður og setja gifs í staðinn en samt gátum við ómögulega áttað okkur á því hvaðan þessi fýla gat komið. Hins vegar ákváðum við að nú væri tímabært fyrir Benjamín að fara að sofa í sínu eigin herbergi til að allir meðlimir fjölskyldunnar getir notið næturinnar betur í svefni. Það varð úr að við ákváðum að taka herbergið "hans" í gegn og byrjað var á því að skrapa ónýta málningu af veggjunum, rífa gluggakistuna af og endað á því að rífa parketið af gólfinu. Þegar fyrstu fjalirnar fengu að fjúka gaus upp þessi líka fína fúkkafýla, alveg eins og sú sem ég hafði fundið annað slagið. Þegar parketið var svo komið af og einangrunardúkurinn líka blasti við okkur þessi líka fína svepparækt, þá hafði annaðhvort dúkurinn og parketið verið sett ofan á blautt gólfið eða þá að einhver hafði hellt niður og náð að hella svona fínlega ofan í rauf við hurðina. Allaveganna svo varð úr að við skunduðum í bæinn til að kaupa sveppaeyði og nú liggur Guðmundur á fjórum fótum og skrúbbar og skrúbbar steinsteypuna og vonum við að hún sé orðin sveppafrí (sem hún reyndar er orðin). Þannig að veggirnir bíða betri tíma og vonandi höfum við komist að rótum ilmsins góða sem hrjáð hefur heilastarfsemi húsfrúarinnar góðu.
Annars vildi ég nú ekki vita hvernig hefði farið fyrir Benjamín ef hann hefði farið að sofa og leika sér inní þessum sveppagróðri, það mun ekki vera gott fyrir öndunarfærin.
Við vorum hins vegar í næstum 4 tíma í búðum í dag að skoða ljós, hillur, spegil og gardínur inní herbergi litla mannsins og allt komið í hús, rúmið bíður betri tíma enda ekki tímabært að fara úr rimlunum strax. Mun þetta vera afmælisgjöf okkar foreldranna til Benjmíns og því áætluð verklok um næstu helgi.
Benjamín skrifar: Í dag fékk ég sem betur fer að vera hjá afa Helga og ömmu Gerðu á meðan mamma og pabbi fóru eitthvað að búðavesenast, það er nú yfirleitt ekki gaman nema það séu glasabúðir eða kristalbúðir þar sem hægt er að brjóta eitthvað. Það var ótrúlega skemmtilegt og ég fékk að standa á beit inní stofu á snakki og súkkulaðikexi og allskyns góðgæti, það er nú aldeilis ánægjulegt að koma til ömmu og afa. Síðan fórum við og amma Jósý og Billa og Víðir öll í göngutúr og mér fannst rosa gaman að láta einhvern annan keyra mig heldur en alltaf sama gamla pakkið.
Það er eitthvað svaka leyndó í gangi hérna á heimilinu, greinilega eitthvað sem ég má ekki vita en í dag voru fullt af pökkum settir inní gestaherbergi og ég fékk ekkert að skoða þá og svo er ruslaherbergið orðið tómt og alltaf lokað!! Mér líst ekki nógu vel á þetta, verð að fara að komast að því hvað er á seyði, en ekkert gerist þó ég banki og banki í hurðina :(
Skoða tjaningar.
(1 hefur tjáð sig, síðast Anna Karen)
|
Hárið farið :)
10.03.2006 22:58 - Benjamín skrifar
Minns er orðinn krúnurakaður. Ég var í mínu mesta sakleysi í baði áðan og þá kom mamma bara með einhverja rakvél og rakaði af mér hárið mitt. Mér fannst þetta svo fyndið að ég skellihló alveg hreint og slammaði svona í takt við rakvélarhljóðið...alveg þangað til pabbi þurfti að halda mér til að fínpússa toppstykkið, það var ekki jafnskemmtilegt. En ég er svaka flottur og ekki frá því að ég hafi risið um eins og tvö prakkarastrik við breytinguna.
Annars eru 10 dagar í BIG ONE afmælið:) og á morgun ætla ég að fara og vera hjá ömmu og afa á Skúlagötunni á meðan m&p fara eitthvað að búðavesenast fyrir afmælið mitt.
Skoða tjaningar.
(3 hafa tjáð sig, síðast Ösp)
|
JIBBÍ JEI, JIBBÍJIBBÍ JEI.
10.03.2006 15:46 - Hjördís skrifar
Kennsluáætlunin búin með öllu sínu hafurtaski og meira að segja búin að skila henni FYRIR FJÖGUR Á FÖSTUDEGI...Þá er bara að sjá hvernig gengur svo að kenna eftir þessum ósköpum. Allaveganna er þetta mikill léttir og núna kannski aðeins hægt að fara að glugga í aðrar námsgreinar :)
Skoða tjaningar.
(1 hefur tjáð sig, síðast Steinunn)
|
Bleyja og poki
10.03.2006 08:58 - Hjördís skrifar
Þannig vildi til að ég var að skipta á Benjamín í gær en hann gat náttúrulega ekki verið kjurr frekar en fyrri daginn þannig að um leið og bleyjan var farin af var hann búinn að rúlla sér niður á gólf og stóð bara við sófaborðið. En í sófaborðinu geymum við rassaþurrkur, bleyjur og lyktarpoka fyrir vel smelly bleyjur. Hvað um það, þetta var að sjálfsögðu vel lyktandi bleyja og ég ætlaði að leyfa snáðanum að sprellast aðeins áður en ég myndi smella honum í aðra bleyju. Þá rífur hann bleyju upp úr skúffunni og skellir henni með harðri hendi á sófann síðan tekur hann bleikan poka og skellir honum hjá bleyjunni...setja á mig bleyju takk fyrir!!!
Skoða tjaningar.
(1 hefur tjáð sig, síðast Lilja)
|
Þá þá!!
09.03.2006 08:25 - Hjördís skrifar
Jæja þá, eða eins og Víðir Óli mágur minn myndi segja...Þá þá, ég viðurkenni fúslega að ekki kvitta ég í hvert einasta skipti sem ég fer inná síður annarra en ég verð að trufla síðustu færslu og ÞVÍ MIÐUR að færa hana einn niður á við með eftirfarandi fréttum en endilega haldið áfram að kvitta :).
Minns fékk NOKKUR seríóskorn í skál, því ef þau eru fleiri en nokkur er ég að moppa seríós af gólfinu allan daginn. Anyways, það átti að vera mamman sem skammtaði 3-4 hringi í einu því þá fer einn í einu upp í munn, en svo vildi svo til að mamman þurfti að breggða sér agnarögn frá og þegar hún kom til baka var minns að hella varlega úr skálinni á stofuborðið. Mamman sagði þá "Nei, ekki gera svona", þá horfði minns á hana blíðu augnaráði tók svo seríósið af borðinu og byrjaði að tína það hvert af öðru aftur ofaní skálina án þess að slíta augun af mömmunni.
Svo dirfist einhver að segja að maður sé óþekkur og fari ekki eftir reglum. pruffffffff.
Skoða tjaningar.
(3 hafa tjáð sig, síðast Svava )
|
Enginn hefur tjáð sig !!!
08.03.2006 21:22 - Hjördís skrifar
Ég ætlaði nú að þrjóskast við að skrifa meira þar til einhver væri búinn að segja eitthvað við síðustu færslu...en það hefur bara enginn sagt neitt. Ég tek því þannig að allir séu löngu hættir að nenna að lesa nokkuð eftir að Benjamín hætti að skrifa allt saman á Barnalaninu, nema Lilja mágkona lítur hér við og mamma og Anna Karen svona einu sinni tvisvar í viku svo aðrir svona af og til yfir árið...en þetta var áfall þó svo að fréttin hafi ekki verið merkileg EKKERT KOMMENT í fyrsta skipti !!!
En nóg um það. Það er svo mikil sjálfstæðisbarátta hjá einum meðlimi heimilisins þessa dagana að það er lítið gert hér en að reyna að halda niðri í sér hlátrinum allan daginn. Það byrjar daginn á því að það má ekki tannbursta mann, það er öskrað og öskrað og öskrað þar til maður fær að halda sjálfur á tannburstanum (þegar mamman er búin að pína mann og búin að tannbursta allar 6 tennurnar) og setja hann undir kranann aftur og aftur og drekka svo úr hárunum. Þar næst er það morgunmaturinn, þá má alls ekki setja mann í stólinn það eru aðrar lungnaæfingar dagsins en þegar það hefur tekist þá bara stendur maður upp til að meika pointið sitt, þá er maður beyslaður niður við litlar vinsældir og neitar þar af leiðandi að borða matinn sinn þar til maður er sleiktur upp og borðar þá vel og mikið eftir nokkurn hlátur en að sjálfsögðu með sína eigin skeið í hönd. Þar næst á eftir er svo klæðnaðurinn. Þriðja lungnaæfing morgunsins það er hræðilegt þegar manni er haldið í fanginu á mömmu sinni og píndur í sokkabuxur og sokka í stað þess að fá að standa og lemja í borðið eða tölvuna og stundum fara öskrin á það hátt C að mamman fær verk í eyrun :S. Þá er það að fara ofaní vagninn fyrir svefninn, það tekur þó stuttan tíma bara rétt á meðan maður fer úr örmunum á mömmu sinni og í vagninn það er ekki skemmtilegt en hljóðnar svo strax og reynt að einbeita sér að því að sofna. Eftir svefninn er svo matartíminn aftur og bleyjuskiptin með tilheyrandi sokkabuxnaklæðnaði síðan er förinni heitið til Marisu þar sem maður situr eins og engill í kerrunni á leiðinni og segir ekki orð fyrr en mamman er farin út og aftur heim til sín, þá byrjar fjörið og svo klagar Marisa frekjudósina í mömmuna þegar hún kemur að ná í Jón Sigurðsson annan sjálfstæðisbaráttumann. Þá er það baráttan um hurðarnar og hvað hurðir maður má fara í gegnum en þær eru nú allar lokaðar en eldhúshurðin er opnanleg af litlum fingrum þannig að mamman fær að hlaupa einar 20 ferðir á eftir skrið-lestinni þangað inn við lítinn fögnuð lestarinnar. Þá er það þriðji matartíminn og svo baðið sem er nú reyndar mjög skemmtilegt yfirleitt. Endar dagurinn svo eins og hann byrjaði um það hver á að halda á tannburstanum!
Annars gerist ekki mikið annað á daginn sem er sérstaklega merkilegt. Rykið hefur reyndar verið dustað af nokkrum heilasellum síðustu daga vegna óskiljanlegra verkefnaskila allt í einu, eða kannski er bara búið að draga það svo lengi að allt í einu er komið að því að skila öllu...kannski það, hmmm.
Skoða tjaningar.
(5 hafa tjáð sig, síðast Anna Karen)
|
Barnalandið lokar !!
07.03.2006 09:42 - Benjamín skrifar
Jæja kæru vinir, nú líður senn að því að foreldrar mínir borga ekki lengur fyrir Barnalandssíðuna mína og mun hún loka þann 17.mars n.k. Þannig að ef þið viljið skoða allar gordjös myndirnar af mér frá því ég var lítill þá verður það að gerast fyrir þann tíma...annars verðið þið bara að láta þessar myndir hér inni nægja sem eru náttúrulega EVER SO gordjös líka enda ég engin venjuleg fyrirsæta.
Þeir sem hafa gleymt slóðinni geta fundið myndirnar HÉR.
Skoða tjaningar.
(1 hefur tjáð sig, síðast LIlja)
|
Hvað er títt?
05.03.2006 23:12 - Hjördís skrifar
Það er nú svosem ekki mikið. Helgin var notuð til afslöppunar frekar en mikils æsing og væbbluðumst við hjónakornin um á náttfötunum langt framundir kvöldmat báða dagana. Benjamín var frekar meyr sökum svefnleysis og almenns slappleika. Hann hafði þó orku í að skemmta okkur foreldrunum óendanlega með sínum skemmtilega karakter og óútreiknanlegum uppátækjum. Hann æfir sig á hverjum degi að labba til mömmu og pabba en leggur ekki í hann ef enginn er til að taka á móti og hvort sem er miklu fljótlegra að skríða á milli staða, enda engin venjuleg skriðtækni þar á ferð.
"Æxlið" á Dimmulimm virðist fara minnkandi með hverjum deginum og vonum við bara að það verði horfið á miðvikudaginn.
Nú tekur svo við stritvika á kafi í lærdómi fyrir komandi tvær vikur og Benjamín fer í sína daglegu rútínu sem vonandi verður til að fríska aðeins uppá skapið í honum greyinu. Hann svaf úti í dag og var hressari fyrir vikið svo fórum við í labbitúr í brjálæðislega vorveðrinu hérna sem var samt frekar kalt, en mjög fallegt og hann kom heim með rauðan nebba en fannst örugglega frábært að komast út og anda að sér fersku lofti. Það er ekki mikil nenna til að reyna að rifja upp meira, kveðjum í bili.
Skoða tjaningar.
(1 hefur tjáð sig, síðast Ösp)
|
TVÖ NÝ ALBÚM
04.03.2006 22:36 - Benjamín skrifar
Tvö ný albúm hafa litið dagsins ljós hér til hægri "Icelands Next Top Model" og "Matarskipti". Vegna fjölda fyrirspurna þá vil ég útskýra hvernig þið getið skoðað mig á sem bestan hátt. Þegar þið smellið á heitið á albúminu þá birtast margar litlar myndir ef þið smellið á fyrstu myndina birtist hún STÓR, og texti og dagsetning myndatöku fyrir neðan hana, svo þarf ekki alltaf að fara í litlu myndirnar aftur heldur er nóg að ýta á ör sem bendir áfram fyrir ofan stóru myndina (ein ör bendir til baka, svo er hús sem tekur mann aftur til litlu myndanna og ör áfram sem sýnir næstu mynd stóra...) með því að ýta alltaf á örina áfram, er hægt að skoða allar myndirnar stórar alveg til enda albúmsins, með texta og dagsetningu. Vonum að þetta komi einhverjum ótölvuvæddum skoðurum til hjálpar :)
Einnig eru nýjar fréttir hér að neðan, sem ég vil hvetja alla til að kynna sér !!
Skoða tjaningar.
(3 hafa tjáð sig, síðast amma Sigga)
|
Grunnreglur heimilisins !
04.03.2006 21:02 - Benjamín skrifar
Bara til að hafa það á hreinu, þá er ég búinn að setja niður nokkrar grunnreglur sem fara skal eftir þegar í heimsókn til mín er komið.
Þegar ég vakna á morgnana, þá skal framúr að leika eða þá að ég segi DATT (áður en ég sleppi) og læt síðan snuðið mitt detta út úr rúminu og niður á gólf þannig að viðkomandi viti að ekki sé möguleiki á því að ég sofni aftur.
Þegar er verið að mata mig, þá skal ég ætíð hafa skeið/gaffal í hönd annars hristi ég hausinn, klemmi saman varirnar og neita alfarið að borða það sem er verið að reyna að troða ofaní mig.
Ef verið er að mata mig, þá skal sá sem matarinn er einnig taka bita og þiggja úr minni hönd annars neita ég alfarið að borða það sem er verið er að reyna að troða ofaní mig.
Þegar ég er að fikta í einhverju sem ég má ekki svo sem raftækjunum við sjónvarpið eða matnum hennar Dimmulimm, þá skal minnast þess að ÉG MÁ ALLT og þar með fikta í viðkomandi "dóti" annars munu hljóðhimnur viðkomnadi bannara vera í hættu staddar.
Ég sýni listir mínar á mínum tíma þegar ég vil, en ekki eftir pöntunum frá mömmu og pabba eða öðrum vinum og vandamönnum.
Það er nú gott að þetta er allt komið á hreint og við getum öll farið að setja okkur inní nýju reglurnar og reynt að virða þær sem best við getum, mikið verður lífið einfalt þá.
En áfram skal haldið með smérið Karítas Embla stórvinkona mín er 2 ára í dag, til hamingju með daginn elsku vinkona. Svo á hann Ýmir frændi minn í Bandaríkjunum (sem ég ætla að hitta í sumar) stórafmæli í dag en hann er 18 ára, til hamingju með það frændi minn. Það er svei mér hvað ég er ótrúlega vinsæll þessa dagana og bara hver heimsóknin á fætur annari mér til heiðurs. Í gær kom nú hann Kjartan frændi minn í heimsókn og það gladdi mitt litla hjarta alveg óskaplega, hann er svo skemmtilegur. Síðan í dag komu Gulli og Hrund að heimsækja mig en Hrund er með lítinn marsstrák í mallanum sínum (eða allaveganna vona ég að það sé strákur, annars þarf ég að tuska stelpu til, og það er nú ekki gott). Þá fékk ég nú bara að leika lausum hala í allskonar góðgætiskræsingum sem voru á boðstólnum. Hrund sagði líka að ég væri svo góður strákur, þá ákvað ég nú að sýna aðeins hvað í mér býr og setti á mig ég á, ég vil og ég get grímuna, held samt að hún vilji alveg ennþá að bumban minnki núna í mars. Síðan þegar þau voru farin og ég úttroðinn af allskyns góðgæti þá kom hann Kjartan frændi AFTUR í heimsókn og að sjálfsögðu skemmtum við okkur konunglega. Svo eldaði ég þennan dýrindis mat úr vatni og kattarmat, held að Dimmalimm hafi hoppað hæð sína við að sjá "listugheitin" hjá mér. Þið getið séð kræsingarnar á myndunum hér til hliðar.
Annars held ég að ég sé allur að koma til. Þarf bara að hvíla mig vel sem gengur ekki sem best svona inni en fékk að fara út eftir hádegið að sofa og það var ÆÐI. Enda var alveg Mæjokra veður hérna hjá okkur með smá kulda í loftinu...mjög fínt svefnveður sko vonum að það haldi áfram, búið að vera svoleiðis í nokkra daga.
Ég held það sé ekki fleira í bili kæru vinir...minni enn og aftur á grunnreglurnar hér að ofan sem við skulum leggja okkur fram við að leggja á minnið og muna vel.
Skoða tjaningar.
(2 hafa tjáð sig, síðast Ágúst Örn)
|
BÍLL TIL SÖLU
03.03.2006 17:32 - Guðmundur Óli skrifar
Hinn gífurlega góði og fallegi bíll Renault Megane Classic árgerð 1998, keyrður 88.500 er til sölu á heimili mínu Staðarhrauni 54. Hann er skoðaður og nýbúið að skipta um bremsur. (Ný)sumar og (ný)nagladekk fylgja með. Mjög góður og þægilegur í alla staði. VERÐ...340.000
...LÁTIÐ BERAST...
Skoða tjaningar.
(3 hafa tjáð sig, síðast Hjördís)
|
Langa dimma vetur !
03.03.2006 09:40 - Hjördís skrifar
Nei kannski er það ekki alveg Bubbalagið sem á við hér, aðeins minna drama en fyrirsögnin segir til um en börnin okkar tvö eiga nú ekki sjö dagana sæla þessa dagana. Benjamín búinn að liggja í hitasótt síðan á þriðjudagskvöld sem hefur svo þróast útí hálsbólgu, útbrot og hóstann vinsæla sem virðist vera kominn aftur. Hann er hinsvegar ekki með streptakokka þannig að sem betur fer þarf hann ekki að taka pensillín í þetta skiptið en hins vegar fengum við lyfseðil uppá augnsmyrsl ef augun hans skyldu verða rauðari og bólgnari. Greyið litla sefur voða illa á næturna og illa og lítið í senn á daginn þó er hann sem betur fer orðinn hitalaus (síðan í gærmorgun). Guðmundur Óli hefur þurft að taka sér frí frá vinnu til að vera heima með litla englinum á meðan ég er í áheyrninni í skólanum. Hins vegar var Frímann veikur í dag þannig að ég er komin heim núna (9:40). Dimmalimm greyið litla á heldur ekki góðri heilsu að fagna, elsku kellingin er með eitthvað kýli sem stendur lengst út úr einum spenanum á henni, svona svipað og ef um borðtenniskúlu væri að ræða og helmingurinn stæði út. Við fórum að sjálfsögðu með hana til dýralæknisins sem sagði að kýli sem þessi væru yfirleitt merki um krabbameinsæxli en hún væri þá sá allra yngsti köttur sem hann viti til að hafi fengið krabbamein. Hann ákvað þó að gefa henni sýklalyf og ef kýlið verður ekki farið eftir viku (á miðvikudaginn næsta) þá þurfum við að fara með hana til baka og verður þá tekið sýni úr því og sent í krabbameinsrannsókn :(
En yfir í hressari sálmana, ef hressari má kalla. Allaveganna mér og örugglega mörgum öðrum til óendanlegrar ánægju var skilafrestur á 25% verkefninu í NON sem átti að vera Í KVÖLD framlengdur til 8.mars. Því þótti það alveg tilvalið í gær eftir skólann að ferðast í bæinn og heimsækja ömmu og afa en ekki eyða tímanum í einhverja vitleysu eins og að ná upp einhverju af því sem þarf að skila í vikunni... En það var voða gaman þar, afi Helgi var nýkominn af sjónum og að sjálfsögðu var okkur boðið í kvöldmat þar. En eftir að við vorum komin heim og vorum að hátta litla gaurinn tókum við eftir útbrotunum og hringdum í hjúkrunarfræðing sem heimtaði að við "renndum" við á læknavaktinni. Ég var nú ekki alveg að sjá nennuna í því, en það var víst ekki um mikið annað að ræða og til læknisins var haldið sem fann svo það að sem greinir frá hér að ofan. Þar með var dagurinn og kvöldið farið og ekki eftir öðru að bíða en að morgundagurinn (dagurinn í dag) liti dagsins ljós.
Skoða tjaningar.
(1 hefur tjáð sig, síðast Lilja frænka og frændurnir)
|
| |