Forsíða
Um okkur
Eldra efni


Vinir og ættingjar
Ari Gabríel
Birkir Örn
Burknavallakrúttin
Bína
Dagur og tvillarnir
Karen Hrund
Kjartan og Lovísa
Magnús Orri
Patrik og Ísabella
Sigga Hulda
Silja
Tvíburamamman
Fréttir í Febrúar 2010

Allt við það sama!
08.02.2010 22:19 - Hjördís skrifar
Hér gengur lífið bara sinn vanagang. Önnur fótboltaæfing var í dag hjá Benjamín, þessi var reyndar innanhúss. Þær eru úti á fimmtudögum og inni á mánudögum. Mér skilst að það hafi verið alveg jafn gaman á þessari æfingu og meira að segja hafi Benjamín skorað fullt af mörkum..."bara yfir markvörðinn og inn í markið"...Guðmundur fór með hann og Sverri vin hans á fótboltaæfinu. Sverri fannst mjög gaman líka alveg þangað til hann kom heim og sagði við mömmu sína "ég ætla ekki á morgun" ;)

Ísak er enn með leiðinda hósta en Benjamín er alveg orðinn fullfrískur og verður vonandi bara fram á unglingsárin (svona næstum allaveganna). Hóstinn er samt að verða frekar þreytandi hjá Ísak og mín einlæg ósk er sú að hann verði hættur fyrir helgi.

Nú er vetrarfríið eftir rétt rúma viku. Fimmtudag og föstudag, það eru víst engin fjölskyldufrí á planinu þannig að ætli þeim dögum verði ekki bara vel varið í afslöppun...eða eitthvað svoleiðis, fer allt eftir veðri og vindum.

Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast Lilja... aftur!)


Hvað á að gera ?
04.02.2010 17:56 - Guðmundur Óli skrifar
Nú ætla ég að koma lesendum síðunnar á óvart

Ég er KR-ingur

Ég veit að það vissu þetta ekki allir enda er ég einn
af þessum hóværu KR-ingum sem að skilja sjónarmið annarra
og er ekki mikið að flagga þessari staðreynd.

Málið er nefnilega að við vorum að koma heim, Benjamín var
á sinni fyrstu fótboltaæfingu hjá Fylki. Við fórum öll að horfa á hann
enda hefur maður bara góðar minningar frá þessum velli.
Benjamín fannst rosalega gaman og hlakkar til að fara aftur.
En hvað á ég að gera ? Þarf ég að fagna ef Fylkir skorar á móti KR í
framtíðinni ?
En ég hef komist að niðurstöðu
1. Ef Benjamín skorar þá fagna ég.
2. Ef einhver annar skorar þá brosi ég.
3. Ef KR skorar á móti Benjamín þá hvet ég hann.
4. Ef Benjamín verður góður í fótbolta þá sel ég hann í KR !!!!

Síðasti liðurinn er mikilvægastur og þannig mun mér takast að réttlæta þetta.
Ég er að búa til framtíðar KR-ing, sem verður með vitneskju frá óvininum.

Lengi lifi stórveldið

Skoða tjaningar. (1 hefur tjáð sig, síðast Lilja)


Myndir