Forsíða
Um okkur
Eldra efni


Vinir og ættingjar
Ari Gabríel
Birkir Örn
Burknavallakrúttin
Bína
Dagur og tvillarnir
Karen Hrund
Kjartan og Lovísa
Magnús Orri
Patrik og Ísabella
Sigga Hulda
Silja
Tvíburamamman
Fréttir í Febrúar 2008

Til hamingju með daginn!!
29.02.2008 09:07 - Hjördís skrifar
Allir sem eiga afmæli í dag eiga heillaóskir og allt gott skilið. Hvernig ætli sé að eiga afmælisdag á 4 ára fresti? Soldið spennó. Það verður líka frekar langt þangað til þessi dagsetning sést aftur hér á síðunni...ef hún verður þá lifandi ennþá eftir fjögur ár, sjáum nú bara til með það.

Þetta er búin að vera vika frá helvíti. Staðlota þri, mið og fim og þá fer alltaf allt í klessu með Benjamín því hann þarf að vera í pössun og vakna eldsnemma og þ.a.l. að sofna fyrr. Hann missir yfirleitt af heitum mat þessa daga og er orðinn önugur og "leiðinlegur" þegar þeir eru liðnir, en sem betur fer voru þetta bara þrír dagar núna en ekki fimm. Hann sofnaði alltaf á leiðinni heim í bílnum sem var á milli sex og hálf sjö og var því vaknaður fyrir 5 á morgnana okkur foreldrunum til ómældrar Óánægju...svo þegar maður er með gesti þá er náttúrulega ekkert farið að sofa eldsnemma þó svo að það hafi nú verið óvenju snemma og ekki vakað langt fram á nótt...þrátt fyrir það var ég hætt að geta haldið haus um fjögur leitið í gær og leit sjálfsagt út eins og hert fiskroð og mjög glöð að þessi lota var yfirstaðinn en jafn önug yfir því að uppgötva það að það var ennþá einn virkur dagur eftir af vikunni og þar af leiðandi vinna...hélt ég fengi bara hjartastopp á staðnum.

En þetta var nú ekki alslæmt þó...þrátt fyrir þunglyndiskast okkar Svövu á þriðjudaginn eftir að hafa hitt Hróbjart leiðsagnarkennara sem setti 15 eininga mastersritgerðarkröfu á 3 eininga GREINAGERÐINA okkar sem á að FYLGJA lokaverkefninu sjálfu. Við fórum og skoðuðum svipaðar greinagerðir og það var ekki lengi að lyftast á okkur brúnin og ekki mikið mál að gera betur en þær flestar. Við fórum því í bjartsýnisvímu á þriðjudagskvöldið og á miðvikudaginn þar til á leiðinni heim þegar við sátum fastar á Reykjanesbrautinni í klukkustund vegna bílslyss og áttuðum okkur á kostnaðinum við lokaverkefnið okkar...þá kom þunglyndið yfir aftur. Reyndum svo að finna fleiri lausnir á kostnaðarliðum verkefnisins og vorum orðnar ansi bjartsýnar rétt fyrir miðnætti á miðvikudaginn.

Á fimmtudaginn var svo búið að plana annan fund með Hróbjarti þar sem við ætluðum sko aldeilis að leyfa honum að heyra okkar álit á  hans kröfum og sýna honum hvernig þetta ætti að vera í raun og veru. Vorum búnar að búa til alls kyns útgáfur af ræðunni og skiptumst á að fara á klósettið með magapínu áður en hann kom á bókasafnið að hitta okkur. Hins vegar var hann þá búinn að tala við einhvern með reynslu af verkefnum sem þessum þar sem honum fannst við hegða okkur og líta út eins og löngu dauðar dragúldnar ýsur á skrifstofunni hans á þriðjudaginn þar sem við sátum með skelfingarsvip og sögðum varla orð þegar hann var búinn að tala. Við sögðum honum svo frá okkar hugmyndum sem hann var rosalega ánægður með og í skýjunum yfir því hvernig við ætluðum að taka á greinagerðinni. Við vorum svo æstar í að koma okkar skoðunum á framfæri og rugla saman öllum ræðunum sem við vorum búnar að skipuleggja að við þvöðruðum hvor upp í aðra en honum virtist bara líka það vel hvað við vorum áhugasamar og æstar í að skila verkefninu með slíkum metnaði...við værum svo sannarlega búnar að læra fræðin úr kennaraháskólanum og bara það sem við töluðum um á 5 mínútum væri meira en það sem margir lærðu á allri sinni skólagöngu í kennó (sem sást reyndar á mörgum greinagerðunum og B.Ed ritgerðunum)...ekki slæmt það frá Hróbjarti komið. Vorum þá aldrei í meiri  vímu heldur en þegar hann fór frá okkur og við með sælubros teygt aftan á hnakka og þar að auki búnar að fá tölvupóst frá námsgagnastofnun að þeir vildu gjarnan líta á lokaverkefnið okkar þegar það væri tilbúið!!!

Hittum svo Auði mágkonu Svövu (grafískur hönnuður) sem hjálpaði okkur að setja upp fyrir verkefnið og þróa hugmyndir okkar og eftir þetta vorum við svo hátt uppi að við hlógum bara þar til ég missti svo hausinn seinnipartinn og gat engan veginn haldið augunum opnum á leiðinni heim klukkan hálf átta í gærkvöldi!

Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast Skúlagötuliðið)


Snemmbúið afmæli og önnin er hálfnuð
25.02.2008 18:35 - Hjördís skrifar
Já þá eru þrjú verkefni af 6 búin:D...en inni í þessum þrem sem eftir eru er lokaverkefnið sjálft :S En þegar það er allt yfirstaðið er komið að ÚTSKRIFT....JIBBÍ!!!! og ekki nema 9 vikur eftir af skólanum og 10 vikur þangað til krílið litla á settan dag að líta dagsins ljós!!

Annars er búið að pakka miklu úr bílskúrnum um helgina, fann alls kyns fjársjóði sem ég hélt að væru týndir og tröllum gefnir, allavega varð rauðakrossfólkið afskaplega glatt að fá fjóra fulla svarta ruslapoka af arfagömlum fötum sem átti alltaf að kíkja aftur á og athuga hvort pössuðu...held að við látum þá draumóra bara enda hér með!! Ef einhver vill 90*200 cm springdýnurúm má hann líka koma og sækja það, annars endar það einnig í góðgerðamálum.

Haldið verður upp á afmæli Benjamíns heldur snemma þetta árið eða laugardaginn 8. mars, afmælisdaginn hans Jóns Fannars frænda...en hann er góður og lánar okkur daginn :D fær pylsu og köku í staðinn!! GETA EKKI ALLIR MÆTT?? Ástæðan er sú að helgin þar á eftir, þegar við ætluðum að halda partýið er síðasta helgin sem við höfum til að pakka niður, svo er páskahelgi  fyrir austan og helgin þar á eftir þrifa og flutningshelgi...en vona að flestir geti samt mætt!!

Skoða tjaningar. (1 hefur tjáð sig, síðast Lilja og allir)


"Svei mér alla daga"
23.02.2008 10:02 - Hjördís skrifar
Já það er ekki öll vitleysan eins en hún vellur upp úr þeim stutta þessa dagana. Í gærkvöldi var hann búinn að draga út borðið í miðjunni á lazyboy sófanum okkar og ætlaði nú aldeilis að fara að skemmta sér að klifra upp á það...þar til honum var tilkynnt að það væri ekki æskilegt (áður en hann var byrjaður að klifra)...honum þótti þetta nú frekar hallærislegt og sagðist bara hafa ætlað að hoppa yfir það (yeah right!!!). Hann klifraði þá bara upp á bakið á sófanum og sagðist bara ætla fara þannig yfir það (skríða sumsé á bakinu þar til hann væri kominn hinu megin við borðið) ég sagði þá að hann réði því bara..."svei mér alla daga" heyrist þá í honum...hahaha við náðum varla að halda niðri í okkur hlátrinum og hann sagði mér síðan að þetta væri vinsælt orðatitæki hjá henni "Andestínu" (Andrésínu) en Músahús Mikka er í miklu uppáhaldi í horfinu þessa dagana og gráhærðir foreldrar að verða frekar leiðir á því að horfa á sama þáttinn í um það bil 1000 sinn!!!

Annað sem er mjög vinsælt að segja núna er að maður eigi að gera hitt og þetta nú þegar. Um daginn sagði hann við mig "Viltu koma að pússla NÚ ÞEGAR", "komdu inn í herbergi NÚ ÞEGAR" og þetta er venjulega ekki sagt í hans blíðasta tón heldur sem skipun. í Gær sagði hann svo "FARÐU ÞANGAÐ NÚ ÞEGAR" og ég spurði "á ég að fara þangað á eftir", "nei, NÚ ÞEGAR", "og hvað er það? er það á eftir?", "Nei NÚNA STRAX!!!!". Hann vildi ekki segja mér hvaðan hann hefði þetta en þetta er allavega ekki mikið notað á þessu heimili, jah, svei mér alla daga!!

Skoða tjaningar. (1 hefur tjáð sig, síðast Lilja)


Hvað er klukkan eginlega?
21.02.2008 09:59 - Hjördís skrifar
það snýst allt um klukkur núna. Einhverntíma í haust var fyrsta spurning litla mannsins þegar hann vaknaði á morgnana "Hvað er klukkan eginlega?"...núna er helst bara pússlað klukkupúsl, borðað með klukkuskeiðum og vísifingurnir eru meira að segja klukkuvísar...allavega part úr degi. Ég held að stór veggklukka verði að hanga inn í nýja stóra herberginu í nýja stóra húsinu ;)

En eitt fyndið var nú að gerast rétt í þessu. Það var "skítaveður" hér í gær þannig að fötin voru ÓGEÐ þegar við komum heim úr leikskólanum. Öllur var því skellt í vél í gærkvöldi og þurrkarinn var í þessu að klára að þurrka kuldaskóna og úlpuna, regnbuxurnar og húfan voru hengdar til þerris á stólbak í gærkvöldi. Þegar ég var að taka úlpuna og skóna úr þurrkaranum áðan horfði hann á regnbuxurnar sínar og húfuna, síðan á það sem ég var að taka úr þurrkaranum og sagði svo "takk fyrir mamma" og labbaði svo til mín og knúsaði löppina á mér. Ég spurði þá "takk fyrir hvað ástin mín, hvað var ég að gera?". "Takk fyrir að þvo". Gott að maður getur glatt börnin sín með einhverju.

Skoða tjaningar. (4 hafa tjáð sig, síðast Lilja)


þrjú hjól undir bílnum...
15.02.2008 22:48 - Hjördís skrifar
Það er nú kannski ekki alveg svo slæmt en helvítis flutningabíllinn skemmdi meira en bara að brjóta smá af stuðaranum okkar. Guðmundur Óli fór með bílinn á verkstæði í dag til að athuga hvort ekki væri hægt að bræða bara bitann í aftur...neinei þá var þetta miklu meira mál plús það að kælirör og kælitankur fyrir aftan voru öll beygluð og skæld. Við hringdum því í tryggingarnar því þetta leit út fyrir að vera pakki fyrir nokkurhundruðþúsundkrónur...og þá er sjálfsábyrgðin 50.000 og af því við erum í F+ þá fáum við bílaleigubíl á meðan hann er í viðgerðinni og tryggingarnar hjá okkur hækka líklega ekki því við höfum verið tjónlaus svo lengi :D...en hvað þetta er samt ömurlegt fyrir eitthvað sem maður getur ekkert gert að og vörubíllinn var í fyrsta lagi að keyra langt fyrir ofan löglegan hraða, miklu hraðar en við og allt of hratt miðað við aðstæður, sendir svo þennan risa hnulla í bílinn hjá okkur...skrítið að það sé ekki hægt að láta neinn taka ábyrgð á því...ÓTRÚLEGA SVEKKJANDI!!!! En eins og áður segir þá erum við bara himinlifandi að hafa náð að halda bílnum á veginum og að bæði við og litlu gullmolarnir okkar tveir eru í lagi...annað má vera ónýtt fyrir mér, við fáum þó allavega nýjan stuðara :D:D

Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast skúlagötuliðið)


Vanagangur/Valentínusardagur
14.02.2008 18:24 - Hjördís skrifar
já já hér er bara allt við það sama...ein breyting þó....SNJÓRINN ER AÐ FARA...nú er búinn að vera hiti og rigningarsuddi í tvo daga og allur snjór er bara við það að hverfa nema þá stærstu skaflarnir, ég brosi bara og brosi.

Við mæðginin fórum í blóðprufu í morgun upp á heilsugæslu. Reyndar var það bara mamman sem þurfti í blóðprufuna en Benjamín kom með og sat í fanginu og horfði hugfanginn á þegar konan tók blóðið úr hendinni á mömmu...rosa spennó og ekkert smá flott belti sem hún notar til að binda um upphandlegginn...með skrímslateiknimyndum!!! Ekki laust við að Benjamín hafi langað örlítið í sína eigin blóðprufu en spurði þó ekki og þakkaði vel fyrir þegar við gengum út um hurðina :D

Nú er það að bíta mann í rassgatið að vilja ekki fara í próf í vor (skiljanlega) og verkefnin hlaðast upp í skólanum. Sé fram á ENDALAUS lærdómskvöld og helgar fram að 1. mars og svo verða vonandi 2-3 fríkvöld í viku eftir það þar til eftir páskafrí. En verð nú bara að segja að mikið lifandiósköp er ég fegin því að hafa tekið svona margar einingar síðustu tvær annir og geta því einungis verið í þremur námsekiðum núna...veit ekki hvernig ég væri ef þau væru fleiri á þessari önn...en lokaritgerðin okkar Svövu...eða réttarasagt lokaverkefnið okkar er nú kannski heldur viðameira en það ætti að vera, en er það ekki frekar metnaðurinn sem skiptir máli en að komast létt frá hlutunum!! Mikið hlakka ég til að sýna öllum lokaniðurstöðuna...ekki er það oft sem mig langar til að alþjóð sé að grúska í verkefnunum mínum.

Að lokum við ég segja "gleðilegan Valentínusardag" en honum er ekki fagnað sérstaklega á þessu heimili þetta árið vegna anna og annarra hugsana en hamingjan er mikil engu að síður.




Það er ég viss um...
12.02.2008 23:07 - Hjördís skrifar
...að allir héldu að ég væri farin af síðunni aftur...haha guess again!!!! Reyndar var mér í þessu hugsað til "allir hverjir?" ætli ég sé ekki með þeim fá ef ekki eina sem nenni að lesa aftur það sem ég skrifa haha...ótrúlegt hvað maður gleymir fljótt hvað maður skrifar og þarf að lesa það aftur.

Annars er nú ekkert merkilegt að frétta nema það að við komumst heim á sunnudaginn...til þess að finna það út reyndar að við komumst ekki inn í innkeyrsluna okkar og þurftum að loka götunni með bílunum við lóðamörk nágrannans...en það er allt í lagi þar sem við búum í botnlanga :)

Benjamín fékk svo að vera hjá afa og ömmu á skúlagötunni í gær vegna starfsdags á leikskólanum en þá þurfti ég að mæta en hann mátti ekki mæta svo sóttu amma Sigga og afi Albert hann á Skúlagötuna og komu svo í mat hingað. Svo komu Kjartan og Lovísa kærastan hans líka. Benjamín fékk ofvirkniskast og lék á alls oddi við misjafnar undirtektir. Amma og afi gistu svo hjá okkur og fóru ELDSNEMMA út á flugvöll í morgun á leiðinni út í lönd!!!!!!!!!!!!!!!!!

Eins gott að þau komi með stóran pakka til baka (eitthvað grunar mig að ég hafi búið of lengi með Guðmundi Óla því að þetta er eins og talað út úr hans munni...orðrétt)

Skoða tjaningar. (1 hefur tjáð sig, síðast Lilja)


Veðurteppt
09.02.2008 21:29 - Hjördís skrifar
Jújú, mikið rétt og veturinn laaaaaaaangt frá því að verða búinn...Erum veðurteppt í Reykjavík og verðum hér í nótt...fatalaus og allslaus :D eða næstum allavega!!




SELVAÐ 3
08.02.2008 22:48 - Hjördís skrifar
Þá er það gengið í gegn að við erum eigendur að Selvaði 3, íbúð 206 með risa bílastæði í bílskýli :) Guðmundur Óli náði semsagt að fara í vinnuna í morgun, alltof seint reyndar. Þeir sáu nú í gær í hvað stefndi í gærkvöldi og komu hér og mokuðu botnlangann í morgun en þá átti Guðmundur eftir að moka bílana út. Otti var síðan svo vingjarnlegur að toga bílana út úr stæðinu þegar Guðmundur var við það að gefast upp. Hann fór svo og skrifaði undir með umboð frá mér og borgaði fyrstu greiðsluna...

Við þurfum svo að fara í Tengi á morgun og velja okkur blöndunartæki í eldhús og bað og Einar Farestveit að velja ofn og helluborð. Síðan á mánudaginn þurfum við að fara í Brúnás og tala við þá um innréttingarnar í íbúðinni. Þegar veggirnir eru allir komnir upp fara þeir og mæla fyrir innréttingunum og taka þá 6-7 vikur til að vinna þær. Tengdó fóru reyndar þarna uppeftir í dag og sögðu að veggirnir væru komnir upp og við ætlum að kíkja á morgun og athuga hvort einhverjir séu í vinnu svo við getum kíkt inn og séð...síðast sáum við bara geyminn með engum veggjum :)

Þeir sem hafa áhuga geta smellt hér til að sjá herlegheitin...

Skoða tjaningar. (1 hefur tjáð sig, síðast Árdís)


Smá veður-update
07.02.2008 23:10 - Hjördís skrifar
Grafan var hér í fjóra tíma og þegar hún fór kom önnur grafa (fyrsta grafan sem reyndi við fjallið í dag) til að ýta restinni út í hraun...Núna fjórum tímum síðar er ekki útlit fyrir það að bílarnir fari nokkuð á morgun, snjórinn kominn upp fyrir þak á Mözdunni og skaflarnir orðnir það stórir fyrir aftan að það tæki Guðmund Óla marga klukkutíma að reyna að moka þá út...eins gott að fjallið var tekið í dag :):) Myndir hafa að sjálfsögðu verið teknar og eins og áður mjög ólíklegt að þær komist nokkurntíma hér inn!!!

Verð samt að segja að það er nú smá notaleg tilfinning að hugsa til þess að gröfur hafi eitt fimm tímum hér fyrir utan í dag...BARA FYRIR OKKUR!!!! án þess að við höfum sérstaklega beðið um það, þó svo að ljótu hugsanirnar hafi kannski verið heldur margar síðustu vikurnar...ætli þeir eigi eftir að sjá eftir þessu á morgun?




Grafan í fjallinu...
07.02.2008 17:46 - Hjördís skrifar
Já hér er búin að vera grafa uppi á snjófjallinu okkar í um það bil þrjár klukkustundir að moka snjónum út í hraun...enn er hálft fjallið eftir!!! Guðmundur Óli komst hvorki lönd né strönd í morgun þó svo að hafa mokað í tæpa klukkustund og bíllinn færðist einn meter og festist þar. Snjófjallið stækkaði um nokkra metra í nótt og eftir tveimur klukkustundum eftir mokstur Guðmundar Óla í morgun sást ekki að nokkur hefði verið úti um morguninn. Ég hef sjaldan hugsað jafn illa til snjósins eða óveðurs, bæjarins eða bara náttúruaflanna yfir höfuð, það sauð á mér!!!! Ég labbaði sumsé í vinnuna og hélt á Benjamín alla leið þar sem vindurinn og skafrenningurinn var svo mikill að greyið gat ekki staðið og ég hrundi næstum því í gröfina þegar við vorum komin á áfangastað búin klífa skafla og detta svona um það bil hundrað sinnum en alltaf náð jafnvæginu á undraverðan hátt...gamli góði himnafaðirinn eitthvað að bæta fyrir snjósyndir sínar. Gamli sleðinn hans Guðmundar er nefnilega í Reykjavík...alltaf skal það sem þarf að nota ekki vera til staðar þegar á þarf að halda. Fengum svo far langleiðina heim en löbbuðum svo blindandi síðustu nokkurhundruð metrana þar sem hörð snjókoman buldi á andlitinu á okkur, en mömmufang er ágætt í svoleiðis veðri. Við síðustu beygjuna blast svo við okkur grafan í fjallinu!!! Þetta er þriðja grafan sem þurfti að koma því hinar tvær komust ekki upp á fjallið, þessi tók svo hálftíma að koma sér upp:) Eg get ekki annað en fagnað þessu en kvörtunardeildin fær samt sinn skref í færslu dagsins...því hvar voru þessar gröfur síðasta mánuðinn, það er búið að vera eilífðar vandamál fyrir okkur að komast út úr þessu FÉVÍTANS bílastæði alveg síðan 14. janúar!! Höfum þurft að moka og moka á meðan aðrir keyra um bæinn eins og fínar frúr og herrar!!!og alltaf er bara mokað meiri og meiri snjó í fjallið sem nær alltaf lengra og lengra inn í götuna og bílastæðið okkar og lokar þar með á bílana okkar...ég var farin að halda að Grindavíkurbæ væri virkilega illa við okkur!!!

EN KVÖRTUNARDEILDINNI ER LOKAÐ FRÁ OG MEÐ NÚNA!!!...Sótti um leikskólapláss fyrir Benjamín á Rauðhóli í Norðlingaholtinu um daginn. Hann kemst samt ekki á biðlista fyrr en við flytjum lögheimilið, ætlum að gera það í byrjun mars svo okkur verði nú ekki sparkað úr leikskólanum hér. Það verður ágætis upplifun í lok mars að fá enga reikninga inn um bréfalúguna...það geta bara aðrir séð um þá :):):) Það er samt ekki gert ráð fyrir því að Benjamín fái inn á leikskólann fyrr en með haustinu þannig að við verðum tvö heima þar til lillebebe fæðist og verðum þá bara þrjú heima að dunda okkur þangað til Benjamín fær inn á leikskólann...ég sótti um tíma frá 8-14 fyrir hann...sjáum til hvort það verður kannski 9-13 eða 8-13...það kemur allt í ljós...örugglega einfaldara að fá að minnka tímann en að auka við hann.

Tókum myndir áðan af gröfunni upp á fjallinu og þær koma örugglega aldrei hér inn en við munum allavega eiga þær í tölvunni :):):) Myndatöku hefur farið virkilega aftur síðasta árið, suma mánuði eru kannski teknar 5 myndir en þegar við erum virkilega dugleg eru það kannski 12 myndir!!! Það er bara frekar vont þegar annað hjónið þarf alltaf að sjá um myndatökuna og að muna eftir henni (hinthint)...og hitt hjónið nennir aldrei að gera neitt í þeim málum...nefnum engin nöfn þó...







Og það snjóar enn!!!
06.02.2008 22:07 - Hjördís skrifar
Það hefur sjálfsagt ekki farið fram hjá neinum að um miðjan Janúarmánuð snjóaði allmikið hér í Grindavíkinni, jæja, það er ennþá allt fullt af snjó og snjóar enn. Ég er komin með algjört ógeð að geta varla keyrt inn og út úr innkeyrslunni okkar fyrir himinháum snjófjöllum sem gröfur og ýtur bæjarins hafa verið svo vingjarnlegar að ýta í innkeyrsluna hjá okkur. Ég er komin með ógeð af því að þurfa að skafa á hverjum degi og aftur þegar haldið er heim úr vinnunni. Nú má koma vor með sól í heiði og blóm í haga...og HANANÚ!!!

En nóg frá kvart-og-kvein-deildinni í dag. Öskudagurinn var nú aldeilis skemmtilegur og viðburðaríkur. Hann byrjaði nú þannig að ég þurfti hálfpartinn að vekja Benjamín í morgun rétt fyrir HÁLF TÍU með ljósum og skarkala (svona "óvart"-vakning) því við áttum að mæta á grímuball í leikskólann kl. 10:00. Hann var búinn að ákveða að vera spiderman í dag þar sem hann fékk æðislegan spidermanbúning frá Billu þegar hún kom frá Danmörku í haust. En þegar átti að klæða sig í búninginn var minns ekki sá hressasti og neitaði alfarið að fara nokkurnveginn öðruvísi en í sínum venjulegu fötum. Hann vildi heldur ekki sjá tígrisdýrabúninginn sinn sem hann er búinn að eiga í tæp tvö ár..ennþá í pakkningunni....þetta er nefnilega fyrsti öskudagurinn sem Benjamín tekur þátt í. Hann vældi og grenjaði og það voru grömpý mæðgin sem lögðu af stað á grímuball rétt fyrir tíu í morgun...í engum grímubúningi og bæði með rjúkandi eyru. Þegar við komum svo á grímuballið sátu allir krakkarnir á leikskólanum í hring með kennurunum...allir í búningum eða náttfötum. Benjamín varð þá frekar vandræðalegur og vildi ekkert fara inn í hópinn, en mamma grömpýness hafði nú haft smá hita í hjartanu sínu og hafði tekið bæði spiderman og tígrisdýrið með til vonar og vara...því þetta vissi hún að myndi gerast. Við fórum því afsíðis og ég ætlaði að bjóða honum spiderman, þá var hann allt í einu úr sögunni og tígrisdýrið varð fyrir valinu. Núna 12 tímum seinna fór svo litli maðurinn úr búningnum og að sofa...Búinn að vera í honum Í ALLAN DAG!!!!!
Kötturinn var að sjálfsögðu sleginn úr "tunnunni" (kassanum) og í honum leyndust litlir plastpokar með snakki í sem voru mjög vinsælir. Svo var dagurinn að mestu leiti venjulegur fyrir utan búningafans.

Eftir vinnu í dag skunduðum við Benjamín svo í Hafnarfjörðinn til að hitta "pabba" á fasteignasölunni og skrifa undir sölusamninginn á húsinu okkar...og við eignuðumst HELLINGS pening...sem varir þó stutt...byrjaði á því áður en við fengum peninginn að hann minnkaði um rúma hálfa milljón vegna sölukostnaðar og umsýslugjalds og ég veit ekki hvers og hvers... Svo á morgun rýrnar ennþá meira þegar við þurfum að skrifa undir kaupsamninginn á Selvaðinu og borga þar út bæði útborgun og lántökukostnað...en eftir verður mikil ánægja með það að vera að flytja úr Grindavíkinni og eignast aftur íbúð í Reykjavík...sem verður ekki metið til fjár ef satt skal segja. Við ætlum líka að reyna að koma okkur út fyrir 1. apríl þannig að helgina eftir páska væru extra hendur við þrif vel þegnar...:):)...og afhending á sunnudeginum. Ætli ég nýti svo ekki tímann fram til 8. apríl að klára lokaverkefnið (sem á að skilast þá) og skrepp svo kannski bara norður eða eitthvað að hitta ömmu í Mývó áður en allt annað skellur á...fer allt eftir norðanáttinni :) En er farin að sakna Mývatnssveitarinnar, allt of lítið að komast þangað bara einu sinni á ári.





Brandari eða fréttir???
05.02.2008 08:23 - Hjördís skrifar
Mér var góðfúslega bent á það að janúarmánuður hafi verið ansi fréttnæmur hjá fjölskyldunni í Grindavík. Þá rifjaðist líka upp fyrir mér af hverju það frestaðist alltaf dag frá degi að skrifa á blessaða síðuna, ég var alltaf að bíða eftir málalokum...sem vill svo til að eru gengin í gegn!!! Eins og margir kannast nú við fréttist ekki oft hvað við fjölskyldan erum að bauka fyrr en við erum búin að gera það eða mjög stutt í það!!! Veit ekki hvað veldur þessu en einhvernveginn finnst mér óþægilegt að tala um hluti sem eru ekki tryggðir og gætu tekið langan tíma og allir fylgjast spenntir með og þarf svo að svara endalausum spurningum á hverjum degi, svo verður kannski ekki neitt úr neinu...not my style...haha. En ég held að það sé best að hafa þetta í punktaformi til þess að einhver heildarmynd náist á það, þeir sem þekkja til vita það að ef of mikið þarf að komast til skila í einu gæti það allt farið í einn hrærigraut. Margir vita nú margt ef þessu en hinir geta þá skemmt sér.

  • Í byrjun mánaðarins kom tilboð í húsið okkar, sem var búið að vera á sölu frá því um miðjan október en við lugum því að öllum að það væri bara til þess að klára samning við fasteignasöluna og það væri ekkert á döfinni að selja húsið :)...kannast einhver við það?? Sorry, það hefði geta tekið ár að selja og þá hefðum við verið orðin niðurbrotin að þurfa alltaf að svara sömu spurningunum "nei, það hefur ekkert komið neitt tilboð", "það eru nokkrir búnir að skoða" blablabla. Það voru reyndar tilboð frá tveimur aðilum en við gerðum móttilboð við öðru boðinu og fengum annað á móti, tókum því og þar með var húsið okkar SELT!!!!!!!!!!!!! og við verðum flutt 15. apríl frá Grindavíkurbæ...JIBBÍ

  • Við fórum þá á stúfana að leita okkur að íbúð á Völlunum í Hafnarfirði. Við skoðuðum nokkrar íbúðir og gjörsamlega féllum fyrir einni þeirra. Þó voru lánin ekki mjög hagstæð á henni og afborgun heldur mikil á mánuði. Við gerðum tilboð tveimur milljónum undir ásettu verði svo við gætum kannski borgað eitthvað af lánunum upp og greiðslubyrgðin orðið lægri. Einnig sáum við fram á það að við þyrftum að borga allan okkar pening á milli sem okkur þótti ekki góður kostur þegar ég er á leið í barneignarfrí og afborganir himinháar á mánuði. Við fórum því að leita fanga víðar og sáum eina frábæra íbúð í Norðlingaholtinu sem er ennþá fokheld reyndar en á að afhendast í maí í okkar stigagangi. Eins og er eru þó aðeins 5 íbúðir af 12 seldar þannig að allt púður verður lagt í þær íbúðir sem eru seldar. Við ætlum aðeins að blikka þá með bumbuna út í loftið og sjá hvort mögulega sé hægt að vinna vel í okkar íbúð. Í millitíðinni sem verður væntanlega einhver frá 15. apríl og þar til við getum flutt inn fáum við að vera á Bræðraborgarstígnum þannig að enginn þarf að hafa áhyggjur af okkur...vonandi ákveður litli maðurinn bara að halda sig inni í hlýjunni hjá mömmu-vömb þar til við fáum afhent en ef ekki er líklegt að við leggjum land undir fót og fáum að vera hjá mömmu gömlu og pabba gamla þar til ástandið batnar :):)...ekki svo að skilja að ástandið sé eitthvað annarlegt!!!

  • Við skiptum um bíl líka!!! Við skiptum á stóra Fordinum okkar og fengum Mözdu 6 í staðinn. Hann er mjög fínn og ég verð að viðurkenna það að ég var farin að hugsa til þess með hrylling að þurfa kannski að brölta á stóra skrímslinu í Reykjavík...NEI TAKK. Reyndar á laugardaginn síðasta mættum við vörubíl sem keyrði ofaná steinhnullung og ÞRYKKTI honum í bílinn okkar...Guðmundur átti í mesta basli með að halda bílnum á veginum en SEM BETUR FER þá fór steinninn í stuðarann en ekki rúðuna eða húddið eða ljósin, en stuðarinn brotnaði...Þannig að flotti bíllinn okkar er nú eins og í hann vanti nokkrar tennur, vonandi er hægt að bræða þetta bara saman þá verður hann eins og nýr aftur...eða 2003 árgerð svo við séum nákvæmari!!!

  • Guðmundur Óli fékk nýja vinnu í mánuðinum. Það er búið að böggast í honum frá því í haust að koma og verða verkstjóri á gamla vinnustaðnum sínum á trésmíðaverkstæði Húsasmiðjunnar. Þetta varð því kjörið tækifæri þegar ljóst var að við værum að flytja í bæinn. Hann átti að byrja 1. febrúar en byrjaði viku fyrr enda allt í klessu eftir að hann fór þaðan síðasta sumar...það er svo ánægjulegt að vera ómissandi. Hann keyrir því á milli núna, þarf að leggja af stað fyrir 7 og er kominn heim kl 7...en við sættum okkur við það í rúma tvo mánuði, enda tilhlökkunin mikil að komast í Norðlingaholtið að allt annað verður "PÍS OF KEIK"

  • Ég sagði upp bæði vinnunni minni og leikskólaplássinu hans Benjamíns frá og með 1. apríl (ætli ég mæti svo ekki bara í vinnuna og segist bara hafa verið að djóka). Ég tími ekki að borga fullan mánuð fyrir Benjamín þegar hann mun einungis nota helminginn af honum. Þannig að við notum þessar tvær vikur í að leggja lokahönd á lokaverkefnið í kennaraháskólanum og pakka niður í kassa.

    Þetta er nú það sem ég held að hafi verið helst í fréttum í janúar, kannski verði tekið á febrúarfréttunum í aðeins fleiri stigum...en þangað til næst...bið ég ykkur um að lesa þetta bara aftur :)

    Skoða tjaningar. (3 hafa tjáð sig, síðast Elva)


  • Hvað er til ráða??
    04.02.2008 19:51 - Hjördís skrifar
    Þegar andleysið er svo mikið að manni dettur ekkert í hug. Hef reyndar ætlað að skrifa hvern einasta dag af nýja árinu...byrjaði það annars ekki í fyrradag?...en þegar síðan er orðin auð af því að það er svo langt síðan það var skrifað síðast þá verður nú aðeins að sparka í sjálfs rassgat. Læt þetta duga í bili, hugmyndir af skrifum vel þegnar!!

    Skoða tjaningar. (1 hefur tjáð sig, síðast Lilja)


    Myndir