Forsíða
Um okkur
Eldra efni


Vinir og ættingjar
Ari Gabríel
Birkir Örn
Burknavallakrúttin
Bína
Dagur og tvillarnir
Karen Hrund
Kjartan og Lovísa
Magnús Orri
Patrik og Ísabella
Sigga Hulda
Silja
Tvíburamamman
Fréttir í Febrúar 2007

Hvar er tíminn?
15.02.2007 23:50 - Hjördís skrifar
Ég hef bara aldrei vitað annað eins. Vakna kl. 6:45 og snúsað nokkrum sinnum. Sprottið á fætur því klukkan er orðin of margt, fötin sett á, flest öfug vegna þreytu og sjónleysis svona snemma á morgnana, þeyst yfir á Reyðarfjörð og inn á kennarastofu kl. 7:45. Allt dótið sem þarf að nota yfir daginn gripið og þotið inn í stofu og tekið á móti 20 börnum kl. 8:00......Allt í einu er klukkan orðin 17:00 og ennþá eftir að klára verkefni dagsins og skipuleggja fyrir morgundaginn. Gengið út um skóladyrnar um 18:40 og komin í heimahús kl. 19:00. Nesti gripið á leiðinni í næstu sjoppu og étið í bílnum. Byrjað að skipuleggja og læra og lært vel framyfir miðnætti. Klukkan stillt, sofnað og við tekur nýr dagur sem er NÁKVÆMLEGA EINS....nánari útskýringa þarf ekki við enda enginn tími :p

Óvenjulegar magaólgur eru í gangi núna, sennilega vegna óhóflegs lakkrísbrjóstsykuráts á meðan á allri skipulagningu og undirbúningsvinnu stendur, þetta verður heldur ekki útskýrt nánar.

En tíminn hleypur áfram og kallarnir mínir leggja í hann í hádeginu á morgun og ég get varla beðið eftir að hitta þá. Nú er klukkan orðin miðnætti einu sinni enn og hægt að girða neðri augnlokin ofan í brók. Síjúleiter!



Skoða tjaningar. (6 hafa tjáð sig, síðast Silja frænka...)


Austurland kallar
12.02.2007 23:56 - Hjördís skrifar
Þá er ég komin austur á land og það er náttúrulega yndislegt fyrir ytan það að mig vantar að sjálfsögðu kallana mína. Við erum byrjaðar að kenna og alveg ÓGURLEGA mikið að gera þessa dagana og kvöldin. Jæja bless

Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast amma gerða)


Svefnlausi dagurinn
07.02.2007 21:59 - Benjamín skrifar
Suma daga langar mig ekkert að fara að sofa og dagurinn í dag var einn af þeim. Þar sem ég átti að fara að sofa um leið og mamma fór í vinnuna þá gat mamma ekki pínt mig til að sofa úti í vagninum mínum því þá hefði ég vakið alla hina krakkana í vögnunum sínum. Ég fékk því bara að fara inn og fór í leikfimi hjá Guðlaugu, það er ÓTRÚLEGA SKEMMTILEGT. Svo vildi ég bara ekkert sofna og var alveg búinn á því þegar við mamma komum heim rúmlega fimm. Ég sýndi mínar bestu þolinmæðishliðar og ekkert fór í taugarnar á mér, var sallarólegur þegar skáparnir opnuðust ekki þegar ég vildi að þeir opnuðust og ljúfur sem lamb þegar mamma skyldi mig ekki í köstunum mínum...úps talaði af mér... þetta var sumsé eins og mig langaði að vera seinnipartinn en bara gat það ekki því ég var svo þreyttur. Sofnaði svo klukkan hálf átta á leiðinni inn í rúm, búinn að vaka í 12 klukkutíma :) Ég er að spá í að gera þetta ekkert mikið oftar í nánustu framtíð.

Leikskólinn minn er eginlega tómur, vinir mínir eru bara veikir og veikir og veikir og bara rólegheit og næs með öllum leikskólakennurunum. T.d. voru 6 börn á deildinni minni á föstudaginn síðasta eftir hádegið þar sem venjulega eru 18 börn og í dag voru 7 börn á deildinni hennar mömmu og þrír kennarar...nóg að gera þar ;)

Nú kann ég tvo liti...appelsínugulan sem var eitt af fyrstu orðunum mínum og svo er blár kominn í "hópinn" næst verður einhver rosa flottur litur tekinn fyrir...er ennþá að velja mér hvaða litur er flottastur. Appelsínugulur er þó í langmestu uppáhaldi og tótallý flottasti litur EVER enda meika ég sjor að allir viti þegar einhver appelsínugulur litur er í augsýn...;)

Frá mömmu: Ég var að skrifa bréf um daginn til útlanda og var að tala um Benjamín (að sjálfsögðu) og þá fór ég að rifja upp fyrstu orðin hans og þ.h. það sem mér fannst fyndnast af öllu er að fyrsta orðin hans fyrir utan mamma og pabbi, bless og hæ og að sjálfsögðu hið margfræga datt...og þessi smáorð öll var Krókódíll sem kom áður en hann varð 1 og 1/2 árs útaf lagi sem var alltaf sungið á leikskólanum, hann labbaði um allan daginn og sagði krókódíll, krókódíll, krókódill, þar á eftir komu appelsínur og appelsínugulur á svipuðum tíma því appelsínur voru UPPÁHALDIÐ í ávaxtastundunum. Gaman að rifja svona upp. Annað sem ég veit ekki hvort mér tókst einhverntíma að koma á prent hér er að ef ég tala frá deginum í dag þá hefur hann í nokkuð langan tíma...alveg frá því ég var að vinna allan daginn sumsé 17-19 mánaða sagt þegar einhver hnerrar "hálpi þér" þetta er mest fyndið í heimi...ég fattaði fyrst ekkert hvað hann var alltaf að röfla þegar ég hnerraði því ég var alltaf að jafna mig svo mikið eftir hnerrann...já það er gott að hnerra...síðan heyrði ég þetta þegar hann sagði þetta við eitthvað barn á leikskólanum, hélt náttúrulega að ég yrði ekki eldri og hann segir þetta ennþá alltaf þegar ég hnerra...eina tveggja orða setningin sem hann segir og búin að nota hana í marga mánuði...hahaha tótallý vörþ it!... Margt sem rifjast upp þegar farið er að grafast fyrir í heilabúinu en núna líður vonandi ekki svo langt á milli að það þurfi að fletta upp í heilanum heldur bara hér á síðunni ;) líst vel á það!

Skoða tjaningar. (4 hafa tjáð sig, síðast BILLA ÓSK VÍÐIR ÓLI OG TERESA)


Áminning fyrir framtíðina!!!
04.02.2007 20:18 - Hjördís skrifar
Núna er ég alltaf að læra og Benjamín finnst það afar áhugavert og er alltaf að koma inn í herbergi til mín og athuga hvað ég sé nú að bardúsa. Þá segi ég alltaf að mamma sé að læra og svo kemur pabbi og segir að hann eigi að koma að leika því mamma sé að læra. Í morgun ætluðu þeir feðgar svo að fara út á meðan ég var að læra og Benjamín kom inn í herbergi til mín til að segja mér það, en þá snérist honum skyndilega hugur og hann vildi bara læra (æja)...Hann benti á mömmu sína og sagði "æja" og síðan spurði ég hvað hann ætlaði að gera, "æja" sagði hann og kom alla leið inn í herbergið þá sagði pabbi "nei ætlum við ekki að fara út", "nei, æja" þá sagði mamma "nei, þú ætlar út með pabba" "NEI, ÆJA"...að lokum sagðu pabbinn "jæja góði, ég skal minna þig á þetta í framtíðinni þegar þessu verður öfugt farið" sumsé þegar hann vill fara út en á að læra...þetta er nú komið á prent þannig að það gleymist ekki!!!

Úff Benjamín er með stærstu kúlu í heimi á enninu. Hann var náttúrulega að hjálpa til við matargerðina áðan eins og venjulega og var svo á leið niður af stólnum sínum, náði að krækja sig einhvernveginn fastan í stólinn og datt killiflatur BEINT á ennið. Hann fann svo mikið til í henni og var alltaf að benda á hana og væla, fékk stíl og Bubba byggi og þá var allt búið og batnað...

Skoða tjaningar. (4 hafa tjáð sig, síðast amma GERÐA afi HELGI og hinir)


Bubbi byggir...best að laga það!
02.02.2007 11:23 - Benjamín skrifar
Ég fékk að labba á bókasafnið með mömmu minni í fyrradag og það var svo vont veður að við urðum rennandi blaut og köld. Ég var að sjálfsögðu dúðaður í nýju Osh-Kosh úlpuna mína sem ég fékk í jólagjöf og var ekkert smá flottur í henni, og hún var rosa hlý. Mér fannst nú ekkert sérstakt á þessu bókasafni, barnadeildin var ekkert smá smábarnaleg, bara einhverjir bangsar út um allt. Ég valdi mér tvær Syrpur og settist og las þær. Síðan voru þarna fullt af stólum út um allt safn, ég klifraði aðeins upp í þá og skoðaði kilina á bókunum í efstu hillunum. Ég varð svo þyrstur af þessu öllu saman að ég varð að fá vatn að drekka, það var kanna með vatni í og glös í glugganum og mamma gaf mér vatn í BLÁTT glas, ég varð nú ekki ánægður með það og hellti því yfir í appelsínugula glasið. Síðan fór ég í gegnum glasabunkann og sorteraði appelsínugulu glösin úr og vildi hella vatni í þau öll...en það mátti ég víst ekki! Rak ég þá augun í þessa fínu vídeospóluhillu og byrjaði að endurraða myndunum þar en einhverra hluta vegna enduðu þær alltaf á gólfinu, þannig að á endanum þá löbbuðum við mamma bara heim aftur en tveimur Bubba Byggi bókum ríkari, því að sjálfsögðu fékk ég að taka tvær bækur á bókasafninu.

Þá mundi mamma líka eftir því að við eigum einn þátt með Bybba Byggi á spilaranum okkar þannig að núna er búið að horfa á sama Bubba Byggi þáttinn svona u.þ.b. 20 sinnum með ENGUM ýkjum. Mamma er nú komin með eitthvað leið á þættinum en mér finnst hann æðislegur og vil bara horfa á "Bebbe Biddi" og helst allan daginn aftur og aftur og aftur og aftur, en það má víst ekki!

Skoða tjaningar. (5 hafa tjáð sig, síðast Lilja frænka)


Myndir