Forsíða
Um okkur
Eldra efni


Vinir og ættingjar
Ari Gabríel
Birkir Örn
Burknavallakrúttin
Bína
Dagur og tvillarnir
Karen Hrund
Kjartan og Lovísa
Magnús Orri
Patrik og Ísabella
Sigga Hulda
Silja
Tvíburamamman
Fréttir í Desember 2008

GLEÐILEG JÓL
24.12.2008 17:55 - Benjamín skrifar
Elsku hjartans ættingjar og vinir, Gleðileg jól.

Nú þegar jólin eru að ganga í garð rétt að verða sex er steikin komin á borðið og við bíðum eftir að kirkjuklukkurnar hringi í útvarpinu.






Gullmolar dagsins...
21.12.2008 23:20 - Hjördís skrifar
Foreldrar virðast hafa óþrjótandi áhuga á því að tala um börnin sín og segja allskyns frá afrekum og uppátækjum þeirra..............þar erum við engin undanteknin og eftirfarandi eru því nokkur af mööörgum gullkornum dagsins.

Gull 1: Bleikur var lengi vel mikið í uppáhaldi hjá eldri syninum og flest átti að vera bleikt ef það var val. T.d. valdi hann sér í búð einni bleikt buff með blómamyndum. Rör þurftu alltaf að vera bleik og bleikt kakó var í miklu uppáhaldi. Þetta hefur breyst mikið og nú er bleikur bara fyrir stelpur og nánast á bannlista, hann segir oft á dag upp úr eins manns hljóði "ég elska bara bláan". Í dag var hann svo að drekka og vildi fá rör í glasið sitt, ég tók grænt rör úr kassanum og ætlaði að láta hann fá. Þá var minn fljótur að stoppa móður sína og sagði..."nei bleikt rör" ég horfði á hann og sagði "bleikt rör?" og bjó mig undir að fara að skipta græna rörinu út fyrir bleikt rör, "já, það breytist ekkert" heyrðist í honum, "það breytist ekkert hvernig maður fær sér í glasið"...

...þetta var allavega drepfyndið á staðnum og þá sérstaklega fyrir móðurina sem finnst hún eiga mesta gullmolann í heiminum (og tvo þannig!!!)

Gull 2: Við tókum upp á því í kvöld að taka jólatréið inn af svölunum og ákváðum bara að skreyta það í leiðinni og eiga bara kósýkvöld næstu tvö kvöld. Benjamín fékk að sjálfsögðu að taka þátt í skreytingunum og mikið magn skreytingana á sömu greinum jólatésins. Til að mynda eru 5 kúlur á nákvæmlega sömu hliðargrein því "það voru allir í heimsókn hjá hinni". Við eigum voða sætar endur allskonar á litinn, ég var búin að hengja eina (bláa) ofarlega á tréið, Benjamín var eitthvað að dunda sér með hinar neðst á tréinu. Allt í einu æpir hann upp fyrir sig "nei, bláa má ekki vera þarna, bláa verður að koma hingað". Ég leit á skreytinguna hans og sá allar hinar endurnar í einum hnapp neðarlega á tréinu...næstum alveg niðri við gólfið. Ég vildi nú ekki samþykkja það að bláa þyrfti líka að fara þangað og sagði að það væri nú allt í lagi að ein önd væri ofar á tréinu, þá sagði hann með mikilli vorkunn í röddinni "Nei, þá verður hún leið", svo hann fékk öndina og nú er hún í góðum félagskap neðst á tréinu...ásamt mörgum öðrum öndum og u.þ.b. 25 kúlum!

Gull 3: Þetta gull er samt meira svona smásaga...Gluggagægir gaf Benjamín jólatrésskraut í skóinn, voða flottan jólasvein í bíl og tvær pínulitlar kúlur með snjó á. Hann var ofboðslega ánægður með skrautið og gat varla beðið eftir að hengja það á jólatréið. Hins vegar á meðan pabbinn var að vesenast með að sjóða tréið og koma því fyrir í fætinum og klippa netið utan af var minn tilbúinn með skrautið, búinn að opna pakkann og beið spenntur eftir því að geta hengt það á tréið. En því miður datt jólasveinninn í gólfið sem var alveg óskaplega leiðinlegt og sorglegt. Hins vegar var mikil bót í máli að bróðir gluggagægis hann gáttaþefur átti að koma í nótt og því væri kannski hægt að skrifa honum bréf og athuga hvort hann lumaði á jólaskrauti í pokanum sínum. Honum var skrifað ægilega fallegt kort með mynd af þeim bræðrum á og vinsamlegast beðinn um að athuga vel í pokann sinn því þetta leiðinda slys hefði átt sér stað fyrr í kvöld. Ef mér skjátlast ekki held ég að hann sé þegar farinn framhjá og jólaskraut sé í litla skónum í glugganum.

Gull 4: Meira um jólatrésskreytingar. Benjamín á sjóræningjalepp úr harðplasti með rauðri mjórri teygju. Þetta var fyrsta "jólaskrautið" til að prýða jólatréið þetta árið. Eftir að hann var búinn að koma því pent fyrir á einni greinninni dæsti hann og sagði "þetta passar bara akkúrat þarna". Móðirin var ekki alveg jafn ánægð með þetta nýstárlega jólaskraut og það fékk að hverfa þegar aðrir gleymdu sér í anda og kúluskreytingum.

Jæja, látum þetta nægja af þeim eldri í bili.

Ísak er allur að skríða saman og pensillínið gerir kraftaverk þó ekki séu búnir margir skammtar. Hann svaf svo til alla síðustu nótt og vonandi er þetta bara að skána. Þeir hósta reyndar báðir mjög mikið og sárt.



Skoða tjaningar. (1 hefur tjáð sig, síðast Anna Karen)


Ný tölva komin í hús!
20.12.2008 13:41 - Hjördís skrifar
Fyrir u.þ.b. 5 mínútum kom nýja tölvan okkar í hús og ÞVÍLÍKUR MUNUR. Gleðileg jól til ykkar allra og til hamingju með nýju tölvuna!

En þetta hafa nú ekki verið viðburðalausir dagar hjá fjölskyldunni, ónei. Fór með Benjamín til læknis á þriðjudagsmorguninn og þar var hann kominn með barkabólgu sem varð svo að hita og óþrjótandi hósta. Ísak fylgdi í kjölfarið en hætti okkur að lítast á blikuna í nótt þegar Ísak grét alla nóttina, hóstaði og gat varla andað, kominn með 40 stiga hita. Við fórum á barnalæknavaktina og sagði læknirinn að hann væri kominn með hinn heldur óskemmtilega RS-vírus og eyrnabólgu sem fylgir honum víst oft. Fengum svo pensillín og númerið hjá lækninum ef honum versnar eitthvað.

Húsmóðirin er komin í hið langþráða jólafrí en kallinn á nú eftir að vinna mánudag og þriðjudag. Jólakortin er komin stutt á leið og biðjum við fólk að sýna okkur skilning vegna viðburðaríkrar viku auk þess sem við höfum verið tölvulaus í 2 vikur...maður getur nú ekki skrifað jólakort tölvulaus...eða hvað?

Ég var svo glöð að komast á netið aftur að það kemst eiginlega ekkert fyrir í hausnum á mér annað en gleði og hamingja yfir nýju tölvunni og því man ég ekki meira, á eflaust eftir að líta inn á eftir og skrifa meira...æðislegt lyklaborð maður, þar sem allir stafir koma á skjáinn þegar maður ýtir á takkann í fyrsta sinn og án þess að fingurbrjóta sig næstum við það.






Jólin, jólin, jólin koma brátt...
18.12.2008 09:02 - Benjamín skrifar
Og enn er fjölskyldan tölvulaus og því vinnutíminn notaður í allskyns óþarfa eins og síðuskrif en þetta verður voða stutt að sinni.

Mikið að gera, pakkar fara út á land í dag og á morgun en aðrir pakkar liggja óhreyfðir inni í skáp og verður pakkað inn um helgina, þeir sem eiga von á gjöfum mega svo sækja þá um helgina ;)...

Síðasti skóladagurinn í dag, jólabíó sem varð reyndar jólavídeó inni í stofum en það er ágætt líka svo jólaball í kvöld fyrir unglingana og svo frí sweet frí JÓLAFRÍ!!

Benjamín búinn að vera veikur síðan á leikskólanum á mánudaginn og Ísak að veikjast, vonum að þetta verði allt saman liðið hjá fyrir jólin og foreldrarnir liggi ekki í súpunni um jólin. Benjamín greindist með barkabólgu hjá lækninum á þriðjudagsmorguninn fór svo að fá hita um kvöldið og var afar slappur af miklum hita í gærkvöldi. Pabbinn var heima í gær og í dag en svo verð ég heima, enda í jólafríi :)...Ísak var greinilega að byrja í barkabólgunni í gær og vona ég bara að hann sleppi hitanum.

Annars bara vona ég að fermingartilboðin í vor verði hagstæð svo að fjölskyldan geti nú tengst umheiminum á ný!




Uppgefin tölva...
15.12.2008 15:55 - Hjördís skrifar
Það er engum blöðum um það að fletta að mánudagskvöldið 8. desember gaf tölvan okkar sem var búin að duga okkur í 4 og 1/2 ár endanlega upp öndina. Við vorum að vonast til þess að þetta væri nú bara harði diskurinn, enda nýbúin að setja allar myndir inn á annan harðan disk og okkur slétt sama um allt hitt sem var á honum, bara ef hann kæmist í gang aftur. En það var víst ekki málið heldur neitar tölvan bara að starta sér upp og þar af leiðandi ónýt!

Því skrapp ég örstund á netið í vinnunni til að láta vita að í þetta skiptið er það ekki mín sök þó svo að hægar uppfærslur séu á síðunni því ég er búin að ætla að skrifa margt og mikið síðan mín ástkæra fór.

Læt að lokum fylgja hér smá skemmtisögu:

Benjamín fór með pabba sínum í búð á föstudagseftirmiðdaginn. Þeir voru að kaupa ýmislegt gott og Benjamín vildi endilega fá eitthvað að drekka þegar þeir komu að djúshillunni. Pabbi hans sagði að hann mætti velja sér eitt að drekka. Minn tók þá latabæjardjúskassa (sem eru 4 latabæjarfernur í). Pabbinn tók þá eina latabæjarfernu sem var við hlið kassans og sagði "nei, þú mátt bara fá eitt þannig að þú mátt fá svona". Þá sagði Benjamín "Nei, þetta er er eitt" og hélt fast í kassann sinn. Þá endurtók pabbinn "þú mátt fá svona" og hélt á þessari einu fernu. Benjamín hélt sig við það að hann ætlaði nú aldeilis að fá einn kassa. Þá sagði pabbinn að hann mætti fá "svona" (enn litla aumingjalega fernan) eða bara ekki neitt. Þá sagði sá stutti "Pabbi, þú skilur ekki, það er svona í þessu! Sem var vissulega rétt og fékk hann að labba út með einn kassa af latabæjardjús!


Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast Júlíus stóri bróðir)


Bara af því að þú átt afmæli!!
08.12.2008 08:24 - Hjördís skrifar
Þegar ég var lítil var bara hunangshnetuseríjós og coco puffs á jólum og páskum og þá bara með súrmjólk. Hér á heimilinu hefur það hinsvegar þróast þannig að einhverrahluta vegna er þetta í boði um helgar og yfirleitt bara með venjulegri mjólk. Á þriðjudaginn síðasta 2. desember átti svo náttúrulega húsbóndinn á heimilinu þrítugsafmæli. Benjamín bað um "býfluguseríjós" í morgunmat og móðirin ægilega sagði að það væri nú bara í boði þegar væri helgarfrí en ekki þegar maður væri að fara á leikskólann. Þá greip afmælisbarnið framí fyrir húsmóðurinni og sagði "en það má þegar ég á afmæli" og úr varð að litli prinsinn fékk hunangshnetuseríjós á þriðjudegi.
Þetta er nú samt eiginlega ekki frásögu færandi NEMA hvað að hann bað ekkert meira um  býfluguseríjós og ekki einu sinni um helgina en áðan var ég að spyrja hvað hann langaði að borða í morgunmat (átti þá við ristað brauð, seríjós, kodda eða kannski bara AB-mjólk). Þá sagði gaurinn "weetos" og glotti agalega...ég horfði bara á hann þar sem hann sat í sófanum skælbrosandi og hann endurtók..."Weetos, af því að þú átt afmæli"

Það þarf engum blöðum um það að fletta að prinsinn á heimilinu situr við eldhúsborðið og hámar í sig Weetos með mjólk!

Skoða tjaningar. (3 hafa tjáð sig, síðast Jenný)


Tönnin sem hvarf!
07.12.2008 20:35 - Hjördís skrifar
Það var planið að byrja aftur 1. nóvember, svo varð 1. desember fyrir valinu og síðast afmælisdagurinn eini, hinn 8. desember. En hver nennir nú að bíða þangað til!!?

Benjamín:
Gullkornin hafa flogið þvert og endilangt yfir bílinn, íbúðina, ömmu og afa hús og náttúruna alla frá eldir syninum en alltaf var verið að bíða eftir réttu dagsetningunni til að setja það inn...núna er hins vegar orðaflaumurinn gleymdur...svo gott sem. Reyndar hafa brandararnir um tómatana tvo og appelsínurnar tvær verið afar vinsælir...allavega í október og nóvember...hef nú ekki heyrt þá nýlega. Svo voru frumsamdir brandarar um tómata, jarðaber og alls kyns skemmtilegheit líka tilefni til hláturs og gleði. 3 og 1/2 árs skoðunin var mjög fín og fékk hann frábæra skoðun. Toppdrengur í öllu...nema framburði...sem var reyndar engin nýjung fyrir neinn sem hefur talað við hann. Fórum með hann á talmeinastöðina og þar talaði Anna María við hann og fannst hann voða duglegur drengur og hefur eðlilegar tunguhreyfingar en á erfitt með að setja stafina á réttan stað (dislacia...don´t ask me). Eini stafurinn sem hann getur ekki sagt er -r-, sem ku vera mjög algengt og ekkert áhyggjuefni útaf réttum tunguhreyfingum. Fengum ráðleggingar til að æfa hann...gengur rosa vel. Hann er líka búinn að fá inn á Rauðhól sem er hér við bakdyrnar hjá okkur og fær sennilega að byrja þar í febrúar næstkomandi:)

Ísak:
Þar kemur að tönninni sem drengurinn fékk þegar hann var tveggja mánaða...hún er farin aftur...allavega þá er hún ekki lengur til staðar og móðirin farin að efast verulega um getu sína við að finna tennur...enn sem komið er drengurinn þar af leiðandi tannlaus...7 og 1/2 mánaða. Þeir feðgar voru í rosa góðu geimi hérna heima á í tvo mánuði á meðan ég var að kenna og höfðu báðir rosa gaman að samverunni. Snáðinn var búinn að læra að tromma og gefa five eftir tvo daga með pabba sínum og veifar eins og herforingi. Hann hefur svo mikinn áhuga á öllu og iðar þegar maður nálgast og er svo glaður og ljúfur. Lífsgleðin nær svo hámarki þegar á að taka hann í fangið og ræður hann þá vart við sig fyrir æstum handa og fótahreyfingum. Núna er hann hjá afa og ömmu á daginn þegar foreldrarnir eru í vinnunni og gæti varla haft það betra. Hann fær þó inn hjá dagmömmu um áramótin því afi og amma vilja ekki flytja nær...búið að reyna mikið!! Hann er algjör hlunkur og heldur varla sínum egin þunga og fæturnir gefa sig fljótt þegar hann stendur uppi. Hann er ennþá í efstu stillingu í rúminu sem við þurftum að færa niður þegar Benjamín var 5 mánaða enda heldur minni æsingur núna og Benjamín helmingi léttari. Hann er ekkert að reyna einu sinni að koma sér út úr rúminu, liggur bara á sínum stað og bíður eftir að mamma leyfi honum koma í mömmuból að fá sér einn "súp" eða tvo. Skemmtilegt er að sitja á stafateppinu og leika með allt dótið þar en allra skemmtilegast er samt að horfa á stóra bróður sinn fíflast og hamast og ekki er leiðinlegt þegar hann nennir að leika við mann. Ísak hefur líka fengið mjög góðar læknisskoðanir og er næsta skoðun áætluð eftir eina og hálfa viku...sem verður gaman.

Hér hefur verið stiklað á MJÖÖÖÖÖÖÖÖÖÖG stóru en kannski verður myndast við að fylla í eyðurnar á komandi dögum enda desember gjarnan notaður til þess að horfa yfir liðna daga. ætla ekki að hafa þetta lengra í dag...veriðið sæl!


Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast Petra Rós)


Myndir