|
|
Fréttir í Desember 2007
|
Jólin koma
26.12.2007 10:49 - Hjördís skrifar
já ég held ég hafi uppgötvað það að jólin koma bara þó svo að maður sé ekki endilega "tilbúinn" að taka á móti þeim, þá bara slakar maður á og tekur á móti þeim. Við ákváðum að eyða þorláksmessu og aðfangadegi í algjörri stressfrírri afslöppun....sem tókst og ég er miklu ánægðari með það heldur en að hafa stressast að ná að klára "allt" fyrir jólin. Enda er ég 55 ára samkvæmt prófi sem ég tók á FACEBOOK!!!!! Aðfangadagskvöld var skrautlegt en aumingja Guðmundur Óli fékk í magann á aðfangadagsmorgun og gat ekki borðað NEITT af jólamatnum góða sem tengdapabbi var búinn að vera að "elda" frá því á þorláksmessukvöld, frekar leiðinlegt og lá svo kylliflatur í sófanum það sem eftir lifði kvölds með tóman magann. Á jóladagsmorgun gat hann fengið sér smávegis afganga með tilheyrandi eftirköstum. Ég var svolítið feginn að við vorum ekki bara þrjú heima á aðfangadagskvöld því þá hefði ég setið ein við jólaborðið og snætt jólakræsingarnar því ekki entist Benjamín lengi við borðið heldur. Við ílengdumst í bænum í gærdag og ákváðum því bara að fresta jólamatnum fram á annan í jólum þegar allir fjölskyldumeðlimir væru orðnir frískir og svangir. Reyndar liggur bóndinn ennþá í rúminu raddlaus og fínn!!!! En rjúpurnar fara inn í ofn og ofan í pott eftir hádegið, maginn er þó allavega kominn í lag :)
Við lentum í þvílíku jólapakkaflóði, æðislegir pakkar bæði fyrir mömmu og pabba og litla stúfinn. Við erum ennþá í sjöunda himni yfir þessu öllu saman. Benjamín var ánægður með hverja einustu gjöf og fagnaði innihaldinu í þeim öllum, líka mjúku gjöfunum ;) Hann mátti ekkert vera að því að opna alla pakkana og vildi leika með það sem komið var. Það var nú reynt að troða í hann gjöfunum sem hann svo reif upp og fannst hver annarri flottari. Mátti svo ekkert vera að því að fara að sofa og vaknaði svo eldsnemma á jóladagsmorgun til að byrja að leika aftur og þóttist svo ekkert vera þreyttur við leikinn í gærkvöldi þó svo að hann þyrfti að glenna upp augun til að þau lokuðust ekki. Enda svaf hann til 10 í morgun.
Takk æðislega fyrir okkur, kossar og knús á ykkur öll.
Skoða tjaningar.
(5 hafa tjáð sig, síðast amma GERÐA og Skúlagötugengið)
|
Þrettándi var Kertasníkir...
23.12.2007 15:30 - Benjamín skrifar
Já sumsé, ætli það sé ekki einfaldara að telja bara upp þá jólasveina sem eiga eftir að koma...það er Kertasníkir. Jólin eru að koma heima hjá okkur þó svo að aðventan hafi verið nánast engin. Ég var í þessu að ákveða að vera ekkert að stressast við að hengja upp fleiri seríur eða gera nokkuð jólalegra hérna, þetta er bara orðið gott og við getum tekið á móti jólunum með gleði í hjarta. Þvoum af rúmunum á eftir og þá má aðfangadagur bara koma. Ættingjar og vinir verða að afsaka það ef jólagjafir eða kort hafa ekki borist á réttum tíma en ég vona þó að allt hafi komist til skila en eins og áður segir var allt á síðustu stundu hér....sem verður SKO EKKI á næsta ári og kortin í ár eru ópersónuleg og fjöldaframleidd frá H.P. sem mér þykir mjög leiðinlegt en því verður einnig kippt í liðinn fyrir næstu jól.
Annars biðjum við ykkur bara vel að lifa yfir jólin, gætið hófs jafnt í mat, drykk og gjöfum. Heyrumst aftur áður en árinu lýkur.
GLEÐILEG JÓL
frá fjölskyldunni í Grindavík
Skoða tjaningar.
(2 hafa tjáð sig, síðast Svava)
|
Giljagaur var annar...Stúfur hét sá þriðji
14.12.2007 09:13 - Hjördís skrifar
Vóts, tíminn líður svo hratt að maður hefur ekki einu sinni tíma til að gera einn jólasvein á dag...því allt í einu er dagurinn búinn og næsti jólasveinn kominn....og liggur við farinn líka. Benjamín er nú ekkert alltof spenntur yfir þessum skógjöfum. Honum finnst rosa gaman að fá eitthvað en ég held að hann hafi aðeins misskilið gjöfina frá Stekkjastaur. Ég held að hann hafi haldið að hann hafi bara fengið í skóinn af því hann gaf dudduna sína en í fyrrakvöld vildi hann bara ekkert setja skóinn aftur út í glugga fyrir Giljagaur (ætli hann hafi ekki haldið að hann þyrfti að gefa Mikka sinn eða koddann eða eitthvað). En ég gerði það svo bara fyrir hann og hann var svaka glaður um morguninn. En svo í morgun vaknaði úrilla dúllan mín og harðneitaði bara að kíkja í gluggann, ætlaði sko aldeilis ekki að gera það. Ég fór þá og tók úr skónum og hann vildi ekkert með það gera ;s ég veit ekki hvort hann haldi að það komi að skuldadögum síðar og hann þurfi að gefa hitt og þetta sem honum þykir vænt um í staðinn og vilji frekar halda í dótið sitt heldur en að fá eitthvað nýtt krapp, hann er allavega ekki að fíla þessa skójólasveina.
Við fórum hinsvegar í piparkökuskreytingar í gær með nokkurm "gömlum" grindvískum vinkonum frá Eiðum '95-'96 og sonum þeirra. Það var voða gaman, mömmurnar fimm bökuðu, skreyttu og hlustuðu á jólalög á meðan strákarnir voru inni í herbergi að leika...pabbanum á því heimilinu fannst þetta nú eitthvað skrítið fyrirkomulag, en þeir tóku nú þátt í byrjun og skreyttu tilbúnar kökur og flöttu og skáru út en svo varð bara dótið meira spennandi og hellingur af deigi og kökum eftir. En hápunktur samverunnar var nú þegar SVEINKI kom í heimsókn, já það var hann GILJAGAUR sem kom og dúndraði á gluggana og kom svo inn...það var alveg ótrúlega gaman. Benjamín var svo glaður og ánægður með að fá jólasveininn í heimsókn, var ekki vitund hræddur, veit örugglega ekki að það er möguleiki í stöðunni að vera hræddur við jólasveininn :)...Jólasveinnin gaf krökkunum Jólatréssleikjó sem var bæði ógeðslega flottur og rosalega góður.
Verð að enda þetta á einu gullkorni frá því fyrr í vikunni. Það var jólaball fyrir eldri börnin á leikskólanum á mánudaginn. Benjamín mátti mæta á það af því að við vorum það óheppin að missa af jólaballinu fyrir yngri börnin í vikunni á undan. Hann var nú ekki á því að fara á jólaball (enda einstaklega þreyttur og úrillur af svefnleysi síðustu tveggja vikna) en ég spurði "eigum við ekki að fara á jólaball og svo kemur jólasveinninn í heimsókn" hann svaraði bara "nei, ég get ekki farið á jólaball" ég: "nú af hverju"...Benjamín: "ég kann ekki að dansa". Ég útskýrði nú fyrir honum að það væri ekki nauðsynlegt að kunna að dansa þegar maður færi á jólaball fyrir utan það að hann kann nú alveg að dansa og skil ég ekki hvaðan hann hefur þetta. Þannig að ég spurði aftur, "jú eigum við ekki að fara á jólaball og hitta jólasveininn", Benjamín:"NEI ÉG GET EKKI FARIÐ Á JÓLABALL" og var orðinn frekar þreyttur á þessu nöldri í mömmu sinni því hún var búin að spyrja ansi oft *roðn* eitthvað að reyna að hafa áhrif á ákvarðanatökuna. En ég spurði hann bara af hverju hann vildi ekki fara og þá sagði hann "ÉG Á ENGAN KJÓL". Og þar með var málið útrætt...og ekkert jólaball!!!
Reyndar útskýrði ég fyrir honum af hverju hann ætti ekki kjól og allt í kringum það en ég held að þetta hafi helst verið desperate afsakanir til þess að sleppa við að fara á jólaballið og þá var ég ekkert að pína hann meira með því!!!!
Skoða tjaningar.
(4 hafa tjáð sig, síðast Silja og Ari Gabríel)
|
Stekkjastaur kom fyrstur...
12.12.2007 09:02 - Benjamín skrifar
...og fékk dudduna í skóinn...Já eða sko litlu jólasveinabörnin fengu dudduna mína. Ég setti hana í skóinn minn og bréf til stekkjastaurs um að litlu jólasveinabörnin mættu fá dudduna mína. Mamma mín sagði mér að þau ættu enga duddu og þau væru bara alltaf að gráta og gráta þannig að ég vildi gjarnan gefa þeim dudduna mína...enda er ég orðinn svo stór. Ég setti dudduna og bréfið í skóinn minn í glugganum mínum (við hliðina á hvítu jólarósinni minni) og fór svo að hátta, þegar ég kom í rúmið tók ég kodda og Mikka minn en...HVAR VAR DUDDAN?? "hvar er duddan mín" þetta hefur nefnilega verið þrenningin góða fyrir svefninn í háa herrans tíð, koddi, dudda og Mikki minn, þá minntu mamma og pabbi mig á að ég ætlaði að gefa litlu jólasveinabörnunum dudduna mína. Mamma mín er samt svo að hún leyfði mér að hafa dudduna á meðan bókin væri lesin og svo þegar bókin yrði búin þá ætti ég að setja dudduna aftur í skóinn og út í gluggann. Þegar síðasta orðið í Tomma og óveðrinu sem skall óvænt á ("skollið á ódeður") var lesið þá gerði ég mér lítið fyrir og tók dudduna út úr mér og setti hana í skóinn án þess að minnst væri nokkru orði á það við mig...ég fékk allavega að segja bless við hana sem var mjög gott. Tók langan tíma að sofna af því ég var ekkert þreyttur en ég bað ekki EINU sinni um dudduna af því ég vil að litlu jólasveinabörnin verði glöð og hætti að gráta. Stekkjastaur var rosalega ánægður og skildi eftir bréf handa mér og svo fékk ég líka PLAYMO kappakstursbíl með einum kalli og pabbi og mamma hjálpuðu mér að setja hann saman í morgun en ég varð samt að skilja hann eftir í bílnum þegar ég fór inn í leikskólann, en það var ekkert mál, ég fæ hann þegar ég kem heim aftur.
Annars er fullt búið að gerast á síðasta mánuðinum sem hefur liðið síðan mamma skrifaði hér síðast. Ég var heillengi að sofa hjá ömmu og afa á Skúlagötunni og það var rosa rosa gaman þó ég hafi saknað mömmu minnar og pabba smá og nú vil ég bara alltaf gista hjá þeim...ég fæ kannski að vera hjá þeim eina nótt um næstu helgi. En svo dó langamma mín á Ísafirði, ég var samt svo heppinn að ég var nýbúinn að fara og hitta hana þegar hún þurfti að koma á sjúkrahúsið í Reykjavík. Þannig að þegar mamma og pabbi voru komin úr ferðalaginu sínu frá Danmörku þá þurftum við að fara á Ísafjörð í jarðaförina hennar langömmu Ísjaka. Ég var svo rosalega góður í kirkjunni að fólk hélt bara að ég hefði sofnað, en ég var sko glaðvakandi en svolítið vandræðalegur og leiður þegar ég sá mömmu mína gráta en ég huggaði hana bara og sagði svo bless við langömmu mína þegar hún fór ofaní jörðina. Ég eignaðist fullt FULLT af góðum vinum á Ísafirði, ég var eini litli strákurinn svo voru bara tveir stórir alveg eins 10 ára strákar og svo stórar stelpur líka sem eru allar búnar að fermast fyrir löngu þannig að ég fékk óskipta athygli allra ættingja og heillaði að sjálfsögðu alla upp úr skónum. Tvíburarnir voru rosalega skemmtilegir en ég var ekki alveg viss um hvað ég ætti að kalla þá, þeir heita víst Margeir og Þorbergur en ég var ekki alveg til í að samþykkja það þannig að þeir voru ýmist "einn" og "meira" eða "báðir" og "annar báðir" en þeir voru svo ROSALEGA góðir við mig að ég fékk fullt af dóti sem þeir eru hættir að leika með þegar ég fór heim...þyrlu og krókódíl og apa og allskyns flott.
Fullt fullt meira búið að gerast sem ég man ekki alveg en kannski man ég það seinna...ætla ekki að hafa þetta lengra, þetta er víst orðið nógu langur lestur!!
Skoða tjaningar.
(2 hafa tjáð sig, síðast Anna Karen)
|
| |