|
|
Fréttir í Desember 2006
|
GLEÐILEGT ÁR
31.12.2006 23:39 - Benjamín skrifar
Hér átti að koma svaka færsla í dag en hún verður að bíða betri tíma :)
Gleðilegt ár allir saman og takk fyrir það gamla...njótið þeirra fáu mínútna sem eftir eru af árinu 2006, við gerum það!
Skoða tjaningar.
(14 hafa tjáð sig, síðast Ari Páll)
|
Þorláksmessukvöld er hátíð útaf fyrir sig!
23.12.2006 23:55 - Hjördís skrifar
Já nú líður senn að lokum Þorláksmessukvölds og allt orðið fullkomið á heimilinu. Eina sem á eftir að gera er að skreyta jólatréið sem verður gert í fyrramálið með Benjamín. Við fórum til Reykjavíkur strax eftir leikskóla í gær, engin pása á milli, Jón Fannar sótti okkur því Guðmundur var að vinna til 6 og við renndum í bæinn og vorum komin tímanlega til að sækja Guðmund Óla. Tilefnið var að tengdapabbi var að halda upp á hálfrar aldar afmælið sitt sem var þann 10. desember s.l. Elsku afi Helgi til hamingju með að vera orðinn svona gamall :). Það var heljarinnar partý og ROSA góður matur og aðeins forskot tekið á sæluna með hangikjötið. Við gistum svo í Reykjavík því það átti að arka í allskyns leiðangra snemma í morgun. Benjamín svaf að sjálfsögðu uppi hjá afa og ömmu. Við vöknuðum svo snemma til að vera komin í Kringluna fyrir opnun. Það tókst og Billa kom með okkur en Benjamín varð eftir í góðu yfirlæti hjá afa og ömmu á Skúlagötunni. Við náðum að klára allt á mettíma og lentum hvergi í löngum biðröðum eða örtröð...fólk virðist vera farið að læra á Þorláksmessuna þ.e. að eiga ekki allt eftir á síðustu stundu. Síðan tók við útburður jólagjafa og þar var að sjálfsögðu étið í hverju húsi og þegar heim kom um 7 leitið í kvöld vorum við öll komin með illt magann, laglegt það. En það jafnaði sig fljótt og nú bíða fyllingin og sítrónusmjörið eftir að komast í kalkúninn og toblerone ísinn bíður í frystinum, allt skínandi hreint og fínt og við bíðum bara eftir að aðfangadagur komi svo við getur farið að skreyta jólatréið og elda jólamatinn....mmmm hvað við hlökkum til og hlustum bara á jólalögin á meðan!
Anna Karen vinkona átti 25 ára stórafmæli í gær og hélt heljarinnar partý sem við komumst því miður ekki í :(...til hamingju með afmælið elsku Anna Karen!
Skoða tjaningar.
(1 hefur tjáð sig, síðast BILLA ÓSK VÍÐIR ÓLI OG TERESA)
|
Frábærar fréttir!!!!!!!!!!!!!!!!
15.12.2006 08:23 - Benjamín skrifar
Við fengum tíma í brosbarnamyndatöku :) 16.janúar kl. 10:00
Skoða tjaningar.
(5 hafa tjáð sig, síðast Helgi afi)
|
Mikið um að vera
13.12.2006 12:37 - Hjördís skrifar
Já núna eru jólin að nálgast og próf á næsta leiti og því hellingur að gera en ekkert kemst í verk. Við Benjamín erum heima á morgnana svo vinnan og leikskólinn og svo verð ég að læra öll kvöld og alla næstu helgi. Ari Páll, Lilja og strákarnir koma í dag til Íslands og leiðinlegt að geta ekki bara hangið með þeim næstu daga, þau kannski kíkja til okkar einn morguninn, hver veit! Jólakortin gætu verið seint á ferð þessi jólin ef þau verða þá einhver, það er ekki enn búið að taka myndina af Benjamín og hvað þá framkalla, þið verðið bara að afsaka það þessi jólin :)
Við Benjamín löbbuðum upp í bókabúð í snjókomunni í morgun, ennþá dimmt þegar við lögðum af stað. Hann ýtti kerrunni sinni alla leið uppeftir og það var við það að verða bjart þegar við komum en þetta fannst honum svakalega gaman. Ég keyrði svo kerruna á leiðinni heim.
Verð að þjóta í vinnuna, Benjamín var að sofna fyrir 5 mínútum, búinn að vera skemmtilegur morgunn.
Skoða tjaningar.
(2 hafa tjáð sig, síðast sigga jódís)
|
Vííííí...mamma mín á afmæli í dag!
08.12.2006 12:32 - Benjamín skrifar
Elsku besta mamman mín er hundgömul í dag en samt með engar hrukkur eða grá hár eins og Gauti frændi og til hamingju með það!!!! Elsku bestasta mamman í öllum heiminum, til hamingju með afmælið!
Ég gaf mömmu rosa fínan pakka í gær með pabba og svo fékk ég líka smá pakka :) greinilegt að foreldrar mínir hafa fengið hugboð frá Önnu Kareni frænku. Á eftir ætla ég bara smá í leikskólann minn svo ætlar pabbi að sækja mig og fara með mig til ömmu og afa í Reykjavík og ég ætla með þeim uppí SUMARBÚSTAÐ...vííííííííííííííí!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Elsku besti Helgi Steinarr frændi minn á afmæli í dag líka og hann er alveg rosa stór, 6 ára. Til hamingju með daginn elsku frændi.
Skoða tjaningar.
(9 hafa tjáð sig, síðast Elva)
|
Víííí...pabbi minn á afmæli í dag!
02.12.2006 13:14 - Benjamín skrifar
Til hamingju með afmælið elsku besti pabbi minn sem er BESTI PABBINN í ÖLLUM HEIMINUM Sá gamli er 28 ára í dag. Ég byrjaði að sjálfsögðu daginn á því að færa honum í rúmið, reyndar eftir að ég var búinn að draga hann út úr rúminu með smá nettu keisti frammí eldhúsi af því ég mátti ekki borða strax það sem við mamma vorum að fara með inn í rúm til pabba. Svo gaf ég honum nokkra pakka og fékk meira að segja að opna þá sjálfur...en hafði nú engan sérstakan áhuga á innihaldinu!
Það eiga nú fleiri afmæli í dag eins og t.d. hún amma Billa hún er bara 27 ára...eða það held ég allaveganna. Svo átti Víðir Óli 8 ára afmæli á miðvikudaginn síðasta og hún Billa frænka á 10 ára afmæli á morgun. Við erum einmitt við það að þjóta út úr dyrum til að fara í afmæli til þeirra...víííí get ekki beðið. Svo á Hemmý frænka líka afmæli á morgun en ég get ekki séð hana í dag því hún er útí Bandaríkjunum. Svo átti Baldvin frændi afmæli 24.nóv en pabbi er búinn að stríða honum nóg svo ég ætla að láta það vera. Ég vil óska þeim öllum innilega til hamingju með afmælin sín og þau gömlu biðja að heilsa líka.
Síðan ætla ég að sofa hjá ömmu og afa í nótt og öllu stóðinu þeirra. Það verður nú þvílíka fjörið. Mamma og pabbi ætla eitthvað út að dandalast.
Frá pabba: Þakka allar fallegar hugsanir til mín í dag, slæmar hugsanir ekki mótteknar, afmælisgjafir vinsamlegast leggist inn á reikning minn hjá KB-banka.
Skoða tjaningar.
(8 hafa tjáð sig, síðast Lilja, Ari Páll, Albert, Árni, Ágúst og Noél.)
|
| |