Forsíða
Um okkur
Eldra efni


Vinir og ættingjar
Ari Gabríel
Birkir Örn
Burknavallakrúttin
Bína
Dagur og tvillarnir
Karen Hrund
Kjartan og Lovísa
Magnús Orri
Patrik og Ísabella
Sigga Hulda
Silja
Tvíburamamman
Fréttir í Nóvember 2007

Blómið í glugganum
11.11.2007 08:32 - Hjördís skrifar
Í gærdag ákváðum við að Benjamín fengi að velja sér jólaskraut í gluggann sinn. Við vorum nú eginlega búin að ákveða það að það yrði lítið ljósahreindýr sem myndi standa í glugganum og eftir að hafa eytt lunganu af deginum hjá Möggu frænku fórum við í Garðheima, þar var reyndar ekkert merkilegt og hann ekki í skapi til að skoða, enda ekki til hreindýr. Það voru reyndar til rosa flottar seríur með jólasveinum og snjóköllum í ljósastæðunum, en þær hengu hlið við hlið og hann vildi alls ekki sjá jólasveinaseríuna og gat því ekki horft á snjókallaseríuna heldur....svona var semsagt skapið. Hann fékk að borða og snarlagaðist í skapinu og við fórum í BYKO (nýju búðina að sjálfsögðu) og ætluðum að kíkja á hreindýrin sem voru í bæklingnum. Á leiðinni til hreindýranna rákumst við hins vegar á ljósa"seríur" af jólasveinum og snjóköllum til að hengja í gluggann. Það var SVAKALEGA flottur snjókall á skíðum, rosalega litríkur og svo útlínurnar voru gerðar úr óslitinni seríu...hann var í einu orði sagt ÆÐISLEGUR. Við bentum hjartagullinu að sjálfsögðu á þetta og spurðum hvort hann vildi ekki fá svona í gluggann í herberginu sínu en hann hélt nú aldeilis ekki, nei takk, ómögulega!! Þá kom ég auga á hreindýrin, sem voru reyndar vonbrigðatæki, ljósin inní þeim voru allt of fá en ég sýndi honum þau samt, þau eru rosa flott, eins og þau séu úr kristal. Hann hélt nú ekki "Nei ég dil BLÓM" (ég vil blóm). Þá var þarna upplýstur þrívíddar jólapakki, eins og hreindýrin og ég reyndi að sýna honum hann í gluggann "NEI, ÉG DIL BALA BLÓM Í DLUGGAN" (nei, ég vil bara blóm í gluggann). Foreldrarnir urðu ráðþrota eftir að hafa sýnt honum nær allt ljósakyns í BYKO gengum við fram á rekka með gerviblómum. Þar var stór hvít jólastjarna í potti og varð gríslingurinn svo himinlifandi að sjá hana, "ég dil blóm í dluggann minn". Þannig að úr varð að við löbbuðum út úr BYKO með ánægðasta dreng á jarðríki og hvíta pottablómið hans...
Þegar hann þurfti að láta afgreiðslukonuna fá blómið gerði hann það með herkjum og hún lét hann svo hafa það strax til baka. Hann sagði þá "takk kona, takk kona, takk kona" þar til við vorum komin út í bíl. Hann faðmaði blómið sitt nær alla leið heim og segir svo upp úr þurru "Ég dildi ekki dljós í dluggan minn bala blóm" (ég vildi ekki ljós í gluggann minn bara blóm). Þegar heim var komið var svo blóminu stillt upp í glugganum í herberginu hans og ánægjan ætlaði engan endi að taka. Síðan rétt fyrir svefninn var myndataka með blóminu og það var knúsað og KYSST!!!!!


Það fyndnasta er svo að þetta gerðist nefnilega áður í Húsasmiðjunni/Blómaval þegar hann var þar með pabba sínum að skoða jólasveinalandið. Honum stóð til boða að eignast jólasveinahúfu en hann vildi ekki "dóladeinahúfu" hann vildi bara BLÓM...hann fór því tómhentur út úr H/B með pabba sínum.


Skoða tjaningar. (6 hafa tjáð sig, síðast Lilja)


VÍÍÍÍÍÍÍ
10.11.2007 12:42 - Hjördís skrifar
VIÐ EIGUM MIÐA Á FROSTRÓSIR 15.DESEMBER!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Skoða tjaningar. (1 hefur tjáð sig, síðast Helga)


Höfuðfætlan
08.11.2007 09:38 - Benjamín skrifar
ég held að ég sé um það bil montnasta mamman í heiminum núna...litla barnið mitt búið að gera sína fyrstu höfuðfætlu...í gær! Hann er alltaf að teikna og vill þá bara "uni-ball" pennana mína. Hann er alltaf að teikna "punktur, punktur komma strik" og allt blaðið er í litlum hringjum sem hann er búinn að fylla inn í...og þá meina ég LITLUM hringjum sem eiga sumsé að vera augun. Svo eru allskyns kynjaverur á öllum blöðum, hvalir, snjókallar, jólasveinar og ég veit ekki hvað og hvað. Í gærmorgun vorum við svo nývöknuð og hann fór beint inn í stofu með pennann sinn og fór að teikna á blað. Við foreldrarnir vorum í rólegheitum inni á baði að bursta tennurnar og sinna öðrum skemmtilegheitum þar inni. Guðmundur Óli ætlar svo að fara að klæða prinsinn í og kallar inn til mín...VARST ÞÚ AÐ TEIKNA ÞENNAN ÓLA PRIK EÐA VAR ÞAÐ HANN??? Ég kannaðist ekki neitt við neitt og hélt ég hefði kannski verið að teikna hann í gærkvöldi en ákvað að kíkja á gripinn...var þá ekki þessi SÆTASTA HÖFUÐFÆTLA Í HEIMINUM á blaðinu inni í  þremur stærri hringjum, sem voru glugginn og svo fullt fullt af "punktur, punktur, komma, strik", eins og hann kallar þessi hringlistaverk sín sjálfur en líkist helst hundslappadrífu, fyrir utan gluggann. Þessi mynd var að sjálfsögðu tekin fastataki af móðurinni því prinsinn var ekki að fíla hrósin og gleðina í kringum þetta og fór í fýlu...ég ætla hinsvegar að ramma hana inn. Svo eftir leikskóla í gær var hann voða ánægður með hana og eins í morgun. Þetta er sko "Óli prik inní glugganum"...(hans eigin orð) og það hefur alveg verið út pælt því það skiptir ekki máli hvenær er spurt alltaf er sama svarið! svo er "hundslappadrífan" eins og áður sagði "punktur, punktur, komma, strik" en það er eitt það áhugaverðasta sem ég geri að hans mati, þegar ég teikna óla prik og fer með vísuna á meðan, hann er farinn að sussa á mig og fer með vísuna á meðan ég teikna!!:D:D

JÆJA ÞÁ ER ÉG BÚIN AÐ MONTA MIG ÖRLÍTIÐ...
það má líka taka það fram að konunum sem voru inni á deildinni hans á leikskólanum þegar ég kom með hann í gær fannst þetta ekkert merkilegt þegar ég sagði þeim frá þessu...þær sögðu ekki neitt og snéru sér bara frá ;( nema ein sagði ..."höfuð...???"

Skoða tjaningar. (1 hefur tjáð sig, síðast Lilja)


Helgin er víst búin...(vinsamlegast klárið mat áður en lesturinn hefst eða reynið heldur að vera ekkert búin að borða í nokkra tíma áður)...
06.11.2007 12:18 - Hjördís skrifar
...en það er alveg að koma föstudagur aftur, ekki á morgun, ekki hinn heldur hinn. Þetta var nú skrautleg helgi svo sé ekki meira sagt. Eins og flestir vita vaknaði Benjamín með ælupest aðfaranótt föstudagsins, en jafnaði sig nú fljótt og var bara orðinn nokkuð hress á föstudagskvöldinu. Á laugardaginn fékk hann líka þessa svakalega skemmtilegu niðurælu úr hinum endanum, eins og væri verið að reyna að eyða mannfólkinu af jörðinni, svo skelfileg var umgjörðin í kringum þetta allt  saman....og með umgjörð á ég við fýlu. Á sunnudaginn var svo afmæli hjá henni Teresu en hún verðu tveggja ára 11. nóvember. Við héldum þangað og komum við í Blómavali að kíkja á alla jólasveinana þar, þeir eru ekkert smá flottir og skemmtilegir. En svo þegar við komum heim til ömmu Gerðu hélt Benjamín að hann væri eitthvað svangur og vildi kíkja í ísskápinn, þegar hann var opnaður þá stóð svoleiðis gusan út úr snáðanum og beint inn í ísskápinn....girnilegt það!!! Hann fékk smá kók og skömmu seinna gaus geysir út um neðri endann og lá við að kökurnar úldnuðu á staðnum, en við náðum að redda því. Þegar búið var að þrífa rassinn og svona þurfti hann að kúka meira í klósettið svo ég hélt á honum þangað með beran rassinn...ÞRJÚ SKREF....skemmst er frá því að segja að við náðum ekki að opna klósettið og setjast, fjúff púff skúff lúff....látum þær lýsingar nægja í bili...eftir að gestirnir voru nær allir fallnir í dá án þess að vita almennilega hvers vegna þó, ákváðum við að lauma okkur í burtu þó svo að aðeins klukkustund væri liðin frá því að afmælið byrjaði. Greyið sofnaði á leiðinni heim og þegar heim var komið settum við Gurru Grís (sem er í LANGMESTU UPPÁHALDI þessa dagana) í tækið og ég sat með hann í sófanum, engum hnöppum um það að hneppa að þá kom gusan að ofan og yfir okkur öll og sófann!!!...Úr varð að hann var heima með pabba sínum í gær á meðan ég var að kenna uppi í skóla og hefur lítið dregið til tíðinda í þessum efnum nema nokkrir strokkar (ekki alveg hægt að kalla það geysi lengur) úr afturendanum en það er bara bleyja við bleyju og engir berir tímar ;);).........Hann fór svo á leikskólann í morgun og við eigum eftir að heyra hvernig morguninn var hjá þeim:D

Skoða tjaningar. (4 hafa tjáð sig, síðast Helga)


Föstudagur til fjár
02.11.2007 22:44 - Hjördís skrifar
...unnum 828 kr. í víkingalottóinu á miðvikudaginn reyndar og þessi föstudagur var allt annað en ánægjulegur eða gróðavænlegur. Byrjaði á því kl. 1:30 síðustu nótt að Benjamín emjaði og kallaði á mig. Ég fór fram úr og rétt eftir að ég steig út úr rúminu heyrði ég þessa svaka gusu fara út úr honum. Hann sat í ælunni sinni skjálfandi og nötrandi kominn með ælupest greyið. Hryllti sig yfir vonda bragðinu og fýlunni og leið ósköp illa greyinu. Við rifum allt af rúminu hans og settum í vél...meira að segja Mikki þurfti á þvotti að halda. Dýnan fór fram í þvottahús og snáðinn varð heldur hissa þegar hann sá bara rimlabotninn á rúminu sínu í morgun þegar hann rambaði inn í herbergið sitt. Hann var að sjálfsögðu í okkar rúmi það sem eftir lifði nætur. Ætlaði nú aldrei að geta sofnað og fékk að horfa á Samma brunavörð, ég hélt reyndar að hann myndi sofna yfir honum en hann horfði á ALLAN DISKINN og vildi sjá meira. Þá sagði ég að hann þyrfti að fara að sofa og það gerði hann möglulaust. Þegar hann vaknaði svo snemma í morgun tók hann einn vatnssopa og þurfti strax að æla, greyið hafði ekkert til að æla og kipptist bara til og skalf. Við mæðginin vorum því bara heima í dag og höfðum það notó...eða eins og hægt var. Hann gat nú ekkert sofnað í dag en ég dottaði nú yfir einhverjum barnatímanum enda að drepast úr þreytu eftir ævintýri og svefnleysi næturinnar. Hann hresstist þó þegar líða tók á daginn og þegar hann fór að sofa um hálf átta leitið var hann bara orðinn hinn hressasti og búinn að borða eitt jógúrt, ælupestin sumsé liðin hjá...sem betur fer.

Lára sótti hann í gær á meðan ég var á deildarfundi í skólanum. Bríet litla systir hennar fékk að fara með þeim (hún er fjögurra ára) og þau skemmtu sér konunglega þar til ég kom heim og eyðilagði partýið. Benjamín var svo svekktur að þær ætluðu að fara að hann fór bara að gráta og vildi fara með þeim heim. Þegar hann fékk að vita að það væri ekki í boði vildi hann ekki kveðja, þessi elska alveg eins og mamma sín sem kvaddi aldrei...

Í upphafi færslunnar átti reyndar að vera að enn ein vikan væri liðin og alltaf væri föstudagur og sunnudagskvöld strax á eftir, stundum held ég að vikan sé einn og hálfur dagur, föstudagur og eftir 3 á sunnudegi...að bíða eftir mánudeginum...eða kannski frekar að vona að sunnudagskvöldið verði lengi LENGI að líða.

Líka kominn nóvember, trúir því einhver??????????Ekki ég, október hvarf mér úr augsýn strax 1. október, síðan var kominn sá 31. og nú eru bara jólin handan við helgina (allavega handan við eitthvert n.k. sunnudagskvöldið). Stutt síðan útlandaferð var ekki inni í myndinni og nú eru rétt rúmir 20 dagar þar til við verðum komin til Danmerkur í smá "pig-out" ferð :D:D:D:D:D
En jæjajæja, læt þetta duga í bili



Skoða tjaningar. (4 hafa tjáð sig, síðast Helga)


Myndir