|
|
Fréttir í Nóvember 2006
|
Uppátækjasami vinnumaðurinn
26.11.2006 12:47 - Hjördís skrifar
Benjamín þarf að gera allt eins og pabbi sinn og mamma. Hann situr eins, borðar eins, drekkur eins og hermir bara yfirleitt eftir öllu sem við gerum. Hann er alltaf að vinna og stússast við hitt og þetta. Áðan t.d. kom ég að honum þar sem hann var að troða óhreinatauinu inn í þvottavélina. Bisaði síðan við að loka henni. Eftir að vélin var tilbúin ætlaði greyið nú að redda henni Dimmulimm sinni fersku vatni og ætlaði að hella gamla vatninu hennar í vaskinn. En hann nær náttúrulega ekki upp í vaskinn og allt fór á gólfið fyrir framan vaskinn. Alltaf þegar vatn og piss og svona lendir á gólfinu fer nú mamman og nær í óhreint handklæði og þurrkar vandlega upp. Minn dreif sig því bara inn í þvottahús, náði í þvottapoka og reyndi að þurrka vatnið upp af gólfinu. Allt þetta gerði hann óumbeðinn.
En oftar en ekki vill hann nú líka fara sínar eigin leiðir en þá er stundum sjálfshjálpin orðin heldur mikil eins. AB-mjólk hefur verið í algjöru uppáhaldi síðan hann var veikur í október og ef hann fengi að ráða væri "abbé" í öll mál. Þegar hann vaknar á morgnana, þegar hann er að fara útí vagn, þegar við komum heim af leikskólanum, þegar verið er að elda kvöldmatinn...þá er hann rokinn að ísskápnum með hendurnar upp í loft og kallar "abbé, abbé, abbé". Anyway, morguninn í morgun var engin undantekning og um leið og hann var kominn út úr rúminu þaut hann að ísskápnum og vildi fá AB-mjólkina sína. Ég tók því út AB og lýsi og frískamín og setti á eldhúsborðið og skeið hjá fyrir lýsið og frískamínið. Síðan þurfti ég eitthvað aðeins að hlaupa frá í tvær sekúndur og þegar ég kom aftur til að gefa honum herlegheitin var hann búinn að opna AB-mjólkina og farinn að borða upp úr fernunni með skeiðinni. Svo þegar lýsið og frískamínið var komið ofaní maga og mamman var að setja skeiðina í vaskinn og leit svo að eldhúsborðinu þá var litli grallarinn að drekka frískamín af stút! Þá spurði pabbinn "en lýsið"? og þá var bara skipt um flösku og lýsið drukkið af stút...en þá tók mamman flöskurnar og gekk frá þeim.
Ég hafði fengið After Eight í jólagjöf frá leynivini mínum á leikskólanum (jólaleikur) og það var að sjálfsögðu opnað í gær og geymt á eldhúsbekknum. Síðan var ég að bardúsa eitthvað í tölvunni og sonur minn kemur til mín og færir mér eitt after eight og mér í mínum eigin hugarheimi fannst ekkert athugavert við það og hugsaði ekki meira um það. Síðan stuttu seinna þegar ég kom inn í eldhús þá lá að sjálfsögðu after eight pakkinn á gólfinu og búið að afbréfa nokkur þeirra og bíta í jafnmörg.
Við fórum líka fjölskyldan út í morgun að setja upp jólaljósin á þakskeggið og súluna. Það þurfti nú fyrst að sanda klakabrynjuna sem var á bílastæðinu þar sem einkasonurinn flaug á hausinn um leið og stigið var á klakann. Pabbinn notaði að sjálfsögðu risa skóflu til verksins og Benjamín var með sína pínuskóflu og hjálpaði til, að sjálfsögðu. Þegar verkinu var lokið vildi hann nú endilega fá að nota stóru skófluna, en hún var auðvita alltof stór og þung til að hann gæti notað hana og þá átti pabbi að gjöra svo vel að nota skófluna og Benjamín að horfa á annað var ekki tekið í mál, hann fékk hins vegar ekki að ráða í þetta skiptið, en það var furðufljótt að jafna sig!
Skoða tjaningar.
(5 hafa tjáð sig, síðast Anna Karen)
|
Breytingar á heilastarfsemi?
23.11.2006 00:53 - Hjördís skrifar
Ég var að enda við að skila af mér verkefni sem er skilað á heimasíðuformi...sem er nú ekki frásögu færandi nema það að við þetta rifjaðist nú upp fyrir mér að einhverntíma í "gamladaga" þegar ég var að byrja í kennó áttum við að gera alls kyns verkefni í námskeiði sem kallast "upplýsingatækni" og þar á meðal áttum við að umbreyta mynd af okkur sjálfum svo við yrðum óþekkjanleg og annað verkefni var að búa til fréttabréf í einhverju forriti sem ég man ekki einu sinni hvað heitir lengur. Ég ákvað að enda kvöldið á því að skoða öll þessi verkefni (sem eru opin á netinu by the way...:s) og rak þá augun í þetta stórmerkilega fréttabréf mitt sem gefur klárlega til kynna að heilastarfsemi brenglast í óléttum konum...
Fréttabréfið er þrjár bls. og þið flettið um blaðsíðu með því að ýta á gula dálkinn uppi í vinstra horninu blaðsíða 1, blaðsíða 2 eða blaðsíða 3... mæli ég sérstaklega með matseðlinum vikuna fyrir fimmtugs afmælið og síðan sögunni um hann Jóa minn... myndin er heldur ekki slæm og þess ber kannski að geta að forsíðumyndin er sú sama og er á næstu bls...upphaflega allaveganna.
Þannig að þeir sem vilja geta skemmt sér endilega kíkið við...hinir geta bara verið í fýlu úti í horni!
Hér er Fréttabréfið
Skoða tjaningar.
(5 hafa tjáð sig, síðast Steinunn Gerður)
|
Málarameistarinn
21.11.2006 10:31 - Benjamín skrifar
Já það er ekki einfalt líf að vera svona lítill. Maður má aldrei það sem mann langar og þarf að gera eitthvað sem maður hefur engan áhuga á að gera eins og t.d. að skipta um bleyjur og svona. Í morgun var mamma að laga tölvuna sína því hún er eitthvað að kalka greyið, orðin svo arfagömul á tölvumælikvarða a.m.k. og hún er sko MIKLU eldri en ég...og ég er sko gamall. Anyway þá stóð ég ofaná mömmu og var að leika með leirinn minn sem er uppi í hillu en það sem mamma fattaði ekki er að fingramálningin var líka í hillunni hjá leirnum...Ég dundaði mér við að opna bláu dósina, sem var alls ekki svo auðvelt og dundaði mér svo við að mála geisladiskana og skrifborðsstólinn, ég passaði mig á því að segja ekki NEITT á meðan svo ég yrði ekki gómaður, en mér skilst að það hefði verið betra ef ég hefði sönglað aðeins á meðan því þá hefði þetta ekki fattast jafn fljótt. Allaveganna sagði mamma mín að ég væri eitthvað óvenju hljóður og hvað ég væri eginlega að gera þá beygði ég mig bara aðeins niður og málaði aðeins á bolinn hennar með puttunum og sú varð nú ekki hrifin:o) Mér sem finnst ég vera svo sætur svona með bláa kinn og bláa samfellu...og bláa putta...við fórum þá bara í staðinn að leira á eldhúsborðinu, þar til ég nennti því ekki lengur og hennti öllu draslinu á gólfið...en hafið engar áhyggjur, ég er búinn að taka það saman, og var fljótur að því!
Afmælisóskir dagsins fara til Ágústar Arnar frænda míns en hann er sko 2ja ára í dag og ég hlakka ekkert smá mikið til að hitta hann þegar hann kemur til Íslands í desember. Þá verður sko fjör hjá okkur frændunum. Elsku Ágúst Örn okkar, við óskum þér innilega til hamingju með daginn og vildum svo mikið að við værum þarna hjá þér til að halda uppá hann með þér.
Síðan eignaðist Addi vinur pabba míns litla stelpu í gær 20.nóv og við óskum honum innilega til hamingju með prinsessuna, kannski næ ég að heilla hana upp úr skónum í framtíðinni ;)
Skoða tjaningar.
(2 hafa tjáð sig, síðast Helga og co)
|
Nýja rúmið!
20.11.2006 19:57 - Hjördís skrifar
Við tókum þá ákvörðun á leiðinni heim í gær að koma við í Ikea og kaupa rúm handa Benjamín. Hann hefur ekki sofið á nóttunni án þess að vakna vælandi nokkrum sinnum því hann er fastur í rimlunum með lappirnar eða búinn að dúndra hausnum í rimlana. Greyið litla, hefur alltaf haft SVO mikla þörf fyrir að hreyfa sig í svefni...hann var nýfæddur þegar hann fattaði að ef hann spriklaði nógu mikið þá fór sængin af honum og ekki var hann lengi að átta sig á því að það færi betur um hann ef hann reyndi að finna sér þægilegri stellingu og eftir rúmt ár af höfuðskellum og fótaflækjum ákváðum við að hann væri orðinn nógu stór til að fara í stórubarnarúm...og það var víst rétt. Hann sofnaði eins og engill í nýja rúminu sínu og svaf ALLA nóttina og rumskaði ekki einu sinni. Við hjónin gátum náttúrulega ekki trúað þessu og litum inn til hans af og til til að tékka á því hvort við finndum hann nokkuð á gófinu en stoppfjölin virtist vera að gera sitt gagn og hann gat breytt úr sér á alla kanta og lá alla nóttina eins og stjarna í laginu og vaknaði svo bara þannig um morguninn (á öðrum stað þó í rúminu). Þetta var óskaplega mikill léttir, og honum þykir svo vænt um nýja rúmið sitt að þegar hann var kominn heim af leikskólanum fór hann upp í rúm, slökkti ljósin í herberginu og þóttist vera að fara að sofa...þeir sem þekkja til vita að hann er ekki mikið fyrir að "þykjast vera að fara að sofa" í myrkri og hvað þá upp í rúmi...ef það er ekki komin nótt þá eru rúm BARA til að fíflast í og hoppa í sænginni hjá mömmu og pabba. Þetta er því bara hið besta mál og allir fjölskyldumeðlimir hæstánægðir með nýja rúmið.
Skoða tjaningar.
(2 hafa tjáð sig, síðast Ösp)
|
Smá lagfæring og hamingjuóskir
17.11.2006 10:02 - Hjördís skrifar
Já það gleymdust víst nokkrir í þessari upptalningu minni, þ.e. sumsé þær systur Linda og Freydís sem eiga afmæli 14. og 25.okt og svo er náttúrulega hún mamma mín sem er 5.janúar en þegar er komið svona yfir á næsta ár þá byrjar maður ekki að hugsa um það fyrr en á milli jóla og nýárs :) Svo á Freydís náttúrulega líka að eiga lítinn strák í janúar híhí...þetta ætlar engan endi að taka!
En svona í tilefni dagsins þá var skólasystir mín og góð vinkona að eignast litla prinsessu í gærkvöldi 8 mínútum yfir miðnætti þannig að daman á afmæli í dag! En sú átti að fæðast 11.nóv og lét því bíða örlítið eftir sér, þveröfugt við bróður hennar hann Patrik Dag sem er mánuði eldri en Benjamín og kom tveimur vikum fyrr í heiminn en hann átti að gera:Þ Elsku Steinunn, til hamingju með litla gullmolann.
Skoða tjaningar.
(2 hafa tjáð sig, síðast Helga mágkona)
|
Smá bón til ættingja og vina!
15.11.2006 19:48 - Hjördís skrifar
Úff það er alltaf svo erfitt þegar maður hefur ekki tíma til, eða réttara sagt gefur sér ekki tíma til að skrifa í nokkra daga, þá fer allt í einn hrærigraut og enginn man neitt lengur eða hvenær það litla sem maður man gerðist.
Fyrst má nú nefna að við fórum í afmæli til Teresu litlu á laugardaginn, þar var hlaðborð af alls kyns góðgæti sem ættingjarnir náðu að skjóta saman. Þar var fullt af góðu fólki og rosa gaman. Til hamingju með 1 árs afmælið 11. nóvember elsku Teresan okkar.
Síðan má nú ekki gleyma henni ömmu Hjördísi sem átti afmæli í fyrradag 13. nóvember, haldiði að kéllan sé ekki orðin 75 ára, gæti eins verið fimmtug! Til hamingju með daginn elsku amman okkar, vonandi skemmtiru þér vel á afmælisdaginn úti í Slóveníu.
Þetta eru nú samt ekki einu afmælin á þessum árstíma, nei, ónei. Ef við tökum frá fyrsta afmæli sem er 20.október þá er hún Svava vinkona, 29.okt eru Hrafnhildur Gerða og amma Jófý, 11.nóv er Teresa, 13.nóv er amma Hjördís, 21.nóv er Ágúst Örn, 24.nóv er Baldvin, 29.nóv er Víðir Óli, 2.des eru Guðmundur Óli og amma Billa, 3.des Marzibil Ósk og Hemmý, 6.des Bryndís, 8.des ÉG og Helgi Steinarr 10.des Helgi tengdó, 20.des Arna vinkona, 22.des Anna Karen vinkona, 26.des Bergsveinn Ómar 27.des afi Bói og síðast en ekki síst 31.des Helga Guðrún. Fjúff...því viljum við beina þeim vinsamlegu tilmælum til vina og ættingja að hætta að framleiða börn og eignast maka sem eiga afmæli á þessum árstíma...þetta er FEIKINÓG, það má líka slaka aðeins á í mars og apríl, það er líka orðið gott þar, í báðum fjölskyldum og vinahópum. Svo má ekki gleyma því að vinir Guðmundar eiga akkúrat afmæli í þessum mánuðum líka svo og örugglega einhverjir sem við erum að gleyma...en það er í lagi...við gefum þeim ekki gjafir!!!!!!!:) Hvernig væri nú að fara að nýta sumrin til barneigna!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Skoða tjaningar.
(2 hafa tjáð sig, síðast Helga mágkona)
|
Þá kemur herra "Khokhodi" og "ammmm"
10.11.2006 12:16 - Benjamín skrifar
Vá maður, veðrið! Anyway eftir nokkrar mínútur þurfum við mamma að rölta í vinnuna í þessu óveðri, ekki það að ég vorkenni okkur eitthvað en kannski aðrir geti gert það fyrir okkur, veit að amma Gerða á eftir að gera það ;)
Í gær komu afi Albert og amma Sigga og Kjartan frændi og amma Hjördís að sækja mig á leikskólann. Það var kreisí gaman og ég fór bara heim með þeim á meðan mamma var að vinna. Amma Sigga átti nefnilega að fljúga í nótt til Slóveníu, en hún komst ekki neitt hahaha. En hún er reyndar farin í loftið núna kellingin með ömmu Hjördísi og ömmu Möggu og ömmu Sigurlaugu...úff, er hægt að eiga svona margar ömmur og þetta er bara rétt hluti af þeim.
Núna finnst mér skemmtilegast að syngja "khokhodi" lagið...sem má þýða sem krókódílalagið, það eru allskyns skemmtilegar hreyfingar í því sem ég hlæ og hlæ þegar ég þarf að gera þær. Síðan ef ég sé krókódíl finnst mér einstaklega skemmtilegt að segja nafnið hans. Bíllinn sem ég fékk frá ömmu Gerðu, Billu, Víði Óla og Teresu þegar ég var svo duglegur hjá læknunum í síðustu viku er í miklu uppáhaldi þessa dagana. Ég dreg hann á eftir mér hvert sem er og stoppa svo við og við til að kubba, því það er svona kubbageymsla í honum, sveiklíg flottur.
Man ekkert af þessu skemmtilega sem ég ætlaði að segja ykkur en það bíður þá bara betri tíma.
"Abbisín" er reyndar samheiti núna hjá mér yfir flesta ávexti, og "abbisín" er sko klikkað gott og þá sérstaklega appelsínur og epli. Stundum má líka kalla epli "ebbi" en mér finnst það soldið hallærislegt þannig að "abbisín" er aðalorðið. Já svo er ég bara farinn að segja flest orð sem ég heyri og finnst það rosa gaman "gaut"=grautur, "dig"=diskur, "gei"=skeið og fleiri fleiri fleiri svona orð bætast svo við á hverjum degi.
Over and out!!!
Skoða tjaningar.
(2 hafa tjáð sig, síðast Lilja frænka)
|
Bóðprufan mín fín tín sín
08.11.2006 06:14 - Benjamín skrifar
Já í gær hringdi læknirinn minn hann Siggi stuð og sagði að ég væri rosa töff strákur, ég vissi það reyndar alveg fyrir...en takk samt. Blóðprufan mín var í himnalagi og ekkert vantaði upp á prótein né eggjahvítu í blóðinu og hann sagði meira að segja að járnið væri í toppfori sem er víst ekki algilt hjá svona stórum strákum (litlum börnum sagði hann reyndar en ég er ekkert lítill bara svo þið vitið það!!!). Ég er því bara svona rosa lordalegur með mína fínu útstæðu bumbu...sem betur fer...ætla að líkjast Gauta frænda mínum í framtíðinni!!!!
Skoða tjaningar.
(8 hafa tjáð sig, síðast Gauti frændi)
|
Proud owners of a new svalahurð!!!
04.11.2006 14:53 - Hjördís skrifar
Já, þá er nefnilega svalahurðin LOKSINS komin upp, reyndar varð Guðmundur að rjúka í einum grænum til Reykjavíkur að kaupa stærri þéttipylsu því sú sem við áttum var ekki nógu sver. Ekki vildum við nú hafa blástur inn í nótt...neinei. Gauti kom og hjálpaði frænda sínum við verkið, takk fyrir það!
Það var svona u.þ.b. frostmark hérna inni áðan, en það er nú allt að koma í lag þó svo að það eigi eftir að fylla í raufarnar...það verður gert á eftir!
Skoðunin í gær gekk bara "vel", en það má kannski skilgreina það sem vel og ekki vel og kannski fer það eftir hver er spurður frétta hvernig fór. Doktorinn náði allaveganna myndunum og hjúkkurnar þrjár náðu blóðprufunni en ég get fullyrt að Benjamín fannst ekki ganga vel og fannst þetta minnst skemmtilegt í heiminum. Enda var honum haldið kyrfilega niðri bæði í sónarnum og blóðprufunni og þurfti að stinga í báðar olnbogabætur til að ná blóði og færa nálina til til að reyna að komast í æð áður en ákveðið var að skipta um bót.
Sigurður barnalæknir hringdi svo strax um 4 leitið til að tilkynna að ekkert hefði fundist í sónarnum, hvorki vökvi í kviðarholi né óvenjlegur vöxtur í líffærum þannig að við gátum andað léttar þar. En það kemur ekki út úr blóðprufunni fyrr en eftir helgi og kemur þá í ljós hvort það vantar eitthvað í hann eða hvort hann sé með ofnæmi fyrir einhverjum ákv. fæðutegundum. Krossleggjum fingur og vonum bara að hann sé svo "Lordalegur" að þess vegna sé bumban svona útstæð (á læknamáli þýðir lordalegur að vera fattur og labba fattur eins og hinir háttsettu Lordar(lávarðar), en Benjamín hefur verið fattur síðan hann fór að standa fyrst. En þetta kemur allt í ljós og við skulum ekki vera að búa til áhyggjur áður en við vitum niðurstöðuna!
En nú er einhver að rumska úti í vagni þannig að ég er þotin...hafið það gott!
Skoða tjaningar.
(4 hafa tjáð sig, síðast Gauti)
|
Ætlar engan endi að taka
02.11.2006 22:48 - Hjördís skrifar
Ég fór með Benjamín í mesta sakleysi í 18 mánaða skoðun í morgun. Kúrfan var bara í besta lagi og allt í góðu...þar til læknirinn sá magann eða réttara sagt bumbuna á Benjamín. Hann er með svona afríkubarna bumbu þegar hann er búinn að borða og allir hafa hingað til haldið að hann sé bara svona grannur að það sjáist bara þegar hann hefur borðað mikið. En læknirinn hringdi strax og pantaði ómskoðun og blóðprufu til að tékka á vökvasöfnun í kviðarholi og hvort hann væri að nýta eggjahvítu og prótein úr fæðunni...sem honum fannst ólíklegt að hann væri að gera.
Við erum semsagt á leiðinni í ómskoðun á morgun, veit nú ekki alveg hvernig það virkar á stubb sem getur aldrei verið kjurr :)
Pensillínskammturinn er búinn sem var fyrir eyrnabólgunni en læknirinn gat ekki séð hlustina á Benjamín í morgun því síðasti læknir á Dómus sem hafði skoðað eyrun á honum hafði ýtt mergnum lengst inní eyrað með tækinu sínu...hvað er það nú...eiga þeir ekki að vera þjálfaðir í þessu, finnst þetta eitthvað einkennilegt. En hann vildi ekki ná í merginn í morgun því hann myndi bara meiða hann með því, það yrði að gera það einhverntíma seinna. Einnig treysti hann Benjamín ekki í bólusetninguna því ef hann vantaði eggjahvítuna og próteinið þá gæti hann orðið fárveikur af því og ætti þá líka eftir að ná sér í hverja sýkinguna á fætur annarri...þannig að við förum aftur til hans á fimmtudaginn eftir viku þegar allt er komið í ljós hvað er að hrjá drenginn!!! Vonandi er hann bara með útstæðan maga...
Jæja ekki fleira í bili, bið ykkur vel að lifa...
Já by the way, Benjamín var 10,8 kg og 82-3cm
Skoða tjaningar.
(7 hafa tjáð sig, síðast amma Sigga)
|
| |