Forsíða
Um okkur
Eldra efni


Vinir og ættingjar
Ari Gabríel
Birkir Örn
Burknavallakrúttin
Bína
Dagur og tvillarnir
Karen Hrund
Kjartan og Lovísa
Magnús Orri
Patrik og Ísabella
Sigga Hulda
Silja
Tvíburamamman
Fréttir í Október 2009

Fríðari dagar
11.10.2009 13:32 - Hjördís skrifar
Það er óhætt að segja að eldri drengurinn hafi verið töluvert fríðari í íþróttatímanum í gær en fyrir viku síðan. Andlitsgeiflurnar og nefhrukkurnar sem mynduðust við það að reyna að halda hárinu frá augunum þegar verið var að hlaupa voru nú á bak og burt! :) Þannig að hægt var að einbeita sér að æfingunum í stað þess að hrinda hárinu úr vegi.

Annars var Ísak veikur í vikunni með hita og skelfilegan hósta. Reyndar held ég að hitinn hafi orsakast af tanntöku vígtannanna sem eru nú í óðaönn við að bora sér upp á yfirborðið. Bræðurnir báðir eru reyndar með töluverðan hósta en það fylgir víst haustinu, vetrinum og vorinu!

Í næstu viku verður Benjamín í Björnslundi. Það er ofboðslega skemmtilegt. Þá er hann alla vikuna í skógarhúsinu þar innfrá og þau eru úti að leika í skóginum nær allan daginn. Fara rétt inn til að borða og kannski slaka smá á ef aftakaveður er.

Annars líður tíminn svo hratt að ég trúi því bara ekki að október sé nærri búinn og jólin að koma! :) En í alvöru þá líður mér eins og ég hafi ekki tíma til að snúa mér við, vikan líður á þúsund þannig að öllu sem gera átti í vikunni er lokið að 1/8 og helgin flýgur svo hratt hjá að maður er rétt búinn að fatta að það sé komin helgi þegar sunnudagskvöldið bankar upp á og maður er að fresta því sem átti að gera um helgina fram að næstu helgi.

Foreldradagur var í skólanum á föstudaginn, þar sem ég tók viðtöl við nemendur mína og foreldra þeirra. Alltaf jafn gleðilegir dagar...foreldrar rokka!!

Skoða tjaningar. (3 hafa tjáð sig, síðast Lilja)


Amma var til í gamla daga!
07.10.2009 23:41 - Benjamín skrifar
Það var barnatími í sjónvarpinu í dag um Neanderdalsmenn. Benjamín var ekki lengi að átta sig þegar hann horfði á þáttinn og spurði "hvar er amma í Mývatnssveit, hún var til í gamla daga".






Rokkarar safna hári!
04.10.2009 09:15 - Benjamín skrifar
Þetta hefur verið setning heimilisins síðasta mánuðinn þar sem foreldrarnir hafa reynt að fá að klippa þó ekki væri nema toppinn á eldri drengnum svo hann sjái nú út, en allt hefur komið fyrir ekki. Hann ætlar að verða rokkari og þá fá skæri eða rakvél ekki að koma nálægt hans haus! Í gær vorum við svo í leikfiminni í Árbærjarskóla þegar ég tók eftir mjög svo áhugaverðum kippum og kækjum í andlitinu á kauða sem orsökuðust af hári niður fyrir augu með tilheyrandi sjónleysi og kitli í andliti! Óhætt er að segja að hann hafi ekki verið mjög frínilegur með reyttann lubbann, grettinn og tannlaus. Við ræddum þetta aðeins (ég og Benjamín) en enn var alltaf sama svarið..."rokkarar safna hári" og við það er ekki tjónkað. Rök á við "en rokkarar láta stundum snyrta endana" og "hárið vex hraðar ef það er aðeins klippt af því" höfðu engan hljómgrunn og þutu bara út í loftið óheyrð og hárið enn ósnertanlegt. Ég reyndi að sýna honum myndir af sér þegar hann var með styttra hár og afskaplega sætur, en umræðum var slitið og myndasýningin tekin yfir þar sem mömmunni var sparkað úr stjórnandasætinu og valdar voru betri myndir þar sem rokkaragreiðsla réði ríkjum!

Svo leið dagurinn og satt best að segja man ég ekki hvernig verknaðurinn byrjaði, en drengurinn var mjög tregur til. Rakvélin fékk að fara nokkrar ferðir um framanvert höfuðið þar til hann var kominn með "myndarlega" sítt-að-aftan-greiðslu. Þá mátti alls ekki raka meira. Mamman dó nú ekki ráðalaus, fór inn á youtube og fann hin ýmsu myndbönd með Andy í hjólastólnum í Little Britain. En hvað annað kom til greina en drengnum finndist það bara ein flottasta greiðsla sem hann hafði séð og spurði "er ég svona?..."já"..."vá þetta er flott"!!! Veit ekki hvort þetta hafi verið til að pirra mömmu sína eða útaf einstaklega slökum hársmekk en allavega endaði kvöldið með því að hann fór í bað að skola af sér dúninn og var svo yndislega sætur sofandi í rúminu sínu, tannlaus og nýrakaður ....segið svo að það sé ekki hægt að kúga börn!..eða Íslendinga!!!

Skoða tjaningar. (1 hefur tjáð sig, síðast Lilja frænka)


Nammi fyrir 20.000 krónur
01.10.2009 17:29 - Hjördís skrifar
Fór í Bónus og keypti nammi og gos fyrir nánast sléttar 20.000 kr. á þriðjudaginn. Reyndar var það alls ekki til einkanota heldur í sjoppu starfsmannafélagsins í vinnunni. Nammileiðangurinn var farinn eftir vinnu og því var frumburðurinn tekinn með (hinn var í pössun hjá ömmu sinni eftir daginn sökum aðlögunar á leikskólanum). Benjamín var hæstánægður með nammið og gosið sem lenti í kerrunni og sönglaði á háannatíma í Bónus með mömmu sem fyllti heila innkaupakörfu af nammi og gosi "ég elska nammi, ég elska nammi". Það er ekki laust við að mamman hafi roðnað pínu og talað hátt um það að fólkið í vinnunni elskaði líka nammi og þess vegna þyrftum við að kaupa svona mikið fyrir FÓLKIÐ Í VINNUNNI!!!

En út í annað um sama efni þó! Ég bjóst alls ekki við að geta fyllt heila körfu af ógeði fyrir 20.000 krónur. Það kom mér hinsvegar verulega á óvart hve mikið nammi fékkst fyrir þennan pening sem ekki er talin vera há upphæð í dag. Svona svo ég talið aðeins við sjálfa mig bara!

Annars er vinnan hið besta mál og dagarnir líða svo hratt að á fundi á mánudaginn var verið að tala um foreldraviðtöl sem verða á föstudaginn í næstu viku (sumsé nær 2 vikum frá fundartímanum). Það var verið að ræða einhver plögg sem þarf að fylla út og senda heim með nemendum eigi síðar en miðvikudaginn í næstu viku. Ég stóð sjálfa mig að því að hugsa (á mánudegi) oh, vá þessi vika er að verða búin.....!!..?..... og þá eru bara mánudagur og þriðjudagur eftir!!! Og raunin er sú að nú er síðasti vinnudagur vikunnar á morgun og mér finnst ég varla búin að standa upp af fundinum og hvað þá að nú séu liðnir 3 dagar síðan!!!

Jólin, jólin, jólin koma brátt!!!

Skoða tjaningar. (2 hafa tjáð sig, síðast Sigga Hulda)


Myndir