Forsíða
Um okkur
Eldra efni


Vinir og ættingjar
Ari Gabríel
Birkir Örn
Burknavallakrúttin
Bína
Dagur og tvillarnir
Karen Hrund
Kjartan og Lovísa
Magnús Orri
Patrik og Ísabella
Sigga Hulda
Silja
Tvíburamamman
Fréttir í Október 2007

Jólabaksturinn
30.10.2007 13:37 - Benjamín skrifar
Í gær sótti mamma mig eldsnemma á leikskólann en það var búið að vera rosa rosa gaman að vera úti að leika í snjónum. Mamma var búin að fara í búðina og kaupa hellings til að baka úr og við ætluðum heim að baka. Hins vegar þegar ég kom út úr bílnum var svo gaman í öllum snjónum að ég vildi bara alls ekki fara inn og var því úti að leika mér í snjónum. Að lokum tókst mömmu þó að lokka mig inn og við bökuðum rosa rosa góðar súkkulaðihlunkasmákökur sem eru alveg rosa rosa góðar. Svo þegar pabbi var loksins kominn heim úr vinnunni fórum við í afmæli til Hrafnhildar Gerðu, hún var 3ja ára í gær. Hún fékk rosa rosa mikið af flottu dóti maður, og ég var bara að leika við hana til hálf tíu þegar allir voru farnir heim. Fékk svo að lúra aðeins í morgun því mamma þurfti ekki að mæta í skólann og ætla svo líka að koma ELDsnemma heim í dag, við mamma gerum eflaust eitthvað meira skemmtilegt saman.

Frá mömmu: Það er búið að vera svo jólalegt veður í gær og fyrri hluta dagsins í dag að það er bara eins og jólin séu komin og maður bara kominn í heljarinnar jólaskap. Reyndar fór snjókoman að verða blautari eftir því sem leið á hádegið í dag og því orðið frekar blautt og slabblegt úti um að litast núna :s...Smákökurnar smakkast vel en það verður að segjast að það eru ekki margir fjölskyldumeðlimir sem borða þær...heldur eginlega bara einn, og það er ÉG sem er ekki hið besta mál, bíðum alltaf eftir gestum en það lætur aldrei neinn sjá sig :(
. Eins og glöggir lesendur áttuðu sig á þá er allt rosa rosa flott, rosa rosa gott, rosa rosa fínt og bara rosa rosa eitthvað hjá þeim minnsta þessa dagana.
Ég efast ekki um að Benjamín verður jólabarn eins og mamma sín. Ég sagði fyrir algjöra slysni við hann um daginn að nú færu kannski jólasveinarnir bráðum að koma og þá sagði hann bara "líka jólatré og pakkar undir jólatré"....þá man stýrið þetta frá síðustu jólum...ÓTRÚLEGT!!!
Jæja ætla að drífa mig að sækja litla stúfinn, það er svo yndislegt að sækja hann snemma þegar maður er ekki að vinna til 4!!!

Skoða tjaningar. (3 hafa tjáð sig, síðast Helga)


Gleðidagurinn 5. maí...
29.10.2007 15:58 - Hjördís skrifar
...eða þar um kring. Þann 5. maí er von á öðrum litlum gleðigjafa á þetta heimili og er tilhlökkunin mikil. Þessar 13 vikur sem hann hefur verið að þroskast hafa nú ekki verið þær skemmtilegustu þar sem ég er alls óvön svona djö... meðgönguóþægindum með hann Benjamín minn, sem lét sko ekkert finna fyrir sér nema með heldur fjörugum spörkum frá 17. viku og er enn í sparkinu, sérstaklega þegar hann sefur. En þetta er nú allt að líða hjá og fyrsta mæðraskoðun og hnakkaþykktamæling í síðustu viku. Allt lítur svaka vel út og við fyrstu sýn virðast allir vera við hesta heilsu.

Pabbi var í Reykjavík í síðustu viku og um helgina að leggja parket hjá Kjartani og LÍÚ landsfundi. Okkur var boðið á LÍÚ hátíðina á Broadway og annað eins hef ég nú bara sjaldan vitað þó er þetta þriðja hátíðin hjá þeim sem ég fer á. Það voru hvorki meira né minna en 6 RÉTTIR og svo kaffi og koníak í lokin (sem ég reyndar sleppti pent). Þegar sest var að borðum voru raðir af vínglösum, eitt glas fyrir hvern rétt...sem ég gat ekki notað heldur, þannig að mín voru fjarlægð. Þetta var hrikalega gott allt saman og við vorum algjörlega að springa kl. hálf tólf þegar síðasti rétturinn var framreiddur...já það er rétt, borðhald var frá 20 - 23.30!!!

Lára var heima að passa Benjamín á meðan. Hann dýrkar hana, og held hann líti á hana sem gyðju af öðrum heimi eða eitthvað álíka. Hún er heilög og enginn á hana nema Benjamín og ekki einu sinni Dimmalimm má vera hjá henni. Hann hleypur til hennar með útréttar hendur og knúsar hana rembingsknús þegar hann sér hana og ef hún er að passa hann á kvöldinn má enginn lesa fyrir hann kvöldið á eftir nema Lára, þó svo að hún sé hvergi nálægt. Lára sækir hann líka í leikskólann á fimmtudögum á meðan ég er í vettvangsnáminu því þá þarf ég að vera á kennarafundum til 5. Hann hlakkar svo til á fimmtudögum þegar Lára ætlar að sækja hann og ef mamma eða pabbi mæta á svæðið á undan Láru verður allt brjálað, ég þurfti t.d. að láta Láru sækja hann síðasta fimmtudag þó svo að ég hafi verið búin fyrir 4 að vinna, hún sótti hann og kom með hann heim, hún er yndisleg.



Skoða tjaningar. (8 hafa tjáð sig, síðast Svava)


Gullkorn
25.10.2007 18:31 - Benjamín skrifar
Við erum allt of léleg við að skrá hjá okkur gullkorn, keypti um daginn forláta bók fyrir gullkorn en færlsurnar í hana hafa verið jafn fáar og á þessari síðu. Hér kemur þó eitt frá því í morgun...

Eldsnemma í morgun vaknaði Benjamín og þurfti að pissa, við fórum á klósettið og lásum eina bók á meðan pissið kom og svo fórum við til baka inn í herbergi í kolniða myrkri því það var jú ennþá nótt. Það sást ekki handa skil og sérstaklega ekki eftir að hafa verið í birtunni inni á klósetti og á meðan ég held á honum og ætla að leggja hann í rúmið segir hann "Mamma, þú ert týnd!!" (borið fram þ og t = d)

Hann lá í rúminu í svolitla stund vakandi og vandist myrkrinu og stuttu seinna heyrist "mamma, ég er ekki lengur týndur" (borið fram l = g og t = d)....



Skoða tjaningar. (3 hafa tjáð sig, síðast Helga)


Góðu dagarnir halda áfram
22.10.2007 10:46 - Hjördís skrifar
Jájá, lífið er bara búið að vera gott síðan síðast, komst mér til mikillar gremju að því að það þýðir víst lítið að vera að kvarta og kveina undan bloggleysi á öðrum síðum þegar framistaða manns sjálfs er heldur slök á eigin síðu. En mér finnst voða leiðinlegt þegar ég kíki reglulega á síður og það er ekki komin ný færsla daglega og helst að morgni og kvöldi...þannig að vil ég nú fara að biðja ykkur að bæta úr því...ég sé svo til með jólabloggið í desember, kannski eitt afmælisblogg í byrjun desember :D
Það er bara búið að vera kreisí að gera, fyrst skóli í RVK og svo kenna hérna í grindavík á unglingastiginu og það er ekkert grín skal ég segja ykkur að vera með 27 14-15 ára gangandi hormónahrúgur í einni kennslustund...myndi aldrei láta bjóða mér þetta sem umsjónarkennari...eða annar kennari, verð víst að láta kúga mig í þessu vettvangsnámi...GET EKKI beðið eftir að verða útskrifuð og geta gert það sem mig langar!!!!!!!!!!!!!!! Er í tilvistarkreppu með hvað ég á að gera en get sagt ykkur það að 10. bekkirnir hér eru ekki uppörvandi fyrir kennara þó svo að hinir séu það kannski (8. og 9. bekkirnir), svo náttúrulega svo fáránlegt eins og það er að vera að troða kennaranemum í eitthvað vettvangsnám í nokkrar vikur vitandi það að það er alltaf "erfitt" fyrir krakkana að höndla svoleiðis hvort sem það er á yngsta eða elsta stigi...frekar að hafa bara eitt ár í starfsnám þar sem tveir til þrír sjá um bekk!!! Get sagt ykkur það að bekkurinn gæti ekki fengið betri kennslu, hef alveg séð það á þessum vettvangstímum að kennarar eru upp til hópa hugmyndasnauðir heybaggar...

Neinei, sussusussu ekkert svona...en svona er tilvistarkreppan, neikvæðar hugsanir. En skellti mér nú á reiðistjórnunarnámskeið áðan, eða það sem ég hélt að væri reiðistjórnunarnámskeið :) Það var starfsdagur hjá skólanum og fyrsti fyrirlestur var reiðistjórnum...við kennaranemarnir mættum að sjálfsögðu í þeirri trú að við værum að fara að læra að hafa stjórn á þessari hamslausu reiði okkar alla daga!!! En annað kom nú á daginn, þetta var fyrirlestur um tíma í reiðistjórnun og félagsfærni nemenda sem eiga við slaka félagsfærni eða hegðunarröskun að stríða...mikið var það skemmtilegt...eða eitthvað álíka!!!
Þá ákvað ég nú bara að fara heim og hella úr huga mínum hér inn svo þið getið nú aldeilis skemmt ykkur yfir herlegheitunum sem eru búin að búa í kolli mínum síðustu vikur!!! Ef ykkur finnst þetta leiðinlegt ráðlegg ég ykkur eindregið frá því að hætta ykkar höfði (og aðallega eyrum) hér inn í Staðarhraunið í bráð!

Neinei, svona aðeins á léttari nótunum, þetta er nú meira bara svona létt grín hér að ofan og ofurdramatík á því sem hefur verið að gerjast í þessu kennaranámi í haust. Annars er allt gott að frétta, Benjamín búinn að vera mikið hjá afa og ömmu á Skúlagötunni vegna ótrúlegra anna hjá okkur foreldrunum en honum leiðist það nú ekki kappanum! Vill yfirleitt ekki koma heim aftur þegar við sækjum hann, en hans er sárt saknað á meðan og litlu foreldrahjörtun vita ekki hvað þau eiga af sér að gera þegar þau eru ein heima og enginn Benjamín til að knúsa og kjassa.

Jæjajæja, ætla að stoppa hér þar til næsta færsla kemur :D

Skoða tjaningar. (4 hafa tjáð sig, síðast Bína kennaranemi!)


Myndir