|
|
Fréttir í Október 2006
|
Góður dagur!!!
30.10.2006 18:16 - Benjamín skrifar
Jæja, dagurinn í dag var bara mjög góður, ég var glaður og hress og var aftur orðið nokkuð sama þegar mamma mín var að hugga önnur börn á leikskólanum...það er nú ekki hægt að láta þau bara gráta og gráta og mamma mín er svo góð að hugga að ég leyfi henni það bara án þess að vera eitthvað að skipta mér af. Samt klappa ég stundum krökkunum á kollinn sem eru að gráta.
Í gær fór ég í afmæli til frænku minnar sem varð 2ja ára. Það var rosa gaman og ég ætla að óska henni aftur til hamingju með afmælið. Hún átti voða flott dót sem ég var að leika í og svo voru líka voða góðar tertur...Til hamingju með afmælið Hrafnhildur Gerða frænka mín og svo átti amma Jófý líka afmæli í gær en ég komst ekki í afmæliskaffi til hennar en hún fær líka bestu afmæliskveðjur frá mér og þeim gömlu.
Skoða tjaningar.
(2 hafa tjáð sig, síðast BILLA ÓSK VÍÐIR ÓLI OG TERESA)
|
þvottaskrímslahúsamonster
28.10.2006 18:09 - Hjördís skrifar
Ég held að Benjamín sé farið að batna í eyrunum. Allaveganna er hann ekki jafn pirraður en hins vegar ældi hann síðast í gærkvöldi þannig að greinilega einhver bílveikistilfinning enn á ferð. Þvotturinn í þvottahúsinu hrannast upp og mest hætta á því að þvottavélin bræði úr sér. Ælu og niðurgangsföt og rúmföt bíða eftir að fá að skolast. Ég þurfti að setja hann í sturtu á leikskólanum í gær því hann var allur út í niðurgangi og það fara svona u.þ.b. 10 bleyjur í niðurgang á dag og nokkrar á nóttunni líka. Greyið litla er orðinn rauður á rassinum og typpinu en hann hefur ALDREI brunnið hjá okkur áður. Við troðum í hann LGG og AB-mjólk eins og við eigum lífið að leysa en ekki virðist það hafa áhrif á niðurganginn...vonum bara að þegar sýklalyfin eru búin að þá sé bara þessi veikindaalda liðin hjá og við getum farið að lifa eðlilegu lífi aftur :)
Skoða tjaningar.
(7 hafa tjáð sig, síðast Silja frænka)
|
Allt er þegar þrennt er...vonandi
26.10.2006 10:43 - Hjördís skrifar
Jæja, veikindin voru nú alls ekki búin, nú er Benjamín kominn með eyrnabólgu sem er búin að vera grasserandi í tvær vikur, eða frá því að hann hætti að taka pensillínið við kinnholubólgunni. Litla skinnið er búinn að vera svo vansæll á leikskólanum og rosalega pirraður og ældi svo í fyrrakvöld og aftur í gærmorgun. Það var því ráðið að fara með hann á Dómus að láta kíkja á hann. Læknirinn þar sagði að þrýstingurinn væri svo mikill að Benjamín liði alltaf eins og hann væri bílveikur og því ekkert skrítið að hann vildi ekki borða, ældi og liði illa. Hann var líka að enda við að æla núna og ældi einu sinni í nótt greyið litla. Hann er kominn niður í 9,9 kíló og eins og hálfs árs skoðunin eftir viku :s
Skoða tjaningar.
(3 hafa tjáð sig, síðast Skúlsgötuliðið)
|
Og þá urðu aftur fjórir!!!
22.10.2006 21:58 - Benjamín skrifar
Ææææ, Krulli er farinn að heiman og við vitum ekkert hvert. Á fimmtudagsmorguninn þegar við mamma vorum að fara í leikskólann þá elti hann okkur eins og venjulega. Það var frekar kalt. Allt í einu seinni partinn föttum við að við gleymdum að skilja eftir opinn glugga handa kisunum til að fara inn í hlýjuna og fá sér að borða. Við hlaupum því heim um leið og klukkan slær 5 og heima á tröppunum beið Dimmalimm. Krulli hefur ekki sést síðan :( Greyið litla, nú höfum við sotlar áhyggjur af honum en vonandi er hann bara að leika sér einhversstaðar og kemur til baka til okkar.
Dimmalimm er hins vegar sú kátasta með þetta og tók hana ekki nema einn dag að komast aftur í sitt norm. Hún snýst öll í kringum okkur og vill leika og kela eins og áður en Krulli var hjá okkur. Við vonum nú samt að hann láti sjá sig aftur.
Um helgina er ég búinn að vera heilmikið að leika úti með pabba og t.d. tókum við til í bílskúrnum, fjúff er það nú drasl...eitthvað held ég að þetta yrði ekki leyft í mínu herbergi. Pabbi reyndi eitthvað að afsaka þetta en ég lét hann bara heyra það og henti öllu út!!!
Sem betur fer er núna bara rúm vika eftir af langa leikskólanum. Ekki það að mér hafi ekki fundist gaman á honum, bara ég vil líka vera soldið heima að leika, alveg uppgefinn eftir svona langan vinnudag...enda yngstur:)
Kveð að sinni og læt heyra í mér fljótlega....Ofurtöfferinn
Skoða tjaningar.
(3 hafa tjáð sig, síðast Helga)
|
Fjúfffff...þotin hjá!
21.10.2006 10:29 - Hjördís skrifar
Hahahaha, þá er brandarinn búinn og komið að nýrri færslu fyrir hana Lilju mína, henni fannst brandarinn orðinn frekar langdreginn;) Reyndar man ég ekkert mínútunni lengur, það er svo mikið að gerast og tíminn líður bara á öðru hundraðinu og maður ræður ekkert við neitt. Held ég verði sko bara að grúska í dagatalsbókinni á meðan ég hlusta á jólalögin. En það er nú helst að Benjamín er nú búinn að vera eina viku á leikskólanum eftir um 2ja vikna veikindi. Vá hvað mánudagurinn og þriðjudagurinn voru erfiðir. Hann grét og grét gráti sem ég hef aldrei heyrt, heyrði bara barn gráta og þekkti ekki að það var gráturinn í Benjamín, hann mátti ekki sjá mig þá var hann byrjaður og það varð að hafa hann á handlegg allan daginn:( En hann var orðinn alveg góður eins og hann átti að sér að vera í gær. Þær voru nú glaðar fóstrurnar (og ég auðvita líka) þegar hann fór bara að hlæja þegar ég gekk framhjá eins og hann gerir alltaf.
Núna í augnablikinu eru þeir feðgar úti að leika sér dúðaðir í galla og lambhúshettur, ég á víst að vera að læra á meðan en ætli það hafi ekki verið orðið nauðsynlegt að koma einhverju í prent, annars gleymist þetta í dagsins önn.
Ég var í skólanum í síðustu viku (þ.e. fyrir rúmri viku síðan). Svava vinkona mætti þá á svæðið og gisti hjá okkur og var samferða í skólann. Svo vildi nú ekki betur til en að við hjónin nældum okkur í æluna hans Benjamíns og steinlágum bæði á fimmtudagskvöldinu. Reyndar var Guðmundur þá að verða búinn og svaf alla nóttina en ég ældi til fjögur og þurfti svo að mæta í skólann á föstudeginum. En nú vonum við að veikindi í fjölskyldunni séu búin fyrir veturinn. Það yrði nú ánægjulegt.
Annað sem hefur kannski gleymst að segja frá er að miklar breytingar eru á vinnuhögum fjölskyldunnar. Guðmundur fór að vinna aftur á trésmíðaverkstæðinu í Reykjavík og keyrir nú á milli. Ég hef tekið þá ákvörðun að vinna 50% í stað 100% og fæ vonandi um mánaðarmótin að byrja á því. Þá verð ég í vinnu frá 1-5 og Benjamín minnkar sína vinnu (vistunartíma) samkvæmt því. Þá höfum við mæðginin morguninn fyrir okkur í alls kyns leik og starf og feðgarnir fá sinn tíma eftir vinnu á kvöldin á meðan ég loka mig af inni í lærdómsherbergi. Benjamín er farinn að vaka til 9 á kvöldin svo að Guðmundur fái sinn tíma með honum og því er ótækt að rífa greyið úr rúminu til að þjóta á leikskólann í fullan vinnudag og fá svo engan tíma með honum eftir leikskólann því það er svo margt sem þarf að gera þegar heim er komið, enda var það farið að hafa áhrif á hann. GLATAÐ...þessi ákvörðun verður svo endurskoðuð þegar skólinn er búinn og Benjamín orðinn eldri...
Meira var það ekki heillin, nema þá kannski eitthvað poppi upp í hausinn þegar líður á daginn.
Svava vinkona varð TÖTTÖGÖOGFEMM ára í gær, vonum að leynikódið haldi sér, annars bara veit alheimurinn það ;) innilega til hamingju með daginn í gær elsku Svava mín, vildi að ég hefði getað verið fyrir austan hjá þér.
Skoða tjaningar.
(3 hafa tjáð sig, síðast BILLA ÓSK VÍÐIR ÓLI OG TERESA)
|
Smá rugl í ríminu
06.10.2006 10:56 - Hjördís skrifar
Haha, núna síðustu daga hefur Benjamín aldeilis verið að stríða okkur foreldrunum. Veit ekki hvort það er vegna þess að núna er hann búinn að vera veikur í fjóra daga og Guðmundur búinn að vera heima með hann tvo daga af þessum fjórum eða hvort hann er einfaldlega húmoristi. Að sjálfsögðu hefur Guðmundur Óli verið að stússast við að kála þvottahússkrýmslinu og taka til í eldhúsinu og svona hin og þessi húsverk...en allaveganna tók Benjamín upp á því strax á þriðjudaginn að kalla pabba sinn MÖMMU. Hahahahaha, við erum búin að hlæja svo mikið að þessu, hann bendir bara á pabba sinn og segir "mamma" svo spyrjum við, hvar er mamma? og hann snýr sér að pabba sínum. Samt er mamma alltaf mamma líka þannig að nú á hann tvær mömmur drengurinn. Afar hentugt...hehehe.
Skoða tjaningar.
(10 hafa tjáð sig, síðast Lilja)
|
Eruði í gríninu eða?
04.10.2006 13:35 - Hjördís skrifar
Er kominn Október? Ég er ekki að trúa því...hvert fór september? Fjúff held að einn mánuður hafi ALDREI liðið svona hratt á minni ævi...ekki einu sinni mánaðar safaríferðin sem ég fór í útí Ástralíu. Skólinn að verða hálfnaður og staðlota í næstu viku og mér finnst eins og ég hafi verið í skólanum í síðustu viku.
Við hjónin ákváðum að skella okkur á Argentínu á meðan Benjamín svaf hjá ömmu sinni og afa...reyndar fréttum við það daginn eftir að hann sofnaði nú bara seinna en foreldrarnir! En við fengum þó að sofa út og sváfum til 8:30 hahaha reyndar vorum við vakin af köttunum sem geta ekki verið rólegir á nóttunni og bjöllurnar æra mann...en það hlítur að koma að þvi að þeir hætta að nenna að hamast alla nóttina.
Já svo við höldum nú áfram með Argentínu, fékk ég þarna eina bestu máltíð sem ég hef smakkað, já betra en jólamaturinn meira að segja. Allir sem leggja leið sína þangað EIGA að fá sér Hreindýr ála Chéf (medium rare...og það heitir ekki ála chef en kokkurinn mælir sumsé með því medium rare. Þetta var sem vatn í munni það var svo mjúkt og gott og nautasteikin hans Guðmundar Óla sem var nú djúsi var sem ólseigur skósóli í samanburði við hreindýrið. Ég get ekki lýst þessu öðruvísi en þannig að ég hefði alveg eins geta tuggið skyr ... hefði geta látið renna niður án þess að kyngja án þess að finna fyrir því....Hugtakið að kjöt bráðni í munni manns hefur alltaf vafist fyrir mér því alveg sama hve djúsí nautasteik maður fær..þá þarf maður nú alltaf að tyggja...hefði alveg getað sleppt því með hreindýrið og nú loksins er komin merking í að bráðna í munni....og það gerir nautasteik ekki óneiónei...ekki eftir þessa reynslu....ÓMÆGAD það er bara ekki hægt að lýsa þessu og því verða allir að skella sér og fá sér ... mmmmmmmmmmmmmmmm
anyway, Benjamín orðinn veikur again...reyndar aldrei hætt, hann hóstar svo mikið, en var síðan kominn með hita í þokkabót og kinnholubólgu. mmmm....skemmtilegt það, maður vakir allar nætur og alla daga og hægt að girða neðri augnlokin ofaní brók ef maður vildi... Hann fékk nú astmapúst við hóstanum til að taka í tvær vikur og pensillín við kinnholubólgunni...greyið. Síðan dregur maður greyið um leið og eitthvað batamerki sést í leikskólann til að hanga þar allan daginn með horið lafandi niður að nafla og hósta á við fjórtán apa í einu...fjúff. svona er lífið erfitt þegar maður er lítill...
Skoða tjaningar.
(3 hafa tjáð sig, síðast Helga mágkona :o))
|
| |