|
|
Fréttir í Janúar 2010
|
Náttfatapartý og Sveppi
31.01.2010 20:27 - Benjamín skrifar
Halló allir,
Á föstudaginn fór ég í náttfatapartý til Sverris sem er besti vinur minn. Filippía stóra systir hans var með fjórar stelpur hjá þér og ég mátti koma til Sverris og ég fór í flottu Tomma-náttfötunum mínum. Við fengum pitsur með osti og pepperoni, ég fékk mér ostapitsu. Svo fengum við nammi og snakk og horfðum á Wipe-out! Ég kom ekki heim fyrr en klukkan að verða 10 (22:00) og var orðinn frekar þreyttur en þetta var rosalega skemmtilegt. Mig langar aftur í svona náttfatapartý og vona að það verði fljótt aftur, kannski má ég bjóða einhverjum í náttfatapartý. Ég fór síðan heim til Sverris í gær að leika og hann kom til mín í dag. Hann kom með okkur til ömmu Gerðu en við vorum bara búnir að vera þar í smástund þegar pabbi hans hringdi og bauð okkur á Algjöran Sveppa, dag í lífi stráks. Við hlupum upp í íslensku Óperuna og fórum með Filippíu og Völu á Algjöran Sveppa, það var ótrúlega skemmtilegt og við fengum pakat og allt til að hengja á vegginn í herberginu mínu. Eftir það komum við Sverrir heim til mín að leika og vildum svo fara út í fótbolta. Við vildum spyrja eftir öðrum strákum til að koma með okkur en vissum eginlega ekkert hvar neinn átti heima. Svo vildum við ekki fá Hjört í fótbolta því hann er svo góður. Á endanum löbbuðum við út á leikvöll og lékum okkur þar í smástund en spurðum svo Filippíu hvort hún vildi koma í fótbolta með okkur. Við fórum svo eitthvað að rífast og ég fór bara heim í fýlu en var fljótur að jafna mig og fór til Sverris og var þar fram að kvöldmat. Var svo orðinn heldur þreyttur og sofnaði bara hálf átta.
Leikskóli á morgun og þá fæ ég að leika við Sverri aftur og alla hina krakkana á leikskólanum.
Skoða tjaningar.
(2 hafa tjáð sig, síðast Ösp )
|
Ísland-Frakkland
30.01.2010 10:21 - Guðmundur Óli skrifar
Dimmalimm.com hefur ákveðið að sýna leik
Íslands og Frakklands í beinni útsendingu. Við höfum gert
samning við RÚV þeir munu sjá um þetta fyrir okkur, þannig að
ef þið viljið sjá útsendu okkar þá endilega stilla á RÚV kl.13:00
Dimmalimm.com er síða í útrás, skuldabréfaútboð verður auglýst síðar
í gengum félag á Tortola.
Kveðja, Auðvaldið
Skoða tjaningar.
(1 hefur tjáð sig, síðast Lilja)
|
Tæknilegir örðugleikar
27.01.2010 20:33 - Hjördís skrifar
Eins og glöggir síðungar hafa væntanlega tekið eftir lá síðan niðri um stund en fólk gat þá vonandi skemmt sér yfir godaddy skrifum á meðan.
En annars ánægð með viðtökurnar á Guðmundi Óla og reikna ég nú fastlega með því að hann verði nú regluleg skrifta hér inni á æsifréttum fjölskyldunnar.
Andvökunóttunum hefur nú fækkað en húsmóðirin búin að ná sér í einhverja helvítis pöddu og talar nú eins og Madge (sem var í nágrönnum) og hóstar þurrum og kvalarfullum hósta. Ekki gott, en sér sér ekki annars fært en að mæta í vinnu eftir forföll síðustu viku...enda alltaf gaman í vinnunni ;) Sofnaði kl 7 á mánudagskvöldið, vaknaði svo rétt fyrir miðnætti og var sofnuð aftur fyrir eitt, fór og horfði á eitthvað afslappandi og svaf í sófanum til að verða 7 á þriðjudagsmorguninn. Benjamín sofnaði svo fyrir kl 6 í gærkvöldi og þurfti heldur betur að ýta við honum rúmlega 7 í morgun...soldið þreyttur!!!
Svo er það bara leikurinn á morgun og ætli það fari nú ekki endanlega með hálsinn, hlakka samt til.
Skoða tjaningar.
(1 hefur tjáð sig, síðast Lilja)
|
Sýna lit
25.01.2010 13:11 - Guðmundur Óli skrifar
Þetta er í annað skiptið sem að ég skrifa á þessa síðu (í fyrsta skiptið þá commentaði ekki neinn, þannig að ég hef ekkert verið að skrifa aftur) og geri ég það vegna ómannlegrar pressu sem að er búið að setja á mig. Ef hef bent á að það séu bara húsmæður og leiksólakennarar sem lesa þessa síðu og það sé ekki alveg í minni deild að gera þessa fólki til hæfis í skrifum, enda mjög lélegur í stafsetningu og að frúnni finnst ekki með spes húmor. Enda hefur það komið fyrir að ég hafi ætlað að skrifa á síðuna en það hefur verið ritskoðað og mér bannað að setja það inná síðuna.
En nú er komið nóg af væli í kúguðum eiginmanni og kemur nú einhver frétt með þessu til þess að réttlæta þetta nöldur svo að ég verði ekki skammaður þegar að frúin sér þetta (hún er nefnilega í vinnunni).
Eins og lesendur vita þá hafa strákarnir verið veikir, þeir fóru á leikskólann í dag en það var hringt frá leikskólanum hjá Benjamín og ég fór því að sækja drenginn, náði í Ísak í leiðinni og erum við því komnir heim.
Ég veit reyndar að Benjamín gerði þetta fyrir mig því að nú næ ég að horfa á Ísland-Króatía sem að byrjar kl.15:00.
Ef að lesendur þessarar síðu vilja að ég reyni að væla eitthvað meira í framtíðinni þá verða að koma 7 comment eða fleiri.
Svo í lokinn vill ég benda á nýtt netfang hjá húsbóndanum má ekki segja, Ari Páll segir það !!!
þó svo að lesendahópur síðunnar hafi örugglega aldrei sent mér tölvupóst nema Anna Karen og hún er alveg hætt að senda mér einhverja brandara og ég hef ákveðið að taka það persónulega.
Nú má klappa!!!!
Muna 7 comment
Skoða tjaningar.
(7 hafa tjáð sig, síðast Kjartan)
|
Andvaka!
25.01.2010 05:28 - Hjördís skrifar
Hér er ég búin að vera andvaka frá því kl. 3:58, þegar Benjamín kallaði á mig og vildi koma í mömmu og pabba ból. Mig var búin að dreyma eitthvað fáránlegt fyrir það. Hef alltaf átt erfitt með að sofa í svona brjáluðu veðri. Alltaf með einhverjar áhyggjur. Búin að reyna að sofna í nær 1 og 1/2 tíma og nennti þessu ekki lengur...fann að ég var engu nær draumalandinu og aðeins rúm klukkustund í "RÆS". Því alveg jafn gott að fara bara fram og fá sér heitt að drekka, skella kannski eins og einum gamanþætti í tækið og vera ferskur þegar allir þurfa að skríða fram úr rúmunum...svo er bara að sjá hvernig foreldraviðtölin á eftir fara ;) kannski maður sofni þá bara ofaní saltstangarglasið eða rúsínuskálina!
Hér var gærdagurinn voða skemmtilegur. Sverrir kom til okkar fyrir hádegi og hann og Benjamín voru bara að leika sér inni í herbergi og maður heyrði þvílíku atburðarásirnar fara af stað í alls kyns leikjum. Þeir rétt ráku nefið fram til að borða og til að kalla til mín að Ísak væri eitthvað heldur óvinsæll þarna inni hjá þeim. Aumingja Ísak fékk ekkert að vera með og var mikið grátið og barið á hurðina. Svo voru smá reiðiköst líka sem bitnuðu á hurðinni og dóti. Hann náttúrulega fattar ekkert leikinn hjá þeim og skemmir bara fyrir þannig að mamman fór inn í hans herbergi að leika, þá var hann fljótur að jafna sig. Ari Páll, Lilja, Albert, Árni, Ágúst og Hrefna Margrét komu svo hér um miðjan dag sem var einstaklega skemmtilegt. Klukkan var svo að rétt að verða fimm þegar allir fóru heim til sín og Benjamín skreið upp í m&p rúm og steinsofnaði svona u.þ.b. mínútu seinna. Hann vaknaði svo um sjö þegar foreldrarnir voru að pína ofan í hann pensillínið og var heldur úrillur, og foreldrarnir óhressir með að hafa ekki bara látið þetta í friði. Hann hresstist þó fljótt, var svangur því hann hafði ofurlítið borðað þó svo að allir aðrir hafi fengið nægju sína.
Mikið er samt alltaf notalegt að kúra sig inni og heyra brjálaða veðrið úti...heilinn bara ekki tilbúin að sofna akkúrat núna!!!!....enda fullur af hugsunum sem eru að brjótast um!
Vonandi sváfuð þið vel í nótt og hafið það gott í dag!
|
óle óle óle óle
23.01.2010 22:01 - Hjördís skrifar
Við erum ánægð með okkar menn. Ég var aldrei sár og reið eftir hina leikina eins og helmingur þjóðarinnar og Guðmundur Óli þar með talinn. Ég tók þessu með stóískri ró og finn á mér að við verðum í gullsæti :) Benjamín vakti og horfði á leikinn, honum finnst voða skemmtilegt að horfa á handboltann en hann er samt bara í þriðja sæti á æfingalistanum. Fyrst vill hann fara í karate og fótbolta, svo handbolta á eftir því...síðast fimleika í Ármanni. Eftir helgina ætlum við á stúfana að athuga hvað er í boði fyrir svona stubba í þessum íþróttum.
Sverrir besti vinur hans Benjamíns kom yfir í dag að leika. Það er held ég í fyrsta skipti sem einhver kemur spes yfir bara til að leika við hann (annar en skyldmenni). Hann hefur farið tvisvar til Sverris að leika það sem af er árinu. Þeir eru jafnaldrar, Sverrir á afmæli 20. apríl þannig að það er akkúrat mánuður á milli þeirra. Þeir byrjuðu á svipuðum tíma á Rauðhóli og var skipulagt þar að það ætti að reyna að koma þeim saman...það tókst nokkrum mánuðum seinna og þeir eru órjúfanlegir á leikskólanum. Ísak vildi nú fá að vera svolítið með en var yfirleitt lokaður úti úr herberginu en fékk svo að horfa á Tomma og Jenna með þeim þar til hann hellti niður snakkinu og fór eitthvað að brölta í sófanum. Þeir enduðu svo á því að lita saman allir þrír við eldhúsborðið. Vonandi kemur hann bara aftur á morgun.
Annars setti ég nú saumavélina mína í gang í kvöld. Búin að gera við pilsið mitt, gallabuxur af Guðmundi og gallabuxur og íþróttabuxur af mér. Svakalega ánægð með gripinn og nú er bara að fara að hanna, sníða og sauma...og kannski eignast efni þegar efni verða til!!!! :) Nú ætla ég að fara að handsauma kjólinn minn og lokafrágang á íþróttabuxum af Benjamín....nú er ég öll í nýtingunni og saumavélin löngu búin að borga sig...bara af þessum tveimur gallabuxum...hitt er allt í kaupbæti! ;)
Annars var ég að klára Karlsvagninn eftir Kristínu Marju, fannst nú vanta svolítið endinn á þá bók, hún hlýtur að koma með framhald um næstu jól...Guðmundur er líka límdur fastur við Stieg Larsson. Búin að klára fyrstu tvær á mánuði og langt komin með þá þriðju, les í tíma og ótíma eins og t.d. núna.
Eigið notalegt laugardagskvöld, ég ætla að sökkva mér í Dan Brown (týnda táknið).
Skoða tjaningar.
(1 hefur tjáð sig, síðast Lilja)
|
500 metrar
23.01.2010 10:37 - Hjördís skrifar
Þá er líkamsræktin tekin við. Þ.e.a.s. í Árbæjarlauginni. Sem kennari fæ ég frítt í allar sundlaugar höfuðborgarinnar og hef ég í eitt og hálft ár ætlað að nýta mér þá búbót í líkamsrækt. Í morgun var svo tekið af skarið og frúin dreif sig í sundið. Þolið kom mér á óvart þar sem síðast þegar ég ætlaði í sundátak í Grindavík þá langaði mig að hætta eftir 50 metrana. Annars var ég ekkert að fara að hætta. Ég synti í hægðum mínum upp að bakkanum og var rétt búin að snúa mér við þegar ég sá 7 hákarla koma á flugsundi hver á eftir öðrum. Mér leið eins og Simba þegar vísundahjörðin kom á móti honum ofan í gilinu...eyrun og skottið lafandi niður af hræðslu. Eftir smá umhugsun sá ég að þarna var komið afreksfólk í sundi á sundæfingu. Ég tók því bara bringu- og skriðsundið mitt inn í klefa en stefni á það að mæta galvösk í búningnum mínum í fyrramálið.
Strákarnir eru bara enn að jafna sig og við verðum bara í kósýstemningu hér heima um helgina. Mikið er það samt gott að vera ekki á þeytingi um allan bæ...en ég vil endilega bjóða fólk velkomið í heimsókn. Þeir eru nú alveg það hressir að þeir vilji heimsókn þó svo að ég nenni ekki að hætta á það að þeim slái niður með því að fara með þá eitthvað í heimsóknir. ;) VIÐ EIGUM KRYDDKÖKU OG ENGIFERSMÁKÖKUR OG SVO DÝRINDIS KAFFI OG ENDAPUNKTA ;) endilega komið við.
Skoða tjaningar.
(3 hafa tjáð sig, síðast Bína)
|
djók eða grín?
22.01.2010 18:34 - Hjördís skrifar
Dagurinn, eða bara vikan öll er búin að vera nokkuð ljúf þrátt fyrir veikindin. Ég hef verið að líta yfir gömul síðuskrif og sé að tímaleysi er ofarlega í huga mér í næstum öllum skrifum. Ekki hefur tímaleysið neitt batnað en ég hef samt fundið leið til að koma rólegheitum landsbyggðarinnar inn á borgarheimilið. Í dag bakaði ég bæði skúffuköku og smákökur og þreif ofninn...sem var tímabært. Ég hlusta nú á Rás 1 alla daga og finn hvernig rólegheit bernskuheimilisins færast yfir mig eins og gott nudd og slökun á eftir. Kveiki helst ekki á sjónvarpinu nema inni í herbergi þar sem strákarnir mega horft ef þeir vilja á meðan á veikindunum stendur. Þá festist maður ekki yfir leiðinda sjónvarpsefni sem ekkert er varið í og dagurinn líður kviss bamm búmm og maður hefur ekki áorkað neinu. Ég sé samt sem áður í hyllingum að mánudagurinn líði og foreldraviðtöl búin. Svo verður vetrarfrí í febrúar, páskafrí í mars og svo skólinn að verða búinn!!!
Áðan var karlpeningur heimilisins eitthvað að leika sér með bleyjur á hausnum...(don´t ask me) og Benjamín segir í gríni "hvernig er hægt að kúka í bleyjuna núna?" þá segir pabbinn kvikindislegi "það er búið að kúka í bleyjuna sem þú ert með á hausnum". Þá var snáðinn fljótur að taka hana af hausnum og leit í bleyjuna Ég var bara að djóka" segir pabbinn þá. Sá litli verður heldur stúrinn yfir að hafa látið plata sig og segir önugur "það er bannað að djóka!!!!!!".
Stuttu seinna er pabbinn eitthvað að laga til í herbergi minnsta mannsins en Ísak er eitthvað að vesenast í herbergi bróður síns og bróðirinn að reyna að reka hann út. Benjamín segir að hann sé ekki velkominn í herbergið sitt og segir svo "það má enginn koma inn í herbergið mitt". Pabbinn segir þá vitandi hverju snáðinn á eftir að svara "það er gott, þá tekur þú bara til í þínu herbergi". Benjamín var ekki lengi að svara ég var bara að djóka", "nei, það er bannað að djóka" segir þá pabbinn. Þá svarar sá stutti "nei, ég var ekki að djóka, ég var að grínast"
Skoða tjaningar.
(2 hafa tjáð sig, síðast Lilja)
|
Lungnabólgufaraldur, Haraldur...
21.01.2010 22:15 - Hjördís skrifar
Jú það er rétt, mér leist nú ekkert orðið á blikuna í morgun þegar Benjamín var aftur rokinn upp í hita og Ísak jafn slappur og alla síðustu daga, en þó nánast hitalaus. Læknirinn á Dómus heyrði nú ekkert í lungunum á þeim en leist eitthvað ekki á útlitið á Benjamín og vildi endilega senda hann í lungnamyndatöku. Í myndatökunni kom svo í ljós að litla greyið er með bullandi lungnabólgu, þá sagði læknirinn..."já ég sá þetta á augunum á honum"...þetta geta t.d. bara konulæknar, right Árdís??.
Hann fékk rótsterkt pensillín sem hann ældi svo í kvöld áður en hann tók þriðja skammtinn rétt fyrir svefninn. Ísak er hinsvegar með sýkingu í efri öndunarfærum sem nær þó ekki niður í lungu, sem betur fer. Hann er samt reyndar með miklu MIKLU ljótari hósta en Benjamín og búinn að vera með í tvær vikur. En það er ekkert hægt að gera í því, bara þakklát að hann er ekki líka með lungnabólgu, hann er reyndar líka með vökva í báðum eyrum, í miðeyra...Ég verð varla eldri við þessa upptalningu.
Annars er bara helgin framundan og fjölskyldan einbeitir sér að því að láta sér batna um helgina svo allir geti haldið áfram í hversdagsleikanum ótrauðir á mánudaginn...þetta er orðið gott í bili.
Tommi og Jenni hafa verið í miklu uppáhaldi í veikindunum og erum við foreldrarnir orðin heldur leið á pönnubarningum, strauborðaáhlaupum, og strauboltagleypingum, músaholutilfærslum, veiðihárahnýtingum og eiturbyrlunum.
Yngri gaurinn hins vegar hlær og hlær og hefur aldrei upplifað neitt skemmtilegra og finnst allt annað sjónvarpsefni hundleiðinlegt. Mamman er þó í óða önn að reyna að kynna barnið fyrir örlítið uppbyggilegra sjónvarpsefni þó svo að Tommi og Jenni séu sígild klassík.
Þriðjudag einn í janúar kemur maður gangandi inn í hjónaherbergi þar sem synir hans tveir liggja og horfa á Tomma og Jenna, eldri sonur hans segir
"Pabbi, ég er með hor á puttanum"
"Farðu þá og náðu þér í bréf"
"Vilt þú sækja bréf fyrir mig"
"Nei ég nenni því ekki, farðu bara og sæktu þér bréf sjálfur"
"En pabbi, ég er veikur"
Þá drattaðist pabbinn inn á baðherbergi og náði í bréf fyrir litla lasna drenginn sinn.
Skoða tjaningar.
(2 hafa tjáð sig, síðast Ösp)
|
...það var bara sett þær þangað!...
20.01.2010 09:11 - Hjördís skrifar
Þessi fleyga þágufallssýkissetning kom út úr eldri syninum rétt í þessu. Hann var að sækja sér nærbuxur í skúffuna og var eitthvað að rótast inni í skápnum. Kom svo fram með nærbuxur og sagði "þær voru alveg lengst inni í nærfataskúffunni", "já er það" sagði mamman, "já, það var bara sett þær þangað".
Einnig ef einhver var enn í vafa um að auglýsingar hefðu áhrif á börn þá vil ég bara staðfesta það. "mamma, coca cola light, rétta bragðið, sykurlaust" heyrðist rétt á meðan ég var að skrifa um þágufallssýkina "hver segir þetta" spurði mamman"..."fréttirnar, og þær vita það" :)
Um jólin hljómaði svo "Krónan, fyrst og fremst ódýr" hér og þar um húsið, í tíma og ótíma og hvergi mátti versla nema í Krónunni...þá var maður bara skilinn eftir heima þegar maður fór að hafa of mikla skoðun á því.
Annars eru ennþá töluverð veikindi á heimilinu. Ísak rétt farinn inn í vagn (í herberginu sínu) að sofa klukkustund eftir að hann vaknaði og hóstar enn miklum slímhósta og er kominn með sýkingu í augun í kaupbæti...sjálfsagt eftir að nudda öllu horinu og slíminu i augun. Benjamín var með tæplega 40 stiga hita í gærkvöldi en er nú öllu hressari í morgunsárið og blaðrar út í eitt.
Verri tíma til veikinda gátu þeir varla valið sér þar sem brjálað er að gera í vinnunni við námsmat (einstaklingsmiðað námsmat), matssamtöl við börnin og undirbúning fyrir foreldraviðtöl sem fara fram á mánudaginn. En þetta er víst eitt af því sem maður ræður ekki við í lífinu. Hins vegar er ég svo heppin að pabbinn á heimilinu er engin risaeðla í þessum efnum heldur skiptum við veikindadögunum bróðurlega í milli okkar og getum því mætt í vinnu annan hvern dag. Sem er gott. Benjamín er þó orðinn heldur leiður á inniverunni og vill fara að komast út að leika sem verður vonandi fljótlega. Ætli hann fari ekki í leikskólann á morgun ef hann verður hress í dag. Björnslundarvikan hans er akkúrat í þessari viku og mjög leiðinlegt að missa af henni. Ein deildin á leikskólanum er skráð úti í Björnslundi (skógarsvæðinu í Norðlingaholti) og skiptast krakkarnir á að vera þar í viku í senn á fjögurra vikna fresti. Þar eru þau nær allan daginn úti og læra að leika sér í náttúrunni án verksmiðjufraleiðs efniviðar. Búið er að gera alls kyns skemmtileg leiktæki og þrautir úr trám og greinum. Þetta er toppurinn á mánuðinum, að fá að vera í Björnslundi.
Annars ætlum við bara að reyna að hafa það huggulegt hér heima í dag og njóta lífsins.
Skoða tjaningar.
(3 hafa tjáð sig, síðast Anna Karen og gengið á Leynisbrautinni)
|
Sælinú!!
18.01.2010 13:44 - Hjördís skrifar
Gaman að sjá ykkur aftur. Hér eru búnir að vera viðburðaríkir mánuðir eins og alltaf en aldrei gefst tími til að greina frá viðburðunum...eða þá að letin tekur völdin, annaðhvort allaveganna. Í dag eru drengirnir báðir veikir heima. Benjamín með barkabólgu sem gerði skyndilega vart við sig seint í gærkvöldi og geltir eins og blendigur af hundi og sel. Hann er líka með hita og kúrir bara inni í mömmubóli að horfa á Latabæ. Ísak er búinn að vera með slímhósta síðan síðustu helgi sem hefur ágerst nokkuð og í gærmorgun ældi hann slímklessu með mjólk og svo aftur í baðið sitt þegar var verið að þrífa síðustu slímklessu, gott það. Í gærkvöldi var hann svo kominn með hita en svaf hann að mestu úr sér var hressari gaurinn í morgunn á meðan sá eldri vildi bara liggja uppi í rúmi með slökkt ljósið.
Síðustu helgi fékk litla frænkan okkar, fyrsta stelpan í strákastóðinu, nafnið sitt. Hún heitir Hrefna Margrét sem okkur þykir ægilega fallegt nafn. Það var mikið fjör í skírnarveislunni og fullt af góðgæti á boðstólnum. Prelli kallinn kom bara heim í Hafnarfjörðinn og skírði. Allt voða heimilislegt og notalegt.
Jólunum eyddum við hér á Holtinu okkar. Strákarnir voru alsælir með allar gjafirnar sínar sem voru hver annarri glæsilegri og skemmtilegri. Foreldrarnir fengu að sjálfsögðu líka flottar gjafir og upp úr stendur handamálverk á striga frá Ísak og barnabakaðar smákökur í málaðri krús frá Benjamín. Á jóladag fórum við til ömmu Billu og afa Inga að vanda sem var ljómandi skemmtilegt og allir fóru vel mettir þaðan og svo annan í jólum komu Kjartan, Lovísa og Ari Páll og við spiluðum fram á rauða nótt.
Afi Bói átti svo afmæli þann 27. desember og við fórum að sjálfsögðu í veislu hjá honum en daginn eftir héldum við austur á leið til að fagna áramótunum með ömmu Siggu og afa Albert, Kjartani og Lovísu. Dimmalimm kom með okkur. Það var voða gaman og allt fullt af snjó. Unga fullorðna fólkið spilaði öll kvöld og alla daga á meðan börnin léku bæði úti og inni og amma og afi sinntu sínum helsta áhugamáli, að hafa fyrir gestunum ;) Á áramótunum sjálfum komu svo Júlíus og hans fylgilið svo það var heldur betur fjör á bænum. Ísak skíthræddur við allar sprengjurnar og hjúfraði sig bara í hálsakotið á hverjum þeim sem ekki var orðinn handlama en gat þó ekki staðist að kíkja smá þegar "váááá" hljóðin í Stöðfirðingum náðu hámarki á vel heppnaðri brennu og flugeldasýningu. Kuldinn ætlaði alla að drepa en veðrið var svo fallegt allan tímann og sólin skein á daginn að kuldinn varð bara partur af stemningunni. Það var svo með gleði en jafnt trega í hjarta sem við héldum aftur vestur á bóginn heim á leið til að taka þátt í hversdagsleikanum aftur.
Daginn eftir að við komum heim breyttum við svo heldur betur í íbúðinni okkar litlu og lítur hún nú út fyrir að vera u.þ.b. helmingi stærri...vei fyrir því!! :)
Ég gæti haldið áfram endalaust en læt þetta duga í bili!
Skoða tjaningar.
(1 hefur tjáð sig, síðast Lilja ofurmágkona ;))
|
| |