|
|
Fréttir í Janúar 2009
|
Hláturinn lengir lífið
14.01.2009 16:14 - Hjördís skrifar
Ísak finnst Benjamín stóri bróðir sinn afskaplega skemmtilegur og fyndinn. Hann hlær innilegum hlátri af öllu sem Benjamín gerir. Í morgun var Ísak sofandi inni í rúmi en Benjamín var vakandi frammi. Ég þurfti að skreppa inn í herbergi að ná mér í einhver föt og Benjamín kom trítlandi á eftir mér. Benjamín hefur nú aldrei hvorki legið lágt rómur né talað lítið. Hann þurfti náttúrulega akkúrat aðeins að tala á meðan við vorum inni í herberginu svo það glumdi um herbergið. Ég ýtti honum á undan mér út úr herberginu en þá heyri ég þennan líka yndislega skellihlátur úr litla manninum í rúminu. Ég sný við og ætla að fara að taka hann fram þar sem hann væri nú vaknaður en annað kom á daginn. Minn lá steinsofandi í rúminu og hló upp úr svefni að bróður sínum...greinilega mjög skemmtilegur í draumi líka!!!
|
Daglegt líf
13.01.2009 20:58 - Hjördís skrifar
Allt gengur vel á heimilinu. Benjamín byrjaði á leikskólanum aftur eftir langt frí á mánudaginn í síðustu viku. Honum finnst svo gaman að hann vill alls ekki koma heim þegar hann er sóttur...stundum eftir 9 tíma vistun!! Ísak byrjaði í aðlögun hjá dagmömmunni þann sama dag, mánudaginn fyrir viku. Hún hefur gengið algjörlega snurðulaust og hann unir sér þar vel á meðan mamman er að kenna (dagmamman er við hliðina á skólanum). Hann er alltaf glaður að fara til dagmömmunnar og glaður þegar mamma kemur að sækja hann. Ég þurfti að taka hann með mér tvo daga í skólann í síðustu viku á meðan aðlögunin fór fram og hann gjörsamlega bræddi alla með sinni yndislegu nærveru og rósemd og er ennþá helsta umræðuefnið á kaffistofunni :)
Nú á ég þrjá daga eftir í unglingadeildinni og fer þá yfir í 6. og 7. bekkinn. Ég er búin að fara í heimsóknir og líst bara vel á þrátt fyrir að reynt sé að hræða mig upp úr skónum...en ég hef ættar-taumhaldið sem þarf á svona óþekktarorma;)
Höfuðið á þessari blessaðri síðu er gjörsamlega úrelt og netið er svo mikill tímaþjófur að ég bara get ekki stundað það þessa dagana og því líður einum of langt á milli og þá er alltaf minna sem hægt er að segja. Eigið góða daga.
|
Nú árið er liðið í aldanna skaut...
01.01.2009 22:20 - Hjördís skrifar
...og aldrei það kemur til baka!! Það eru orð með sönnu og erfitt verður að toppa síðasliðið ár hjá fjölskyldunni. Reyndar átti að nota daginn í gær til að líta yfir liðið ár en daginn í dag í að spá í árið framundan...einhvernveginn var þetta allt sameinað í sömu tertuna í dag!
Hápunktar 2008 (í réttri tímaröð)
Hús selt í Grindavík
Fordinn seldur (sem betur fer...á erlendu!!)
Keypt íbúð í Norðlingaholti, afhending í maí
Guðmundur Óli hætti hjá Grandsmíði í Grindavík og fór í gömlu góðu vinnuna sína á trésmíðaverkstæðinu hjá Húsasmiðjunni
Frumburðurinn 3ja ára
Flutt frá Grindavík
Þvælst í heimilisleysinu fyrir austan og norðan
Búið á Bræðraborgarstígnum
Ísak fæðist 24. apríl, tveimur vikum fyrir settan tíma
Ísak skýrður á fæðingadeildinni
Hjördís klárar lokaritgerð B.Ed með Ísak 5 daga gamlan
Selvaðið ready fyrir innflutning
Benjamín fær inn á leikskólann Blásali frá 1. júní
Hjördís útskrifast með 1. einkunn úr KHÍ
Ísak fær "fyrstu tönnina" tveggja mánaða (hún hvarf svo(líklega kalkuppsöfnun:))
Allir afkomendur ömmu Siggu og afa Alberts hittast á Stöðvarfirði (nema Kjartan og Lovísa, en Víðir Óli og Billa komu í staðinn:)
Hjördís fær vinnu í Hamraskóla í 4ra mánaða afleysingu sem umsjónakennari 10. bekkjar og kennir unglingastiginu náttúrufræði og samfélagsfræði, byrjaði 15. september
Guðmundur í feðraorlofi frá 15. september - 15. nóvember
Benjamín fær inn á leikskólann Rauðhól og má byrja þar líklega í febrúar 2009
Hjördís fær áframhaldandi vinnu í Hamraskóla frá 15. janúar sem umsjónakennari 6. og 7. bekkjar
Guðmundur Óli heldur vinnuni en vinnutími minnkaður um 1 og 1/2 klst á dag
Ísak í góðu yfirlæti hjá ömmu og afa á Skúlagötunni frá 17. nóv - 18. des á meðan foreldrar sinna vinnunni
Húsbóndinn á heimilinu þrítugur þann 2. desember og fékk að vonum mikið áfall
Húsmóðirin 25 ára þann 8. desember
Benjamín fær barkabólgu (líklega vegna RS-vírusar) og Ísak fær RS-vírus með eyrnabólgu
Jólin haldin hátíðleg í Selvaðinu
Ísak fær sínar fyrstu tennur, tvær sama dag, framtennur í neðri góm
Áramótin haldin í Reiðvaðinu í afar ljúfri stemningu
(staðreyndavillan í textanum var algjörlega óvart (ekki grín) og því ætla ég að leyfa henni að standa...tók bara eftir þessu þegar ég var búin að skrifa...segi ekki meir, veit sá sem vill)
Framundan eru svo bara ljúfir dagar.
Ísak byrjar hjá dagmömmu á mánudaginn, fær líklega að fara í heimsókn á morgun. Hljóðhimnan í litla skinninu sprakk líklegast undan þrýstingi áðan, elsku engillinn, en annars er hann bara hress. Mikið um þrýting á tönnunum, sú þriðja alveg á leiðinni við hlið framtannanna, hinar komu 29. desember. Hann er jafn ánægður með lífið og tilveruna...og fjölskylduna sína eins og við erum með hann, þvílík himnasending að eignast jafn yndislegan dreng.
Benjamín er ofboðslega ánægður og glaður með lífið jafnt sem foreldrana og sérstaklega litla bróður sinn. Hann er afburða góður við hann og þreytist ekki á að líta eftir honum og leika við hann þegar þarf. Hann fær að byrja á Rauðhól (hverfisleikskólanum) fljótlega þó svo að það verði afar sorglegt að þurfa að kveðja alla á Blásölum. Verður fjögurra ára eftir tæpa þrjá mánuði sem er alveg hreint ótrúlegt. Hann er farinn að skrifa fullt af stöfum og finnst rosalega skemmtilegt að "læra". Elsku kallinn er yndislegur í alla staði og skemmtilegur og fyndinn með eindæmum.
Hjónin eru algjörlega með hlutlaust mat þegar kemur að sonunum tveimur en trúa vart sinni eigin heppni að hafa eignast fallegustu og yndislegustu drengi veraldar. Plönin á árinu er að vinna bæði í víkingalottó og happadrætti háskólans auk þess að eyða góðri summu af þeirri vinningsupphæð í að finna upp aldursstöðnunarkremið "GuðDís" sem mun verða uppfinning ársins 2009 og verður tilkynnt í byrjun desmber að tæpu ári liðnu af tilefni tvítugsafmælis hjónanna.
GLEÐILEGT ÁR ALLIR SAMAN OG NJÓTIÐ ÞESS Í BOTN
Skoða tjaningar.
(2 hafa tjáð sig, síðast Svava)
|
| |