Forsíða
Um okkur
Eldra efni


Vinir og ættingjar
Ari Gabríel
Birkir Örn
Burknavallakrúttin
Bína
Dagur og tvillarnir
Karen Hrund
Kjartan og Lovísa
Magnús Orri
Patrik og Ísabella
Sigga Hulda
Silja
Tvíburamamman
Fréttir í Janúar 2007

Týndar myndir
31.01.2007 00:21 - Hjördís skrifar
Komst að þeirri sorglegu staðreynd í gær að myndirnar frá enduðum september, október, nóvember og byrjun desember eru ekki inni á tölvunni og ekki á myndavélinni. Þá mundi ég alltíeinu eftir því að við vorum að drífa okkur upp í sumarbústað í desember og myndavélin var full og ég því á öðru hundraðinu að reyna að hlaða myndunum inn. Það kom alltaf einhver villumelding en samt var eins og myndirnar væru komnar inn og ég gerði þetta tvisvar, en af því við vorum í svo miklum flýti þá ákváðum við að þetta væri bara komið og fórum...síðan í gær uppgötvaðist það að þetta hefur ekkert seivast inn á tölvuna, þannig að...VIÐ EIGUM ENGAR MYNDIR FRÁ ÞESSUM MÁNUÐUM :( Ég er alveg í rusli yfir þessu þetta er eitt af því versta sem getur komið fyrir mann, að myndir týnist eða eyðileggist :S

Anyway, rosalega mikið að gera og ekki nema 12 dagar þar til ég þarf að fara austur aftur, hlakka bæði rosalega mikið til og kvíði rosalega mikið fyrir. Hlakka til að komast austur og kenna því ég held að þetta verði rosalega skemmtilegt...enda er ALLTAF skemmtilegt fyrir austan. En kvíði fyrir að skilja kallana mína eftir hér fyrir sunnan en það eru nú ekki nema 18 dagar þar til þeir koma austur... þannig að ég þarf nú ekkert að lifa of lengi án þeirra.

Ég hætti ekki í vinnunni fyrr en föstudaginn 9. febrúar þegar ég hefði hvort sem er verið að fara í 4ra vikna frí þannig að það er bara í góðum málum, svo taka bara afleysingarnar við á fullu þegar ég kem heim aftur og ég hlakka rosa mikið til þess, að fá að vinna á öllum deildunum ég held nefnilega að mér finnist miklu skemmtilegra að vinna á eldri deildunum en yngri deildunum, er búin að finna það út að það á mikið betur við mig eftir að hafa gert hvort tveggja.

Skoða tjaningar. (6 hafa tjáð sig, síðast Amma Sigga)


Brosbarnamyndir
28.01.2007 22:58 - Hjördís skrifar
Nú loksins eru myndirnar að komast í gegn...í efra albúminu eru myndir sem eru unnar, þó vantar nokkrar sem ekki er hægt að setja inn á photoshoppið því það er búið að setja aukahluti inná þær s.s. fiðrildi og eitthvað þess háttar...þið verðið bara að sjá þær uppi á vegg þegar þið komið í heimsókn :)
Neðra albúmið er svo hluti af hinum myndunum sem ekki eru unnar en mig langar til að vinna í photoshoppinu...það verður gert þegar hægist á skólanum. Eitthvað virðist þó vera vandamál að koma þeim inn þannig að þær gætu þurft að bíða til morguns með að birtast hér á síðunni...látið mig allaveganna vita hvort þið sjáið þær eða ekki.

29. janúar 2007 - óunnu myndirnar eru núna komnar inn :)

Kv. í bili

Skoða tjaningar. (7 hafa tjáð sig, síðast Amma Sigga)


Tenglar og fleira tilfallandi ;)
28.01.2007 13:07 - Hjördís skrifar
Ég ákvað að taka til í tenglasafni síðunnar og hef eytt öllum síðum sem annaðhvort eru ekki á netinu lengur eða hafa ekki verið í notkun voða lengi og höfundarnir hættir allri bloggstarfsemi. Ef einhverjum finnst hann vera skilinn útundan eða að ótímabært hafi verið að fjarlægja síðuna hans af tenglalista má sá hinn sami gjarnan láta vita!

Núna er loksins verið að rífa niður gömlu þvottahúsinnréttinguna, ef innréttingu má kalla og hin nýja verður vonandi komin upp áður en árið er liðið. En þegar hún er komin upp er margt sem bíður, eins og tiltekt í bílskúrnum svo að bíllinn komist inn yfir vetrartímann...hefði kannski reyndar átt að gerast í haust...en svo varð ekki þar sem ÓHEMJU drasl er í bílskúrnum og mest ekki okkar eigins. Síðan þarf að sortera og skipuleggja inn í skápum og koma því í geymsluna í bílskúrnum sem ekki á heima inni í húsi. Að lokum er síðan að lappa upp á hitt og þetta tilfallandi sem er búið að horfa á allan veturinn og dreymt um að muni gerast einhverntíma...í framtíðinni þegar letiöldin er liðin!

Þegar allt er orðið fínt og klárt verður svo kallað í fasteignasalann og húsið sett á sölu...jájá það er rétt HÚSIÐ SETT Á SÖLU, því við getum að sjálfsögðu ekki búið í húsi sem er orðið fínt og klárt og ekkert meira hægt að gera -GRÍN-(útskýring fyrir alvarlegri lesendur síðunnar).
Svo bara sjáum við til hvort húsið selst og ef ekki þá verða stórframkvæmdir á döfinni með hina ýmsu hluta þess en ef selst þá erum við á götunni og allt óákveðið...að mestu...

Myndir - Myndir koma ekki inn strax vegna tæknilegra örðuleika sem ég á eftir að vinna í að komist í lag, vantar að ég geti vistað inn á sörverinn eða eitthvað álíka sem ég hef enga þekkingu á nema hvernig ég á að gera það...og ég get allaveganna ekki gert það núna...þannig að eitthvað hlítur að vera í ólagi :)

Skoða tjaningar. (3 hafa tjáð sig, síðast amma Sigga)


Dótaklúbburinn!
27.01.2007 22:52 - Benjamín skrifar
Ég fór í dótaklúbb til Reykjavíkur í dag. Ég kalla það dótaklúbb, við hittumst nokkrir krakkar og lékum okkur heima hjá einum stráknum. Reyndar vorum við bara áhangendur mæðra okkar sem þóttust vera í saumaklúbb en þær átu nú bara á sig gat af einhverju góðgæti og það sást ekki til nálar eða prjóna inni í eldhúsinu. Þannig að annað hvort var að kalla þetta græðgisklúbb kellinganna eða dótaklúbb...og mér finnst dótaklúbburinn henta betur, líka til að vernda mömmu mína og svona, þið skiljið.

Ég er nú að kvefast all heiftarlega og lekur stanslaust úr nebbanum og ég hósta mikið en þetta fylgir því víst að rennbleyta sig frá toppi til táar í útiverunni í leikskólanum...í ískulda líka.

Skoða tjaningar. (1 hefur tjáð sig, síðast Ágúst Örn)


Gaman á kaffistofunni
26.01.2007 23:39 - Hjördís skrifar
Í desember reif ég upp hurðina, arkaði inn á kaffistofu og lét þau ófögru orð falla frekar á háværu nótunum að "það væri ekki mönnum bjóðandi að vinna þetta starf"...í einu brjálæðis pirrings og stresskastinu. Það var mikið hneykslast á mér og öllu slegið upp í grín og þó undarlegt megi virðast var ég komin í ágætis skap 20 mínútum seinna þegar ég þurfti að ganga útaf kaffistofunni aftur og inn í villingahópinn. Í dag snérist svo blaðið við, það var ekki ég sem var í kastinu á kaffistofunni heldur aðrir starfsmenn sem loksins þorðu að tjá sig eftir þetta outburst mitt fyrir jólin! Segið svo að ég geri ekki eitthvað gagn í vinnunni...kem allaveganna af stað uppþotum!

Var hálft í hvoru að vonast til þess að í dag yrði síðasti dagurinn minn í föstu vinnunni en svo var ekki, leikskólastjórinn í fríi og ég á kæruleysissprautu eftir uppsögnina og því ekkert búin að gera í náminu því mér fannst ég hafa allan tíma í heiminum bara eftir að hugsunin fór í gegnum heilann að kannski ætti ég bara að doppa vinnunni. Las það svo í e-maili í dag að það væri gert ráð fyrir því að ég væri hætt í einu námskeiðinu vegna þátttökuleysis...kommon, það er komin vika síðan staðlotan kláraðist, en því er þó reddað og þátttakan varð að veruleika í kvöld;) ég ætla að taka það fram núna svo ég geti bara sagt að ég sé búin að segja þetta því Kennó stefnir svo hátt að ætla sér að verða einn af 100 bestu skólum HEIMS...og ég er búin að taka nokkur nettu pirringsköstin útí Kennó og ætla alltaf að hóta því að ég mæli sko ekki með skólanum....allaveganna, ég mæli ekki sérstaklega með kennaraháskólanum og alls ekki fjarnáminu...
Hélt einhvernveginn að fjarnámið væri uppfinning fyrir þá sem ekki geta sótt skólann vegna búsetu, vinnu eða annars tilfallandi...já, allaveganna tekur kennó ekkert tillit til þess og munurinn á fjarnámi og staðnámi er sá að það er MIKLU MEIRA að gera í fjarnáminu svo þú getir endanlega kysst allt þitt líf hinum hinsta kossi fyrir að vera það heimskur að kjósa fjarnámið framyfir staðnámið! HANANÚ!


Vissi í raun ekkert hvað ég ætlaði að segja, vildi bara koma færslu inn áður en 26. væri liðinn...haha FACE!!!

Skoða tjaningar. (1 hefur tjáð sig, síðast Anna Karen)


Svefnpurkan
25.01.2007 20:02 - Benjamín skrifar
Gerði mömmu minni svakalegan greiða í morgun og svaf til HÁLF ELLEFU hvorki meira né minna. Var orðinn uppgefinn og svaf í 14 tíma...við mikla ánægju þó svo að kannski hefði verið frekar á óskalistanum að ég gerði þetta um helgi!...hahaha DREAM ON!!!
Ég fór því bara wide awake á leikskólann og var bara úti að leika mér í langan tíma og svo inn. Var orðinn FREKAR þreyttur þegar líða tók á daginn og var við það að líða útaf af þreytu núna áðan og steinsofnaði um leið og ég fór inní rúm korter í átta.

Ég er alltaf að læra ný og ný orð og bætast mörg orð í orðaforðann á hverjum degi, hermi eftir öllu sem er sagt við mig. Núna kalla ég flesta með nafni og kynni sjálfan mig þegar ég hitti nýtt fólk...bendi á brjóst mér og segi "Benjamín" á mínu yndisfagra máli (Mímí).



Skoða tjaningar. (7 hafa tjáð sig, síðast Helga mágkona)


Hvað segið þið?
24.01.2007 08:39 - Hjördís skrifar
Er allt að verða kreisí? Hér er sko allt við það sama...eða svona næstum. Margt hefur gerst síðan síðast og verður stiklað á MJÖG stóru og vonandi með meiri tíma og lengingu sólarhringsins hefst það að öppdeita aðeins oftar og skella inn myndum...hvað um það?

Jólin (vó næstum farið að líða að jólaauglýsingum aftur ;)) voru náttúrulega alveg einstök og æðisleg. Benjamín missti sig gjörsamlega í pökkunum og kvöldið endaði á því að hann reykspólaði hringsólandi um stofuna hendandi öllu út um allt með meðfylgjandi rífi og tæti og geðsýkishljóðum og að lokum datt hann niður af "uppgefni" og sofnaði bara nokkuð snemma.

En að sjálfsögðu gátu jól og áramót ekki liðið hjá án þess að ná sér í smá veikindi og skemmtilegheit. Strax á jóladag var snáðinn kominn með skrítnar blöðrur í nárannog þriðja í jólum fórum við með hann á læknavaktina því tærnar, fingurnir, hnéin og olnbogarnir voru þakin í misstórum blöðrum...minn var þá kominn með handa, fóta og munnsjúkdóm (Gin og klaufaveiki), munnurinn allur útí sárum að innan og stór sár á tungunni og í hálsinum. Á gamlárs komu svo Ari Páll, Lilja og stákarnir þrír til okkar og við sprengdum bæði maga og flugelda. Fullt FULLT af flugeldum. Á nýjárs var síðan skundað á læknavaktina því Benjamín hafði ekki losnað almennilega við hitann og var nú farinn að hósta útí eitt 24/7...Lungnabólga, gat það verið??? En það var bara fengið pensillín við því og allt lagaðist.

7.janúar þurfti ég (Hjördís) að fara austur í vettvangsnám við grunnskólann á Reyðarfirði, það var svakalega gaman og ég gisti hjá Svövu í viku, fór á hjónaball (sem einsamalt hjón) og það var étið út í eitt alla vikuna og nýtt góðgæti galdrað fram úr ermum okkar Svövu (og Óðins) á hverjum degi og kvöldi og nóttu og morgni og hádegi...eða næstum.

Viku síðar 14. janúar kom ég svo heim og þá var litli snáðinn feiminn við mömmu sína á flugvellinum og kúrði sig bara í hálsakotið hans pabba síns :( það vakti litla ánægju mömmunnar!! En það kom allt saman með tímanum. Næsta vikan (síðasta vika sumsé) fór í það að vera í staðlotu í KHÍ og Svava gisti hjá okkur. Við vöknuðum alltaf með Guðmundi Óla á morgnana, fórum með Benjamín til ömmu og afa á Skúlagötunni og svo í sleitulausa tíma fram eftir nóttu (fannst manni a.m.k.). 16. febrúar var síðan skundað í Hafnafjörðin og farið í brosbarna myndatöku. Fengum svo myndirnar strax á fimmtudeginum og þær voru VÆGAST sagt GEGGJÆÐISFRÁBÆRLEGA STÓRKOSTLEGAR. Jájá, þær koma inn von bráðar og helstu ömmur og afar fá líka real copies...no worries! Það er svo erfitt að velja úr myndum til að innramma að við ætlum bara að hafa fullt FULLT af römmum út um allt hús...meira að segja á klóstinu ;)

Anyways, nýjustu fréttirnar eru þær að sú gamla (ég) er búin að segja upp vinnunni og gerði það í gær. Verð í afleysingum þar til annað kemur í ljós...ákvað að taka frekar FULLT staðnám en vera þó í fjarnámi, vinna minna og klára fyrr, en það er víst alltaf nóg að gera í afleysingunum þó en ég get þá valið þá daga sem ég get alls ekki unnið, sem er FRÁBÆRT! og þarf ekki að taka svona marga frídaga útaf innilotum og vettvangsnámi í skólanum sem var heldur betur farið að vinna á samviskunni. Plús það að afleysingar eru MIKLU betur borgaðar en prósentuvinna, þó svo að það verði kannski nokkuð margir dagar í mánuði þá hef ég allaveganna þá daga sem ég þarf ekki að leysa af í það að læra, og það er bara af hinu góða. Hins vegar fékk ég ekki vistunartímanum hans Benjamíns breytt, vil frekar hafa hann fyrir hádegi á leikskólanum, en hugsanlega er það hægt í vor þegar eldri krakkarnir fara að færa sig upp um deild og losnar pláss á morgnana. Verð þó í vinnunni minni þar til hún finnur einhvern fyrir mig en þó ekki lengur en til 9. febrúar þegar ég þarf að fara austur aftur í vettvangsnám í þrjár vikur (Benjamín verður hjá mér í tvær vikur, no worries).

Að lokum viljum við fjölskyldan óska Afa Bóa (27. des), Helgu (31. des), ömmu Siggu (5. jan) og Hávari (20. jan) innilega til hamingju með afmælin sín og síðan viljum við óska honum Magnúsi Orra til hamingju með fæðingardaginn sinn þann 18. janúar s.l. og vonum að hann og Freydís mamman hans hafi það sem allra ALLRA best.

Einnig viljum við þakka ömmu og afa á Skúlagötunni fyrir að passa litla snáðann á meðan á þessu skólaveseni stóð hjá mömmunni, án ykkar hefði það ekki verið mögulegt.

Við skulum samt geyma restina af kveðjum og þökkum fram að Óskarnum :)


Skoða tjaningar. (5 hafa tjáð sig, síðast Svava)


Myndir