|
|
Fréttir í Janúar 2006
|
Litla átvaglið mitt
31.01.2006 22:03 - Hjördís skrifar
Hann Benjamín hefur ávallt haft góða matarlyst alveg frá fyrsta degi (fyrir utan nokkra daga sökum leti). En nú er svo komið að hann er að éta dagmömmuna sína út á gaddinn. Ef hann er sofandi þegar ég fer með hann til hennar þá kem ég með nesti handa honum fyrir hádegismat þegar hann vaknar en eftir að því er sporðrennt þá tekur við afgangurinn af hádegismatnum hennar Marisu ásamt ávöxtum og drykkjum og étur hann stanslaust þar til hann sofnar aftur og ég kem og sæki hann. Ótrúlegt að því sé haldið fram að barnið sé of létt, stundum held ég að það sé ekki horft á neitt nema normalkúrfuna sem bæ ðe vei er löngu orðin úrelt miðað við börn í dag sem fá engan sykur og flest bara rosalega hollan mat sem er ekkert nema næringarefnin...ekki verða þau nú feit af því. Við höfum verið að prófa hina ýmsu ávexti og grænmeti til að gefa honum og allt borðar hann með bestu lyst, nema jarðaber...sem mér þykir nú dálítið miður en það þýðir víst ekki að prófa bara einu sinni, sagt er að maður geti vanið sig á vont bragð á þremur mánuðum og fundist það þá gott, og ekki er nú vont bragð af jarðaberjum, bara nú fæðutegund sem þarf að venjast. Brómber, Hindber og bananar eru í miklu uppáhaldi og broccolíið er algjört æði ásamt blómkáli og gulrótum. Flatbrauð með smjöri og osti og brauð með kavíar er líka einstaklega gott. Marisa er annars mjög ánægð með hann og talar um það á hverjum degi hvað hann borðaði mikið og að það sé voðalega gaman að gefa honum að borða, vonum bara að það komi ekki til þess að hann borði allt frá hinum börnunum á staðnum.
En yfir í allt aðra sálma, fyrir nokkru síðan voru keypar innstunguhlífar því litlir puttar voru farnir að pota í þessi ótrúlega spennandi göt. Leið nú og beið og furðuvel gekk að venja drenginn af þessum sið. Síðan var það ekki fyrr en í dag að fartölvan var í sambandi hér frammi í einni af innstungunum og Benjamín skreið að henni, tók um feita hlutann af klónni og rembdist við að toga hana út og gafst ekki upp fyrr en það var hægt, þá snérist að sjálfsögðu hlífin fyrir götin en Benjamín rembdist og rembdist við að reyna að setja klónna aftur í samband. Ekkert gekk þannig að mamma ákvað að gera það á meðan hann sá ekki til. Ekki leið á löngu fyrr en aftur var búið að rífa innstunguna úr sambandi og svitnaði við að reyna að koma henni í með því að snúa henni á alla kanta, en ekkert gekk hjá greyinu. Minn dó nú ekki ráðalaus heldur þaut inní eldhús þar sem skápurinn "hans" var allur kominn útá gólfið, tók þar rafmagns kaffikvörnina skoðaði klónna á henni (hún er svona flöt í laginu, miklu minni en á tölvunni) tók svo um snúruna og skreið með kvörnina inní stofu að innstungunni. Ég hélt nú að ég yrði ekki eldri, þetta er nákvæmlega það fyndnasta sem ég hef orðið vitni að í dag, annars er nú svo margt sem honum dettur í hug að það er erfitt að gera upp á milli. En mamma gamla tók nú samt kvörnina af honum og hélt ræðu um klær og innstungur og rafstraum og þ.h. svo verður bara að koma í ljós hvort þau skilaboð hafi komist til skila.
En þá er fyrsti mánuður ársins senn á enda og við tekur febrúar sem við vonum að verði mildur og vorlegur.
Skoða tjaningar.
(3 hafa tjáð sig, síðast Lilja)
|
Fyrstu myndirnar
31.01.2006 11:14 - Hjördís skrifar
Jæja þá eru fyrstu myndirnar komnar inn, og næstu mánuðir væntanlegir í kvöld. Það er rosalega erfitt að velja myndir, vá, helst myndi maður vilja setja svona 100 frá hverjum mánuði, sérstaklega þegar barnið manns er orðið svona stórt, þá er ennþá skemmtilegra að skoða "gömlu" myndirnar. En þetta er bara brotabrot af þeim myndum sem teknar hafa verið og ákvað ég að gera þetta svona þar sem þá sést líka glögglega breytingin í gegnum mánuðina. Upphaflega áttu 10 fyrstu mánuðirnir að vera í einu albúmi en það er alveg ómögulegt að velja úr eina til tvær myndir úr hverjum mánuði, því varð úr að ég skipti þeim bara á milli albúma, eftir því hvað eru margar myndir sem bara "verða" að komast inn. En eins og væntanlega flestir hafa tekið eftir, er bandarísk dagsetning á myndunum þ.e. mánuðurinn á undan mánaðardeginum og það breytist því miður ekki í bráð, það er víst ekki hægt að breyta þessu í forritinu en vonandi fæ ég mér update bráðlega.
Skoða tjaningar.
(2 hafa tjáð sig, síðast Lilja frænka)
|
Ég fékk pakka...nananabúbú
30.01.2006 21:22 - Benjamín skrifar
Í dag kom pabbi frekar seint heim úr vinnunni og ég var orðinn frekar óþolinmóður að bíða, enda ekki langt þangað til ég átti að fara að sofa. En þegar hann kom heim varð ég ekkert smá glaður, hann kom nebblega með RISA pakka handa mér. Ég fékk gönguvagn til að ýta á undan mér um húsið og ég mátti ekkert vera að því að bíða eftir að pabbi setti hann saman og flæktist mikið fyrir honum á meðan...moahahaha. En mamma hafði heyrt hjá mömmunni hans Patriks að það væri nú sniðugt að geyma seríos í kerrunni og það fannst mér nú sniðugt líka ég mátti náttúrulega lítið vera að því að labba eftir að góðgætið lenti í vagninum og lá bara ofan á honum og hakkaði í mig seríos. En svo var nú bara kominn tími til að hátta og sofa þannig að núna sef ég bara á mínu græna og ætla ekki að vakna fyrr en í fyrramálið.
Kv. Benjamín
Aðeins frá mömmu: Við viljum byrja á því að þakka allar heillaóskirnar sem við höfum fengið, manni finnst svona hálfpartinn eins og maður hafi verið að eignast annað barn eða allaveganna eins og maður eigi stórafmæli. Hins vegar eins og glöggir síðulesarar hafa væntanlega tekið eftir er gert ráð fyrir myndaalbúmum hér til hægri og ekki mun líða á löngu þar til þau fara nú að líta dagsins ljós.
En mikið rétt, við hjónin ákváðum að fjárfesta í gönguvagni fyrir einkasoninn þar sem göngugrindin er nú aðeins farin að missa sjarmann, enda líður manni bara eins og smábarni í henni. Hins vegar fannst mér það nú ekki jafn gott múv hjá mér og syninum fannst að setja seríósið strax í vagninn, það verður ekki gert aftur fyrr en hann hefur náð tökum á því að ferðast um. Núna er svo bara að bíða átekta eftir því að nýju fínu húsgögnir fái að finna fyrir því en teljum við þetta þó betri kost en að krílið fari nú að höggva úr eigin haus með því að vera að hetjast eitthvað til að ganga eins raun ber vitni. Teljum við að með þessu getum við aðeins dregið á langinn að hann fari af sjálfsdáðum hérna útum allt hús enda ekki það mikið vit í kolli að hann hafi gott af því, bíðum nú sirka mánuð í viðbót og það má endurskoða allt við 11 mánaða aldurinn.
Skoða tjaningar.
(5 hafa tjáð sig, síðast Anna Karen)
|
Frekjuköst og sannleikurinn
29.01.2006 23:24 - Hjördís skrifar
Það þarf nú ekki mörgum blöðum um það að fletta að Benjamín er einstaklega ákveðinn drengur og vita það flestir sem komist hafa í tæri við hann á skemmtilegum tímum. Hins vegar hefur alltaf verið vafamál hvaðan hann mun svo hafa þessa frekju og eru þá allir fjölskyldumeðlimir ekki á eitt sáttir. Guðmundur Óli heldur því náttúrulega fram að þetta sé frá mér, þar sem mín yndislega fjölskylda hefur sagt honum stórýktar sögur af frekjuköstum með meðfylgjandi bláma og yfirliði, sem ég tel að sjálfsögðu vera hreina lygi því ekki get ég munað eftir neinu slíku. En þessu hefur þó verið haldið statt og stöðugt fram. Mér hinsvegar til mikillar ánægju sagði tengdamamma mér alveg stórkostlega sögu af eiginmanni mínum í dag. Hann var pínulítill og tengdamamma með hann kornung sjálf í bænum kominn alla leið frá Siglufirði og kannaðist ekkert við sig hér. Hún ákvað því að taka Strætó á áfangastað til þess að forðast það að villast hér í borg óttans. En það vildi nú ekki betur til en minn heittelskaði fékk þetta líka netta frekjukast í strætó og allir störðu á hann. Hann barði og klóraði mömmu sína sem var komið með skottið á milli lappanna af skömm yfir þessu litla gerpi og endaði svo með því að strætóbílstjórinn sá sér nú ekki annað fært en að snúa sér við og spyrja hvort ekki væri allt í lagi með barnið.
Þetta sýnir bersýnilega hvaðan hann elsku Benjamín hefur sitt stóra skap og neitar mamman alfarið að trúa nokkru öðru, enda ekki hægt að líta framhjá sögunni, fortíðin geymir víst ansi margt um sannleikann.
Kveðja í bili,
Hjördís
Skoða tjaningar.
(7 hafa tjáð sig, síðast Meximieuxpakkið!)
|
Ný síða, nýtt líf.
29.01.2006 22:36 - Hjördís skrifar
Jæja góðir hálsar, þá er loksins komið að þeim tímamótum að nýja síðan okkar fer í loftið, og það ekkert smá flott síða hönnuð af "Ari Páll design Meximieux city FRANCE". Svipar eilítið til annarar síðu sem ég hef séð en kemur lítið að sök. Hér eftir munu fréttir af fjölskyldunni koma inn, vinum og vandamönnum til mikillar ánægju og vonandi dægrastyttingar. Vonum við að þið munuð njóta mikillar ánægju af.
Kveðjum í bili, húsbóndinn, húsmóðirin og litli króginn
Skoða tjaningar.
(1 hefur tjáð sig, síðast BILLA ÓSK OG VÍÐIR ÓLI OG AMMA)
|
| |