|
|
GLEYMDI
10.08.2008 20:22 - Hjördís skrifar
Labbaði fram hjá strætóskýli í dag, sem er ekki frásögu færandi nema að það lá BT-bæklingur inni í skýlinu og þar stóð stórum stöfum...SKÓLADAGAR Í BT...ég gat ekki annað en hugsað "HA HA SUCKERS" og glaðst óendanlega mikið yfir því að vera búin með þetta helvíti...þar til ég ákveð að læra meira ;)
Hefur þú eitthvað að segja??
(3 hafa tjáð sig, síðast Svava)
|
Off again
10.08.2008 19:32 - Hjördís skrifar
Ætlaði nú að setja færslu hér inn 08.08.08 kl. 08:08...en eitthvað seinkaði þeirri færslu aðeins :)
Langar til að byrja á því að taka það fram að ég á einn flottasta kjól sem sögur fara af. Fór í bæinn í gær með það að markmiði að finna mér flottan kjól fyrir brúðkaupið næsta laugardag. Venjulega hefði það tekið mig nokkra daga og ég hefði endað með kjól sem mér hefði fundist ágætur en ekkert samt endilega fyrir mig!! Ekki að ástæðulausu að ég vil bara sauma mín eigin föt takk fyrir...mikið er stefnt að alvöru hönnunar/sníða og saumanámskeiði þegar tími gefst. Ég leit inn í spútnik til að athuga hvort ekki væri eitthvað agalega fínt þar. Sá þennan líka fjölda af svakalegum kjólum, leit svo yfir á vegginn á móti og þá blasti við mér þessi kjóll sem skrifað stóð á HJÖRDÍS með stórum stöfum. Ég hljóp inn í mátunarklefann og reif mig úr fötunum, skellti mér í kjólinn, var of þröngur yfir BRJÓSTIN...GETIÐI ÍMYNDAÐ YKKUR. eN VITI MENN, fann það út að kjóllinn var þrengdur, spretti þrenginunni upp og hann SMELLAÐI (smellpassaði), enda gerður fyrir mig...fékk hann á spott prís og slegið enn meira af honum því ég var ÉG (eða þá að faldurinn var aðeins rifinn, en lítið mál að kippa því í liðinn).Verðið gerði það einnig að verkum skv. útreikningum kvenna að skórnir máttu þá vera á aðeins meira "chiching" verði, sem enduðu svo á því að vera hrikalegast flottustu skór sem sögur fara af (þið hljótið að heyra sögurnar bráðum). Ég hló í bílnum á leiðinni heim því ég hlakkaði svo til að máta hann aftur þegar ég kæmi heim og það gerði ég líka...ætla líka að máta hann aftur á eftir. Nú er ekki til setunnar boðið nú verður saumaskapur frúarinnar að VERULEIKA. Hætt að ganga í fötum sem mér líka semi-vel við...eða þið vitið!! Vona bara að ég steli ekki "thunderinu" frá Svövu á laugardaginn...(smá djók svava, myndi aldrei :s)
Annars held ég að SVava og Óðinn hafi ekki alveg gert sér grein fyrir út í hvað þau voru að fara með því að óska eftir veislustjórn MOI og Möggu...hér verður ein skemmtilegasta brúðkaupsveisla sem sögur munu fara af...enda af nægu að taka!!! Verð í fína kjólnum og skónum uppi á sviði að segja heimatilbúna brandara...gerist það betra?...don´t think so!!!
Það er svo af fína brunasárinu mínu að frétta að það lítur nú út eins og fallega valbráin, fólk starir á þennan furðulega blett sem lítur nú hálfpartinn út eins og þriðja augað á gagnauganu á mér. Hann er orðinn tígullaga og ég búin að reka mig svo oft í hann þegar ég þarf að nudda á mér augun að hann er byrjaður að flagna líka...FALLEGT!! en kjóllinn bætir það upp :)
Af vinnunni er það svo að frétta að ég hélt bara að það hefði einhver verið ráðinn og gleymst að láta mig vita. Ég hringdi því til þess að athuga málið og viti menn. Nú eru tvær stöður í boði og auglýst í Mogganum og umsóknafrestur til dagsins í dag (10. ágúst). Er í lagi!!!!!!!!! hvernig væri að láta þá sem hafa þegar sótt um vita. Fyrir utan það að ég var búin að hringja og biðja um að láta hringja til baka, sem var ekki gert. Ég er hálfpartinn að missa áhugann, þjónustustigið ekki á sínu besta stigi þarna niðurfrá. Maður er látinn hanga og hanga og ekkert verið að spá í að kannski sé maður að bíða og þurfi kannski að leita að annari vinnu...æ áhuginn kemur svo að sjálfsögðu aftur ef svarið verður jákvætt en annars er mér alveg sama! En er þetta ekki svolítið ég í hnotskurn...Fæ svakalegan áhuga, legg allt í sölurnar og hlutirnir þurfa helst að hafa gerst i gær...svo kemur smá stöðnun og þá er áhuginn út í veður og vind...vonum samt að enginn þessu tengdur lesi þetta fyrr en svar er komið...sem btw er væntalegt í lok vikunnar eða byrjun næstu!
Annars erum við bara "off again" til Mývatnssveitar í fyrramálið og svo Austur á firði í brúðkaupið. Geri því fastlega ráð fyrir því að það verði ekki mikil hreyfing hér þar til í næstu viku þegar við verðum komin heim aftur...
Kjartan bróðir er svo 23 ára í dag og óskum við honum INNILEGA til hamingju með daginn!
Hefur þú eitthvað að segja??
(2 hafa tjáð sig, síðast Svava)
|
Hönnunarverndin gengin í gegn
07.08.2008 09:23 - Hjördís skrifar
Jújú fékk þær gleðifréttir seint í gærkvöldi. Reyndar hefur verðlaunanefndin ekki ENNÞÁ skilað lokaverkefninu, þannig að ég hef engum getað sýnt það, Svava hefur þó verið dugleg að klína sínu á vini og vandamenn. Var farin að bíða svolítið eftir svari frá einkaleyfastofu þar sem ég var hræddust um að verðlaunanefndin hefði bara ætlað að stela hugmyndinni ;). Nú verður allt sett á fullt hjá okkur að finna út leiðir til útgáfu.
Dreymdi síðan svakalega skrítinn draum í nótt.
Ég var að fara inn á einhverja útgáfuskrifstofu og átti að ræða við einhvern sölustjóra eða markaðsstjóra. Ég snéri mér í hringi inn á skrifstofunni af því þar var enginn og bara fullt fullt af hurðum. Loksins ákvað ég að banka á eina hurðina sem á stóð sviðsstjóri og opnaði svo. Þegar ég leit inn kom maður flögrandi á móti mér en herbergið var mjög lítið og þröngt, ég velti því líka fyrir mér hvort þetta væri rétti maðurinn. Útí enda, þvert yfir herbergið, var sjúkrarúm allt í óreiðu með hvítustu ábreiðum sem ég hef séð, ég ályktaði (í draumnum) að hann hefði verið að leggja sig í rúminu. Við hlið rúmsins var svo stóll með hvítu áklæði. Sviðsstjórinn var rosalega glaður að sjá mig, ég lagði barnabílstól, sem ég var allt í einu komin með í hendurnar, upp við vegginn rétt fyrir innan hurðina og rölti til hans. Hann settist á rúmið og bauð mér sæti í hvíta stólnum. Hann leit svo á mig og barnastólinn og sagði "Já til hamingju með nýja barnið frá Króatíu"...ég hugsaði að þetta hlyti að vera rétti maðurinn fyrst hann vissi þetta með barnið!!.....þá vaknaði ég....VISSI HVAÐ MEÐ BARNIÐ? KRÓATÍSKT!!!
Draumráðningarnar mínar eru ennþá einhversstaðar niðri í geymslu, hef ekki fundið þær og man ekkert hvar ég pakkaði þeim niður. En þetta þýðir sjálfsagt að heimsmarkaður er á næsta leiti og múltímonný ... við trúum því allavega þar til kemur í ljós að markaðurinn verður einungis í Króatíu og ekkert múltímonný og þá þarf ég á sjúkrarúminu að halda!!! :)
En annars...djöfull svíður mig í brunasárið mitt þegar ég kem við það...sem gerist stundum alveg óvart....kannski þarf ég bara sjúkrarúmið núna strax!!!!
Hefur þú eitthvað að segja??
(1 hefur tjáð sig, síðast Lilja)
|
06.08.2008 23:14 - Hjördís skrifar
Var búin að skrifa heila færslu í huganum á leiðinni heim núna rétt áðan en hún fauk út um leið og ég settist fyrir framan tölvuna. Man ekki fyrirsögnina sem ég ætlaði að klína á færsluna og þ.a.l. ekki innihaldið heldur. Minnistapið tengist sjálfsagt þessu flotta hjartalaga brunasári sem ég er með á gagnauganu. Fór með Svövu í prufugreiðslu í kvöld fyrir brúðkaupið hennar. Á meðan við vorum að fíflast og spjalla (tvennt sem við erum mjög góðar í) þurfti ég náttúrulega að prófa eitthvað krullutæki sem var á staðnum og vann í því að gera mig sæta og fína með því að krulla einn lokk sem féll meðfram andlitinu á mér...gat náttúrulega alls ekki hætt að fikta í krullunni minni þannig að lokum þurfti ég að krulla lokkinn aftur því hann var kominn í klessu út í allar áttir. Á einhvern undraverðan hátt tókst mér að troða járninu í gagnaugað á mér á meðan ég var að reyna að vefja hárinu utanum þannig að ég endaði með fallega brunasárið og krullu sem var eins og á síðhærðum flækingshundi, fallegt! sef sjálfsagt á frosnum baunapoka í nótt í stað elsku koddans míns, vorkenni mér smá og sleiki svo sárið...vandamál bara hvað það er erfitt að ná upp í það!!
Hefur þú eitthvað að segja??
(2 hafa tjáð sig, síðast Lilja)
|
Minningar
05.08.2008 23:39 - Hjördís skrifar
Fór náttúrulega ekkert að sofa eins og planið var heldur að skoða gamlar færslur frá apríl 2006 og júlí sama ár þegar við vorum í frakklandi, djöfull er gaman að lesa svona aftur í tímann. Svo sá ég viðbjóðslegt atriði í sjónvarpinu um leið þannig að ég held ég sé ekkert að fara að sofa í bráð...
Hefur þú eitthvað að segja??
(engin hefur tjáð sig. Vertu fyrst/ur!)
|
Heiðardalurinn
05.08.2008 21:03 - Hjördís skrifar
...eða borgin...annað hvort!!við erum allaveganna komin heim. Við Benjamín og Ísak höfum átt yndislegar þrjár vikur saman fyrir austan og í Mývatnssveit. Guðmundur Óli kom síðan að hitta okkur í sveitinni á fimmtudaginn síðasta, flaug til Akureyrar og við sóttum hann.
Svo óendanlega mikið gerðist að það á eftir að taka fleiri fleiri færslur að reyna að koma því til skila. Systkinamótið á Stöðvarfirði var óendanlega skemmtilegt og fjörugt en frekar yfirdrifið og ekki tími til að snúa sér við eða beygja sig niður. Þegar 9 gaurar og ein gella eru saman komin á einum stað og allir undir 12 ára aldri er voðinn vís...eða frekar friðurinn úti fyrir fullorðna fólkið. Ég sé það á fyrri færslum að ég hef haldið að þetta yrði einhver hvíldarferð en það var nú ekki. En rosa gaman að hafa alla svona saman en ákveðið að hittast ekki á heimili einhvers næst heldur bara leygja nokkra bústaði undir liðið. Amma Sigga fór svo fljótlega að vinna og fólkið fór að tínast í burtu. Þá fór Benjamín að fá mikla heimþrá og vildi bara fara heim og til ömmu í Mývatnssveit. Við fórum síðan til Mývatns miðvikudaginn fyrir verslunarmannahelgi. Skemmtum okkur ærlega á Gúmmískó, en gúmmískórnir gleymdust heima í forstofuskáp og risaskórnir í sveitinni pössuðu ekki alveg á mig...óhætt að segja að þeir hafi verið u.þ.b. 10 númerum of stórir...
Ákváðum svo bara að drífa okkur heim með Benjamín en hann vældi alla leiðina heim um að hann vildi fara aftur til ömmu í Mývatnssveit en ekki heim...við Benjamín flytjum bara í sveitina við tækifæri:) Annars ætlum við bara að drífa okkur aftur í næstu viku í einn til tvo daga á leiðinni austur í brúðkaupið hjá Svövu og Óðni ef amma nennir að fá okkur þ.e.a.s. Frekar mikið af fólki þarna um helgina en ógeðslega gaman.
Smá frí frá amstri hversdagsins í borginni var þó mjög vel þegið og hefði mátt vera mikið lengra þó svo að alltaf sé gott að komast heim. Að eyða svona miklum tíma einn í bíl (ásamt reyndar tveimur smábörnum:)) gefur manni tíma til að hugsa út í hið óendanlega. Ég hugsa svo mikið að stundum held ég að það sé hættulegt fyrir mig. Ég hugsa svo mikið og tala svo mikið við sjálfa mig (heyrði nú einhverntíma að það væri fyrsta stig geðveiki) að stundum veit ég hreint ekki hvort atburðir hafi gerst eða ég bara hugsað svona mikið um þá. Oft er ég að hugsa svo mikið að ég gleymi í raun stað og stund og stoppa allt í einu í því sem ég er að gera og get engan veginn einbeitt mér að því af því það er svo margt sem rennur í gegnum hugann. Hef stundum lent í því að allt í einu er ég farin að keyra allt of hægt því ég hef einfaldlega lyft löppinni af bensíngjöfinni í öllum hugsanaganginum en það sem verra er að oft fer löppin niður á við. Síðustu vikur hef ég hugsað svo mikið um lífið, hvernig lífið var í "gamla daga" þ.e.a.s. Hvernig var að vera krakki og unglingur og hvernig lífið var áður en maður eignaðist börn og hvernig lífið var þegar maður átti bara eitt barn, hvernig lífið hafi breyst og hvernig það myndi breytast ef hinar og þessar aðstæður kæmu upp. Ég er svolítið dugleg í því að setja upp ímyndaðar aðstæður við öllu. Einu sinni trúði ég því meira að segja að það sem ég hugsaði gerðist í alvöru, það gerðist bara á annarri plánetu, eitthvað sem Magnús Skarphéðinsson sálarrannsakandi og miðill taldi mér eitt sinn trú um, heil saga í kringum það sem verður ekki sögð hér að sinni. Gerði þá reyndar í því að hugsa um allt það skemmtilega sem ég vildi að gerðist þá væri ég í það minnsta að upplifa það, bara á annarri plánetu, svolítið skemmtilegt að rifja þessa endalausu vitleysu upp. Ég er líka haldinn óendanlegri fortíðarþrá og hugsa mikið um fortíðina og hvað var allt mikið betra og skemmtilegra þá, gleymi svolítið að lifa í núinu og hugsa um það skemmtilega í núinu. Flestar aðstæður minna mig á eitthvað frá fyrri árum og allt þarf helst að vera eins, eða allavega svipað. Hef lesið dagbækur sem ég hélt um nokkurra ára skeið frá því í Ástralíu og árin eftir það ævintýri og hugsa oft af hverju ég hafi ekki skrifað dagbækur alveg síðan. Bloggsíður, allavega þær sem ég hef haldið eru svolítið yfirborðskenndar og segja aðeins hálfan sannleikann og það sem maður vill eða er sama þó að aðrir viti, dagbækur eru mun persónulegri og maður er hreinskilnari við sjálfan sig. ég hef lesið margt sem ég hef algjörlega gleymt og mig rámar ekki í og um tilfinningar sem ég man ekki eftir að ég hafi fundið og því ótrúlega skemmtilegt að rifja upp, svo er þessi svakalega persónulegi ritstíll, slær út bestu metsölubækur.
Þessi klausa átti að vera svona uþb 200 orðum styttri og átti að enda á því að sjálfsagt fáið þið snefil af þessari hugsanaflóru síðustu vikna í færslum næstu vikna. ég er búin að skrifa færslur í huganum fyrir næstu tvö árin en þær eru víst flestar gleymdar um leið, allavega orðrétt þó innihaldið gæti verið nokkurnveginn það sama :)...svo eru auðvita flestar "færslurnar" of persónulegar til þess að flagga á veraldarvefnum og verða bara geymdar þar til þær gleymast...á morgun...sem er annað mál að ÓTRÚLEGT hvað mjólkurþokan getur verið sterk, ég man ekkert mínútunni lengur...fer vonandi að lagast bráðlega þó svo að það séu nú enn nokkrir mánuðir af brjóstagjöf eftir :)
Reyni að rifja upp atburði síðustu daga á morgun eftir smá svefn...er víst orðin frekar tekin á líkama og sál eftir vökur síðustu vikna.
Hefur þú eitthvað að segja??
(1 hefur tjáð sig, síðast Lilja)
|
Sumarfrí :):):)
11.07.2008 23:29 - Hjördís skrifar
Margt skemmtilegt hefur gerst í vikunni.
Guðmundur Óli hefur verið í vinnunni...sem er reyndar ekkert skemmtilegt, myndum miklu frekar hafa hann bara heima hjá okkur en það er víst ekki í boði!!!
Ég fór í atvinnuviðtal í AFS á mánudaginn eins og áður hefur komið fram og hef ekki getað hætt að hugsa um það. Alltof langt þar til ég fæ svarið. Fór síðan á Austur Indíafélagið með AFS gellunum mínum um kvöldið og við fengum alveg svakalega góðan mat, er ennþá með bragðið í munninum. Reyndar fengum við mæðginin, ég og sá yngri, aðeins í mallana okkar en það stoppaði ekki lengi. Á miðvikudaginn fórum við svo í Hafnarfjörðinn að líta eftir hjörðinni á meðan Lilja fór til sjúkraþjálfa að reyna að fá einhvern botn í bakið á sér og við bara ílengdumst þar langt fram á eftirmiðdaginn. Héldum þá heim að "undirbúa" Eiðagrindó saumó...eða eitthvað svoleiðis (stelpur úr Grindavík sem voru líka á Eiðum um leið og ég). Reyndar var undirbúningurinn í lágmarki, held að letin sé svona u.þ.b. að fara að taka yfir og því æðislegt að fara austur á sunnudaginn og fríska aðeins upp á sig. Það var samt alveg frábært að hitta þær. Í gær og í dag hefur svo nákvæmlega ekkert orðið úr verki og ekkert verið farið út vegna þess hve slappur minni gæinn er :( en hann hefur viljað láta halda mikið á sér og festir ekki svefn nema í smá stund í einu. Hann svaf reyndar alveg síðustu nótt sem betur fer og hefur skánað eftir því sem leið á daginn og sefur núna inni í rúminu sínu. Vonum að hann verði bara voða hress og kátur á morgun.
Eitt gullkorn af eldri syninum í lokinn. Dæmi um það hvað maður verður að passa upp á það sem maður segir í kringum þessi kríli, en það skal tekið fram að þetta er að sjálfsögðu allt lært frá pabbanum.
Þeir feðgar voru vesturfrá að ná í útilegudót með afa Inga. Á leiðinni heim var svo afi Ingi fyrir framan þá á bílnum sínum. Benjamín var nú ekki sáttur við að pabbi sinn ætlaði að tapa fyrir afa og vildi að hann tæki fram úr. Pabbinn vildi það ekki og sagði að hann mætti ekki keyra hraðar því þá myndi löggan koma og taka hann.
Benjamín vildi nú ekki sætta sig við að vera ekki fyrstur heim þannig að hann sagði við pabba sinn "þú mátt víst taka framúr" (dú mátt díst taka bammúr)
Pabbinn sagði "nei"
B: "díst"
P: "nei"
B: "díst"
P: "nei"
B: " Á ég að segja þetta oft, pabbi, þetta er síðasti séns!!!!!!"
Hefur þú eitthvað að segja??
(3 hafa tjáð sig, síðast Inga Björg úr Grindavík)
|
Fyrsta færslan og fyrsta kvefið
10.07.2008 22:39 - Ísak skrifar
Ég fæ loksins að setja mark mitt á þessa frægu síðu sem er greinilega ekki fjölskyldusíða þar sem ég sé sjálfan mig hvergi á henni. Svo á ég ekkert heima í Grindavík. En mér líður ekki vel núna. Síðastliðnu nótt leið mér mjög illa og ég var alltaf að vakna og vildi láta halda utan um mig. Mér fannst nú líka kominn tími til að prófa sportið að vakna á nóttunni, hef aldrei verið mikið fyrir það! Svo er ég með hita líka og vill bara láta halda á mér alltaf og finnst alls ekki gaman að vera einn einhversstaðar...og læt heyra hressilega í mér ef ég er skilinn eftir eða vakna einn í rúminu mínu. Það lekur hor úr nefinu mínu og endalaust slím í hálsinum mínum þannig að ég á stundum erfitt með kyngja og anda þegar ég er að drekka og svo er ég kominn með gröft í bæði augun. Veit ekki hvar þetta endar með mig en mamma mín vorkennir mér agalega og er voða góð við mig.
Hefur þú eitthvað að segja??
(2 hafa tjáð sig, síðast amma GERÐA)
|
Starfsviðtal
07.07.2008 16:00 - Hjördís skrifar
Var í þann mund að koma úr starfsviðtali :) Sótti um laust starf hjá AFS á Íslandi og held það hafi bara gengið þokkalega. Umsóknafrestur er reyndar til 25. júlí n.k. þannig að ég fæ að vita stöðuna í lok mánaðarins. Ef ég fæ starfið þarf ég að byrja í ágúst :) en það er seinna tíma vandamál!
Hefur þú eitthvað að segja??
(3 hafa tjáð sig, síðast Árdís Björk)
|
Útilega
07.07.2008 08:26 - Benjamín skrifar
Við fórum í tjaldútlegu um helgina. Við tókum Víði Óla frændann minn með og fórum í Fossatún, en þar eru rosalega skemmtileg leiktæki. Við fórum að klifra í kastalanum og fórum í minigolf, svo var líka rosa skemmtilegt RISA tafl og keilur og svona rétt hjá. Víðir Óli frændinn minn meiddi sig. Það var strákur í minigolfinu sem sveiflaði kylfunni sinni eins fast og hann gat og golfkúlan hans fór bara beint í ennið á Víði Óla frændanum mínum. Það kom rosa stórt sár og fullt FULLT af blóði og við þurftum að keyra Víði Óla frændann minn til læknisins og læknirinn saumaði hann. Það þurfti að sauma fimm spor í frændann minn. Það var rosalega gott að sofa í tjaldinu, ég fór bara að sofa kl. 21 og svaf bara fram á morgun þó svo að mikið gengi á eins og t.d. læknaferð. Víðir Óli frændinn minn og Ísak litli bróðirinn minn sváfu líka alla nóttina. Það var líka ofsalega heitt og mikil sól. Við þurftum oft að fá sólarvörn og ÍS. Mamman mín og pabbinn minn voru alveg að bráðna en Ísak litli bróðirinn minn svaf bara í hitanum og ég og Víðir Óli frændinn minn vorum bara að leika okkur allsstaðar. Svo pökkuðum við saman og fórum bara heim til ömmu Gerðu og svo bara heim til okkar þar sem ég sofnaði vært :)
Hefur þú eitthvað að segja??
(2 hafa tjáð sig, síðast Svava)
|
TÖNN!!!!!!!!!
03.07.2008 20:48 - Benjamín skrifar
jÚJÚ fyrsta tönnin er KOMIN...hélt þetta um daginn en fannst það nú hálf fáránlegt. Tróð svo puttanum upp í hann í dag og jújú það var ekki um að villast. Guðmundur Óli prófaði líka. Það er vinstri (séð frá Ísak) augntönn í neðri góm sem er fyrst að gægjast upp fyrir :)
Hefur þú eitthvað að segja??
(2 hafa tjáð sig, síðast Helga)
|
| |